Morgunblaðið - 19.01.1991, Blaðsíða 20
Í2
20
teei aAöMAi .ei jrjpAUflAOUAi uiUAia/.uonow
MORGUNBLAÐIÐ LÁUGÁRDÁGUR í9JÁNÚÁR J991
PERSAFLOA
T omahawkstýri-
flaugar ruddu
brautina í Irak
Washington. Reuter.
TOMAHAWK-stýriflaugin var
hönnuð á tímum kalda striðsins
til þess að flytja kjarnorku-
sprengju á óvinarskotmark en í
Persaflóastríðinu hefur hún öðl-
ast nýtt hlutverk og í fyrsta sinn
verið notuð til þess að skjóta
venjulegum sprengihleðslum í
hefðbundnu striði.
1,5 milljónir dollara, jafnvirði 84
milljónir ÍSK. Flauginni er skotið
af stað með eldflaug en í um
tveggja kílómetra fjarlægð frá
skotpalli fer þotuhreyfíll flaugar-
innar í gang og knýr hann flaugina
að skotmarki sem kann að vera
allt að 2.400 kílómetra í burtu.
Reuter
James Spangler kapteinn (t.v.) í bandaríska hernum með mönnum sínum við skotpall fyrir Patriot-loft-
varnaflugskeyti í Saudi-Arabíu. Sveit Spanglers grandaði Scud-flaug skammt frá Dhahran.
Patriot-flugskeytin
stóðust frumraunina
Riyadh. Reuter.
BLAÐ var brotið í hernaðartækninni í fyrrinótt þegar
Patriot-loftvarnaflugskeyti grandaði sovétsmíðaðri Scud-
eldflaug yfir Saudi-Arabíu skammt frá Dhahran-herstöð-
inni við Persaflóa.
Fyrstu nótt styijaldarinnar var
á annað hundrað Tomahawk-
flaugum skotið á skotmörk í Irak,
að sögn Dicks Cheneys varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, frá
beitiskipum og tveimur herskipum
úr seinna stríðinu, Wisconsin og
Missouri.' Vopnasérfræðingar
segja að 90% flauganna hafí hæft
skotmörk sín af ótrúlega mikilli
nákvæmni eftir mörg hundruð
mílna flug. Hafí skakkað í mesta
lagi nokkrum fetum frá fyrirfram
ákveðnum bletti á skotmarkinu.
Tomahawk-flaugarnar bera 450
kílóa sprengihleðslu og fljúga á
sama hraða og farþegaþota rétt
yfir yfírborði jarðarinnar. Stýri-
búnaður flaugarinnar nemur hæð-
arlínur á leiðinni og sér um að hún
fljúgi rétt yfír trjátoppum. Nær
útilokað hefur verið fyrir íraka að
granda Tomahawk-flaugunum áð-
ur en þær hæfðu skotmark sitt.
Þar sem þær smjúga rétt yfír eyði-
merkursandinum á nær hljóðhraða
er ógemingur að sjá þær í ratsjám
svo að gagni komi.
Hver Tomahawk-flaug kostar
Patriot-flugskeytið var nú notað
í fyrsta sinn í hemaði og lýstu
fulltrúar Bandaríkjahers ánægju
með árangur þar sem fyrsta og
eina flaugin sem skotið hefur verið
skyldi granda óvinaflauginni. Mun
þetta vera í fyrsta sinn sem gagn-
flaug grandar meðal- eða lang-
drægri eldflaug i hemaði.
Hönnun og framleiðsla Patriot-
loftvamakerfísins þótti umdeild á
sínum tíma vegna svimandi kostn-
aðar sem nam milljörðum dollara.
Hvert flugskeyti kostra eina millj-
ón dollara eða 56 milljónir ÍSK.
Hófst þróun kerfísins árið 1965
en það var ekki talið tilbúið til
notkunar í hernaði_ fyrr en 1984
eða 19 ámm síðar. I hverri einingu
kerfísins eru tvær ratsjár, stjóm-
stöð og átta fjarstýrðir skotpallar
en í hveijum þeirra eru fjórar
flaugar í skotstöðu.
Patriot-loftvarnakerfíð var fyrst
tekið í notkun í Evrópu árið 1985
en það er uppistaðan í loftvömum
bandaríska landhers, bæði gagn-
vart flugvélum og eldflaugum.
Gegnir það lykil hlutverki í vörnum
fjölþjóðahersins gegn eldflaugum
Iraka. Var það meðal fyrstu vopna
sem send vora til Saudi-Arabíu á
fyrstu dögunum eftir innrás íraka
í Kúveit 2. ágúst sl. Einnig hafa
Patriot-flugskeyti verið seld heij-
um Saudi-Arabíu og ísraels eftir
innrásina en ísraelar munu ekki
hafa lokið uppsetningu þeirra og
því ekki getað notað flugskeytin
gegn Scud-flaugunum sem írakar
skutu þangað í fyrrinótt.
Patriot-flaugin er sögð meðal
fullkomnustu vopna Bandaríkja-
manna. Hún er fjögurra metra
löng, flýgur á rúmlega þreföldum
hljóðhraða og dregur um 50 km,
en það fer eftir hæð óvinaskot-
marksins. Flaugina má nota jafnt
gegn háfleygum eldflaugum sem
lágfleygum. Flughæð Scud-flaug-
arinnar sem grandað var yfír
Saudi-Arabíu í fyrrinótt var 5.000
metrar eða 17.000 fet og var henni
skotið frá Basra í suðurhluta íraks
og hafði því flogið um 520 kíló-
metra þegar hún var skotin niður.
Hermt er að Patriot-flugskeytið sé
tiltölulega ónæmt fyrir öflugum
rafeindatraflunum og geti fullkom-
inn tölvubúnaður hennar fylgst
með nokkram hugsanlegum skot-
mörkum samtímis.
Flugvélar fara tvö þús-
und árásarferðir á dag
BANDARÍSKAR flugvélar eyðilögðu í gær sex hreyfanlega
Scud-eldflaugaskotpalla sem írakar beindu gegn Saudi-
Arabíu, að sögn Normans Schwarzkopfs hershöfðingja,
yfirmanns bandaríska heraflans við Persaflóa. Hershöfð-
inginn sagði að flugvélar fjölþjóðahersins færu 2.000 árás-
arferðir á dag og hæfðu 80% skotmarka sinna. Sjö þotur
bandamanna hafa ekki snúið til baka úr árásarferðum
sínum og er flugmanna þeirra saknað.
„Bandaríski flugherinn fann þijá
hreyfanlega skotpalla með eldflaug-
um í írak í morgun. Eldflaugunum
var beint gegn Saudi-Arabíu. Þeim
hefur nú verið eytt,“ sagði Schwarz-
kopf á fréttamannafundinum. „Átta
eldflaugaskotpallar til viðbótar
fundust á sama stað. Á þessari
stundu er verið að gera árás á þá
og hefur eyðing þriggja þeirra ver-
ið staðfest. Við höldum áfram árás-
um á þá sem eftir eru - viðstöðu-
laust.“ Schwarzkopf sagði að
bandarískar orrastuvélar hefðu
eyðilagt nær alla fasta Scud-eld-
flaugaskotpalla og tiltölulega stór-
an hluta hinna hreyfanlegu. Hann
sagði að auðvelt væri að fínna fasta
eldflaugaskotpalla en það væri
hægt að líkja leit að hreyfanlegum
skotpöllum við leit að nál í hey-
stakk.
Schwarzkopf sagði að flugherir
bandamanna, færa u.þ.b. 2.000
árásarferðir á dag og hefðu hæft
um 80% skotmarka sinna. Yfirmað-
ur bandaríska flughersins við
Persaflóa, Charles Horner, staðfesti
að alþjóðlega herliðið hefðí misst
sjö flugvélar, þijár bandarískar,
tvær breskar, eina kúveiska og eina
ítalska. Allra flugmannanna er
saknað.
Talið er hins vegar að kúveiski
flugmaðurinn sé óhultur meðal and-
spymumanna í Kúveit. írakar segj-
ast hafa grandað mun fleiri vélum
bandamanna, eða 72 og þeir segj-
ast hafa bandaríska flugmenn í
haldi. Homer sagðist halda að átta
íraskar flugvélar hefðu verið skotn-
ar niður í loftbardögum.
Ráðist á úrvalssveitir
Að sögn Manfreds Rietsch,
ofursta í bandaríska flughemum,
voru I gær gerðar viðstöðulausar
loftárásir á allt að 30.000 íraska
skriðdrekahermenn úr úrvalssveit-
um íraska hersins, Lýðveldisverðin-
um, í suðvesturhluta íraks, skammt
frá kúveisku landamæranum.
Skriðdrekamir, sem era 5-600 tals-
ins, leynast grafnir í sand í eyði-
mörkinni norð-vestur af Kúveit.
Talið er að írakar treysti á þessar
sveitir til að vama innrás í Kúveit
af landi. Skriðdrekar sveitarinnar
sem eru sovéskir af gerðinni T-72
fóru fremstir í innrásinni í Kúveit
2. ágúst sl. eftir því sem vestrænir
hemaðarsérfræðingar komast
næst. Árangursrík árás á úrvals-
sveitirnar er talin geta dregið mjög
úr baráttuvilja annarra hersveita
íraka. Einn yfírmanna í her banda-
manna sagði að árásir yrðu gerðar
á sveitimar allan sólarhringinn
þangað til ekkert væri eftir af þeim.
Fyrstu stríðsnóttina gerðu flugvélar
bandamanna harða atlögu gegn
sveitunum og ollu þeim miklu tjóni.
Átök á landi hafa verið óveraleg
en stórskotalið íraska hersins hefur
skotið að bandarískum landgöngu-
liðum í framvarðasveit bandamanna
við landamæri Saudi-Arabíu og
Kúveits, valdið tjóni á herskýlum
og kveikt í byggingum við olíu-
vinnslustöðvar. Ráðist var á íraska
liðið með Cobra-þyrlum og ollu þær
talsverðu tjóni, eyðilögðu m.a.
stjórnstöð þá sem stjórnaði aðgerð-
um stórskotaliðsins. Ekki var vitað
um mannfall í liði íraka en þrír
Bandaríkjamenn vora fluttir í
sjúkrahús lítillega særðir. írakar
skutu Seud-eldflaug að Dhahran í
Saudi-Arabíu snemma í gærmorgun
en flaugin var eyðilögði í lofti með
bandarískri Patriot-flaug sem ekki
hefur verið notuð í átökum áður.
Upptaka bíla
við ítrekuð brot
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
DÖNSK stjórnvöld hafa látið
semja lagafrumvarp sem
gerir kleift, ef að lögum
verður, að gera bíla upptæka
ef eigendur þeirra gera sig
seka um ítrekuð áfengislaga-
brot eða önnur gróf umferð-
arlagabrot.
í lagafrumvarpinu er einnig
kveðið á um að ökumaður sem
misst hefur ökuskírteini sitt
vegna ölvunaraksturs geti
fengið það aftur þegar hann
hefur afplánað helming svipt-
ingartímabilsins hafí hann sótt
endurhæfingamámskeið á
meðferðarstofnun fyrir áfeng-.
issjúka.