Morgunblaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.11.1990, Blaðsíða 54
54 MORGUÍíBLÁÐIÐ 'FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1990 fclk f fréttum Viðskiptavinir Kaupfélags Lang- nesinga á kökukynningunni ásamt Sigurði Finnssyni. Morgunblaðið/Liney Sigurðardóttir ass Hippatíminn við fótskör himnaföðurins Selfossi. ÐLABANKÍ ISLANDS ~~r ’—~r kr. 1 klst. í golfherminum mánudaga til föstudaga kl. 12-18. J KRAFTAVERK Fergie búin að snúa taflinu við Fergie, öðru nafni Sarah Fergu- son hertogaynja af York, er nú búin að kúvenda svo gersam- lega útliti sínu að undrun sætir. Myndimar tvær sem hér birtast sýna svo um munar hvað átt er við, en við liggur að hér geti alls ekki verið um sömu konuna að ræða, önnur myndin tekin síðla árs 1988, en hin fyrir nokkrum dögum. Fergie var á sínurfi tíma legið á hálsi að hugsa lítið um sjálfa sig, en henni var nokkur vorkunn þar eð hún stóð í nokkuð þéttum barneignum. Myndin frá 1988 var tekin er Fergie var hvað þéttust á velli án barns undir belti. Þá þótti hún bæði feit og ósmekklega klædd. Nýrri myndin sýnir að ald- ir virðast hafa runnið í tímans haf. Vitað er að Fergie hefur öfun- dað mágkonu sína, Díönu prins- essu, af fínu og grönnu línunum svo ekki sé minnst á tískuráðgjaf- ana sem hafa ráðið henni svo heilt að eftir er tekið og Dí mark- ar jafnan tiskulínur hvar sem hún fer. Þetta ætlar Fergie nú að leika eftir og ber ekki á öðru en að glæsilega sé af stað farið. Svona í framhjáhlaupi má geta þess að þyngdarmunurinn á Fergie á myndunum tveimur er 28 kí- lógrömm! Glórulaus æska heitir söngleik- ur sem hljómsveitin Tommi rótari og nokkrir leikarar flytja á Hótel Selfossi um þessar mundir. í söngleiknum er stemmningin úr Gullna hliðinu endurvakin en í stað Jóns bónda er nú kominn uppgjafa hippi sem á litríkan fer- il að baki. Það er Sigurgeir Hilmar Frið- þjófsson sem fer með hlutverk hippans og rödd himnaföðurins fer Davíð Kristjánsson með. Samræð- ur hippans og himnaföðurins eru líflegar og ber margt á góma úr lífi hippans sem áhorfendur kunnu að _meta. Á milli samtalsatriðanna flytur hljómsveitin lög frá hippatíman- um og dansandi skuggamyndir leggja áherslu á tímabilið sem fjallað er um. I einni af sögum sínum segir hippinn frá samtali vinar síns við annan „grasneytanda,“ sem var endurfæddur. Sá endurfæddi- sagði:„Þetta er nú munur hérna. Maður vaknar á morgnana, fær sér gras, fer í ástarleiki, fær sér svolítið gras aftur og tekur til við ástarleiki á nýjan leik og svona gengur þetta allan daginn.“ „Hvar ertu eiginlega,“ spurði vinurinn eftirvæntingárfullur.“ „Ég er stóðhestur í Flóanum," svaraði hinn. Og gestirnir veltust um af hlátri þegar himnafaðirinn hummaði. - Sig. Jóns. Leikendur og söngvarar í Glórulausri æsku. ljúflega niður Ovæntur glaðningur mætti við- skiptavinum Kaupfélags Langnesinga nýlega. Það var girni- legt kökuborð og kaffí á könnunni, en kaupfé lagið var með kynningu á bakkelsinu úr hinni nýju brauð- gerð sinni. Sigurður Finnsson bakari hefur þar verið ráðinn til starfa ásamt aðstoðarfólki og nú er framleiðslan komin í fullan gang. Kökurnar runnu ljúflega niður og augljóst er að Siggi bakari mun ekki þurfa að kvíða aðgerðarleysi í bakaríinu á Þórshöfn. Gamall draumur Þórshafnarbúa hefur nú ræst um það að fá ný brauð daglega frá sinni heimabyggð og er þetta mikil framför. - L.S. ÞORSHÖFN: Kökurnar runnu BIRTIfMG, félag jafnaðar- og lýðræðissinna OPINN STJÓRNMÁLAFUNDUR: 500 DAGA ÁÆTLUNIN Fimm forystumenn í íslenskum stjórnmálum fjalla um 500 daga áætlun tímaritsins Þjóðlífs um „leið íslands til markaðsbúskapar“ og segja álit sitt á henni, þau Friðrik Sophusson, alþingismaður Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra Kristín Einarsdóttir, alþingiskona Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra Að lokinni stuttri framsögu fimmmenninganna verða pallborðsumræður ásamt tveimur af höfundum áætlunarinnar, þeim Guðmundi Ólafssyni, hagfræðingi, og Jóhanni Antonssyni, viðskiptafræðingi. Fundarstjóri verður Svanfríður Jónasdóttir. Fundurinn verður haldinn í kvöld á Hótel Sögu, Ársal, og hefst hann kl. 20.30. COSPER - Hann skuldar allsstaðar, meira að segja prestinum fyrir hjóna- vígsluna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.