Morgunblaðið - 19.01.1991, Qupperneq 25
m>í HAÚHAl .et HUOAdHAíMJ'AJ (JUJAJHVIUOHOM
MOKGUNBhAÐiÐ tAUGAKDAGUR 19. JANUAR 1991'
Morgunblaðið/Steinunn Osk Kolbeinsdðttir
Bláhrafninn kúrir á hendi Steinunnar.
Hvolsvöllur:
Blahrafn 1 haska
Hvolsvelli.
KRISTÍN Leifsdóttir á Hvolsvelli bjargaði fyrir skömmu bláhrafni
úr bráðum háska þar sem hann hékk fastur í tré.
„Eg tók eftir honum þar sem
hann hékk í öspunum hérna á móti
mér í Norðurgarðinum. Þegar ég
sá að hann flaug ekki í burtu fór
ég að gæta að honum. Þá sá ég
að hann var með gimi vafið um
fætuma á sér og var búinn að festa
sig í trénu. Ég tók hann þá inn til
mín og losaði girnið af honum en
það var farið að særa hann tals-
vert. Vonandi verður honum ekki
meint af þessu,“ sagði Kristín og
bætti við að sér þættu bláhrafnar
skemmtilegir fuglar sem ætu næst-
um hvað sem væri að því er virtist.
Morgunblaðið sagði fyrr í vetur
frá bláhröfnum sem hafa verið í
heimsókn á Hvolsvelli. Þeir hafa
ekki yfirgefíð þorpið þrátt fyrir
harðnandi tíð.
í nýju alfræðiorðabókinni segir
um bláhrafninn að hann sé af hröfn-
ungaætt. Hann sé mjög félagslynd-
ur, verpi í stórum byggðum og geri
sér hreiður í tjám. Hann lifir í Evr-
ópu og Asíu og er tíður flækingur
á íslandi.
- S.Ó.K.
Jan Myrdal í Norræna húsinu:
Fjallar um frönsku bylt-
ingnna o g ritferil sinn
SÆNSKI rithöfundurinn Jan
Myrdal fjallar um frönsku bylt-
inguna og ræðir um sýninguna
„Franska byltingin í myndum"
við opnun sýningarinnar í Norr-
æna húsinu á_ laugardaginn
klukkan 15.00. Á sunnudaginn
klukkan 17.00 mun hann fjalla
um bækur sínar og rithöfunda-
feril. Kynningin fer fram í fund-
arsal Norræna húsins .
Jan Myrdal er fæddur árið 1927.
Meðal bók eftir hann eru: Folkets
hus (1953), Rapport frán en kines-
isk by (1963), Samtida bekánnelser
av en europeisk intellektuell (1964),
Barndom (1982), En annan várld
(1984), og Tolv pá det trettonde
(1989). Auk skáldsagna hefur Jan
gefið út greinasöfn og kom það
síðasta, Skriftstállningar, út arið
1988. Hafa verk hans fengið góðar
viðtökur bæði í heimalandi rithöf-
undarins og erlendis.
Sýningin „Franska byltingin í
myndum" er byggð á teikningum
sem ungur franskur myndlistamað-
ur Jean-Louis Prieurs (1759-1795)
gerði á meðan á byltingunni stóð
Sænski rithöfundurinn Jan
Myrdal heldur tvö erindi í Norr-
æna húsinu um helgina.
og lýsa þær atburðum byítingarinn-
ar.
Jan Myrdal og kona hans, mynd-
listarmaðurinn Gun Kessle unnu
sýninguna í samvinnu við Riks-
utstállningar í Svíþjóð.
Niðurstaða Jafnréttisráðs:
Réttur feðra til fæðing-
arorlofs ekki brotinn
Líklegt að málið fari fyrir dómstóla,
segir Rögnvaldur Símonarson
JAFNRÉTTISRÁÐ skiptist í afstöðu sinni til réttar feðra, sem vinna
hjá ríkinu, til greiðslna í fæðingarorlofi. Rögnvaldur Símonarson, sem
óskaði eftir áliti Jafnréttisráðs, er ósáttur við niðurstöðu meirihlutans
og telur nyög líklegt að málið fari fyrir dómstóla.
í niðurstöðu meirihluta Jafnréttis-
ráðs, en að henni standa fimm af sjö
sem í ráðinu sitja, segir að ákvæði
reglugerðar um barnsburðarleyfí
i ríkisstarfsmanna stríði ekki gegn
ákvæðum laga um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla. Árni
Gunnarsson, varaformaður ráðsins
lét bóka að vegna margra vafaatriða
telji hann nauðsynlegt að fá niður-
stöðu fyrir dómstólum.
Minnihluti ráðsins telur að fast-
ráðnir karlmenn, sem starfað hafa
samfellt í sex mánuði eða lengur hjá
ríkinu, eigi rétt á að njóta sömu kjara
og konur, taki þeir fæðingarorlof.
„Ég tel forsendur meirihlutans
hæpnar, en er hjartanlega sammála
minnihlutanum," sagði Rögnvaldur
Símonarson. Málið snýst um mismun
á kjörum karla og kvenna og það
er skýrt í lögunum .að óheimilt er
að mismuna kynjunum í kjörum. Ég
á frekar von á því að farið verði með
málið fyrir dómstóla."
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík:
Framboðsfrestur rennur út
á miðnætti á mánudagskvöld
FRESTUR til að tilkynna nm framboð vegna prófkjörs Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík rennur út á miðnætti nú á mánudagskvöldið, þann
21. janúar. Prófkjörið fer fram að hálfum mánuði liðnum, 2. og 3.
febrúar og verður kosið á fjórum stöðum í Reykjavík. Ossur Skarp-
héðinsson staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að harin hefði
ákveðið að gefa kost á sér í 3.-6. sæti listans.
„Ég hef kannað þetta í Alþýðu-
flokknum og fundið að ég hef víða
hljómgrunn. Ég er þakklátur fyrir
þær móttökur sem alþýðuflokks-
menn hafa veitt mér og sérstaklega
ánægður með það að eldri flokks-
menn virðast kunna framboði mínu
vel,“ sagði Össur.
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins hefur til-
kynnt að hann gefi kost á sér í 1.
sæti listans, en Jóhanna Sigurðar-
dóttir varaformaður flokksins hefur
enn ekki upplýst í hvaða sæti hún
gefur kost á sér. Þorlákur Helgason
býður sig fram í 1.-3. sæti. Ragn-
heiður Davíðsdóttir býður sig fram
í 3.-5. sæti. Jón Ármann Héðins-
son, Valgerður Gunnarsdóttir og
Birgir Árnason munu einnig bjóða
sig fram. Þröstur Ólafsson hefur
ekki enn tilkynnt um þátttöku í
prófkjörinu, en búist er við því að
hann verði með.
Sigurður Pétursson kosninga-
stjóri Alþýðuflokksins sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ekki væri
frágengið hvar yrði kosið, nema
hvað fyrir lægi að fyrsti kjörstaður
yrði í Álþýðuhúsinu. Þar yrði einnig
utankjörstaðaatkvæðagreiðsla frá
og með næsta miðvikudegi, 23. jan-
úar.
„Rétt til þátttöku í prófkjörinu
eiga allir sem búsettir voru í
Reykjavík 1. desember síðastliðinn,
hafa kosningarétt og eru ekki með-
limir í öðrum stjórnmálaflokkum,"
sagði Sigurður.
Nemendaleik-
húsið sýnir
Leiksoppa
Fyrsti áfangi Póstgöng-
unnar endurtekinn
FYRSTI áfangi Póstgöngunnar verður endurtekinn núna á sunnudag-
inn, 20. janúar. Margir töldu að Póstgangan síðastliðinn sunnudag
yrði felld niður vegna hvassviðris og mikillar úrkomu og sátu því
heima. Ferðin var hins vegar farin og komu um 70 manns í gönguna
þrátt fyrir mislynd veður.
Ferðatilhögunin verður hin sama
og síðastliðinn sunnudag. Lagt verð-
ur af stað frá skrifstofu Utivistar
kl. 10.30 og mun skrifstofan opna
kl. 10.00 til þess að flýta fyrir af-
hendingu göngukorta sem síðan
verða stimpluð á pósthúsinu. Þaðan
verður gengið suður í Skerjafjörð.
Ef veður leyfír verður ferjað yfír
Skeijafjörð úr Austurvör yfir að
Skansinum og mun Björgunarsveitin
Albert sjá um ferjunina.
Eins og síðastliðinn sunnudag er
boðið upp á styttri ferð kl. 13.00 og
er brottför í hana frá BSÍ-bensín-
sölu. Síðari ferð sameinast árdegis-
göngunni við Bessas'taði. Þaðan verð-
ur gengið að Görðum og lýkur
göngunni við Póst- og símaminjasaf-
nið í Hafnarfirði.
Ekkert þátttökugjald verður í
þessum fyrsta áfanga Póstgöngunn-
ar, Björgunarsveitin Albert og Vest-
íjarðaleið bjóða ókeypis ferjun og
akstur.
NEMENDALEIKHÚSIÐ frum-
sýndi í gærkvöldi leikritið Leik-
soppa eftir Craig Lucas í leik-
stjórn Halldórs E. Laxness.
Leiksoppar er fyrsta verkið sem
Halldór É. Laxness leikstýrir eftir
dvöl erlendis í nokkur ár. Hallgrímur
Helgason þýddi verkið og Hlín Gunn-
arsdóttir sér um leikmynd og bún-
inga. Egill Ingibergsson hefur um-
sjón með lýsingu og tæknivinnu en
tónlist og leikhljóð eru í höndum
Eyþórs Arnalds
í Nemendaleikhúsinu eru Ari
Matthíasson, Gunnar Helgason,
Halldóra Björnsdóttir, Ingibjörg
Gréta Gísladóttir, Magnús Jónsson,
Þorsteinn Bachmann, Þorsteinn Guð-
mundsson og Þórey Sigþórsdóttir.
Auk þeirra tekur fyrsti bekkur skól-
ans þátt í sýningunni. Sýningar eru
í Lindarbæ og hefjast klukkan 20.
viKoistuKiim i vKsm
i «
- ' ' Mörg fyrirtæki og fjölmargir
. ' iönaóarmenn hafa nýtt sér •
■ * i ' i * frádráttarbæran \
. v ' viróisaukaskattinn auk laga
"____verösins á LADA SKUTBÍL og ^
j eignast frábæran vinnubíl,
^ * rúmgóöan og kraftmikinn.
\Aðrir telja hann einn afhentugri .
• fjölskyldubílum, sem í boði eru.%
\
Tökum jgamla bílinn upp f nýjan
og semjum um eftirstöðvar. -
\ I f • V
Oplð laugardaga frá kl. 10-14.
\ • • ' • \ i '
MIISIHM
Staðgr. verft
1200 SAFÍR 4ra g.....345.268,-
1500 STATI0N 4ra g....429.763,-
1500 STATI0N 5ra g..452.711,-
1500 STATION LUX 5 g..467.045,-
1600 LUX 5 g..........454.992,-
1300 SAMARA 4 g , 3 d.452.480,-
1300 SAMARA 4 g„ 5 d.492.349,-
‘1500 SAMARA 5 g., 3 d.495.886,-
‘1500 SAMARA-LUX 5 g., 3 d. 507.714,-
*1500 SAMARA 5 g., 5 d.523.682,-
* 1500 SAMARA-LUX 5 g„ 5 d. 542.029,-
1600 SP0RT 4 g.......678.796,
1600 SP0RT 5 g........723.328,-
* „Metallic" litirkr. 11.000 -
/
!
tr