Morgunblaðið - 15.11.1990, Síða 52
8ð
52
oeei aaaMávöK .s i auoAauTMMia eiQAjanuDHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990
Kristín S. Jóhannes
dóttir - Minning
Fædd 7. ágúst 1937
Dáin 7. nóvember 1990
I dag kveðjum við Kristínu Sal-
björgu Jóhannesdóttur, en svo hét
hún fullu nafni, en var ávallt kölluð
Stína. Hún fæddist þann 7. ágúst
1937 á Fomakrossnesi í Eyrarsveit
og ólst þar upp hjá foreldrum
sínum, þeim Skúlínu Hlíf Guð-
mundsdóttur og Jóhannesi 0. Þor-
grímssyni kennara ásamt þremur
systkinum sínum. Ég kynntist Stínu
.fyrir þrjátíu árum er hún giftist
frænda mínum, Birni Benedikts-
syni, en þau gengu í hjónaband
þann 2. desember 1961 og keyptu
sér íbúð fyrst í Efstasundi og síðar
í Skipasundi 50 þar sém þau hafa
búið síðan.
Þau eignuðust einn son, Agnar,
sem nú er tölvunarfræðingur hjá
Skýrsluvélum ríkisins og
Reykjavíkurborgar. Þessi fjölskylda
lifði farsælu lífi og var mjög sam-
hent. Stína lét sér ákaflega annt
um þá feðga og hugsaði um heimil-
ið af alúð og kostgæfni. Sonurinn
var hennar augasteinn og hann
galt henni það með nærgætni og
dugnaði í námi og starfi. Þær minn-
ingar sem efstar eru í huga mér
um Stínu er það hve sanntrúuð hún
var. Hún treysti á Guð sinn og lét
sér annt um alla þá er áttu í ein-
hveijum erfiðleikum. Hún var bæn-
heit kona sem margir leituðu til er
áttu um sárt að binda. Stína var
vel gefin og mjög vel_ skáldmælt en
hún flíkaði því ekki. í ljóðum henn-
ar fór saman næmni á rími og
íslenskri tungu ásamt húmor er hún
átti í svo ríkum mæli. Hún var
ætíð glaðsinna og kom flestum í
gott skap er hún umgekkst.
Þeir feðgar hafa misst traustan
förunaut og votta ég þeim innilega
samúð. Ég vil að leiðarlokum þakka
þær ánægjustundir er ég og mitt
fólk áttum með Stínu og fyrir þann
styrk er hún gat veitt á erfiðum
stundum.
Bið ég þess að hún megi ganga
á guðs vegum.
Guð blessi minningu hennar.
Ástvinir eftir standa
en eiga nú dýran sjóð
í minriing sem mildar vanda
og muna hvað þú varst góð.
(Ljóð K.S.J.)
Björgvin Björnsson
Kristín Salbjörg Jóhannesdóttir
húsfreyja í Reykjavík andaðist 7.
nóvember, aðeins 53 ára að aldri.
Hún var fædd í Krossnesi í Grund-
arfirði 7. ágúst 1937, dóttir hjón-
anna Skúlínu Hlífar Guðmundsdótt-
ur (f. 1898, d. 1986) og Jóhannesar
Þorgrímssonar (f. 1900, d. 1975),
sem þar bjuggu, en Jóhannes stund-
aði auk búskapar barnakennslu í
Grundarfirði. Foreldrar Skúlínu
voru Guðmundur Skúlason útvegs-
bóndi í Krossnesi og Guðrún Kristín
Jóhannesdóttir, en foreldrar Jó-
hannesar voru Þorgrímur Helgason
og Salbjörg Jónsdóttir, sem bjuggu
á Miklhóli í Viðvíkursveit. Kristín
Salbjörg var þannig af breiðfirzku
kyni í aðra ættina en norðlenzku í
hina. Sjálf var hún ættfróð og fylgd-
ist vel með ættingjum sínum í báð-
um ættum, þó að þeir væru í fjar-
lægð.
Kristín Salbjörg var yngst fjög-
urra systkina, en hin eldri eru: Arn-
ór, starfsmaður á Keflavíkurflug-
velli og búsettur í Njarðvík, Guð-
mundur, vélstjóri í Grundarfirði,
kvæntur Jóhönnu Pálmadóttur, og
Guðrún Kristín, húsfreyja í
Reykjavík. Æskuár sín átti Kristín
Salbjörg við hinn „fagurbláa"
Grundarfjörð, sem faðir hennar orti
svo vel um. Um tvítugt fluttist hún
suður á land og var um tíma hjá
Arnóri bróður sínum í Njarðvík, en
fluttist síðan til Reykjavíkur til
náms og starfa og bjó þar síðan.
Þar giftist hún eftirlifandi eigin-
manni sínum, Bimi Benediktssyni
bifreiðastjóra, ættuðum úr Húna-
þingi. Þau áttu einn son, Agnar,
sem lokið hefur prófi í töivunar-
fræði frá Háskóla íslands og starf-
ar við þau fræði.
Minningar mínar um Stínu, eins
og hún var alltaf kölluð, eru frá
árunum í kringum 1945-1950, en
þá fór ég nokkur sumur til stuttrar
dvalar hjá frændfólki mínu í Kross-
nesi, Skúlínu, Jóhannesi og börnum
þeirra. Á þeim tíma var langur og
strangur vegur úr Reykjavík vestur
í Grundarfjörð og ýmsir voru orðnir
æði slappir þegar komið var í Graf-
ames eins og þorpið í Grundarfirði
var þá nefnt. En ferðinni var ekki
lokið, því að í Nesinu þurfti að stíga
á hestbak og fara ríðandi út í Kross-
nes. En þar voru líka ferðaþrautir
á enda, því að gestum var vel fagn-
að á Tóftum, en svo nefndu ná-
grannar gjarnan hús þeirra Skúlínu
og Jóhannesar, sem annars hét
Forna-Krossnes og var hluti af
Krossnesjörðunni.
Þegar kaupstaðarbarnið var búið
að jafna sig eftir ferðavolkið, var
það gjarnan yngsta barnið á bæn-
um, hún Stína, sem tók að sér að
sýna gestinum það sem helzt var
um að vera og hvað hafast mætti
að þennan ög þennan daginn. Og
sveitalífið var fjölbreytt og krakk-
arnir höfðu nóg að sýsla í kringum
skepnur, við heyskapinn, við veiði
í vatninu eða þá inni við, ef „sunn-
anófæra" skall á. Þá þurfti Stlna
líka að spyija margs um það sem
væri að gerast fyrir sunnan og gest-
urinn reyndi að leysa úr því.
Þó að Stína væri ekki heilsu-
hraust a.m.k. á barnsárum, kom
það ekki niður á lífsgleði hennar
og lífslöngun. Hún var alltaf tilbúin
í hvers konar leiki og fjör. Stína
var dýravinur hinn mesti og mér
finnst’ einhvern veginn sem hún
skildi dýramál og gæti talað við
húsdýr heimilisins, en þeim sinnti
hún af alúð. En mestum tíma sínum
varði hún til bóklesturs og var
snemma betur að sér en flestir jafn-
aldrar hennar í allri bókarmennt.
Því miður átti hún, eins og margir
sveitaunglingar á þeim tíma,-þess
ekki kost að afla sér skólamenntun-
ar, eftir að barnaskóla lauk, en
bóklestur stundaði hún af kappi
alla ævi og var bæði vel ritfær og
skáldmælt.
Leiðir-okkar Stínu lágu ekki mik-
ið saman síðustu áratugina, en þá
sjaldan við hittumst barst talið
gjarnan að sameiginlegum minn-
ingum frá þessum löngu liðnum
dögum, þegar „svanirnir sungu og
sólin gyllti æginn, töfrandi tungu á
tjörninni við bæinn“ eins og einu
sinni var ort um náttúrufegurð við
Krossnesvatn. Þeirra daga er gott
að minnast.
I lok þessara fáu kveðjuorða vil
ég votta þeim Birni og Agnari sam-
úð mína við fráfall eiginkonu og
móður. Blessuð veri minning
Kristínar Salbjargar Jóhannesdótt-
ur frá Krossnesi.
Heimir Þorleifsson
Fölnar sú jurt sem fegurst er.
Ég man er fundum okkar Kristínar
bar fyrst saman. Það var fagran
stilltan haustdag I september 1959,
við skólasetningu Húsmæðraskóla
Reykjavíkur. Eg kom þar öllum
ókunnug, tók þá eftir lágvaxinni,
glaðlegri, dökkhærðri stúlku, sem
kom inn og spurði hvort sætið við
hliðina á mér væri upptekið, og
hvort hún mætti setjast þar. Eftir
skólasetninguna tókum við tal sam-
an, sem leiddi til þess að við urðum
samferða niður í bæ. Daginn eftir
var ég svo heppin að draga sama
númer og hún, þannig að við kom-
um til með að vinna saman í skólan-
um. Næstum alltaf urðum við sam-
ferða úr skólanum á leið niður í bæ,
oft heim til hennar, þar sem við
saumuðum í og spjölluðum saman,
en hún var mjög dugleg að sauma
í og pijóna. Ég fann fljótt að við
Kristín áttum mörg sameiginleg
áhugamál, sem við gátum rætt um.
Báðar vorum við fæddar og aldar
upp í sveit við svipuð lífsskilyrði og
skoðanir. Það var alltaf jafn gott
a’ð ræða við Kristínu, hvort sem var
á alvarlegum stundum, eða gleði-
legum. Hún var mjög trúuð, en
hafði líka næmt auga fyrir hinu
skoplega í lífinu. Skáld var hún
gott, orti hún erfiljóð, afmælis-
kveðjur og tækifærisvísur ýmsar.
Oft fór ég líka til hennar, að láta
hana spá í spil, eða ráða drauma,
því hún hafði góða hæfileika í dul-
rænum efnum. Á erfiðleikastundurn
mínum leitaði ég til hennar, því hún
hafði einstaka hæfileika og skilning
til að ráða fram úr ýmsum vanda-
málum og ræða málin frá mörgum
sjónarmiðum. En nú er hún horfin
alltof fljótt, eftir er tómarúm sem
erfítt er að fylla. Eftirlifandi eigin-
manni hennar, Birni Benediktssyni,
og syninum Agnari votta ég mína
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
hennar.
Handtakið slitnar, sem þakkaði kynni
samvistjr allar og síðasta fund.
Sálimar tengjast við tillitið hinsta
taug, sem að slítur ei fjarlægðin blá.
Brenna í hjartnanna helgidóm innsta
hugljúfar minningar samvemstundum frá.
(Erla - Hélublóm.)
Sigríður H. Þórarinsdóttir
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN FINNBOGADÓTTIR,
Langholtsvegi 202,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum þriðjudaginn 13. nóvember.
Árni Hrólfsson, Halla Reynisdóttir,
Sumarliði Hrólfsson, Ásta Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN GÍSLASON
frá Ytra-Skógarnesi,
lést 13. nóvember í St. Franciskuspítala, Stykkishólmi.
Gísli Kristjánsson,
Anna Kristjánsdóttir, Bjarni Sveinbjörnsson,
Gunnlaugur Kristjánsson, Maria Guðmundsdóttir,
Hörður Kristjánsson, Birna Lárusdóttir
og barnabörn.
t
EIRÍKUR ÓLI DIÐRIKSSON,
áður Laugarnesvegi 62,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu 13. nóvember.
Bergljót Ólafsdóttir,
Guðrún S. Woloszyk, Norbert F. Woloszyk,
Jóna S. Óladóttir, Árni Jónsson,
Sævar Karl Ólason, Erla Þórarinsdóttir,
Bergljót V. Óladóttir, Gústaf Edilonsson,
Sigurður Ólason, Helga Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Erfídrykkjur í hlýlegu
og notalegu umhverfí
Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfidrykkjur fyrir
allt að 300 manns. I boði eru snittur með margvíslegu áleggi,
brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með
rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur,
rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl.
Með virðingu,
FLUGLEIDIR
HÓTEL LOFTLEIDIR
REYKJAVlKURFLUGVELLI. 10 1 RÍYKJAVlK
SlMI: 9 1-2 2 3 2 2
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INDLAUG BJÖRNSDÓTTIR
frá Gerði,
sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 9. nóvember, verður jarð-
sungin í Landakirkju laugardaginn 17. nóvember kl. 14.00.
Svanur Jónsson, Ingibjörg Þórðardóttir,
Hallbera Jónsdóttir, Hilmar Hannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
FRIÐRIKA SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR,
Hraunbæ 5,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn 19. nóvember
kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Ari Jósefsson,
Kristin Aradóttir, Guðmann Sigurbjörnsson,
Ómar K. Arason, Áslaug Pétursdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir og amma,
PÁLÍNA GUÐRÚN STEINSDÓTTIR,
Langholtsvegi 141,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. nóvember
kl. 15.00.
Kristín Hjörvar,
Ingibjörg Karlsdóttir, Jens G. Jónsson, ——
Pálína Guðrún Karlsdóttir, Sigurður Daníelsson,
Sigrid Karlsdóttir, Garðar Sigurðsson,
Steina Haraldsdóttir Williams, James T. Williams
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Holtsgötu 32,
Njarðvík,
verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 16. nóvem-
ber kl. 14.00.
Óskar Jónsson,
Friðþjófur V. Óskarsson,
Helga Óskarsdóttir, Ásgeir Ólafsson,
Stella Óskarsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson,
Sigþór Óskarsson, Hjördís Lúðvíksdóttir,
og barnabörn