Morgunblaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ -EIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990 .37 Fargjöld hækka um , 10%hjáStrætis- vögnum Akureyrar Kaup á nýjum vagni til athugunar BÆJARRÁÐ hefur samþykkt hækkun á fargjöldum Strætis- vagna Akureyrar, en hún kem- ur í kjölfar hækkunar á olíu. Fundur um íslenskt at- i vinnulífl992 ÍSLENSKT atvinnulíf eftir 1992 j er yfirskrift funda sem haldnir hafa verið víðsvegar um landið að undanförnu, en á föstudag ^ verður haldinn um þetta efni fundur á Akureyri. Hann verð- ur á Hótel KEA og hefst kl. 15. Umræðuefni á fundinum verður annars vegar áhrif sem breytingar á markaðsaðstæðum í Evrópu hafa á íslensk fyrirtæki þegar markaðir 1 Evrópubandalagsríkjanna verða I sameinaðir í árslok 1992 og hins vegar verður fjallað um þjónustu- hlutverk atvinnuveganna. Frummælendur á fundinum eru Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, Jón Steindór Valdimarsson, EB-sérfræðingur Félags ísl. iðnrekenda, Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðntæknistofn- unar, Ingjaldur Hannibalsson, framkvæmdastjóri Útflutningsr- áðs, og Gunnlaugur Sigmundsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags- ins. SVA á nú fjóra strætisvagna og er farið að huga að kaupum þess fimmta, en einnig þykir afar brýnt að bæta úr bágri aðstöðu farþega í miðbæ. Stefán Baldursson forstjóri SVA sagði að ákveðið hefði verið að hækka einstök fargjöld fullorð- inna úr 55 krónum í 60 og barnaf- argjöld úr 20 krónum í 22. Sú breyting tók gildi í haust, að ungl- ingar upp að 16 ára aldri greiða barnafargjald og sagði Stefán að það væri gert til að koma til móts við nemendur í skólum. Fargjöld SVA hafa ekki hækkað í rúmt ár eða frá því í október á síðasta ári og sagði Stefán að á þeim tíma hefði öll þjónusta sem kaupa þyrfti hækkað, en hækkun- in nú væri þó fyrst og fremst til komin vegna hækkunar á olíu- verði. Um 20% af rekstri vagnanna eru vegna olíukaupa. Vagnar SVA eru nú fjórir, auk tveggja vagna sem sinna ferliþjón- ustu og sagði Stefán að farið væri að huga að kaupum á nýjum vagni, einkum til að bæta þjónustu á Norðurbrekku. Af öðrum verk- efnum, sem brýnt er að leysa, sagði Stefán að aðstaða farþega í miðbænum væri mjög bágborin. „Við höfum margítrekað óskir um að bætt yrði úr þessu, en það hef- ur því miður ekkert gerst ennþá,“ sagði Stefán. Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra: Flokkurinn að styrkjast eft- ir erfið átök „ÉG ER mjög ánægður með uppröðun listans og sérstaklega þyk- ir mér ánægjulegt hversu eindreginn stuðning ég hlaut til að Ieiða flokkinn í kjördæminu,“ sagði Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- ráðherra, sem varð í 1. sæti við val á framboðslista Framsóknar- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra á aukakjördæmisþingi sem haldið var á Húsavík um síðustu helgi. Guðmundur sagði að mjög rót- tækar breytingar hefðu verið gerð- Innanhússmót í knattspyrnu COCA-cola mótið í innanhúss- knattspyrnu verður haldið í Iþróttahöllinni á Akureyri dag- ana 23.-24 nóvember, en frestur til að tilkynna þátttöku rennur út á föstudag, 16. nóvember. Það er Ungmennafélagið Reynir á Árskógsströnd sem sér um mó- tið og er þetta í annað sinn sem slík mót er haldið. Spilað verður eftir reglum KSÍ. Veitt verða verðlaun fýrir 1., 2. og 3. sæti og það lið sem lendir í 1. sæti hlýtur mat og rokksýn- ingu í Sjallanum. Þá verða. veitt aukaverðlaun til markaskorara mótsins. Festur til að tilkynna þátttöku er fram á föstudag, 16 nóvember, en Garðar Níelsson á Árskógs- strönd tekur á móti þátttökutil- kynningum. ar á listanum fyrir síðustu alþing- iskosningar, röð manna breyttist og nýtt fólk kom inn á listann. „Það kemur líka nýtt fólk inn á listann núna, þannig að ég er bæði ánægður með uppstillinguna og bjartsýnn á gengi listans með þetta ágæta fólk í forsvari." Guðmundur kvaðst vera mjög ánægður með þann stuðning sem hann hefði hlotið, en hann fékk nær öll greidd atkvæði 1. sætið. „Þetta er mikil traustsyfirlýsing fyrir mig, sérstaklega eftir þau miklu átök sem urðu við framboð mitt í 1. sætið fyrir siðustu kosn- ingar. Það hafði þær afleiðingar að hluti af traustu flokksfólki treysti sér ekki til að styðja listann eins og hann var skipaður fyrir tjórum árum. Núna er Ijóst að megnið af því fólki hefur komið aftur til stuðnings við hann. Á þinginu var fólk sem ekki var ánægt með uppstillinguna siðast, en stendur með mér á nýjan leik. Það þykir mér vísbending um að flokkurinn er aftur að styrkjast eftir erfið átök,“ sagði Guðmundur Bjarnason. Morgunblaðið/Rúnar Þór Endurbygging leikskólans Iðavalla er hafin. Endurbætur hafnar á Iðavöllum VINNA er hafinn við endur- byggingu leikskólans Iðavalla á Oddeyri, en áætlað er að verja 4,2 milljónum króna í endur- bætur. Tilboði Páls Alfreðsson- ar verktaka hefur verið tekið, en samtals er áætlað að veija 4,2 milljónum króna í verkið. Ágúst Berg húsameistari Akur- eyrarbæjar sagði að búið væri að rífa út úr loftinu, en þak hússins hefði þurft nánari skoðunar við, þar sem ekki hefði fyrirfram verið vitað um ástand þess annað en að það hefði sigið nokkuð. Tilboði frá Páli Alfreðssyni verktaka hefur verið tekið, en bæjarstjórn ákvað að veija 4,2 milljónum króna í verkið. í fyrstu var miðað við að því lyki um ára- mót, en vegna ýmissa tafa sem orðið hafa er reiknað með að verk- inu ljúki 15. janúar á næsta ári. Áætlað hafði verið að gera við rafmagnsofna í húsinu fyrir um 150 þúsund krónur, en Ágúst sagði að ákveðið hefði verið að leggja nokkurt fé til viðbótar fram til verksins og leggja hitaveitu heim að húsinu. Þau böm sem voru á Iðavelli hafa verið á nýrri dagvist, Holta- Unnið á Iðavöllum: Karl og Þórður pípulagningamenn og smiðirn- ir Jóhannes og Halldór. koti við Þverholt, en þangað flutt- ust þau er leikskólanum þeirra var lokað í sumar. Sigríður Gísla- dóttir fóstra sagði að haldinn hefði verið foreldrafundur þar sem for- eldrum var kynnt hvað á döfinni væri varðandi endurbætur á Iða- völlum og þar hefði þeim einnig verið gerð grein fyrir þeirri hverfaskiptingu sem í gildi er í bænum. Börn í Glerárhverfi geta þannig fengið að vera áfram á Holtakoti eftir að Iðavellir eru til- búnir, en þau sem búsett eru í öðrum bæjarhlutum myndu þá flytjast á ný á Iðavelli. Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson Einangrunarstöð fyrir hunda og ketti er nú orðin fokheld og er búist við að hægt verði að taka stöðina í notkun næsta vor. Hrísey: Einangrunarstöð fyrir hunda og ketti fokheld EINANGRUNARSTÖÐ fyrir hunda og ketti, sem verið er að flytja frá útlöndum til Islands, er nú orðin fokheld. Unnið verður inni í vetur og reiknað er með að framkvæmdum ljúki er líður á vorið. Siguijón Helgason bústjóri í Ein- angrunarstöð holdanauta í Hrisey sagði að framkvæmdir vegna bygg- ingar stöðvarinnar hefðu hafist í fyrravetur og var þá steyptur upp gmnnur. Það eru héimamenn sem um bygginguna sjá; en verktakinn Björk hf. í Hrísey hefur byggt hús- ið. Einangrunarstöðin er um það bil 100 fermetrar að stærð og þar verður pláss fyrir 7-8 búr, en mein- ingin er að þar verði hýstir bæði hundar og kettir. Sigurjón sagði að unnið yrði inni við í vetur og reiknuðu menn með að framkvæmdum lyki í mars eða apríl á næsta ári, þannig að næsta vor ætti ekkert að vera því til fyrir- stöðu að taka húsið í notkun. Enn hefur ekki verið ákveðið á hvern hátt starfsemin verður, þ.e. hvort hún muni heyra undir Ein- angrunarstöð holdanauta eða vera með öðrum hætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.