Morgunblaðið - 19.01.1991, Síða 1
64 SIÐUR B/LESBOK
15.tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Israelar hóta hefnd-
um fyrir árás Iraka
Hús í Bagdad leika á reiðiskjálfi í loftárásunum og þúsundir flýja borgina
Nikosíu, Bagdad, Washington, Moskvu, Jerúsalem, London, Reuter, Daily Telegraph.
MOSHE Arens, varnarmálaráðherra ísraels, sagði í gær-
kvöldi að eldflaugaárás íraka á Israel í fyrrinótt yrði svar-
að. Sendiherra Israela hjá Sameinuðu þjóðunum sagði síðar
að önnur eldflaugaárás Iraka á Israel væri ekki útilokuð,
jafnvel með efnavopnum. George Bush, forseti Banda-
ríkjanna, hafði þá ásamt fleiri þjóðarleiðtogum hvatt Isra-
ela til að halda sér í skefjum. Ottast margir að samstaða
í fjölþjóðahernum muni bresta geri ísraelar árás á Iraka.
Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur þó sagt að Isra-
elar megi svara fyrir sig og sendiherra Egypta í Washing-
ton sagði í gær, að enginn þyrfti að hafa áhyggjur af af-
stöðu Egypta, þeir myndu ekki hlaupast undan merkjum.
Mohammed Salman, upplýsinga-
ráðherra Sýrlands, sagði í gær-
kvöldi, að land sitt myndi standa
með arabaríki gegn ísrael, ef ísrael-
ar væru upphafsmenn árásar á
Jórdaníu eða Irak. Eru ummælin
túlkuð á þann hátt að Sýrlendingar
ætli ekki að rjúfa samstöðuna í fjöl-
þjóðahernum hefni Israelar sín á
Irökum.
Þúsundir manna flýðu Bagdad í
gær vegna heiftarlegra loftárása
Haraldur konungur V
Ólafi kon-
ungi vott-
uð virðing
Ósló. Frá Helge Sörensen, fréttnrit-
ara Morgunblaðsins.
í NOREGI ríkir þjóðarsorg
vegna andláts Olafs konungs
og hafa þúsundir manna vott-
að minningu hans virðingu.
Ólafur konungur verður
jarðsunginn í Óslóardóm-
kirkju 30. janúar næstkom-
andi.
Haraldur konungur Y, sem.
nú hefur tekið við af föður
sínum, veitti forseta Stórþings-
ins, forseta hæstaréttar og
æðsta biskupi norsku kirkjunnar
áheyrn í gær en Haraldur mun
svetja embættiseiðinn formlega
í Stórþinginu á mánudag.
Ólafur konungur var ákaflega
ástsæll meðal þegna sinna enda
alþýðlegur maður.
flugvéla fjölþjóðahersins í fyrrinótt.
Árásunum var haldið áfram í gær
og lýstu sjónarvottar geysimiklum
sprengingum í gærkvöldi.
í gærkvöldi kváðu loftvarnaflaut-
ur við í Jerúsalem og síðar í Tel
Aviv, í fyrra skiptið vegna mistaka
og seinna skiptið vegna ti-uflana frá
sovésku gervitungli. George Bush
viðurkenndi á blaðamannafundi í
gær að ekki hefði enn tekist að
eyðileggja með vissu öll efnavopn
og skotpalla Iraka en hann tryði
því að það tækist. Forsetinn varaði
við því að gera ráð fyrir skjótum
sigri, benti á að Saddam Hussein
forseti hefði haft áratug til að efla
vígvél sína og hún yrði ekki eyði-
lögð á einni nóttu. Enginn þyrfti
þó að velkjast í vafa um lokaniður-
stöðu átakanna.
Moshe Arens sagði í ísraelska
sjónvarpinu í gær, að það væri yfir-
lýst stefna ísraela að svara, ef á
þá væri ráðist. Hins vegar gæti
enginn vænst þess að hann segði
hvenær gagnárás hæfist. Af hálfu
herstjórnar fjölþjóðahersins var í
gær lögð höfuðáhersla á að eyði-
leggja hreyfanlega eldflaugapalla
Iraka til að koma í veg fyrir aðra
árás þeirra á Israel. Hefði tekist
að eyðileggja sex palla og ráðist
var á fimm í viðbót.
John Simpson, fréttaritari BBC
í Bagdad, taldi að B-52-sprengju-
flugvélar hefðu gert árásir á út-
hverfi borgarinnar. Hann var á
fréttamánnafundi hjá Latif Nassif
al-Jassem, upplýsingamálaráðherra
íraks, og segisttelja að stjórn Sadd-
ams Husseins hyggist ekki svara
árásunum heldur reyna að þrauka
í lengstu lög. Talsmaður bandaríska
varnarmálaráðuneytisins sagði fjöl-
þjóðaherinn ekki enn hafa náð yfir-
burðum í lofti yfir Irak en það
myndi takast.
Bandarískar B-52-sprengjuvélar
eru sagðar teknar til .við að kasta
sprengjum á herafla Iraka nálægt
víglínunni en með þeim hætti er
sókn landhersins undirbúin. Því
fleiri hernaðarlega mikilvæg skot-
mörk, sem eru eyðilögð, þeim mun
fleiri flugvélar er hægt að senda
til að undirbúa aðgerðir landhers-
ins. gyá fréttir á bls. 18-21,.
Loftvarnaskothríð í Bagdad leiftrar á næturhimninum. 'Á götunum
sjást aðeins hermenn og örfáir óbreyttir borgarar; hinir síðar-
nefndu halda sig flestir innandyra þar sem kerti verða að duga
til lýsingar. Húsin leika á reiðiskjálfi og gluggarúður glamra
vegna sprenginganna. Innfellda myndin sýnir George Bush Banda-
ríkjaforseta á fréttamannafundi í gær þar sem hann m.a. for-
dæmdi eldflaugaárás Iraka á ísrael í fyrrinótt.
Lettland:
Fólkið staðráðið í að veija
þinghusið með lífi sínu
Riga. Frá Pétri Gunnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. Reuter.
Andrúmsloftið í miðborg Riga er ólýsanlegt. Þúsundir Letta, marg-
ir komnir allt að tvö þúsund kilómetra leið til að standa vörð um
lýðveldið, ganga um götur, sumir gyrtir gasgrímum. Þeir syngja
þjóðernissöngva eða ræða saman við yl frá varðeldum sem kveiktir
eru á flestum götuhornum. Fólkið er óvopnað og staðráðið í að verja
frelsi sitt fyrir Rauða hernum með lífi sínu.
„Ef þeir ætla að taka þinghúsið
og aðrar stjórnarbyggingar hér,
verða þeir að drepa þúsundir okkar,“
sagði fullorðinn Letti sem stóð vörð
á tröppum þinghússins við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær. Hann
hafði verið þarna á verði allt frá 13.
janúar og sagðist verða þarna um
kyrrt ásamt fjölda landa sinna allt
þar til öryggi þingsins hefði verið
tryggt.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra, Arnór Hannibalsson, ráð-
gjafi ráðherrans, og sex íslenskir
blaðamenn komu til Riga í gær í
upphafi ferðar um Eystrasaltslöndin
sem ætlað er að ljúki á mánudag í
Eistlandi eftir heimsókn til Litháens
í dag. Á blaðamannafundi í þinghús-
inu í Riga í gær sátu Anatolíj Gorb-
unovs, forseti Lettlands, og Jón Bald-
vin Hannibalsson fyrir svörum.
Utanríkisráðherra sagðist í gær
vera þess fullviss að ákvörðun um
að veita honum og íslensku blaða-
mönnunum vegabréfsáritun til
Eystrasaltslandanna hefði verið
pólitísk ákvörðun, tekin af æðstu
mönnum utanríkisráðuneytis Sov-
étríkjanna. Þar væri að leita skýring-
anna á því hversu langan tíma tók
að fá endanlegt svar við því hvort
af þeimsókninni gæti orðið.
í Eistlandi hafa öryggissveitir tek-
ið til við að hlaða granítblokkum
umhverfís þinghúsið í Tallinn vegna
ótta við valdatöku „þjóðfrelsis-
nefnda“ kommúnista og Sovétstjórn-
arinnar. Þá telur Leeh Walesa, for-
seti Póllands, að Pólveijar hafi
ástæðu til að óttast það sem nú er
að gerast í Eystrasaltslöndunum, þar
sem sovéski herinn kynni að gera
tilraun til að leggja Pólland undir sig.
Sjá „Gorbatsjov aðeins... á bls.
18-19 og viðtal við utanríkisráð-
herra á miðopnu.