Morgunblaðið - 15.11.1990, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990
9
SIEMENS
Uppbvottavélar í miklu úrvali!
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verð frá 57.330,- kr.
SMmH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI28300
M
"Guðmundí^ffíSfflSsónæváreíöuryfimíreíitunum:
Ekki skoðanakönnun
dur markiaust gabbj
^^^^^nunfaraframáogiðpróflgöríReyl^avil^^
„Bófaflokkar“ í prófkjöri
Guðmundur G. Þórarinsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, sem ekki náði endur-
kjöri í prófkjöri flokks síns í Reykjavík, er
ekki að skafa utan af því í lýsingum sínurn
á kosningaslagnum. Hann telur sig hafa
átt T höggi við menn, sem beittu vinnu-
brögðum er minna „einna helst á bófaflokk
í Chicago“ og Guðmundur bætir við í Morg-
unblaðssamtali: „. . og þannig er auðvitað
ekki hægt að reka stjórnmálaflokk." Undir
það skal tekið enda ekki vitað til þess að
þeir Al Capone og félagar í Chiacgo hafi
stjórnað fulltrúaráði í stjórnmálaflokki, þótt
þeir hafi víða látið að sér kveða.
Svikabrigsl
Þeir tókust á um fyrsta
sætið á framboðslista
Framsóknarflokksins í
Reykjavík Guðmundur
G. Þórarinsson þingmað-
ur og Finnur Ingólfsson,
aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra og for-
maður Fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna í
Reykjavík. Guðmundur
lýsir samskiptum þeirra
þannig í Morgunblaðs-
samtali:
„.. hann [Finnur] full-
vissaði mig um að engin
samkeppni yrði um 1. og
2. sætið, þar sem hann
sætti sig við og stefndi
að 2. sætinu, og því væri
enginn ágreiningur um
þetta. Að því gefnu
fannst mér ekki ástæða
til að rekast í þvi hvar
prófkjörið var, og féllst
á þetta fyrirkomulag á
þeirri forsendu að þama
væri um drengskapar-
samkomulag tveggja
manna að ræða. Siðan
skeði það 4-5 dögum fyr-
ir prófkjörið, þegar ten-
ingum er kastað og allt
orðið ljóst, að Finnur
hringir í mig og segir að
hann hafi ákveðið að
stefna á 1. sætið og beij-
ast fyrir þvi. Þá er ég
kominn í lokaða stöðu,
og tveim dögum fyrir
kosninguna er mér orðið
ljóst að ég er gengúm i
gildru.“
Þetta er ófögur lýsing
sem Finnur mótmælir og
segist hafa tilkynnt Guð-
mundi sérstaklega að
hann myndi beijast af
fuUum krafti fyrir fyrsta
sætinu. „Það á því ekki
við rök að styðjast að ég
liafi komið í bakið á hon-
um,“ sagði Finnur í
Morgunblaðinu.
Þeir sem utan við þessi
svikabrigsl standa
staldra við tvennt. í
fyrsta lagi er þetta alls
ekki í fyrsta sinn, sem
viðmælendur Finns Ing-
ólfssonar saka liann um
að standa ekki við það
sem þeir töldu hann liafa
sagt. í öðru lagi er erfitt
að sjá, hvemig Guð-
mundur G. Þórarinsson
getur kaUað þetta próf-
kjör „marklaust gabb“,
eins og hann gerði, þar
sem þó var barist um
fyrstu sætin, en hann
vildi að kjósendur gengju
að kjörborðinu til þess
eins að staðfesta leyni-
samkomulag sitt og
Finns Ingólfssonar.
Steingrímur
bíður
í sama mund og allt
logaði í átökum imian
Framsóknarflokksins í
Reykjavík bámst þau
tiðindi að Steingrímur
Hermannsson forsætis-
ráðherra stæði í bréfa-
skriftum við Yasser Ara-
fat, foringja Frelsissam-
taka Palestínumanna
(PLO), vegna vanda Gísla
H. Sigurðssonar, Iæknis
í Kúvæt, sem nú er í
Bagdad og kemst ekki
frá Irak. Gísli telur þessi
bréfaskipti að vísu máli
sínu ekki beinlínis til
fi-amdráttar og Stein-
grimur sagði um þau í
Morgunblaðinu á þriðju-
dag: „Ég ætlaði að halda
þessu leyndu en þetta
hefur hins vegar kvisast
út og ég vil ekki vekja
neinar væntingar." Á
þriðjudagskvöld upplýsti
Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra í
útvarpssamtali, að hann
hefði ekki vitað um bréf
Steingríms til Arafats og
gaf til kynna, að það
væri fremur i óþökk
sinni, þótt hann skyldi að
mannúðarsjónarmið
gætu réttlætt það.
Bréfið til Arafats
skyggði á annað í um-
ræðum fjölmiðla við
Steingrim sama daginn
og Guðmundur G. Þórar-
insson talaði um bófa-
flokkimi meðal fram-
sóknarmanna í
Reykjavík. í gær segir
formaður Framsóknar-
flokksins svo, að hann
ætli ekki að skipta sér
af máli Guðmundar G.
nema því verði vísað til
framkvæmdíistjórnar
flokksins. Hann hnýtir
því við að hann hafi heyrt
sárindi hjá stuðnings-
mönnum Haralds Ólafs-
sonar, að hann sé ekki
búinn að gleyma því sem
gerðist fyrir siðustu
kosningar. Með þessu er
Steingrimur að sneiða að
Guðmundi G. og gefa
honum til kynna að verði
farið ofan í mál hans og
Finns þurfi kannski einn-
ig að skoða það, hvemig
Guðmundur G. bar sigur-
orð af Haraldi. Fram-
sóknamiönnum ættu
ekki að koma ummæli af
þessu tagi frá formanni
sínum á óvart.
Undir teppið
I Morgunblaðinu í gær
er leitað álits fomianna
þriggja framsóknarfé-
laga í Reykjavík á kröfu
Guðmundar G. Þórarins-
sonar um að prófkjörið
verði lýst ógilt.
Svör þeirra em á einn
veg. Þau vilja að sjónar-
mið og kröfur þing-
mannsins séu hafðar að
engu. Aima Margrét Val-
geirsdóttir, formaður
Félags ungra framsókn-
armanna, setur salt í sár
Guðmundar G. með því
að segja: „Hann er ekki
sá maður sein hefur stutt
okkur í okkar starfi, því
miður. Kannski er það
að koma í ljós núna að
við höfum ekki notið
hans stuðnings við, og
þar af leiðandi nýtur
haim auðvitað ekki okk-
ar stuðnings á móti.“
Viðbrögð flokksfor-
ystumanna framsóknar í
Reylqavik benda því ekki
til amiars en þess að þeir
ætli að sópa kæmm og
umkvörtunum Guðmund-
ar G., þingmanns síns,
undir teppið og Finnur
Ingólfsson hafi þannig
fullan sigur bæði í próf-
kjörinu og hinum óvand-
aða eftirleik á flokksvett-
vangi framsóknar í höf-
uðborginni.
Auðlindarbréf
deið til skattalækkunar
A
HLUTABRÉFAS JÓÐURINN
AUÐLIND HF.
Aðalsöluaðilar Auðlindarbréfa:
Kaupþing hf., Kringlunni 5,
Reykjavík, Kaupþing Norðurlands hf.,
Ráðhústorgi 1, Akureyri, Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóður
Hafnarfjarðar, Sparisjóður
Vestmannaeyja, Sparisjóður Kópavogs,
Sparisjóðurinn í Keflavík og
Verðbréfaviðskipti Búnaðarbanka
íslands í Reykjavík.
-ávöxtun umfram almennar sparnaðarleiðir
-betri trygging en á almennum hlutabréfum
-heimild til skattaafsláttar
-sérfræðiþekking þér í hag
Auðlind hf. er hlutabréfasjóður í vörslu Kaupþings sem ávaxtar
fé hluthafa með kaupum á hlutabréfum og skuldabréfum
traustra og vel rekinna fyrirtækja.
Sala á Auðlindarbréfum hófst 31. október. Boðin eru út
hlutabréf að nafnverði alls 50 miljónir króna (upphafsgengi
1,00). Gengi bréfanna er reiknað út daglega.
Auðlindarbréf veita heimild til skattaafsláttar 1990.
Skattalækkun vegna kaupa á hlutabréfum gat á síðasta ári
numið allt að kr.86.800 þegar hjón eiga í hlut.
Kynntu þér ótvíræða kosti Auðlindarbréfa. Leitaðu nánari
upplýsinga hjá okkur.
Sölugengi verðbréfa 15. nóvember 1990 1
U Einingabréf 1 5,161
Einingabréf 2 2,800
1 Einingabréf 3 3,395 1
Skammtímabréf 1,736
y Auðlindarbréf 1,000
Kringlunni 5, sítni 689080