Morgunblaðið - 15.11.1990, Page 50

Morgunblaðið - 15.11.1990, Page 50
50 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990 Efnahagsstefna í kjöl- far nýrrar stóriðju eftirlnga Björnsson Álver á Keilisnesi Ljóst er nú að ef samningar tak- ast um byggingu nýs álvers á veg- um Atlantsál hópsins, verður iðju-' verið sett niður á Keilisnesi. Því ber að fagna að mikilvægur áfangi hefur náðst í samningavið- ræðum við hin erlendu fyrirtæki og er vonandi að takast megi að ná ásættanlegum samningi hið fyrsta svo þessi mikilvægi þáttur í upp- byggingu atvinnulífs þjóðarinnar verði að veruleika. Það liggur hins vegar fyrir að í kjölfar þessarar ákvörðunar um staðsetningu álvers verður að marka atvinnu- og efnahagsstefnu er tekur mið af því að miklar fram- kvæmdir verða á sv-horni landsins á meðan á byggingu iðjuvers stend- ur. Efnahagsstefnan hlýtur að felast í því að almennt haldi ríkið og sveit- arfélög á sv-landi að sér höndum hvað varðar opinberar framkvæmd- ir og fresti þeim þar til framkvæmd- um lýkur við Keilisnes. Hér er um að ræða aimenna efnahagslega sveiflujöfnun, sem flestir eru sam- mála um að sé æskileg en reynist oft afar erfíð í framkvæmd. Það er hins vegar einnig önnur sveiflujöfnun sem efnahagsstefnan þarf að ná fram í kjölfar umfangs- mikilla framkvæmda sv-lands, en það er jöfnun þeirra sveiflna í at- vinnulífí sem líklega munu eiga sér stað á landsbyggðinni. Atvinnulíf á Eyjafjarðarsvæðinu Með ákvörðun um staðsetningu nýs álvers á Keilisnesi verða viss kaflaskipti í atvinnumálum á Eyja- fjarðarsvæðinu. Atvinnulíf við Eyja- fjörð var á vissan hátt komið í bið- stöðu vegna álmálsins, þar sem stefnumótun fyrirtækja og sveitar- félaga var slegið á frest vegna óvissu um hvort hér risi stóriðja eða ekki. Slík bið eftir mikilvægum ákvörðunum er afar óheppileg og spillir möguieikum fyrirtækja á að vinna markvisst starf og móta framtíðarstefnu. Nú vita Eyfirðingar hins vegar að álverið fer á Keilisnes, ef ^f byggingu þess verður, og líthr möguleikar eru á að önnur stóriðja rísi við Eyjafjörð næstu árin. Nú -vita Eyfírðingar einnig að það ber að beina kröftunum í aðrar áttir og vinna markvisst að eflingu at- vinnulífs án stóriðju. Til lengri tíma litið er stöðugt efnahagsástand og lítil verðbólga meginforsenda þess að atvinnu- starfsemi vaxi og dafni. Á Akur- eyri er atvinnulíf þannig saman sett að innan við tíu fyrirtæki sjá meginþorra vinnuaflsins fyrir at- vinnu. M.a. eru þar öflug útflutn- ingsfyrirtæki. Þessi fyrirtæki eru nú mörg hver að rétta úr kútnum eftir mikla lægð árin 1986-1989. Sum þessara fyrirtækja eru þó það illa sett eftir tímabil fastrar gengis- skráningar og mikillar innlendrar verðbólgu, að ný verðbólgualda myndi væntanlega kippa algerlega grundvellinum undan rekstri þeirra. Fyrirtæki sem selja vörur sínar á erlendum mörkuðum og hafa ekki tækifæri til að fleyta verðbólgunni áfram út í vöruverðið hafa í raun búið við 20-30% raunvexti á inn- lendu lánsfé undanfarin ár. Slíkt gengur ekki í alþjóðlegri samkeppni og því er það mikilvægasta verk- efni stjórnvalda næstu misserin að trygg]'a stöðugt efnahagslíf. Takist það munu fyrirtæki á Eyjafjarðar- svæðinu, sem og önnur fyrirtæki landsins, ná að treysta rekstrar- grundvöll sinn og skila hagnaði sem væntanlega verður uppspretta frek- ari atvinnuuppbyggingar. Þessi æskilega efnahags- og at- vinnuþróun kemur þó ekki til með að tryggja stöðugleika í atvinnulífi á Eyjafjarðarsvæðinu næstu misseri og ár. Mikil hætta er á að stórfram- kvæmdir á sv-horninu sogi til sín iðnaðarmenn frá Eyjafjarðarsvæð- inu með óæskilegum afleiðingum fyrir bæði svæðin. í ljósi þessa er mikilvægt að stjórnvöld grípi til sérstakra aðgerða til eflingar at- vinnulífi á landsbyggðinni á sama tíma og aðhalds verði gætt til að stemma stigu við þenslu á sv-landi. I byggingariðnaði á Akureyri er töluverð lægð nú og horfur fyrir næsta ár vægast sagt slæmar. Eng- ar stórar framkvæmdir eru fyrirsjá- anlegar á Akureyri og viss hætta er á fólksfækkun sem myndi leiða til þess að bygging íbúðarhúsnæðis dragist saman, sem enn myndi þá auka erfiðleika þessarar greinar. Fyrir liggja verkefni víða um land sem telja má nauðsynlegt að ráðist verði í næstu árin. Því er eðlilegt að það sé sérstaklega skoðað nú hvort ekki sé rétt að setja fram nýja forgangsröð opinberra fram- kvæmda sem hefur það að mark- miði að skapa mótvægi við fyrirsjá- anlega þenslu á sv-landi. Þjónustustörf á landsbyggðinni Ein meginástæða þess að at- vinnulíf hefur eflst og íbúum íjölgað í Reykjavík, umfram það sem gerst hefur á landsbyggðinni, er að þjón- ustustig hefur hækkað mun meira á höfuðborgarsvæðinu en annars staðar. Undanfarin ár hefur með margvíslegum hætti verið reynt að efla atvinnulíf á landsbyggðinni og hefur það starf einkum beinst að framleiðslugreinum ýmiss konar en þjónustugreinar hafa að nokkru setið eftir. Ur upplýsingum Byggðastofnun- ar um unnin ársverk tímabilið 1981-1988 má lesa að störfum í þjónustugreinum hefur fjölgað um rúmlega 16.000 en störfum í öðrum greinum hefur samtals fækkað um rúmlega T.000. Fjölgun starfa í heild á þessu tímabili hefur því ver- ið u.þ.b. 15.000. Af 15.000 nýjum störfum urðu um 12.500 til á höfuð- borgarsvæðinu og um 2.500 á landsbyggðinni (sjá sundurliðun í súluriti). Af þessu má sjá að landsbyggðin mun ekki halda hlutfallslega í við íbúafjölgun á höfuðborgarsvæðinu nema til komi stóraukin hlutdeild í þeirri auknu þjónustustarfsemi sem skapað hefur flest ný störf á und- anfömum árum. Ef tölur um fjölda starfa í heil- brigðisþjónustu eru athugaðar, kemur í ljós að verulega hallar á landsbyggðina í samanburði við höfuðborgarsvæðið. Þannig eru 477 læknar starfandi í Reykjavík eða 1 á hveija 200 íbúa. A Akureyri starfa 40 læknar eða 1 á hveijá 416 íbúa. í Reykjavík starfa 1123 Ingi Björnsson „Meginniðurstaða þeirra hugleiðinga sem hér hafa verið settar fram er sú að virk og öflug byggðastefna verður að koma til ef takast á að forðast mikla og óæskilega byggðaröskun í kjölfar byggingar álvers á Keilisnesi." hjúkrunarfræðingar eða 1 á hveija 85 íbúa. Á Akureyri starfa 122 hjúkrunarfræðingur eða 1 á hveija 137 íbúa (sjá töflu). Hér er ekki hægt að kenna um að fólk fáist ekki til starfa á Akureyri þar sem allar læknisstöður, sem heimildir eru fyrir, eru setnar, nema ein að- stoðarlæknisstaða. Áf heimiluðum stöðum hjúkmnarfræðinga em yfir 90% setnar. Annars staðar á lands- byggðinni er hlutfall þetta enn lak- ara en á Akureyri. sjúkrahússins á Akureyri. í fram- haldi af því var skipuð bygginga- nefnd sem nú er að ljúka störfum og skilar skýrslu sinni í þessum mánuði. Bygginganefndin byggir áætlanir sínar á mannfjöldaspá Byggðastofnunar og könnun sem gerð var á þjónustusvæði FSA á Norður- og Norðausturlandi. Niður- staða nefndarinnar er sú að til að FSA geti rækt hlutverk sitt næstu árin þurfi að byggja við sjúkrahúsið um 3.000 m2. Að auki þarf tölu- verða fjármuni til að ljúka við og koma í full not húsnæði sem þegar hefur verið byggt. Lauslega áætlað er um fjárfestingu að ræða er num- ið gæti samtals um 650-700 millj. kr. Á FSA eru heimilaðar, skv. fjár- lögum, 396 stöður. Starfsmenn eru þó mun fleiri eða nálægt 600 vegna ljölda hlutastarfa. Velta spítalans er um einn milljarður á ári. Frá atvinnulegu og fjárhagslegu sjónar- miði er vöxtur og viðgengni FSA því gríðarlegt hagsmunamál fyrir Akureyrarbæ. I ljósi ofanritaðs hlýtur það að vera æskilegt frá atvinnupólitísku og byggðapólitísku sjónarmiði að verulegt átak verði gert í uppbygg- ingu heilbrigðisþjónustu á Ákureyri og í ljósi þeirra aðstæðna á vinnu- markaði sem skapast við byggingu álvers á Keilisnesi (ef af samningum verður) er eðlilegt að uppbyggingu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri verði hraðað. Stefnumörkun Meginniðurstaða þeirra hugleið- inga sem hér hafa verið settar fram er sú að virk og öflug byggðastefna verður að koma til ef takast á að forðast mikla og óæskilega byggða- röskun í kjölfar byggingar álvers í Keilisnesi. Reynsla undanfarinna ára sýnir að landsbyggðin verður að fá mun stærri skerf af aukinni þjónustu en hingað til hefur verið. Slíkt næst Skörð í varnargarðinn Fjöldi lækna og hjúkrunarfræðinga á Akureyri og í Reykjavík íbúar Læknar Hjúkr.fr. Læknar pr.íbúa Hjúkr.fr. pr.íbúa Reykjavík 95.811 477 1/200 1123 1/85 Akureyri 16.677 40 1/416 122 1/137 eftír Árna Helgason Ein af æskumyndum mínum frá Eskifirði: Við áttum rafstöð, líklega eina fyrstu hér á landi. Mikill stíflu- garður var uppi í Ljósárgili. Eitt sinn var komið til frænda míns. Það var rafstöðvarstjórinn: „Ég þarf að fá nokkra menn til að hjálpa, því það er farinn einn stór steinn úr stíflunni og nú er hætt við að fleirí losni á eftir. Þetta þarf því að ger- ast sem fyrst svo við töpum ekki ljósunum." Þessi æskuminning kom í huga minn þegar ég heyrði um hversu bjórinn hefði komist inn í æskufólkið, því til vandræða og ógnandi manndómi og þrátt fyrir að sterku drykkirnir hafí ekkert minnkað. Ég man bannárin. Ég man hversu margir voru fegnir að þessi stíflugarður var lagður svo menn töpuðu ekki ljósunum. Ég man líka þegar stóri steinninn (Spánarvínin) voru leyfð. Man vel þau áhrif sem þeim fylgdu. í stað þess að setja stein í skarðið hafa auðshyggjumenn, sem telja sig græða mest á að þjóðin vaði í drykkjuskap, verið duglegir og var- ið sínum kröftum í að fleiri skörð kæmu í varnargarðinn. Þeir fækka Ijósunum vitandi vits. Eftir hvern stein sem þeir hafa hent úr stíflunni hafa vandræðin og ógæfan vaxið. Um það þarf enga fræðslu. Dæmin eru deginum ljósari. Og nú vilja heildsalarnir meira að segja fá að flytja vímuefni þetta inn í stríðum straumum, freista fólks sem víðast og koma því inn á sem flest heim- ili. En meðal annarra orða: Eru ekki öll þessi eiturefni flutt inn á vegum heildsala? Og nú er það spurning sem ég hefí oft vel fyrir mér: Hvernig er samviska þeirra sem veija ævi sinni og fé í að flytja inn í landið vímuefni, helst alla leið að skólalóðinni, til að græða sem mest? Þykjast þeir ekki vita að þeir auka vanda drykkjumanna og Árni Helgason hrinda mörgum æskumanni út i þann hyl sem oft tekst ekki að draga þá upp úr? Höfuiidur er fyrrvorandi póst- og símstöðvnrstjóri í Stykkishólmi. Starfsemi FSA Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) er almennt sjúkrahús fyrir Akureyri og nærsveitir og sér- deildasjúkrahús fyrir Norðurland, Norðausturland og Austfírði að hluta. Á sjúkrahúsinu er veitt þjón- usta í flestum þeirra greina læknis- fræðinnar sem stundaðar eru í landinu. FSA annar þó engan veginn þeirri þörf sem fyrir hendi er á þjón- ustusvæði sjúkrahússins. Töluverð bið er eftir vissri þjónustu spítalans og mikið er um að Norðlendingar þurfi að leíta til Reykjavíkur eftir þjónustu sem hægur vandi væri að veita á FSA ef fjármagn væri fyrir hendi. Árið 1988 fékkst fjárveiting til gerðar áætlunar um framtíðarupp- byggingu og nýtingu Fjórðungs- ekki nema með markvissu starfí og stefnumörkun stjórnvalda. Efling Akureyrar sem þjónustumiðstöðvar fyrir Norður- og Norðausturland er afar brýnt verkefni sem flestir ættu að geta orðið ásáttir um. Þar sem mjög alvarlega horfír nú um at- vinnumál í Eyiafírði er mikilvægt að hið fyrsta verði mörkuð víðtæk sóknaráætlun til uppbyggingar at- vinnulífi á svæðinu. Hér hefur verið bent á verkefni, sem fellur mjög vel að æskilegum markmiðum efnahagsstefnunnar, sérstaklega hvað varðar aukið þjón- ustustig á Iandsbyggðinni og jöfnun tímabundinna sveiflna í atvinnu- lífinu. Höfundur er frnmkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrnhússins á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.