Morgunblaðið - 19.01.1991, Side 15
ágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
3.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Kirkju-
kórinn syngur. Organisti Steinar
Guðmundsson. Sr. Þorvaldur Karl
Helgason.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Barn-
astarf kl. 11. Sr. Þorvaldur Karl
Helgason.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sugnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Málfríðar Jó-
hannsdóttur og Ragnars Karlsson-
ar. Munið skólabílinn. Guðsþjón-
usta kl. 116. Kór Keflavíkurkirkju
syngur. Organisti og stjórnandi
Einar Örn Einarsson. Bifreið fer
að íbúðum eldri borgara við Suður-
götu kl. 13.30, þaðan að Hlé-
vangi, Faxabraut og sömu leið til
baka að lokinni guðsþjónust.u.
Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar
fyrir altari og prédikar. Sóknar-
prestur.
GRINDARVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Barnakórinn
syngur. Börn úr Tónlistarskóla
Grindavíkur leika á ýmis hljóðfæri.
Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
messa kl. 11 í umsjá Kristínar Sigf-
úsdóttur.
KOTSTRANDARKIRKJA: Messa
kl. 14. Sr. Tómas Guðmundsson.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í safnaðarheimili
kirkjunnar kl. 13 laugardag. Barna-
guðsþjónusta í kirkjunni sunnudag
kl. 11 og fjölskyldumessa kl. 14.
Vænst þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Fyrirbænaguðs-
þjónusta fimmtudag kl. 18.30.
Beðið fyrir sjúkum. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Sr. Björn Jóns-
son.
BORGARPRESTAKALL: Fjölskyld-
umessa í Borgarneskirkju kl. 11.
Sóknarprestur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991
—l-m—r-j—n—rr——-j—rm—í á T' : I f.-(t (» -—m m r
15
—írT
Minning:
Ingibjörg Agústs-
dóttir, Svalbarðseyri
Fædd 16. desember 1903
Dáin 10. janúar 1991
í fáeinum orðum vil ég minnast
ömmu er lést í Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri eftir stutta sjúkra-
legu þar. Ingibjörg amma bjó á
Breiðabliki á Svalbarðseyri ásamt
eftirlifandi eiginmanni sínum, Sig-
mari Bergvin Benediktssyni, Breiða-
bóli, Svalbarðsströnd.
Böm Ingibjargar og Sigmars em:
Ásta, f. 1925, gift Bjama Sveinssyni
múrarameistara; Jóhannes, f. 1929,
kvæntur Jóhönnu Þorsteinsdóttur og
Ingi Sigurður, f. 1934, kvæntur Lilju
Þorsteinsdóttur.
Margar minningar sækja á þegar
litið er til baka, gott var að koma
til ömmu og afa, amma hæglát og
góð kona, maður fann fyrir miklum
kærleika og hlýju í návist hennar.
Er ég var á tólfta aldursári fengu
afi og amma pláss fyrir mig í sveit
hjá Sigurði Karlssyni, bónda á Drafl-
astöðum í Fnjóskadal, þá fann ég
hvað þeim var annt um að ég færi
á gott sveitaheimili og var ég hjá
því sómafólki fjogur sumur. Amma
var mikið fyrir gróður og átti hún
fallegan garð kringum húsið, þar
eyddi hún frítima sínum við ræktun
og snyrtingu og var oft gaman að
koma á björtum sumardegi og skoða
allar þær tegundir af blómum sem
hún var búin að rækta. Síðasta
æviárið var amma orðin þreklítil og
rúmföst, annaðist þá afí hana af ást
og umhyggju þar sem ekki var hægt
að fá heimahjúkrun fyrr en síðustu
vikurnar er hún lifði.
Foreldrar mínir eiga miklar þakk-
ir skildar fyrir þá hjúkrun og umönn-
un sem þau veittu ömmu, daglega
fór móðir mín til Svalbarðseyrar til
að hjúkra henni. Ég vil þakka öllum
þeim sem hjúkrað hafa ömmu og
starfsfólki Fjórðungssjúkrahúss Ak-
ureyrar fyrir þeirra hjálp. Fjölskylda
mín biður algóðan Guð að styrkja
afa í sorg haps því hans missir er
mikill.
Að leiðarlokum kveðjum við góða
konu: Blessuð sé minning hennar.
Sigmar Bergvin Bjarnason
í dag er til moldar borin ástkæf
amma okkar, Ingibjörg Ágústsdótt-
ir, sem lengst af bjó á Breiðabliki á
Svalbarðseyri. Ung valdi hún heim-
ili sínu nafnið Breiðablik eftir bústað
Baldurs, hins hvita og góða goðs.
Þar bjó hún í 50 ár ásamt manni
sínum, Sigmari Benediktssyni. Varð
friðsælt og fallegt heimili þeirra og
Svalbarðseyriji okkur systkinum
annað heimkynni okkar í uppvextin-
um. Foreldrar ömmu voru Ágúst
Sveinbjörnsson úr Mjóafirði og
Kristín Ólafsdóttir frá Vestmanna-
eyjum og ólst amma upp í föðurhús-
um, í Skálanesi í Vestmannaeyjum
ásamt 3 systrum, Önnu, Petrúnu og
Ágústu, en tvær þær fyrrnefndu eru
látnar. Þá átti hún eina hálfsystur,
Guðríði.
Sem barn og unglingur var amma
oft á sumrin í sveit á ýmsum bæjum
undir Eyjafjöllum og eins og enn er
títt í Vestmannaeyjum fór hún ung
að vinna í fiski og greip í þann starfa
ásamt skyldum störfum við matvæl-
aframleiðslu af og til síðar á ævinni.
Nítján ára réðst hún til Keflavíkur
til Elinrósar Benediktsdóttur ljós-
móður. Þar kynntist hún bróður El-
inrósar og síðar manni sínum, Sigm-
ari Benediktssyni vélstjóra > frá
Breiðabólstað á Svalbarðsströnd sem
lengi gegndi starfi íshússtjóra á
Svalbarðseyri. Gengu þau í hjóna-
band 9. maí 1925. Fyrstu hjúskapar-
árin bjuggu þau á Sválbarðseyri, í
Vestmannaeyjum og í Keflavík, en
fluttust alkomin til Svalbarðseyrar
1940. Þeim varð þriggja barna auð-
ið: Ásta verslunarkona á Akureyri,
f. 1925, gift Bjama Sveinssyni
múrarameistara; Jóhannes Pétur
vélstjóri og múrari, Ytri-Njarðvík,
f. 1929, kvæntur Jóhönnu Þorsteins-
dóttur og Ingi Sigurður Bergvins
búfræðingur, Reykjavík, f. 1934,
giftur Lilju Þorsteinsdóttur. Barna-
börnin urðu 9 og langömmubörnin
21.
Síðustu æviár fór heiisu ömmu
smárn saman hrakandi og naut hún
þá frábærrar umönnunar maka síns
og Ástu, dóttur sinnar. Frá því sl.
haust var hún nær alveg rúmliggj-
andi og mætti hún heilsutapi sínu
af því æðruleysi og þeirri fáguðu
rósemi sem svo mjög höfðu einkennt
hana. Þá naut hún einnig síðustu
ævimánuðina fágætrar umönnunar
hjúkrunarfræðinga heimahjúkrunar
Heilsugæslustöðvar Akureyrar. Eft-
ir mánaðarlegu á lyfijadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri þar
sem hún varð aðnjótandi ástríkrar
aðhlynningar lækna og alls starfs-
fólks kom kallið þráða.
Um leið og við nú felum ömmu
Guði á vald er okkur efst í huga
þakklæti fyrir allt það sem hún miðl-
aði til okkar af sálargöfgi sinni,
djúpu innsæi í mannlegt eðli og auð-
ugri þekkingu á ýmsum fræðum, en
hún var bókakona mikil og las allt
milli himins og jarðar. Þó voru lækn-
isfræði og fornleifafræði henni eink-
ar hugstæð. Hún var sílesandi allt
fram í andlátið og minnist mamma
hennar lesandi yfir pottunum í
gamla daga, jáfnframt því sem hún
hélt myndarlegt og gestkvæmt
heimili, hlúði að plöntum og dýrum
og sat oft við sauma. Hún var geð-
prúð og athugul, lítt fyrir manna-
mót, en gladdist innilega í hópi góðra
systra, fjölskyldu, vina og samstarfs-
fólks.
Henni hefur verið svo lýst: „Hún
var dul kona en öllu gat hún bjargað
ef á þurfti að halda.“
Alltaf áttum við tryggð hennar
og trú vísa sem var hafin yfir hjal
hégómans, dylgjur og mislyndi
manna. Við kjósum að kveðja hana
með þessum orðum:
„Gott er þér, vinur, pðs i dýrð að vakna,
þig gladdi löngum himininn að sjá.
Víst er oss þungt að sjá á bak og sakna
samvista þinna. En oss skal huggun ljá:
Vér eigum líka úr lífsins svefni að rakna.“
(Gisli Thorarensen)
Megi algóður Guð styrkja afa í
sorginni.
Systkinin úr Brekkugötu 3,
Sveinn, Ingibjörg, Björg,
Sigmar Bergvin, Alma Svein-
björg og Bjarni.
Haraldur Ingi sýnir í Slunkaríki
HARALDUR Ingi opnar sýningu
á vatnslitamyndum og grafík í
Slunkaríki á ísafirði í dag, laug-
ardaginn 19. janúar. Myndirnar
eru málaðar seinnihluta árs 1989
og 1990.
Grafíkin ér tilbrigði við „ósjálf-
ráða“ skrift sem verður til á með-
an á símtölum stendur, þegar setið
er á löngum og leiðirílegum fundum
eða hlustað á ræður og erindi. Hvers-
dagskrassinu er síðan raðað upp á
flötinn eins og í einfaldri klippmynd.
Haraldur Ingi Haraldsson er fædd-
ur 1955, útskrifaðist úr Nýlistadeild
Myndlista- og handíðaskólans 1981
og stundaði framhaldsnám í Hollandi
1982-1985. Sýningin í Slunkaríki er
sjöunda einkasýning Haraldar.
laugardag og sunnudag kl. 10 - 17
Bílaumhoðið hf
Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 686633
RENAULT
Fer á kostum
itri jiíjyst;*
. jJUIUl JUU JU^IjDIIÍJ J