Morgunblaðið - 19.01.1991, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
18. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð(kr.)
Þorskur 110,00 97,00 104,24 11.668 1.216.256
Þorskur(ósL) 103,00 70,00 86,43 9,850 • 851.446
Þorskursmár 78,00 55,00 74.21 • 0,534 39.628
Smárþoskurósl. 55,00 55,00 55,00 0,258 14.190
Ýsa 110,00 100,00 106,07 3,024 320.757
Ýsa (ósl.) 104,00 79,00 87,18 2,666 232.418
Smáýsa ósl. 30,00 30,00 30,00 0,053 1.590
Ufsi ósl. 33,00 33,00 33,00 0,050 1.650
Steinbítur 68,00 60,00 65,43 0,174 11.384
Steinb. ósl. 60,00 60,00 60,00 ■ 0,211 12.660
Lúða 310,00 290,00 308,74 0,308 92.245
Langa 68,00 68,00 68,00 0,041 2.788
Koli 59,00 59,00 59,00 0,054 3.186
Keila 27,00 27,00 27,00 0,030 810
Keila ósl. 27,00 27,00 27,00 1,821 49.181
Hrogn 300,00 100,00 252,38 0,042 10.600
Rauðmagi/Gr. 86,00 86,00 86,00 0,009 774
Lýsa ósl. 30,00 30,00 30,00 0,003 90
Hnísa
Blandað 30,00 30,00 30,00 0,030 900
Samtals Ú2,72 31,038 2.877.733
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 114,00 96,00 102.30 62.319 6.375.078
Þorskur ósl. 99,00 69,00 88,56 13.290 1.176.959
Ýsa 124,00 97,00 111,84 5.873 656.857
Karfi
Ýsa ósl. 99,00 65,00 83,65 2.183 182.610
Ufsi 53,00 42,00 43,53 1,824 79.393
Steinbítur 71,00 67,00 67,29 0,598 40.238
Langa 69,00 49,00 66,70 7,664 511.182
Lúða 400,00 280,00 320,15 0,487 155.915
Skarkoli 62,00 54,00 58,49 0,713 41.720
Sólkoli 75,00 75,00 75,00 0,028 2.100
Keila 46,00 37,00 45,26 1,645 74.455
Skata 125,00 125,00 125,00 0,157 19.625
Karfi 43,00 30,00 42,59 23,727 1.010.586
Lifur 20,00 8,00 12,98 0,294 3.816
Kinnar 140,00 115,00 124,34 0,099 12.310
Gellur 330,00 320,00 322,89 0,057 18:631
Hrogn 355,00 325,00 347,00 0,362 125.615
Blandað 49,00* 49,00 49,00 0,122 5.978
Undirmál 79,00 20,00 75,27 2,169 163.268
Samtals 86,21 123,612 10.656.319
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 125,00 85,00 97,87 37,370 3.657.550
Þorskur ósl. 119,00 92,00 99,63 4,243 422.773
Ýsa ósl. 90,00 90,00 90,00 0,174 15.660
Ýsa 99,00 •74,00 92,16 6,759 622.880
Karfi 50,00 40,00 45,01 1,492 67.156
Ufsi 46,00 15,00 45,06 9,857 444.131
Steinbítur 64,00 20,00 46,69 351,00 16.388
Hlýri 59,00 48,00 52,40 0,250 13.100
Hlýri/Steinb. 59,00 59,00 59,00 0,173 10.207
Langa 76,00 '59,00 72,54 2,622 190.198
Lúða 415,00 400,00 410,00 0,225 92.250
Skarkoli 69,00 57,00 61,60 0,417 25.687
Sandkoli
Keila 40,00 5,00 31,97 1,710 54.675
Skata 85,00 85,00 85,00 0,300 25.500-
Skötuselur 160,00 160,00 160,00 0,015 2.400
Blá/Langa 72,00 72,00 ■72,00 0,132 9.504
Lýsa 25,00 25,00 25,00 0,088 2.200
Blandað 40,00 35,00 39,02 0,422 16.465
Undirmál 70,00 70,00 70,00 0,100 7.000
Samtals 85,39 66,700 5.695.724
Selt var úr Hrungni, Búrfelli, Albert Ólafs og dagróðrabáturp. Á morgun
verður selt úr dagróðrabátum.
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
l.janúar 1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) ................. 11 -497
'h hjónalífeyrir ........................................ 10.347
Full tekjutrygging ..................................... 21.154
Heimilisuppbót ........................................••• 7.191
Sérstökheimilisuppbót ................................... 4.946
Barnalífeyrirv/1 barns .................................. 7.042
Meðlag v/1 barns ........................................ 7.042
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.412
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna ...................... 11 -562
Mæðralaun/feðralaun v/3ja barna eða fleiri .............. 20.507
Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða ......................... 14.406-
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða ........................ 10.802
Fullurekkjulífeyrir ..................................... 11.497
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) ............................. 14.406
Fæðingarstyrkur ......................................... 23.398
Vasapeningar vistmanna .................................. 7.089
Vasapeningarv/sjúkratrygginga ........................... 5.957
Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar ............................... 981,00
Sjúkradagpeningareinstaklings ........................... 490,70
Sjúkradagpeningarfyrir hvert barn á framfæri ............ 133,15
Slysadagpeningar einstaklings ...........................620,80
Slysadagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ................. 133,15
Fimm fvrirtæki gjald-
þrota í Olfushreppi
Þorlákshöfn.
MÖRG fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota að undanförnu og mishátt
farið fyrir því enda efni og aðstæður misjafnar. En þegar fimm
fyrirtæki í 1500 manna samfélagi lýsa sig gjaldþrota má ætla að
einversstaðar hrikti í stoðum.
Á nýliðnum mánuðum hafa
fimm fyrirtæki sem eru skráð í
Ölfushreppi orðið gjaldþrota eða
óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Þijú
þessara fyrirtækja eru í sjávarút-
vegi og tvö í fiskeldi.
Sjávarútvegsfyrirtækin eru Suð-
urvör, Oseyrames og Hafnarberg.
Suðurvör hefur stundað útgerð á
fiskvinnslu svo sem saltfiskverkun,
skriðar og síldarverkun. Suðurvör
er eitt þeirra sjávarútvegsfyrir-
tækja sem ekki hafa fengið lán eða
styrki úr bjargráðarsjóðum.
I Oseyramesi var unnið við
þurrkun hausa og notað til þess
heitt vatn og blástur. Hafnarberg
var ungt fyrirtæki sem byggði þó
á gömlum merg því eigendur þess
gerðu áður út bát og voru í fisk-
verkun. Þeir fjárfestu í nýju húsi
og vélasamstæðu til að vinna fisk
í mjög vandaðar neytendapakning-
ar.
Fiskeldisfyrirtækin eru Smári
hf. og Laxalón. Smári hf. sem er
með kvíaeldi vestur á bergi og
seiðaeldisstöð á Þorlákshöfn. Fyr-
irtækið var í útgerð áður en það
fór út í fiskeldi. Laxalón er eitt
elsta fyrirtæki í laxeldi hér á landi.
Það var víða með starfsemi sína
þó það væri skráð í Ölfushreppi
og hluti rekstursins að Þóroddstöð-
um í Ölfusi.
Ástæður þessara gjaldþrota eru
margar og áhrif þeirra á þjónustu-
fyritæki mikil og alltaf hætta á
keðjuverkun.
Kröfur í þessum gjalþrotum
umfram eignir er erfitt að meta.
Flest þessara fyrirtækja eru rekin
áfram annað hvort af fyrri eigend-
um sem hafa tekið þau á leigu eða
bústjórar hafa verið skipaðir og
þeir falið fyrri eigendum að sjá um
reksturinn.
Atvinnuleysi hefur verið nokkuð
hér að undanförnu en þó ekki mik-
ið umfram það sem vænta má í
gæftalausum desember og janúar.
- J.H.S.
Leiðrétting
Nafn Auðar Sveinsdóttur, sem
skrifaði undir bréfið um friðun land-
náms Ingólfs fyrir hönd Landvernd-
ar, féll því miður niður í blaðinu í
gær. Er beðist velvirðingar á þeim
mistökum.
Minning:
Páll H. Arnason,
Vestmannaeyjum
Einn af Ofanbyggjurum Vest-
mannaeyja, Páll Árnason bóndi í
Þórlaugargerði vestra, hefur kvatt
jarðartilveru og verður útför hans
gerð frá Landakirkju í dag. Fallinn
er í valinn valinkunnur maður sem
alla ævi vann hörðum höndum og í
hveiju einu sem hann tók sér fyrir
hendur, stóru sem smáu, skilaði hann
af sér betri hlut en hann tók við.
Þannig er vandlifað, en svo mikill
ræktunarmaður var Páll í Þórlaugar-
gerði hvort sem var til andagiftar
eða móður Jarðar að kynni við hann
voru í senn skóli sem skemmtun.
Skóli að skynja endalausan dugnað
og vilja, skemmtun að skilja lífsgleð-
ina sem á bak við bjó, ástina til þess
sem lifir og hrærist.
Páll í Þolló, eins og við Ofanbyggj-
arapeyjarnir kölluðum hann í dag-
legu tali, flutti til Vestmannaeyja frá
Húnavatnssýslu 1951 með Guðrúnu
Aradóttur konu sinni og sonum. Páll
fæddist á Geitaskarði í Langadal 5.
ágúst 1906. Þau Guðrún giftu sig
1932 og höfðu búið í 17 ár nyrðra
þegar þau fluttu búferlum til Eyja
1951. Þá höfðu þau búið á Móbergi
og í Glaumbæ í Langadal. Ástæðan
fyrir því að þau fluttu til Eyja var
sú að Páll þjáðist af asma og hafði
trú á sjávarloftinu til heilsubótar og
meiningin var sú að stunda ekki
búskap í Eyjum. Þegar þau Guðrún
tóku við Þórlaugargerði vestra, ein-
um Ofanbyggjarabæjanna í sveitinni
í Eyjum, voru þar tvær kýr fyrir og
bóndinn í Páli vildi halda þeim. En
mói sem hægt var að bijóta í besta
ræktunarland, hvanngræna grasið í
Eyjum og andi bóndans tók í taum-
ana og fyrr en varði var Páll farinn
að rækta upp svæði Ofanbyggjara-
byggðarinnar sem aldrei fyrr höfðu
verið ræktuð.
í Þórlaugargerði bjuggu þau Guð-
rún til 1985 er þau fluttu sig um set
til bæjarins.
Guðrún Aradóttir var sú Guðs gjöf
sem Páll mat mest og mikið undur
skilar mynd tímans yndislegri mynd
af ást þeirra og virðingu. Að þessu
leyti voru þau ævina alla eins og
unglingar með blik í auga sem aldrei
brást. Páll var gott skáld og mörg
eru þau ljóðin sem hann orti til henn-
ar Guðrúnar sinnar, endalaust ára-
tugina alla. Og ótalin eru þau ljóðin
sem hann orti við lögin hennar Guð-
rúnar, fallegu lögin sem hún spilar
svo skemmtilega á gítar og orgel.
Þannig voru þau sjálfs sín herrar í
mennt og menningu, mikið bókafólk
og trúhneigð svo eyddi öllum efa.
Þórlaugargerðisheimilið var mikið
myndarheimili og það var góður bak-
hjarl fyrir ærslafulla peyja sem hætti
gjarnan til að ganga skrefið of langt.
Kleinurnar hennar Guðrúnar og allt
meðlætið voru stórveislur heimsins
og það var gott nábýli með. þeim og
Ara, Áma og Hildari, sonum þeirra.
Fósturdóttirin Guðrún Einarsdóttir
var þeirra augasteinn og síðar varð
ein Guðrún til, sonardóttir, til halds
og trausts og hamingju afa og ömmu.
I brennuleiðöngrum bemskuár-
anna fyrir hver áramót stálum við
peyjarnir oft traktornum hans Páls,
drógum hann með reipi út að hliði í
skjóli nætur og gangsettum þar með
allt annað en fermingarsvip. Auðvit-
að vissi Páll af þessu, en aldrei sagði
hann orð þótt oft leiddi hann okkur
til verkkunnáttu og vits í hinu dag-
Iega brauðstriti. Mest voru þau Guð-
rún og Páll með 16 kýr og alla tíð
réð andi bóndans stemmningu þeirra
Þórlaugargerðishjóna. Það var satt
að segja með ólíkindum hvað Páll
vann afkastamikinn og langan vinnu-
dag þrátt fyrir veika heilsu lengst
af ævinnar. En ef andinn getur verið
holdinu yfirsterkari þá var sú nátt-
úra í Páli í Þórlaugargerði og ætíð
fór liann blíðum höndum um gróður
jarðar þótt heilsan væri honum ekki
eins holl og vonir stóðu til. Páll í
Þolló var sérstæður maður, sterkur
persónuleiki og blærinn í lífi hans
var hún Guðrún. Hann hélt sínu
striki, laus við pjatt og hégóma, en
lifði lífinu eins og sannur maður.
Þegar aðrir óku um á tiyllitækjum
nútímans lét Páll sér nægja gamla
traktorinn sinn og það var stórkost-
legt eftir eldgosið 1973 að fylgjast
með Páli í verkum sem lögðu grunn-
inn að uppgræðslu Heimaeyjar. Þá
nutu Eyjarnar sérstaklega bóndans
sem bar að svo óvænt norðan úr
landi.
Páll var listaskrifari og völundur
í útskurði þegar hann gaf sér tíma
til slíkra gæluverkefna. Langur
vinnudagur langrar ævi hafði sett
mark sitt á hann, en aldrei brást
brosið í auga hans meðan bijóst
hans bærðist. Páll í Þórlaugargerði
miðlaði miklum þroska til samferða-
manna sinna, hávaðalaust, en með
vinarþeli til þeirra er vildu njóta af
reynslu hans og viljaþreki. Góður
Guð varðveiti hann á slægjum eilífð-
arinnar og verndi eftirlifandi vini og
vandamenn sem eiga í hjarta sínu
minninguna um heilsteyptan mann
og magnaða persónu.
Árni Johnsen
Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síðustu tíu vikur, 8. nóv. -17. jan., dollarar hvert tonn
POTUELDSNEYTI
500------------------
475------------------
450------------------
425------------------
225
9.N 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J 11.
GASOLÍA 425" 400
1
350 1
*\a -Mv /
'v Aa J
1
250 ~r 225— : 200 175 150 9.N 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J MÍO | 1 CT>CT> T 1 1 l 000 1
GENGISSKRÁNING
Nr. 12 18. jánúar 1991
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi
Dollari 55,28000 55,44000 55,88000
Sterlp. 106,62100 106,93000 106,00400
Kan. dollari 47.77700 47,91500 48,10400
Dönsk kr. 9,49090 9,51840 9,52360
Norsk kr. 9,35360 '9,38070 9,37580
Sænsk kr. 9.79450 9,82280 9.79920
Fi. mark 15,16810 15,21200 15,22820
Fr. franki 10,75380 10.78490 10,81320
Belg. franki 1,77450 1,77960 1,77910
Sv. franki 43,45910 43.58490 43,07570
Holl. gyllini 32,41370 32,50750 32,59260
Þýskt mark 36,53670 36.64240 36.77530
ít. líra 0,04860 0,04874 0,04874
Austurr. sch. 5,19240 5,20750 5,22660
Port. escudo 0,40860 0,40980 0,41220
Sp. peseti t 0,58110 0,58280 0,57500
Jap. yen 0,41408 0,41528 0,41149
Irskt pund 97.53300 97,81600 97,74800
SDR (Sérst.) 78,59990 78,82740 78,87740
ECU, evr.m. 75,34390 75,56190 75,38210
Tollgengi fyrir janúar er sólugengi 28. desember. Sjálf-
virkur slmsvari gengisskráningar er 62 32 70.