Morgunblaðið - 13.09.1990, Page 48

Morgunblaðið - 13.09.1990, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1990 ■ GARRY Fleming er landsliðs- þjálfari íslands í karate. Hann er jafnframt skoskur landsliðsmaður. Fleming kemur hingað til lands reglulega til að segja landsliðs- mönnum tik Forráðamenn Karate- sambands ísiands hafa mikinn hug að hann haldi áfram eftir að samn- ingur hans rennur út um áramót. ■ FLEMING hefur orðið heims- meistari með bresku sveitinni 1984, 1986 og 1988. Hann hefur stjórnað íslenska landsliðinu síðan 1989. ■ TVEIR karatemenn fara á HM í Mexíkó: Gunnar Halldórsson og Siguijón Gunnsteinsson. Þeir fé- lagar greiða sjálfir nær allan ferða- kostnað og uppihald, en áætlaður kostnaður er um 200 þús. kr. ■ ALLIR hnefaleikakappar Zimbabve verða að gangast undir alnæmipróf áður en þeir fara inní hringinn, frá og með næstu áramót- um. Þetta var ákveðið af stjórn hnefaleikasambands Zimbave fyrir skömmu. „Flestir eru óánægðir með breytinguna en við verðum að verja þá sem gætu smitast," sagði tals- maður hnefaleikasambandsins, en í Zimbave hefur hlutfall smitaðra vaxið jafnt og þétt. ■ ÞAÐ er heldur óvenjulegt að Bandaríkjamaður gerist atvinnu- maður í íþrótt í Austur-Þýskalandi en svo hefur þó gerst. Paul Galigu- iri, sem lék með bandaríska Jands- liðinu í knattspyrnu á HM á Iialíu, hefur skrifað undir samning við austur-þýska liðið Hansa Rostock. Samningurinn er til tíu mánaða og fær Caliguiri um 350 þúsund krónu í sinn hlut. Sex bandarískir landsliðsmenn leika nú í Evrópu. Markvörðurinn Tony Meola leikur með Brighton í Englandi, Steve Trittschuh með Sparta Prag í Tékkóslóvakíu og Tab Ramos með Figueres á Spáni. Þá eru þrír leikmenn í Svíþjóð, John Doyle og Hugo Perez með Orgryte og Chris Sullivan með Landskrona. KARATE Halldór Svavarsson, Norðurlandameistari í karate. Morgunblaðið/Einar Falur Morgunblaðið/Þorkell Sigurjón Gunnsteinsson og Gunnar Halldórsson á æfingu. Þeir taka þátt í HM í Mexíkó. Mörg verkefni framundan hjá lands- liðsmönnum íslands í Karate N-írar koma hingað með öflugt lið, en keppt er í sveitakeppni og ein- staklingskeppni." Tveir karatemenn fara á heims- meistarakeppnina sem fer fram í Mexíkó 9. nóvember. Það eru þeir Gunnar Halldórsson, sem varð í örðu sæti í +80 kg flokki á opna enska meistaramótinu fyrr á þessu ári og Siguijón Gunnsteinsson, sem keppir í -80 kg flokki. Opns sænska meistaramótið fer fram í Gautaborg 8. desember og er ráðgert að senda þangað tvo keppendur. Landsliðsmennirnir æfa á fulium krafti og a-Iandsliðshópinn skipa þessir menn: Halldór Svavarsson, Gunnar Halldórsson, Sigurjón Gunnsteinsson, Ólafur Finnsson, Atli Erlendsson, Konráð Stefánsson opg Grétar Halldórsson úr KFR, Helgi Jóhannesson, Breiðablik og Sölvi Rafnsson, Baldri - Hvolsvelli. LANDSLIÐSMENN íslands í karate eru byrjaðir að undirbúa sig fyrir keppnistímabilið á full- um krafti, en mörg stór verk- efni eru framundan. Norður- landamótið í Danmörku, fjög- urra landa keppni í Reykjavík, HM í Mexíkó og opna sænska meistaramótið. Íslandsmeistaramótið í kumite fer fram 22. september og má segja að það sé upphitunarmót fyrir Norð- urlandamótið, sem fer fram í Kaup- mannahöfn 6. október. „Við munum senda fimm til sex menn til Kaup- mannahafnar. Þar á Halldór Sva- varsson Norðurlandameistaratitil að veija, en hann varð sigurvegarar í -65 kg flokki í Reykjavík í fyrra,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, formað- ur Karatesambans Islands. Karl Gauti sagði að mjög sterkt fjögurra landa mót yrði í Reykjavík 13. október. „Skotar, Walesbúar og Halldór á titil að veija á IMM HANDKNATTLEIKUR / REYKJAVIKURMOTIÐ Framstúlkur meistarar Víkingur og KR leika til úrslita í karlaflokki FRAM sigraði örugglega í Reykjavíkur- mótin u í handknattleik kvenna sem lauk fyrirskömmu. Framstúlkur sigruðu í öllum leikjum sínum, enda hafa þær verið nánast ósigrandi í mótinu undanfarin ár. Víkingur hafnaði í 2. sæti og Valur í 3. sæti. Það verða Víkingur og KR sem leika til úr- slita í karlaflokki. Bæði liðin hafa sigrað í öllum leikjum sínum en ekki hefur verið ákveðið hven- ær úrslitaleikurinn fer fram. Leifur Dagfinnsson, markvörður KR, fékk rautt spjald í leik liðsins gegn ÍR og verður því í bann í úrslitaleiknum. IR-ingurinn Ólafur Gylfason fékk einnig eins leiks bann fyrir rautt spjald. Morgunblaöið/Börkur Alex Trúfan, Sovétmaðurinn í liði Víkings, hefur leikið vel með liðinu í Reykjavíkurmótinu. Hér stendur hann við hlið Guðmundur Guðmundssonar, þjálfara Víkings. FRJALSAR IÞROTTIR Hlaupabrautir að nýju á Wembley? Svo getur verið að Wembley verði ekki aðeins musteri knattspyrnunnar á Englandi held- ur einnig fijálsíþrótta, sem eru í meiri uppsveiflu þar í landi en nokkur önnur íþróttagrein vegna frækilegrar frammistöðu breskra fijálsíþróttamanna á undanförn- um árum. í ráði er að leggja hlaupabraut- ir á Wembley en þar hefur ekki verið keppt í fijálsum frá þvi á Ólympíuleikunum 1948. Strax að þeim loknum voru brautirnar fjar- lægðar en við jaðar vallarins lagð- ar malarbrautir fyrir hundakapp- hlaup. Eftir að hafa fylgst með heims- meistarakeppninni í knattspyrnu á Ítalíu og séð fijálsíþróttabrautir umlykja keppnisvellina flesta ák- váðu eigendur Wembley að byggja fijálsíþróttavöll utan um knatt- spyrnuleikvanginn. Kostnaður er ráðgerður 750.000 sterlingspund, jafnvirði 75 milljóna ÍSK. Það munu þeir þó að líkindum aðeins gera fái þeir tryggingu fyrir því að fá a.m.k. eitt stórmót á næsta ári og hafa þeir Grand Prix-stiga- mót Alþjóðafijálsíþróttasam- bandsins þá í huga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.