Morgunblaðið - 19.01.1991, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991
t
/
jftteáður
f
a
morcruit II
♦ IIV V \\ Vt-# t'
ARBÆJARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson. Kirkjubíll fer
um Ártúnsholt og Efra-Seláshverfi
og flytur börnin til guðsþjón-
ustunnar og heim aftur að henni
lokinni. Guðsþjónusta kl. 14. Fyrir-
bænaguðsþjónusta miðvikudag kl.
16.30. Sr. Guðmundur Þorsteins-
son.
ÁSPRESTAKALL: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Kaffisala kirkjukórsins að guðs-
þjónustu lokinni. Sr. Guðni Gunn-
arsson skólaprestur annast þáðar
guðsþjónusturnar. Organisti Dan-
íel Jónasson. Þriðjudag: Bæna-
guðsþjónusta með altarisgöngu kl.
18.30. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðrún Ebba Ól-
afsdóttir, sr. Pálmi Matthíasson.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi
Matthíasson.
DIGRAIMESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þor-
þergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11. Messa.
Bænadagur að vetri. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson. Barnastarf í
safnaðarheimilinu á sama tíma.
Kl. 14. Samkirkjuleg guðsþjónusta
á vegum samstarfsnefndar kris-
tinna trúfélaga. Beðið um frið. Erik
Guðmundsson forstöðumaður að-
ventista prédikar. Sr. Heimir
Steinsson formaður nefndarinnar
þjónar fyrir altari. Ritningar lesa:
Hafliði Kristinsson forstöðumaður
hvítasunnumanna, Ingibjörg Jóns-
dóttir brigader í Hjálpræðishern-
um og sr. Jakob Rolland sóknar-
prestur við Kristskirkju í Landa-
koti. Dómkórinn syngur við báðar
guðsþjónusturnar. Marteinn H.
'Friðriksson leikur á orgelið. Dag-
legar þænagjörðir í kirkjunni kl. 18.
Beðið fyrirfórnarlömbum stríðsins
og skjótum endalokum þess. Mið-
vikudag: Hádegisbænir í kirkjunni
kl. 12.15.
LANDAKOTSSPÍTALI: Guðsþjón-
usta kl. 13. Orgelleikur Birgir Ás
Guðmundsson. Sr. Jakoþ Ágúst
Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Árelíus Níelsson.
Organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
FELLA- og Hólakirkja: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Ath. breyttan
messutíma vegna útvarpsguðs-
þjónustu. Prestur sr. Guðmundur
Guðspjall dagsins:
Matt. 6.:
Er þér biðjist fyrir.
Karl Ágústsson. Ingibjörg Þórar-
insdóttir 13 ára syngur einsöng.
Organisti Guðný M. Magnúsdóttir.
Þriðjudag: Fyrirbænir í Fella- og
Hólakirkju kl. 14. Miðvikudag:
Guðsþjónusta með altarisgöngu
kl. 20.30. Prestur sr. Hreinn Hjart-
arson. Fimmtudag: Helgistund fyr-
ir aldraða í Gerðuþergi kl. 10 f.h.
Sóknarprestur.
GRAFARVOGSSÓKN: Messu-
heimili Grafarvogssóknar félags-
miðstöðinni Fjörgyn. Barnamessa
kl. 1 í. Skólabíllinn fer frá Húsa-
hverfi kl. 10.30 í Foldir og síðan í
Hamrahverfi. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Sigríður Jónsdóttir.
Sóknarprestur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Eldri börnin uppi í
kirkjunni, yngri börnin niðri. Messa
kl. 14. Altarisganga. Prestur sr.
Gylfi Jónsson. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Prestarnir. Biblíulestur
þriðjudag kl. 14.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnasamkoma kl. 11. Sr. Karl Sig-
urbjörnsson. Kvöldmessa með alt-
arisgöngu kl. 17. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Þriðjudag: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 10: Morgun-
messa sr. Arngrímur Jónsson. Kl.
11: Barnaguðsþjónusta. Kirkjubíll-
inn fer um Suðurhlíðar og Hlíðar
fyrir og eftir guðsþjónustuna. Kl.
14: Messa. Sr. Tómas Sveinsson.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru í
kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.
Sóknarnefndin.
HJALLAPRESTAKALL: Messusal-
ur Hjallasóknar, Digranesskóla.
Barnamessur kl. 11. Húsið opnað
kl. 10.30. Allir velkomnir. Sr. Kristj-
án Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
sunnudag kl. 11. Fjölskylduguðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Organisti Guðmundur Gilsson.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna, söngur, sögur, leikir. Þór
Hauksson og Jón Stefánsson sjá
um stundina. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson. Organisti Jón Stefánsson.
Kór Langholtskirkju. Sóknarnefnd-
in.
LAUGARNESKIRKJA: Laugardag:
Guðsþjónusta í Hátúni 10þ, 9.
hæð, kl. 11. Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11. Barnastarf á sama tíma.
Heitt á könnunni eftir guðsþjón-
ustuna. Fimmtudag: Kyrrðarstund
í hádeginu. Orgelleikur, fyrirbænir,
altarisganga. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11 í umsjón Sigríðar Óladóttur.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Reynir Jónasson. Sr. Frank M.
Halldórsson. Miðvikudag: Bæna-
messa kl. 18.20. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
psta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Molasopi eftir guðsþjónustuna.
Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Barna-
kórinn syngur. Organisti Gyða
Halldórsdóttir. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Barnastarf
á sama tíma. Umsjón hafa Kristín
Þ. Tómasdóttir og Eirný Ásgeirs-
dóttir. Miðvikudag: Samkoma kl.
20.30. Sönghópurinn „Án skil-
yrða“.
FRÍKIRKJAN f Reykjavík: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Gestgjafi í
söguhorninu Þórir S. Guðbergs-
son, rithöfundur. Guðsþjónusta kl.
14. Miðvikudag 23. janúar morg-
unandakt kl. 7.30. Orgelleikari Vio-
lete Smid. Kirkjan er opin í hádeg-
inu mánudag til föstudag. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lág-
messa kl. 8.30, stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lég-
messa kl. 14. Rúmhelga daga lág-
messa kl. 18, nema á laugardög-
um, þá kl. 14. Á laugardögum er
ensk messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga lág-
messa kl. 18 nema fimmtudaga
kl. 19.30 og laugardaga kl. 14.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíiadelf-
ía: Almenn samkoma kl. 16.30.
Fjölbreytt \ dagskrá. Sunnudaga-
skóli á sama tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkirkj-
uleg guðsþjónusta í Dómkirkjunni
kl. 14. Samkoma kl. 16.30. Kaf-
teinn Elsabet Danielsdóttir prédik-
ar. Sunnudagaskóli á sama tíma.
NÝJA POSTULAKIRKJAN: Guðs-
þjónusta kl. 11.
KFUM OG KFUK: Almenn sam-
koma kl. 20.30 í kristniþoðssaln-
um, Háaleitisbraut. Ljós fyrir þjóð-
irnar (Jes. 49, 1 .-6.)
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Lágafellskirkju kl. 14. Organisti
Guðmundur Ómar Óskarsson.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Sr. Jón Þorsteinsson.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Ferenc Utassý. Gide-
onfélagar koma í heimsókn. Kári
Geirlaugsson flytur hugleiðingu.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta Víðistaðakirkju kl. 11-
Guðsþjónusta kl. 14 í Hrafnistu og
guðsþjónusta í Víðistaðakirkju kl.
14. Kór Víðistaðasóknar syngur.
Organisti Úlrik Ólason. Sr. Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson.
H AFN ARFJ ARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólaþílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn aðstoða. Organisti
Helgi Bragason. Sr. Gunnþór Inga-
son.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Einar Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
Lítil athugasemd
— í framhaldi af Helgispjalli 13.01.1991
Vetrarganga með Ferðafélaginu í Heiðmörk.
Ferðafélag íslands:
Hringganga um
Reykjavík að vetri
Miðstjórn Alþýðu-
sambands Islands:
Ofbeldi
sovéskra
stjórnvalda
mótmælt
Heilagi M
í 108. grein Helgispjalls sunnu-
daginn 13.01. sl. fjallar þú um „ut-
anstefnur“ og þar segir m.a. svo:
...og þá þykir það ekki síst í sam-
ræmi við sjálfstæði okkar og full-
veldisvitund að skjóta málum til
erlendra dómstóla. Gvendi biskupi
góða og Jóni Arasyni var legið á
hálsi fyrir þetta sama ..."
Mer fellur þungt að heyra svona
hugsun krauma innan höfuðskelja
þinna, þó þú að vísu hafir þá afsök-
un að löglærðir grautarhausar hafa
uppá síðkastið látið samskonar dellu
frá sér fara á prenti. Því enga aðra
afsökun hefur þú fyrir þessari rang-
færslu þinni á staðreyndum. Þér á
að vera það jafnkunnugt og öðrum
sæmilega upplýstum mönnum, að
íslenskum dómsmálum verður ekki
áfrýjað til erlendra dómstóla, því
Hæstiréttur íslands er samkvæmt
stjórnarskrá æðsti dómstóll og dóm-
um hans verður því ekki skotið til
annara dómstóla, hvorki innlendra
né erlendra.
Eða veistu um dæmi slíks?
Hitt er svo annað mál að til eru
alþjóðlegir dómstólar. En þeir hafa
ekki lögsögu yfir dómsmálum nokk-
urrar þjóðar. Lögsaga þeirra nær
einvörðungu til eftirlits með alþjóð-
legum samningum sem ríkisstjórnir
hafa með sér gert og þjóðþingin
staðfest.
Þannig er tilaðmynda um Mann-
réttindadómstólinn í Strasborg.
Hans lögsaga er eftirlit með því að
aðildarþjóðir Mannréttindasáttmála
Evrópuráðsins virði þau mannrétt-
indi sem þær hafa skuldbundið sig
tilað virða. Strasborgardómurinn
fæst ekki við að breyta dómum
Hæstaréttar, sem standa óhaggaðir
hver sem niðurstaða Mannréttinda-
nefndar og Mannréttindadómstóls
verður. Enda fjalla sérfræðingarnir
í Strasborg einvörðungu um það
hvort form réttarhalda hafi staðist
kröfu Mannréttindasáttmálans eða
ekki. Mannréttindadómstóllinn
dæmir ríkisstjómir sem ekki hafa
staðið við eigin skuldbindingar til
skaðabóta og getur líka vikið ein-
stökum ríkjum úr Evrópuráðinu, sé
um endurtekin brot þeirra á almenn-
um mannréttindum að ræða.
Man ég það ekki rétt að þannig
slyppi gríska herforingjastjómin við
frekara rex útaf mannréttindum
þegna sinna skömmu áðuren hún
féll?
Það er dapurlegt til þess að vita
ef þú heldur að fullveldi okkar sé í
einhverri hættu þó ríkið sé krafið
um fullar éfndir á skuldbindingum
sínum. Því reynist íslenska ríkið
ófært um það að standa við orð sín
á þessu sviði þá verður það sjálfsagt
leyst undan þeim skyldum með
brottrekstri.
Og verður þaðanífrá fullvalda
samsafn réttlausra einstakinga.
Sannleikurinn er sá að Mannrétt-
indasáttmálinn var einmitt gerður
af fullvalda, sjálfstæðum Evróþu-
þjóðum í timburmönnunum eftir
fasistafylleríið mikla 1933-1945.
Tilað forða leiðtogum þjóða frá illum
freistingum á þessu sviði. Engu full-
veldi er fómað í því sambandi. Ekki
frekar en sjálfstæði einstaklings
sem gengur tilaðmynda í bindindis-
stúku. Reynist slíkur stúkufélagi
'óforbetranlegur fylliraftur er hann
bara rekinn — og hefur þá ótak-
markað frelsi tilað drekka sig í hel.
Og vitaskuld líka tilað rausa um
fullveldi sitt á meðan.
Og þú verður að fyrirgefa mér,
kæri M, en þetta tal ykkar um „nú-
tíma utanstefnur" og „skertan
sjálfsákvörðunarrétt" minnir mig
einna helst á tuldrið í svoleiðis fylli-
rafti.
Með kæram kveðjum,
Þorgeir Þorgeirsson.
HRINGGANGA um útivistar-
svæði Reykjavíkur hefst á sunnu-
daginn. I ferðaáætlun Ferðafé-
lags íslands sem er að koma út
um þessar mundir eru margar
nýjungar. Ein þeirra nefnist
Reykjavík að vetri. Með henni
verða útivistarsvæði Reykjavík-
ur bæði utan og innan byggðar
kynnt í eins konar hringgöngu í
5 áföngum.
Fyrsta gangan hefst sunnudag-
inn 20. janúar og er brottför kl.
13.00 við Mörkina 6 þar sem hús
Ferðafélags íslands er í byggingu.
Frá náttúrunnar hendi er land
Reykjavikur vel fallið til útiveru.
Leiðir göngunnar munu liggja um
svæði sem hafa bæði sérstakt gildi
sem útivistar- og náttúruverndar-
svæði. Um er að ræða svæði sem
eru á náttúruminjaskrá, t.d. Elliða-
árdalur, Grafarvogsleirur og Gufu-
neshöfði. Undir svokallaða borgar-
vernd heyrir t.d. strönd Grafarvog-
ar frá Gullinbrú að Gufuneshöfða,
en þar verður einmitt gengið á
sunnudaginn. í þeirri göngu sem
hefst við Mörkina 6 vestast í Soga-
mýrinni er haldið niður að Árhólm-
um að Rafstöðinni við Elliðaár.
Gengið verður með Elliðaánum,
neðan Ártúnsholts og Ártúnshöfða
út að Grafarvogi og með ströndinni
að Gufuneshöfða og Gufunesi. í
Gufunesi býður rúta hópsins um
fjögurleytið og flytur til baka að
Mörkinni 6. Ekkert þátttökugjald.
Það er einnig hægt að vera með
hluta göngunnar, t.d. má snúa við
hjá Elliðaárbrúm.
Næsti áfangi er áætlaður sunnu-
daginn 10. febrúar, en vegna þess
að þá sömu helgi verður þorrablóts-
ferð Ferðafélagsins að Skógum, er
líklegt að einnig verði boðið upp á
þá göngu einhvern annan dag svo
enginn missi af neinu. Hring-
göngunni lýkur með fimmta áfang-
anum sunnudaginn 17. mars.
(Frúttatilkynning)
Á FUNDI miðstjórnar Alþýðu-
sambands Islands 16. janúar
voru ofbeldisaðgerðir sovéskra
stjórnvalda gagnvart sljórn-
völdum í Eystrasaltslöndunum
undanfarna daga og árásir
hersins á óvópnaða og saklausa
borgara fordæmdar. Þá lýsti
miðstjórnin einnig áhyggjum
sínum vegna stríðs við Persaf-
lóa.
„Við höfðum bundið miklar
vonir við þær umbætur sem orðið
höfðu í stjórnarháttum í Sov-
étríkjunum fyrir alþýðu mánna
þar í landi og því eru atburðir
síðustu daga alvarlegt áfall fyrir
þann árangur sem í augsýn var/‘
segir í ályktun miðstjórnar ASI.
Um ástandið við Persaflóa
segir;„Miðstjórn ASÍ lýsir áhyggj-
um sínum yfir því stríðsástandi
sem nú ríkir við Persaflóa. Það
er ljóst að hernaðarátök munu
bitna hart á óbreyttum borgurum
á svæðinu, konum og börnum og
geta valdið alvarlegum umhverf-
isspjöllum.
Miðsatjórn gerir tilkall till þess
að enn frekar verði látið reyna á
friðsamlega lausn til að koma í
veg fyrir stríðsátök sem leitt geta
mannkynið á heljarþröm," segir
í ályktun miðstjórnarinnar.