Morgunblaðið - 19.01.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1991
5
4,9 milljóna kr.
halli á Listahátíð
Engin slys er
jeppa hvolfdi
Selfossi.
JEPPABIFREIÐ fór útaf Suð-
urlandsveginum skammt vest-
an Landvegamóta að kvöldi
fyrsta gosdags Heklu. Jeppinn
fór á hvolf og þakið lagðist
nánast saman. Ekki urðu slys á
mönnum.
Mikil hálka var á veginum og
einnig allan Landveginn frá Suð-
urlandsvegi að Heklu. Mikil um-
ferð var þetta kvöld. Dæmi voru
um bílale§tir með tugum bíla, til
og frá Heklu.
Sig. Jóns.
4,9 milljóna króna halli varð á Listahátíð í Reykjavík í sumar að
sögn Valgarðs Egilssonar fráfarandi formanns framkvæmdastjórnar
Listahátíðar. Mestur halli eða hátt á þriðju milljón varð á sýningum
pólska leikhópsins Kantor en tónleikar Vínardrengjakórsins og Sa-
lif Keita skiluðu hagnaði. Halli á Listahátíð árið 1988 nam um 3
milljónum króna.
Valgarður sagði í samtali við
Morgunblaðið að kostnaður við
komu þriggja leikhópa á hátíðina
hefði orðið mun meiri en reiknað
hafði verið með. „Við vissum reynd-
ar að halli myndi verða á Kantor-
leikhópnum en hann varð mun
meiri en við reiknuðum með eða
hátt á þriðju milljón. Af öðrum
hallaliðum má nefna kostnað af
skemmtiatriðum í Austurstræti og
styrki til ýmissa aðila vegna kostn-
aðar af ýmiss konar uppákomum."
í samtalinu kom einnig fram að
hagnaður hefði orðið af tónleikum
Vínardrengjakórsins og Salif Keita.
Tónleikar Bob Dylans stóðu undir
sér og lítill halli varð á tónleikum
Grænu blökkukvennanna. Uppá-
komur í Hressingarskálanum í
fengið jákvæða gagnrýni. Hann
sagði einnig að stjórnin væri ánægð
með aðsókn að hátíðinni.
Kjörin hefur verið stjórn Lista-
hátíðar ársins 1992. Hana skipa
Helga Hjörvar, förmaður, Valgarð-
ur Egilsson, varaformaður, Atli
Heimir Sveinsson, Sjón og Selma
Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fundur með
ráðherra
og loðnu-
sjómönnum
LJOS - GJAFAVARA-HUSGOGN
SUMAR FREISTINGAR ERU TIL ÞESS AÐ FALLA FYRIR ÞEIM.
Á FUNDI stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Sjómannafélags
Reykjavíkur á miðvikudag var
þeirri áskorun beint til Sjó-
mannasambandsins og Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins að beita sér fyrir fundi með
loðnuveiðisjómönnum þar sem
sjávarútvegsráðherra verði sérs-
taklega boðað. I gær féllst ráð-
herra á að eiga fund með sjó-
mönnum og verður hann væntan-
lega haldinn 28. janúar.
I ályktun stjórnar Sjómannafé-
lags Reykjavíkur segir að þess sé
vænst að ráðherra aflétti óvissu-
ástandi loðnusjómanna. fjárhags-
grundvelli ijölda sjómannsijöl-
skyldna sé stefnt í voða vegna afla-
brests loðnuveiðiskipa. Oljós svör
ráðherra varðandi veiðiheimildir til
handa loðnuflotanum telur stjórnin
vera óþolandi.
Lögreglan
Talsvert
um falskar
sprengju-
hótanir
NOKKUÐ hefur borið á því und-
anfarna daga að lögreglunni í
Reykjavík berist falskar
sprengjuhótanir símleiðis. Hefur
tekist að rekja öll símtölin sem
hafa komið frá drukknu fólki eða
mönnum sem átt hafa í erfiðleik-
um, að sögn lögreglunnar.
í einu tilfelli var hringt erlendis
frá en einnig tókst að hafa upp k
hver þar stóð að verki. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar ber allt-
af töluvert á hrekkjum af þessu
tagi þegar stórviðburðir gerast í
heiminum og þegar Persaflóastríðið
braust út upphófust nokkrar hring-
ingar af þessu tagi. Lögreglan tek-
ur allt slíkt alvarlega og lætur rekja
símtölin.
ELDHlMJmPTOTímSR
HÆGINDASTÓLAR, BORÐSTOFUBORÐ
SÓFARO.FL.O.FL. ■ I
ÞAR SEM ÞÚ GENGUR AÐ GÆÐUNUM VÍSUM
Borgartún 29. Sími 20640
M