Morgunblaðið - 19.01.1991, Síða 19
MOKGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991
19
Margir Arabar
fagna árásunum
Túnisborg, Amrnan, Sidon, Rabat, Kaíró, Damaskus. Reuter.
Eldflaugnaárásum íraka á ísrael var fagnað í gær í mörgum ar-
abaríkjum, meðal annars í löndum sem hafa myndað bandalag með
Vesturlöndum gegn Saddam Hussein íraksforseta í deilunni um Kú-
veit. Egyptar óttuðust hins vegar að stríð kynni að brjótast út milli
araba og ísraela. Fyrstu viðbrögð stjórnvalda í arabaríkjunum voru
þó varfærnisleg en talsmenn Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO)
hvöttu þau til að styðja íraka þar sem ísraelar tækju nú í raun þátt
í stríðinu við Persaflóa.
Palestínumenn og Líbanir döns-
uðu fagnandi á götum Beirút og
borga í Suður-Líbanon er fregnir
bárust af því að íröskum eldflaugum
hefði verið skotið á Tel Aviv og
hafnarborgina Haifa í ísrael. Leið-
togar PLO hvöttu stjórnvöld í ara-
baríkjunum til að láta af stuðningi
sínum við fjölþjóðaherinn við Persa-
flóa og styðja Iraka. Þeir sögðu að
þau gætu ekki verið þekkt fyrir ann-
að þar sem ísraelar væru nú þátttak-
endur í stríðinu.
Almenningur í Sýrlandi fagnaði
einnig árásunum ákaft en valdhaf-
arnir í landinu, sem hafa sent þús-
undir hermanna til liðs við fjölþjóða-
herinn við Persaflóa, tjáðu sjg ekki
um málið. „Það var rangt af írökum
að ráðast inn í Kúveit. Ollum er hins
vegar guðvelkomið að skjóta hvenær
sem er á ísrael," sagði leigubílstjóri
um árásina á erkifjendur araba.
Sýrlensk og írösk stjórnvöld hafa
eldað grátt silfur í áratugi.
Fyrstu viðbrögð stjórnvalda í öðr-
um arabaríkjum voru einnig var-
færnisleg, einkum í Jórdaníu, sem
liggur á milli íraks og ísraels og
gæti orðið illa úti ef stríð brytist út
á milli ríkjanna. Jórdanir virtust
bæði stoltir af árásunum og hræddir
við afleiðingarnar. Stjórnin í Egypta-
landi, sem er sú eina í arabaheimin-
um er hefur friðmælst við ísraela,
tjáði sig ekki heldur um árásimar.
Margir Egyptar sögðust hins vegar
óttast að hugsanlegar hefndarárásir
Israela leiddu til stríðs milli araba
og Israela. Hosni Mubarak, forseti
Egyptalands, hafði lýst því yfir að
gyðingaþjóðin hefði rétt til að hefna
fyrir árásir á ísrael.
Opinbera fréttastofan í Marokkó
sagði að hugsanleg þátttaka ísraela
í stríðinu yrði til þess að ijúfa sam-
stöðu Vesturlanda og bandamanna
þeirra í deilunni um Kúveit. Sendi-
herra Saudi-Arabíu í Frakklandi,
fordæmdi eldflaugnaárásina harð-
lega og sagði að hún yrði ekki til
þess að Saudi-Arabar tækju þátt í
stríði við ísraela.
Mestur virtist stuðningurinn við
Saddam Hussein og árásir fraka í
Norður-Afríku, þar sem hreyfingum
heittrúaðra múslima vex nú ásmegin
og andúð á öllu því sem vestrænt
er fer vaxandi.
Nokkuð Ijón varð á íbúðarhúsnæði í Tel Aviv og Haifa í Scud-eldflaugaárás íraka á ísrael
Konurnar tvær misstu heimili sín í árásunum en kraftaverk þykir að enginn skuli hfa týnt
Reuter
í fyrrinótt.
lífi.
Átta Scud-flaug-
um skotið á Israel
Nikósíu. Jerúsalom. Reuter.
IRAKAR skutu að minnsta kosti
átta Scud-eldflaugum á Israel í
fyrrinótt, samkvæmt upplýsing-
Míkhaíl Gorbatsjov.
Reuter
möguleiki, að mikil hætta steðji að
Póllandi. Atburðirnir í Litháen eru
ef til vill eins konar undirbúningur
undir tilraun sovéska heimsveldis-
ins til að bæta sér upp missi
Austur-Þýskalands og annarra
ítaka,“ sagði Walesa á fundi með
Samstöðuþingmönnum. Sagði
hann, að fyrir þessu hefði hann
ákveðnar vísbendingar én taldi þó,
að gangur styijaldarinnar fyrir
Persaflóa, miklir yfirburðir banda-
manna, gerði þessa þróun ólíklega.
Fulltrúar Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna komu saman til fund-
ar í Brussel í gær til að ræða
ástandið í Eystrasaltsríkjunum og
var þar meðal annars rætt um hvort
hætta ætti stjórnmálalegum sam-
skiptum við sovétstjórnina og
draga til baka boð til Gorbatsjovs
um að sækja höfðuðstöðvar banda-
lagsins heim á þessu ári. Þá er
haft eftir ráðamönnum Evrópu-
bandalagsins, að komi til frekari
kúgunaraðgerða í Eystrasaltsríkj-
unum kunni að verða hætt við fyrir-
hugaðan fund í næstu viku um
aukið samstarf EB og Sovétríkj-
anna í efnahags- og tæknimálum.
Er nú á döfinni samningur þess
efnis við Ungveijaland, Pólland og
Tékkóslóvakíu og hefur sovét-
stjórnin sérstaklega beðið um aðild
að honum.
um bándaríska varnarmálaráðu-
neytisins. Hermt er að þeim hafi
verið skotið frá Al-Rutba herstöð-
inni skammt frá jórdönsku landa-
mærunum og hafi þær þvi farið
yfir jórdanskt loftrými á leið sinni
til Israels. Er þetta í fyrsta sinn
í sögunni sem eldflaugaárás er
gerð á Israel og sögðust Israelar
áskilja sér rétt til þess að svara
fyrir sig og sat ríkissljórn Yitz-
haks Shamirs á neyðarfundi í gær
en fulltrúi bandaríska varnar-
málaráðuneytisins sagði að Israel-
ar hefðu fallist á að hefna ekki
árásarinnar.
Fyrstu sprengingarnar kváðu við
klukkan 2.10 í fyrrinótt að stað-
artíma og komu eldflaugarnar niður
við hafnarborgirnar Tel Aviv og
Haifa, einkum í íbúðarhverfum, en
ein sprakk á flugi yfir fyrrnefndu
borginni. Nokkur hús eyðilögðust en
kraftaverk þykir að ekkert manntjón
skyldi verða. Aðeins er vitað um 12
inanns sem slösuðust og hlutu þeir
allir minniháttar meiðsl, að söng
ísraelskra embættismanna. Talið er
að Scud-eldflaugarnar hafi borið
venjulega 150 kílóa sprengihleðslu
hver.
Þegar árásin hófst var gefin út
viðvörun um eiturhernað og íbúar
landsins hvattir til að leita skjóls í
einangruðum herbergjum heimila
sinna og setja á sig gasgrímur.
Embættismenn sögðu að milljónir
manna hefðu orðið við því og fylgst
með útsendingum útvarps og sjón-
varps þar sem leiðbeiningar voru
lesnar og róandi tónlist leikin þesa
á milli. Mikill viðbúnaður hefur verið
af hálfu ísraela vegna ótta þeirra
um að írakar létu verða af hótunum
um eiturefnahernað gegn Israel.
Þijár fullorðnar konur og þriggja
ára arabísk stúlka dóu í tengslum
við eldflaugaárásina. Ein konan af
völdum hjartabilunar en hinar tvær
og stúlkan köfnuðu með gasgrímur
fyrir andliti. í öllum tilvikum hafði
plastlok ekki verið tekið af loftsíum
grímanna áður en þær voru settar á.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að eldflaugaárás Iraka
á Israel hefði ekki haft neinn hernað-
arlegan tilgang, hér hefði fyrst og
fremst verið um hryðjuverk að ræða
og tilgangurinn að skelka ísraela.
Hét Bush því að árásunum yrði svar-
að og einbeittu sprengjuflugvélar
fjölþjóðahersins sér að því í gær að
finna og granda því sem eftir var
af færanlegum eldflaugaskotpöllum
Iraka.
Tyrkir óttast árás
Genf. Reuter.
ÞRJÁR milljónir Tyrkja, sem búa nærri landamærunum að írak,
hafa flúið norður á bóginn af ótta við að írakar gerðu efnavopnaárás-
ir á Tyrkland.
Tyrkland er á meðal 28 ríkja sem
hafa myndað bandalag gegn her
Saddams Husseins Iraksforseta.
„Tyrkneska stjórnin hefur annast
þetta flóttafólk en við erum reiðubú-
in að koma til hjálpar ef þess verð-
ur farið á leit við okkur,“ sagði
Sergin Piazzi, háttsettur embættis-
maður Neyðarhjálparstofnunar
Sameinuðu þjóðanna í gær.
Um milljón erlendra borgara flúði
Írak og Kúveit eftir innrás íraskra
hersveita í Kúveit 2. ágúst. Embætt-
ismenn Sameinuðu þjóðanna höfðu
áætlað að 1,3 milljónir til viðbótar
flýðu stríð í Irak. í gær, þegar loft-
árásirnar á írak höfðu staðið í tvo
daga, höfðu aðeins um 8.000 Egypt-
ar flúið til Jórdaníu og fregnir
hermdu að jafn margir írakar hefðu
komið til írans. „Þetta kemur mjög
á óvart en ef til vill hefur fólk í
írak ákveðið að vera þar áfram í
von um að stríðið yrði stutt,“ sagði
Rolf Jenny, embættismaður hjá
Sameinuðu þjóðunum.