Morgunblaðið - 19.01.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1991
21
Árásir áefnavopna-
stöðvar Iraka gætu
rey nst mannskæðar
Reuter
Lundúnum. Daily Telegraph.
HUGSANLEGAR loftárásir
bandamanna í stríðinu fyrir botni
Persaflóa á eiturefnastöðvar Ir-
aka gætu stefnt lífi óbreyttra
borgara í grenndinni í hættu.
Árásir á stöðvar með fullbúin
eiturvopn hefðu í raun sömu
áhrif og þegar þeim er beitt í
hernaði, að sögn hernaðarsér-
fræðinga í Lundúnum.
Árásir bandamanna á efnaverk-
smiðjuna í Samarra, um 60 km
norðvestur af Bagdad, gætu orðið
óbreyttum borgurum að bana. Við
verksmiðjuna er fjöldi loftvarna-
byssna og „hún var af ásettu ráði
reist í grennd við trúarmiðstöð,"
segir Terry Gander, ritstjóri hjá
Jane’s-útgáfufyrirtækinu í Lundún-
um.
Árásir á hernaðarmannvirki, þar
sem fram fara rannsóknir á efna-
vopnum eins og miltisbrandi og
taugagasi, gætu einnig reynst
mannskæðar - þótt fátt sé reyndar
vitað um þessar hemaðarrannsókn-
ir Iraka. Miltisbrandur gæti orðið
Sprengja grandar megin fjarskiptamiðstöð Bagdad-borgar. Ef myndin prentast vel má sjá hvernig vegg-
ir hússins splundrast í allar áttir en sprengjan fór niður í gegnum þakið. Krossinn á myndinni er
sprengjusigti flugmannsins. ___________
Loftárásir torséðra flugvéla á Bagdad:
Flugmenn senda sprengjiu*
eftir herbergjaskipan húsa
þess valdandi að mengaða svæðið
yrði óbyggilegt í hálfa öld.
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur sagt að í fyrstu árásunum á
írak hafi verið stefnt að því að af-
stýra hættunni á að Irakar gætu
beitt efnavopnum. Talið er að á
meðal skotmarka fyrstu eldflaugn-
anna, sem skotið var frá banda-
rískum herskipum, hafi verið hugs-
anlegar efnavopnastöðvar í Sam-
arra, Baiji, Fallujah og A1 Qaim.
Einnig er talið að ráðist hafi verið
á hugsanlega taugagasstöð í Salm-
an Pak, nálægt Bagdad. „Eitt af
vandamálunum er að við höfum
ekki nægar upplýsingar um þessar
stöðvar eða hvort gerðar voru árás-
ir á þær,“ sagði Thomas Stock, hjá
FriðarrannSóknastofnuninni í
Stokkhólmi.
Verksmiðjurnar gætu hugsan-
lega framleitt plágueyði eða litunar-
efni, þótt talið sé líklegra að um
efnavopnaframleiðslu sé að ræða.
Thomas Stock segir að jafnvel slys
í efnaverksmiðju skapi mikla hættu
þótt ekki séu þar framleidd efna-
vopn.
Bandaríska leyniþjónustan CIA
telur að írakar géti framleitt nokk-
ur hundruð tonn af efnum í eitur-
, vopnahernað á ári og eigi nú nokk-
urra þúsunda tonna birgðir. Talið
er að mest af þessu sé sinnepsgas.
„Ibúar í grenndinni hljóta að hafa
óskaplegar áhyggjur," sagði Gand-
er, en bætti þó við að áhrif árás-
anna réðust af því hvort í stöðvun-
um séu fullbúin efnavopn og af
veðri og vindátt.
í flugstöð í Saudi-Arabíu. Reuter.
TORSÉÐAR sprengjuflug-
vélar, fleyglaga Stealth F-
117A þotur, hófu loftárás-
irnar á írak aðfaranótt
fimmtudags en þær hófust
með því að varpað var eitt
þúsund kílóa sprengju á
helstu fjarskiptamiðstöð
Bagdad, höfuðborg lands-
ins. Hitti hún beint í mark,
að sögn Altons C. Whitleys,
yfirmanns 37 flugsveitar
Bandaríkjahers. Að hans
sögn fóru tvær flugdeildir
Stealth-flugvéla 30 ferðir á
80 skotmörk í Irak fyrir sól-
arupprás á fimmtudag.
Blaðamönnum voru sýnd í gær
einstök myndbönd, sem teknar
voru úr torséðri vél og sýndu þeg-
ar forsetahöll Saddams, ratsjár-
stöðvar og neðanjarðar stjórn-
stöðvar voru eyðilagðar með
sprengjum hennar. Þar mátti m.a.
sjá hvernig fjarskiptastöð Bagdad
var lögð í rúst. Sást hvernig flug-
vélin nálgaðist bygginguna og
þegar flugmaðurinn miðaði
sprengjusigtinu á miðju þaksins
til þess að stýra sprengjunni á
skotmarkið. Þegar þotan var beint
yfir húsinu og enn óáreitt af loft-
varnarbyssum mátti sjá sprengj-
una fara gegnum þakið og bygg-
inguna splundrast í allar áttir.
Annað myndband sýndi sprengju
fara inn um þakglugga á bygg-
ingu sem Saddam er sagður hafa
haft afnot af og jafna hana við
jörðu.
í sumum tilvikum voru gerðar
endurteknar árásir á víggirt
mannvirki til þess að ijúfa göt á
rammgerða veggina. Flugmenn
höfðu fengið upplýsingar fyrir-
fram um mikilvæg herbergi eða
salarkynni í viðkomandi bygging-
um og staðfestu myndböndin
hvernig þeim tókst að hæfa þau
með ótrúlegri nákvæmni. Höfðu
þeir jafnvel upplýsingar um her-
bergjaskipan ýmissa stjórnstöðva
og hafði þessum upplýsingum í
sumum tilvikum verið safnað með
hjálp njósnahnatta. „Maður velur
ákveðið skotmark fyrirfram, til
dæmis kvennasalernið eða karla,“
sagði Whitley. Hann sagði að í
fyrstu árásarferðinni hefðu loft-
varnir Bagdad nánast verið lam-
aðar.
Eins og einir í heiminum
Whitley flaug einni Stealth-
þotunni í fyrstu árásarferðinni og
komst hún óhindruð til borgarinn-
ar. „Við vorum eins og við værum
einir í heiminum yfir borginni,“
sagði hann. Loftvarnarkerfin
höfðu látið flugmennina óáreitta
því ratsjár þeirra sáu þær ekki.
Óll skotmörkin sem sveitin átti
að ráðast á voru hæfð og sneru
þoturnar til baka óskaddaðar.
Líkti hann fluginu inn yfir Bagdad
eins og „rólegheita ökuferð um
götur borgarinnar“. Ánægja með
árangur ferðanna var greinileg.
Flugsveitarforinginn sagði að
við upphaf loftárásanna hefði
fólksflótti hafist úr borginni. „Það
var óslitin bílalest úr borginni,
stuðari við stuðara. Ég held þeir
hafi ekki verið á leið á útifund
hjá Saddam í þetta sinn.“ Að sögn
Whitleys voru torséðu þoturnar
einnig sendar til árásarferða í
fyrrinótt og sagðist hann búast
við að þeim yrði beitt uns loftárás-
um á 'skotmörk í írak og Kúveit
lyki. „Við eigum heilmikið eftir
af skotmörkum í norðurhluta
landsins," sagði hann. Búist er við
að þotunum verði beitt gegn fær-
anlegum eldflaugaskotpöllum Ir-
aka jafnóðum og gervihnettir og
njósnaflugvélar finna þá.
Bandaríski flugherinn neitaði
tilvist F-117A flugvélanna allt til
ársins 1988 en þær höfðu þá flog-
ið í sjö ár eða frá því 1981. Flugu
þær frá leynilegri herstöð í
Nevadaæyðimörkinni og ætíð að
næturlagi en þær voru hannaðar
með það í huga að sjást ekki í
ratsjám og eru því eingöngu
sendar til árásarferða í myrkri.
HELGARFERÐIR I JANUAR FEBRÚAR OG MARS
Skemmtiskrepp um helgi,
kostar ekki mikið...
...með Flugleiðum.
Verðlagið er vinsælasta lagið í Glasgow. Verslanir með fjölbreytt vöruúrval.
Veitingastaðir og skemmtilegar uppákomur á hverju götuhorni.
Glasgow er fyrir þá sem vilja njóta lífsins, spara og versla
þar sem verðið kemur á óvart.
LAUGARDAGUR TIL ÞRIÐJITDAGS
HOSPITALITYINN
TVEIR í HERB. KR. 27.680 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið
Söluskrifstofur Flugleiða:
Allar nánari
Lækjargötu 2, Hótel Esju oq Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir í sím
ánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugíeiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
í síma 6 90 300.