Morgunblaðið - 19.01.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991
13
Ólafur Egilsson sendiherra í Moskvu:
Viðhorf Jeltsíns þau sömu
og Alþingi lýsti í ályktun
Að leik með hörpudisk
Hörpudiskur er fastur punktur í atvinnulífi Grundfírðinga. Yfírleitt
er á vísan að róa þegar hann er annars vegar og markaður fyrir
fiskinn. er góður. Hörpuskeljahrúgur eru ekki óalgeng sjón á staðnum
og þessi ungi Grundfírðingur var að leik í einni slíkri þegar Ragnar
Axelsson festi hann á fílmu á dögunum.
Styrkur úr Sögusjóði
stúdenta í Kaupmannahöfn
í febrúarmánuði verður veitt-
ur árlegur styrkur úr Sögusjóði
stúdenta í Kaupmannahöfn. Upp-
hæð styrksins er að þessu sinni
7.000 danskar krónur.
Sjóðurinn veitir styrki til:
a. Verkefna er tengjast sögu ís-
lenskra námsmanna í Kaupmanna-
höfn.
b. Verkefna er að einhveiju leyti
tengjast sögu íslendinga í Kaup-
mannahöfn.
c. í sérstökum tilfellum til ann-
arra verkefna er tengjast dvöl ís-
lendinga í Danmörku.
Umsóknir um styrkinn skulu
hafa borist stjóm sjóðsins, 0ster
Voldgade 12, 1350 Kobenhavn K,
fyrir 20. febrúar 1991.
(F réttatilky nning)
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, sagði Ólafi Egilssyni,
sendiherra íslands í Moskvu, að
viðhorf hans til atburðanna í
Eystrasaltslöndunum væru
mjög á sömu lund og fram koma
í ályktun sem Alþingi Islendinga
samþykkti á mánudag.
Þetta kom fram í samtali við
Ólaf Egilsson í gær, en hann og
Stefán L. Stefánsson sendiráðsrit-
ari gengu á fund Jeltsíns á mið-
vikudag. í ályktun Alþingis voru
aðgerðar sovéska hersins í Litháen
fordæmdar og því lýst yfir að þær
bijóti gegn grundvallarreglum í
samskiptum ríkja. Þá segir í álykt-
uninni að engin lausn sé viðunandi
á málum Eystrasaltsríkjanna önn-
ur en fullt og óskorað sjálfstæði
þeirra.
Á fundinum greindi Ólafur Jelts-
ín frá ályktun Alþingis og fyrirhug-
aðri ferð Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanríkisráðherra til Eystra-
saltslandanna. Jeltsín sagði Ólafi
frá för sinni til Eistlands sl. sunnu-
dag, en þar var gefin út sameigin-
leg ályktun rússneska lýðveldisins
og Eystrasaltsríkjanna um rétt
Eystrasaltsríkjanna til sjálfstæðis.
„Það kom fram að Jeltsín teldi
mjög mikilsvert að þessi valdbeit-
ing gagnvart Eystrasaltsríkjunum
gengi ekki lengra vegna þess að
það gæti haft mjög alvarlegar af-
leiðingar á fleiri stöðum í Sovétríkj-
um,“ sagði Ólafur.
Hann sagði Jeltsín hafa lýst
Ólafur Egilsson, sendiherra.
áhyggjum af ástandinu og verið
gagnrýninn á aðgerðir sovéskra
stjórnvalda. „Hann sagðist hafa
varað við slíku áður en til atburð-
anna kom, en vonaðist jafnframt
til að allir áttuðu sig á að ekki
mætti ganga lengra á þessari
braut.“
Ólafur sagði aðspurður að Jelts-
ín hefði komið honum mjög vel
fyrir sjónir. „Hann virtist íhugull
og það sem hann sagði virtist mjög
vel ígrundað," sagði Ólafur.
Sendiherrar annarra Norður-
Borls Jeltsín, forseti Rússlands.
landa í Moskvu áttu sameiginlegan
fund með Jeltsín á þriðjudag, en
Ólafur var ekki boðaður á þann
fund. Ólafur sagði að sá fundur
hefði verið haldinn með mjög stutt-
um fyrirvara og vegna þess og
nánast mistaka hefðu honum ekki
borist boð um þann fund. Ólafur
sagðist þá hafa óskað eftir sérstök-
um fundi með Jeltsín vegna þess
að þau mál, sem höfðu verið til
umræðu á fundi sendiherranna,
væru ekki síður í hugum íslenskra
stjómvalda um þessar mundir.
-----—
STORUTSALA
20 - 70% AFSLÁTTUR
Á EIÐISTORGI11
OPNUNARTIMIUM HELGINA:
í DAG FRÁ KL. 10 -16 SUNNUDAG FRÁ KL. 13 -17