Morgunblaðið - 19.01.1991, Qupperneq 11
MQRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19j JANUAR 1991
11
Jón Signrðsson
í fjárfestingum. Afleiðingin er sú
að við sitjum uppi með háan
vinnslukostnað.
Þessu þarf að breyta. Vinnslu-
stöðvar landbúnaðarins þurfa að
hafa aðhald af fijálsri samkeppni,
bæði sín á milli og við innfluttar
iðnaðarvörur úr hráefnum frá land-
búnaði.
Það þarf að breyta afurðasölu-
kerfinu og koma á fijálsri sam-
keppni milli innlendra vinnustöðva
á markaðnum. Með álagningu sér-
tækra tolla og jöfnunargjalda á inn-
fluttar vörur er hægt að jafna út
áhrif mismunandi verðs á hráefni
til vinnslunnar hér og erlendis. Þá
stendur eftir kostnaður vinnslu-
stöðvanna sjálfra á hveija fram-
leiðslueiningu. Samkeppnisstaða
þeirra verður að byggjast á fram-
leiðni þeirra og sérstökum eiginleik-
um framleiðslunnar, en ekki á höft-
um og einokunaraðstöðu. Vinnslu-
stöðvarnar verða að geta staðist
auka samkeppni á sama hátt og
önnur iðnfyrirtæki í landinu verða
nú að gera. Það mun kalla á ítrustu
útsjónarsemi í notkun þeirra fram-
leíðsluþátta sem notaðir eru í
rekstrinum, en það er einmitt það
sem annar iðnaður í landinu þarf
að gera.
í umræðum um ostlíkið hefur
komið fram að framleiðsluverð
„mozzarella“-osts hér á landi sé
ákveðin krónutala sem síðan er
borin saman við áætlað verð ostlík-
isins. Osturinn getur auðvitað stað-
ist samkeppnina við ostlíkið þótt
hann sé eitthvað dýrari á sama
hátt og smjör er verðlagt hærra en
smjörlíki. En stóra spurningin er,
hvort ostagerð á íslandi geti ekki
verið odýrari en hún er nú? Að sjálí-
sögðu er svarið játandi, en þá er
aðhald samkeppninar ómissandi. I
vinnslustöðvum landbúnaðarins
þurfa menn ekki að spyija slíkra
spurninga. Þar framvísa menn
reikningum á neytendur eða þá á
stjómvöld þegar framleiðslukostn-
aður er orðinn hærri en neytendur
vilja greiða.
Matvælaverð og lífskjör
Lífskjör þjóðarinnar ráðast af
mörgu, en matvælaverð er þar snar
þáttur. Það hefur tekið áratugi að
fá almennan skilning á því að stefn-
an í framleiðslu landbúnaðarvara
og í málefnum vinnslustöðva land-
búnaðarins er röng. Nú er loks far-
ið að rofa til utan samtryggingar-
kerfis landbúnaðarframleiðslu og
afurðavinnslu, og ég trúi því að á
næsta kjörtímabili muni skynsemin
fá að ráða. Það verður bæði neyt-
endum og bændum til hagsbóta.
Mikilvægt skref í uppstokkun á
þessu úrelta kerfi er að veita
vinnslustöðvunum aðhald með sam-
keppni. Þannig má bæta lífskjörin.
Heimsklúbbur Ingólfs:
Kynning á Hótel
Sögu á morgun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning.
Undir forystu Ingólfs Guð-
brandssonar, sem leitt hefur þús-
undir íslendinga á
vit sögu, lista og
náttúruundra í öll-
um álfum heims-
ins, er verið að
stofna samtök
þeirra sem langar
að kynnast heim-
inum í völdum
ferðalögum og
njóta hins besta
sem hann hefur að bjóða, bæði í
Evrópu og fjarlægum álfum.
Fýrsta feriðin sem farin er undir
þessu nýja merki, er Suður-
Ameríkuferð er hefst 22. mars. Til
merkis um þá áherslu, sem lögð er
á góða gististaði, má benda á, að
í þessari ferð er gist á þremur hótel-
um í jafnmörgum heimsborgum,
Ingólfur
Guðbrandsson
sem öll eru í samtökunum „The
Leading Hotels of the World“.
Ingólfur kynnti ferðina með
myndasýningu sl. sunnudag og
seldist hún nærri upp á tveim dög-
um, en vegna margra áskorana
endurtekur hann kynninguna
sunnudaginn 20. janúar kl. 16.00 i
Ársal Hótels Sögu, þar sem kaffí-
veitingar verða í boði, en aðgangur
er ókeypis og öllum heimill, sem
áhuga hafa á starfi klúbbsins. Ing-
ólfur Guðbrandsson hefur dvalist
langdvölum í Suður-Ameríku
síðastliðin tvö ár.
Starfsemi Heimsklúbbsins verður
nánar kynnt síðar, en meðal mark-
miða hans eru góð kynni þátttak-
enda og haldgóð fræðsla um þau
lönd, sem ferðast er til, auk þess
að skipuleggja sérstaklega valdar
ferðir á heimsfræga staði við vægu
verði.
(Frcttatilkynning frá Heimsklúbbnum.)
Höfundur er iðnaðnr- og
viðskiptaráðherra.
■ ÚRSLITí 1. umferð á atskák-
móti íslands í fyrrakvöld urðu sem
hér segir: Jón L. Árnason - Rúnar
Sigurpálsson 3-0, Jóhann Hjart-
arson - Áskell Ö. Kárason 2 - ,
Margeir Pétursson - Sæberg Sig-
urðsson 3-0, Héðinn Steingríms-
son - Þröstur Árnason -/2, Frið-
rik Ólafsson - Jóhannes Ágústs-
son 3-1, Karl Þorsteins - Elvar
Guðmundsson 4-3 (jafnt eftir 4
skákir, Karl vann í bráðabana),
Hannes H. Stefánsson - Ingvar
Ásmundsson 2-, Þröstur Þór-
hallsson - Björgvin Jónsson 3-1.
í 2. umferð sem tefld var í gær-
kvöldi áttust eftirtaldir við: Jón L.
Árnason - Þröstur Þórhallsson,
Jóhann Hjartarson - Hannes H.
Stefánsson, Margeir Pétursson -
Karl Þorsteins, Þröstur Árnason
- Friðrik Ólafsson. Mótinu lýkur
á morgun:
„Takið eftir
takiðeftii*
KALLKERFI
BODKERFI
Stórmarkaðir,
stórfyrirtæki, vinnusvæði,
íþróttabyggingar,
sjúkrahús.
Boðkerfi; hægt er að hafa
tónlist, eða útvarp inn á
kerfinu, jafnframt því að nota
það sem kallkerfi.
TÆKNIDEILD Sími: 691500
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI69 15 00
C Sam/uK^UK
BóiímwmDm vóku-helgafells
r
AUtað
85%
C*f$láttar!
Ol Kl Lll,
YmMÆhhlX
Dœmi um rwkkur sértUboð
á bókamarkaðnum:
Launráð í Lundúnum - eftir Ken Follett...... 1.344,- 295,-
Paskval Dvarte og hyski hans *•
Venjulegt Tilboðs- Af-
verð verð sláttur
789,- 295,- 63%
1.349,- 295,- 78%
o>, oo oo 1 595,- 81%:
1.344,- 295,- 78%
'1.829,- 295,- oo
Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú á X/gfð
bókamarkaði Vöku-Helgafells í forlagsversluninni að
Síðumúla 6 í Reykjavík.
Hér gefst einstakt tækifæri til þess að bæta eigulegum verkum í
bókasafn heimilisins - bókum af öllum gerðum við allra hæfi.
Bókamarkaður Vöku-Helgafells stendur til 20.febrúar
næstkomandi. Margar bókanna eru til í takmörkuðu upplagi og
því best að drífa sig sem fyrst!
95
íntfl'-
VAKáí
HELGAFELL
ú^cutc/i át^ci
Síðumúla 6 • simi 688300