Morgunblaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR iV. NÓVEMBER 1990
61
Ufán/R
FOLX
■ KÖLN vill nú losna við dýrasta
leikmann sinn Henrik Andersen
sem liðið keypti fyrir 3,5 milljónir
marka frá Anderlecht. Hann þykir
hreint arfalélegur
FráJóni og hefur varla kom-
H. Garðarssyni ist í varaliðið. Hann
1 Þýskalandi lék þó með um helg-
ina en fékk lægstu
einkunn og er ekki búist við að
Köln fái nema rúma milljón marka
fyrir hann.
■ JEAN-Marie Pfaff, fyrrum
landsliðsmarkvörður Belga, er
hættur. Hann tilkynnti það í viðtali
hjá belgískri sjónvarpsstöð um helg-
ina en hann var fyrir skömmu rek-
inn frá tyrkneska félaginu Trap-
sonspor.
■ ANNAR markvörður var í
sviðsíjósinu um helgina. Alexander
Famula, markvörður Karlsruhe,
átti hræðilegan dag, fékk á sig tvö
klaufamörk og var skipt útaf í hálf-
leik. Hann rauk heim í fússi og
horfði á síðustu mínúturnar í sjón-
varpinu en Karlsruhe sigraði 3:2.
■ ANDREAS Thom, skemmti sér
hinsvegar mjög vel um helgina.
Hann skoraði fyrir Leverkusen í
2:0 sigri á Köln. Um kvöldið fór
hann svo á skemmtun hjá félaginu
og vann þar bifreið, Audi Quadro,
sem metinn er á tæpar tvær milljón-
ir króna.
■ IGOR Belanov þykir líklegur
til að hreppa titilinn óheppnasti leik-
maður úrvalsdeildarinnar. Skömmu
eftir að hann kom til Gladbach var
eiginkona hans handtekin fyrir búð-
arþjófnað og hvert óhappið hefur
rekið annað. Hann kemst ekki leng-
ur í lið og til að bæta gráu ofan í
svart krafðist hann þess að fá borg-
að í dollurum. Dollarinn hefur lækk-
að um rúm 20% gagnvart þýska
markinu síðan Belanov skrifaði
undir og hefur hann því orðið af
góðri summu.
■ JOHN Gayle, sem leikið hefur
með Wimbledon í þrjú ár, var í
gær seldur til Fulham fyrir 150
þúsund pund.
Andreas Thom.
■ BILLY Bonds varð 60 þúsund
pundum ríkari í fyrrakvöld er West
Ham og Tottenham áttust við í
góðgerðarleik á Upton Park.
Bonds hefur verið hjá West Ham
í 23 ár, fyrst sem leikmaður síðan
þjálfari og nú sem framkvæmdá-
stjóri. Hann á 700 leiki að baki
fyrir félagið og er eini leikmaðurinn
í Englandi sem fengið hefur tvo
góðgerðarleiki. West Ham sigraði
Tottenham, 4:3, og gerði Billy
Bonds sigurmarkið sjálfur úr víta-
spymu.
■ GARTH Crooks, fyrrum leik-
maður Tottenham, Stoke, WBA,
Man. Utd. og Charlton , hefur
ákveðið að leggja knattspyrnuskóna
á hilluna, ■ eftir þrálát meiðsli.
Crooks, sem er 32 ára, mun segja
starfi sínu sem formaður samtaka
atvinnuknattspyrnumanna lausu.
Hann hefur hug á að gerast út-
varps- og sjónvarpsmaður.
■ HEIDI Zeller, ein besta skíða-
kona Svisslendinga, viðbeinsbrotn-
aði er hún féll illa á æfingu með
svissneska landsliðinu í Sölden í
Austurríki í gær. Zeller,' sem er
24 ára og hefur verið sögð arftaki
Michelu Figini og Mariu Walleser
í svissneska liðinu, var flutt á
sjúkrahús til Bern í Sviss. Reiknað
er með að hún verði ekki með í
heimsbikarkeppninni í vetur.
■ JAN-Ove Waldner, heims-
meistarinn sænski í borðtennis,
varð sigurvegari í heimsbikar-
keppninni eftir að hafa unnið
Kínverjann Ma Wenge í úrslitum
á heimsbikarmótinu í Chiba í Jap-
an í gær. Svíinn sigraði í jöfnum
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaiið/Þorkell
Kolbeinn Pálsson, formaður Körfuknattleikssambandsins (t.v.) og Árni Þór
Árnason, framkvæmdastjóri Austurbakka, handsala samninginn.
KKÍ endurnýjar samn-
ing við Austurbakka
Körfuknattleikssamband íslands hefur endurnýjan samning sinn við
Austurbakka h.f. Samningurinn er til eins árs, tengdur vörum frá
Nike og Spalding. Samið var við Austurbakka beint, en ekki erlendu fyrir-
tækin. Austurbakki leggur til bolta, skó, keppnis- og æfingagalla, sokka,
töskur, boli og léttan fatnað á landsliðin, auk þess sem allir er æfa með
einhveiju fimm landsliða Islands fá verulegan afslátt í versluninni Frísport.
Leikmönnum karlalandsliðsins ber að leika í vörum merktum Nike í öllum
landsleikjum. Á móti lætur KKÍ Austurbakka í té auglýsingaskilti á öllum
landsleikjum sem fram fara á vegum KKÍ. Jafnframt í mótaskrá og öðr-
um þeim bæklingum sem gefnir eru út á vegum KKÍ. Þessi stuðningur
Austurbakka við KKÍ er metinn á um tvær milljónir króna.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
KA - Grótta 25:28
íþi'óttahöllin á Akureyri, Íslandsmótið í handknattleik, 1. deild — VÍS-keppnin, miðvikudag-
inn 14. nóvember 1990.
Gangur leiksins: 3:0, 5:6, 8:9, 8:13, 10:15, 12:18, 14:21, 16:25, 20:25, 25:26, 25:28.
Mörk KA: Hans Guðmundsson 10/4, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 5, Pétur Bjamason 5,
Erlingur Kristjánsson 3, Andrés Magnússon 2.
Varin skot: Axel Stefánsson 3/1 og Björn Björnsson 3.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Gróttu: Knstján Brooks 7/3, Svafar Magnússon 6, Páll Björnsson 5, Stefán Arnar-
son 4, Davíð Gíslason 3, Gunnar Gíslason 2, Friðleifur Friðleifsson 1.
Varin skot: Þorlákur Árnason 11.
Utan vallar: 6 minútur.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson.
Áhorfendur: Um 200.
Jean-Marie Pfaff.
Övæntur Gróttusigur
leik, 21:13, 13:21, 21:19, 12:21 og
21:17. Walner sagðist vera mjög
ánægður með sigurinn enda Ma
mjög erfiður andstæðingur. „Þetta
var einn besti leikur minn í langan
tíma,“ sagði Waldner sem vann
Chen í undanúrslitum, 21:13,
21:23, 21:19, 16:21 og 21:18, en
Ma vann Svíann, MikaeL-Appel-
gren, í undanúrslitum; 21:16,
23:21, 11:21, 19:21 og 21:9. Chen
vann síðan Appelgren í keppninni
um bronsverðlaunin.
■ YANG YANG frá Kína lenti í
erfiðleikum með Pontus Jantti frá
Finnlandi í fyrstu umferð á heims-
bikarmótinu í badminton í Band-
ung í Idonesíu í gær. Yang, sem
er efstur á styrkleikalistanum, vann
fyrsta leikinn mjög auðveldlega eft-
ir aðeins 13 mínútur, 15:5. Jantti
byrjaði vel í öðnim leik og komstí
11:4, en þá tók Yang til sinna ráða
og vann, 15:13. Úrslitin fara fram
á sunnudag í Jakarta.
Gróttumenn þurftu ekki að hafa ýkja mikið fyrir sigri á KA í gærkvöldi
í ótrúlega sveiflukenndum. KÁ-menn gerðu þijú fyrstu mörkin en
síðan tók Grótta völdin og hafði fimm marka forystu í leikhléi. Forskotið
óx og var níu mörk þegar tíu mínútur voru eftir. Það var fyrst og fremst
ótrúlega lélegur leikur KA sem varð þess valdandi að
Grótta náði þessari stöðu en gestimir sýndu engan snilldar-
leik. Undir lokin vökuðu KA-menn til lífsins og náðu að
minnka í eitt mark en tvö síðustu mörkin gerði Grótta.
Meirihluta leiksins stóð ekki'steinn yfir steini hjá KA,
hvorki í vörn né sókn og gestirnir nýttu sér það með skynsömum leik.
Stefán Arnarson stýrði sínum mönnum vel og Svafar Magnússon sterk-
ur. Lykilmenn KA brugðust hinsvegar í leiknum en Sigurpáll stóð sig vel
í lokin.
Anton
Benjamínsson
skrilarfrá
Akureyri
Valur - ÍR 25:15
Iþróttahúsið að Hlíðarcnda, íslandsmótið í handknattleik, .l.deild — VÍS keppnin — mið-
vikudaginn 14. nóvember 1990.
Gangur leiksins: 5:2, 7:6, 10:7, 17:9, 21:11, 25:15.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 6/2, Jón Kristjánsson 4, Júlíus Gunnai*s.son, Jakob Sigurðs-
son 3, Brynjar Harðarson 3, Dagur Sigui'ðsson 2, Finnur Jóhannsson 2, Ólafur Stefánsson
1 og Örn Arnarson 1.
Varin skol: Einar borvarðarson 7. Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk ÍR: Matthías Matthíasson 5, Frosti Guðlaugsson 3, Ólafur Gyl/ason 3/1, Magnús'
Ólafsson 2, Guðmundur Þórðai*sson 1 og Róbeit Rafnsson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 13. Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Guðmundur Skúli Stefánsson og feirgir G. Ottósson. Þeir misstu tökin á leiknum
í síðari hálfleiknum. Áhorfendur: 32.
Ikvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR:
Tveir leikir verða leiknir í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í kvöld kl. 20.
Haukar fá KR í heimsókn í íþrótta-
húsið við Strandgötu og í Njarðvík
taka heimamenn á móti IR.
Einn leikir verður kl. 18 í 1. deild
kvenna: Haukar - ÍS.
HANDKNATTLEIKUR:
Tveir leikir verða leiknir í bikarkeppni
kvenna í Seljarskóla. ÍR mætir Stjöm-
unni kl. 20 og Ármann leikur gegn
Víkingi kl. 21.15.
Viðnám í fyrri hálf leik
Valsliðið var lengi í gang og það var aðeins seigla þremenninganna;
Valdimai-s, Jakobs og Jóns sem að Iryggði þeim nauma forysta í
leikhléi. ÍR-ingar léku agaðan sóknarleik og Hallgrímur var frábær í ^ -
markinu. í síðari hálfleiknum hrundi leikur ÍR, leikmenn rifust innbyrðis
og í dómurum og kæruleysi var algjört í leik liðsins. Vals-
Frosti menn gengu á lagið, náðu fljótlega yfirburðastöðu og gátu
Eiðsson leyft varamönnunum að spreyta sig síðasta stundarfjórð-
skrifar unginn.
Valdimar, Jón og Jakob voru bestir í Valsliðinu sem
hefur oft verið meira sannfærandi. Hjá ÍR átti Hallgrímur stórleik í fyrri
hálfleik og Mattías var atkvæðamikill undir lokin.
frumsýnir toppgrínmyndina
ÚR ÖSKUNNI í ELDINN
Bræðurnir Charlie Sheen og Emilio Estevez eru mættir til leiks sem ruslakallar
í einni af vinsælustu gamanmyndunum vestanhafs í haust.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.