Morgunblaðið - 19.01.1991, Qupperneq 4
51AJK
i)A(iaAíiUAJ (IMIAJÍÍM'
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1991
ELDGOS I HEKLU
Takmörkunum á umferð að Heklu afiétt;
Fólk beðið að gæta
ýtrustu varúðar
YFIRMENN almannavarna í Rangárvallasýslu ákváðu í gærmorgun,
í samráði við Almannavarnir ríkisins, að aflétta umferðartakmörkun-
um sem í fyrrakvöld voru settar á vegi að Heklu. Almannavarnir
áskilja sér þó rétt til að setja fyrirvaralaust á umferðartakmarkanir
til að koma í veg fyrir öngþveiti eða ef hættuástand skapast. Bent
var á hættu á öskufalli og fólki ráðlagt að fara elíki að Heklu fyrr
en sú hætta væri liðin hjá og veður og færð gæfi tilefni til.
í.tilkynningu frá Almannavörn-
um ríkisins í gær eru birt tilmæli
ti) ferðafólks sem ætlar til gosstöðv-
anna. Fólk er beðið um eftirfarandi:
Að vera ávallt með hjálm á höfði
í nágrenni eldstöðvarinnar og við
hraunkantana.
Að fara ekki hlémegin að gos-
stöðvum og hrauninu en halda sig
vindmegin, vegna hættu á gasm-
engun. Að fara ekki í lautir eða
djúpar lægðir þar sem gas getur
safnast fyrir og athuga að kolsýrl-
ingur frá eldgosi er lyktarlaus og
getur valdið bana ef dvalist er í
slíku lofti.
VEÐUR
Að hættulegt getur verið að vera
of nærri hraunkanti, ef hrun verður
í honum, og hraun getur skriðið
skyndilega fram, þótt það virðist
vera kyrrstætt.
Að gæta ýtrustu varúðar við eld-
stöðvamar og muna að skjótt getur
skipast veður í lofti.
Fólki sem lendir í öskufalli og
finnur til óþæginda af þeim sökum
er bent á að minnka má óþægindin
með því að leggja blautan klút fyr-
ir vitin og anda í gegn um hann.
Fólk utandyra getur búist við að
finna sviða í augum. Þeir sem eru
næst eldstöðvunum skulu fara þvert
Morgunblaðið/Sigurður Stefánsson
Heklueldar speglast í vatnsfleti Þjórsár. Á miðri mynd má sjá samfellda röð ljósa á bílum, sem voru á
ferð eftir Landvegi á fimmtudagskvöldið.
á vindstefnu til að komast út úr
gosmekki.
Nokkur félög^ og fyrirtæki í
ferðaþjónustu bjóða ferðir að og
yfir Heklu. Flugleiðir áætluðu að
I/EÐURHORFUR I DAG, 19. JANUAR
YFIRLIT f QÆR: Yfir landinu er vaxandi 969 mb lægð á hreyfingu
norður en um 400 km suður af Hornafirði er vaxandi 975 mb lægð
sem fer hratt norður.
SPÁ: Allhvöss norðvestanátt með snjókomu norðaustanlands fram
eftir degi en hægari norðan- og norðaustanátt annars staðar. Él
verða norðvestanlands en lóttir til syðra. Frost 0-4 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðaustlæg eða breytileg átt og dálítil
snjókoma eða slydda sunnanlands en úrkomulitið og nokkuð bjart
veður norðanlands. Hiti nálægt frostmarki.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hvöss suðaustanátt um allt land með
slyddu og síðar rigningu, fyrst suðvestanlands, en síðar um allt
land. Hlýnandi veður.
y. Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
■* ■* *
10 Hftastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
[T Þrumuveður
t VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær aö ísl. tima hitf veftur Akureyri 1 snjóól Reykjavfk 0 snjókoma
Bergen 4 skýjaö
Helsinki 0 heiðskfrt
Kaupmannahöfn 3 þokumóða
Narssarssuaq 4-16 léttskýjað
Nuuk +17 téttskýjað
Osló +1 þokumóða
Stokkhóimur +1 þokumóða
Þórshöfn 7 alskýjað
Algarve 14 þokumóða
Amsterdam 3 mlstui
Barcelona 10 þokumóða
Bertín vantar
Chicago vantar
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 0 heiöskírt
Glasgow 7 skýjað
Kamborg 1 heiðskfrt
LasPalmas 21 skýjað
London 8 alskýjað
Los Angeles vantar
Lúxemborg +3. hrfmþoka
Medríd 9 þokumóða
Malaga 16 mlstur
Mallorca 12 þokumóða
Montreal -f3 snjóél
NewYork 3 alskýjað
Orlando vantar
Parfs 6 heiðskfrt
Róm a heiðskfrt
Vín mistur
Washlngton 3 alskýjað
Winnipeg +6 alskýjað
fara tvö útsýnisflug í gærkvöldi og
þijú í dag. í fyrrakvöld voru famar
tvær ferðir en farþegunum var end-
urgreitt vegna þess hvað lítið sást
til jarðeldanna. Arnarflug innan-
lands hf. fór átta útsýnisflug í fyrra-
dag. í gær viðraði ekki til útsýnis-
flugs að mati Arnarflugs en farið
verður strax og veður leyfir. Aust-
urleið hf. er með sætaferðir að
Galtalæk tvisvar á dag til að skoða
gosið úr fjarlægð. Farið er frá BSÍ.
Flugvélar Flugleiða og Arnar-
flugs innanlands hafa í nokkrum
tilvikum orðið að taka á sig krók
vegna gosmökksins frá Heklu sem
er yfir landinu og hafa verið lengur
á leiðinni á milli staða af þeim sök-
Morgunblaðið/HBj
Borgar Símonarson bóndi í Goðdölum í Skagafirði og Smári Borgars-
son notuðu þjalir til að sverfa til gaddinn á tönnum kinda sem fengu
flúoreitrun eftir Heklugosið 1980.
• •
Oskufall á Norður-
landi og miðhálendi
Ekki talin hætta á flúoreitrun búfjár
ÖSKUFALLS frá jarðeldunum í Heklu hefur orðið vart um megin-
hluta Norðurlands, auk hálendisins. f fyrrakvöld og fyrrinótt náði ösku-
fallið til Norðausturlands en í gærmorgun til Miðnorðurlands. Um
hádegið í gær hófst einnig öskufall í efstu sveitum Árnessýslu og var
búist við að það gæti náð til neðri sveita Ámessýslu og jafnvel Borgar-
fjarðar.
Samkvæmt upplýsingum Barða
Þorkelssonar jarðfræðings bárust
Veðurstofu íslands tilkynningar um
öskufall í fyrrakvöld og fyrrinótt í
Bárðardal, Mývatnssveit, á Tjörnesi,
Langanesi, í Eyjafjarðarsveit og
Fnjóskadal. Síðar varð áttin austlæg-
ari og í' gærmorgun var tilkynnt um
öskufall í Skagafirði og Austur-
Húnavatnssýslu, á Blönduósi og þar
fyrir austan. Tilkynningar höfðu því
borist um gjósku á Norðurlandi, allt
frá Blönduósi og austur á Langanes.
Einnig hafði Veðurstofan óstaðfestar
fréttir af öskufalli í Miðfirði. Ösku-
fallið var meira í innsveitum en á
útnesjum óg er það eftir bókinni.
Þykkasta gjóskulagið sem vitað
er um er við Hrauneyjafossvirkjun,
um þrír sentimetrar. Mun minna
öskufall var við Sigölduvirkjun. Tals-
vert öskufall var við Blönduvirkjun
í fyrrinótt og á Hveravöllum varð
vart við ösku snemma í gærmorgun.
Gjóska byrjaði að falla við Búrfells-
virkjun í gærmorgun.
Síðdegis í gær var spáð suðaust-
an- eða austanátt og talið líklegt að
aska falli neðar í Árnessýslu og jafn-
vel í Borgarfirði. Hins vegareru líkur
á að úr öskufalli dragi þar sem venj-
an er að mesta gjóskan kemur f
upphafi eldgosa.
Gjóskan sem fallið hefur er venju-
leg eldfjallaaska, basaltaska. Það
sem fellur næst eldstöðvunum er
grófara en það sem fýkur norður í
land. í Heklugosum hefur stundum
komist flúormengun í jarðveg norð-
anlands, þar sem íínna efnið fellur.
Síðast varð vart við slíkt eftir Heklu-
gosið sem hófst í ágúst 1980. Þá
féll t.d. þykkt öskulag í fremstu döl-
um Skagafjarðar og fengu bændur
flúoreitrun í fé sitt. Var hún að koma
fram næstu árin, einkum í kindum
sem voru lömb og veturgamlar þegar
öskufallið varð. Flúoreitrunin lýsti
sér þannig að gaddur kom í tennurn-
ar á fénu, tennur þess uxu vitlaust
og aflöguðust. Bændur urðu að slátra
töluvert af fé og sumir reyndu að
sverfa tennur kindanna til að geta
látið þær lifa.
Barði Þorkelsson og Brynjólfur
Sandholt yfirdýralæknir telja ekki
hættu á að búfé stafí hætta af flú-
ormengun i jarðvegi nú. Barði sagði
að árstíminn væri hentugur og snjór-
inn flýtti fyrir útskolun. Brynjólfur
sagði að næsta sumar yrði askan
sigin niður í jarðveginn og gæti ekki
valdið neinni hættu. „Það er helst
hætta á fei;ðum ef skepnur éta þetta
eða fái með drykkjarvatni, til dæmis
í pollum," sagði Brynjólfur.