Morgunblaðið - 15.11.1990, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990.
11
Mosi og grj ót
Kristinn G. Jóhannsson: Haustmosalyng. Olía á striga. 1990.
Myndlist
EiríkurÞorláksson
Þeir eru ekki margir myndlist-
armennimir hér á landi, sem eiga
langan feril að baki og hafa kosið
að búa og starfa allan þann tíma
fjarri höfuðborgarsvæðinu. Krist-
inn G. Jóhannsson er einn fárra;
hann er norðanmaður í einu og
öllu, en hefur kosið að fara suður
yfir heiðar annað slagið með sýn-
ingar, en slíkt hefur hann nú
gert, þriðja árið í röð, með sýn-
ingu sinni í FÍM-salnum.
íbúar höfuðborgarsvæðisins
vilja oft gleyma, að þó þar sé að
finna nafla listalífs landsmanna,
þýðir það engan veginri að ekki
sé stunduð myndlist annars staðar
á landinu. Því til vitnis má nefna
Myndlistaskólann á Akureyri,
sýningarsalinn Slunkaríki á
Isafirði, og þá staðreynd að sífellt
fleiri listamenn af höfuðborgar-
svæðinu leita sér skjóls frá skark-
alanum með því að koma sér upp
vinnuaðstöðu úti á landi, og flytja
jafnvel þangað alfarnir. Vegna
þessa er vert að fylgjast með því
hvort einhver annar taktur finnst
í myndlist þeirra sem búa utan
borgarlífsins, án þess þó að hafín
sé leit að
einhverri homamennsku.
Kristinn G. Jóhannsson hefur
fyrir löngu fundið sinn takt. Sýn-
inguna nú nefnir hann „Málverk
um gamburmosa og stein“, og
bera allir titlar verkanna því vitni
hvert listamaðurinn sækir við-
fangsefni sín. Það er hið smáa í
náttúrunni sem heillar; hið þraut-
seiga eðli þessa lægsta gróðurs,
sem nær tökum á umhverfi
sínu á klöppum, í hrauni, dýjum
og á steinum þar sem aðrar glæst-
ari tegundir ná engri festu. Þessi
staðfesta höfðar á vissan hátt til
listamanna, sem oft hafa mátt
leitast við að skapa sér vettvang,
þar sem enginn annar taldi
nokkra von til.
Þegar málverk og mosi era
nefnd í sömu andránni verður
mörgum eflaust hugsað til Jó-
hannesar Kjarvals, sem tók miklu
ástfóstri við hraunmosann sem
viðfangsefni í list sinni. Að
nokkru fetar Kristinn slóðir sem
Kjarval raddi í sumum myndanna
á þessari sýningu, t.d. með þeirri
nærmynd steina og mosa sem
tekur upp mest af myndfletinum,
þar sem ijöll og himinrönd gnæfa
yfir í fjarlægð efst í verkum eins
og „Mosagötur“ (nr. 2), „Grá-
mosi“ (nr. 6) og „Mosaþemba"
(nr. 9). I öðram verkum leitar list-
amaðurinn annað, og fyrir tengsl
nafngiftanna við íslenska náttúru
eiga gestir á sýningunni auðvelt
með að sjá hversu stutt er frá
fijálsu litaspili abstraktlistarinnar
til þess auðs litaspjaldsins, sem
hin smágerða veröld býður upp á.
Raunin er sú, að í náttúrunni
hefur Kristinn fundið þau við-
fangsefni, sem ýmsir leita utan
hlutveraleikans. Verk eins og
„Steinató“ (nr. 27), „Blómastein-
ar“ (nr. 19) og „Haustmosalyng"
(nr. 3) era abstraktmyndir jafnvel
með þeim nöfnum sem listamað-
urinn hefur gefið þeim; með því
að vera nærgöngull við náttúruna
má því finna flest það sem mynd-
listin hefur tekið sér fyrir hendur
í gegnum tíðina.
Það er vert að benda á að litflet-
ir mosans og steinanna era aldrei
fjölskrúðugri en í nærmyndum
Kristins. Það sem virðist í fyrstu
grár flötur reynist við nánari
skoðun samsett úr bleikum, bláum
og grænum litum, eins og þræðir
mosans liggi alls staðar. Því verða
myndirnar mjög litskrúðugar,
jafnvel svo að jaðrar við ofhlæði,
einkum í minni verkunum. En
áminningin er sú að oft leita menn
langt yfir skammt í sinni náttúru-
skoðun sem fleiru.
Kristinn hefur í list sinni tekið
þátt í að halda við langri hefð
landslagsmynda í málverkinu. Sú
staðreynd að fjöldi ungra málara
er nú tekinn að fást við landslag
á einn eða annan hátt er ótvíræð
sönnun þess að þetta viðfangsefni
á sér djúpar rætur með þjóðinni
og verður seint þurrausið. Því er
vel þess virði að líta á hvernig
listamaðurinn að norðan nálgast
viðfangsefni sitt, gamburmosa og
stein, að þessu sinni.
Sýningu Kristins í FÍM-salnum
lýkur sunnudaginn 18. nóvember.
■ HÖRPUÚTGÁFAN hefur gef-
ið út nýja bók, Gullkorn dagsins
— fleyg orð og erindi, eftir ís-
lenska menn og erlenda, eitt fyrir
hvern dag ársins. Ólafur Haukur
Arnason valdi efnið. Bókiri er
myndskreytt af Bjarna. Jónssyni
listmálara. í formála segir: „Á
þeim blöðum, sem hér fara á eftir,
koma fram með hugrenningar sínar
íslenskur menn og erlendir, heims-
frægir garpar og aðrir sem flestum
eru ókunnir. En ræða þeirra snýst
í megindráttum um hið sama.
Manninn, hinn skyni gædda mann,
í flókinni veröld þar sem flest virð-
ist á hverfanda hveli og erfitt reyn-
ist tíðum að greina hismi frá
kjarna.“ Bókin er 159 bls. unnin
að öllu leyti í prentsmiðjunni Odda
hf.
■ DÖGUN-PRENTVERK hefur
gefið út bækur um eðalsteina og
nálarstunguaðferðir og nefnist hún
Eðalsteinar opna hugann eftir
Brett Bravo. í inngangsorðum seg-
ir höfundur m.a.: „ Mannkynið hef-
ur alltaf heillast af kristölum og
gimsteinum. Lækningar með kris-
tölum og gimsteinum hafa verið
iðkaðar á öllum menningarsvæðum
og öllum tímum. Markmið mitt er
að kanna þessa visku og beina
henni til meðvitundar nútímafólks.
Mér finnst þó mikilvægt að ýta
undir forvitni hvers og eins tilað
kanna þessa hluti sjálfur." Sigur-
lína Davíðsdóttir íslenskaði bókina
sem er 120 bls. Bókin Nálastunga
- eitthvað fyrir þig? er eftir próf-
essor J.R. Worsley, stofnandi nál-
astungumeðferðarskóla í Englandi.
Á bókarkápu segir m.a. „ Hér grein-
ir höfundur frá yfir þrjátíu ára
reynslu sinni sem meðhöndlari og
kennari, og svarar algengustu
spurningum varðandi nálastungu-
meðhöndlun, bæði þeirra sem eru
í meðferð og þeirra sem eru að
velta fyrir sér hvprt þeir eigi að
prófa. Bókin er 136 bls. Þýðandi
er Þóra Kristín Arthursdóttir.
Vorum að taka upp nýja sendingu af þessum vinsælu frönsku peysum úr 50% ull og 50% akryl.
Ný mynstur og ný snið í mörgum faliegum litum.
Með kraga iakkapeysur
Kr. 3.850,
£ Kr. 3.850,- I Kr. 3.850,- 1
Kr. 4.825,
Kr. 750,-
Kr. 1.620,-
Fiauelsbuxur, sterkar og
endingargóðar.
Kr. 3.898,-
Flauelsbuxur með beltl
Kr. 3.641,-
Kr. 4.222,-
Kr. 4.558,-
Kr. 1.995,-
Kr. 4.520,-
Kr. 4.850,-
Opið laugardaga frá kl. 9 til 12 r| P~|
SENDUM UM ALLT LAND k I Grandagarði 2, Reykjavfk, sími 28855
Ný sending af frönsku peysunum á lága verðinu.
Einnig úrvai af nýjum skyrtum, buxum og úipum.
Nýjar tískuskyrtur í miklu
litavali. Stærðir: M, L og XL.
Ódýrar gallabuxur.
Þægileg snlð.
Verð frá
Vatnsheidur mlttisjakki,
ioðfóðraður með hettu f
kraga. Gott snið.
Fyrsta sendingin seldist
upp á skömmum tfma.
Örygglsskór, háir með
stáltá. Sóii úr polyurethan.
Skórinn er PVC klæddur að
utan. Lltur: svart leður.
Öryggisskór, háir með
stáltá. Litur: svart leður.
Stærðir: 41-47
Háskólabolir f mörgum
litum. Ódýr og þægilegur
klæðnaður.
Stærðir: M, L og XL.
Öryggisskór, lágir með
stáltá. Litur: svart leður.
Stærðir 41-47.