Morgunblaðið - 19.01.1991, Qupperneq 26
26
* \
MORGUNBLAÐIÐ LAUQARDAGUR 19, JANÚAR 1991
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Magnús Þorsteinsson mætir til vinnu í bruggverksmiðjunni.
Kvennalistinn:
Málmfríður
í fyrsta sæti
MÁLMFRÍÐUR Sigurðardóttir þingkona Kvennalistans fékk flest
atkvæði í seinni umferð skoðanakönnunar Kvennalistans á Norður-
landi eystra um val á framboðslista flokksins fyrir alþingiskosningar-
arnar í vor.
Niðurstaða í þessari seinni um-
ferð skoðanakönnunarinnar varð
sú, að Málmfríður varð í fyrsta
sæti, en hún er frá Jaðri í Reykja-
dal, í öðru sæti varð Sigurborg
Daðadóttir, dýralæknir á Akureyri
og í því þriðja Elín Stephensen,
kennari á Akureyri. Sigurborg var
í fimmta sæti listans fyrir síðustu
kosningar, en Elín var ekki álistan-
um þá.
Bindandi kosning er í fyrstu þijú
sæti listans, en uppstillingarnefifd
mun annast röðun á listann að öðru
leyti og er reiknað með að hann
verði tilbúinn um næstu mánaða-
mót.
Bjórverksmiðjan Viking Brugg opnuð á ný:
Framleiðslan kemst vonandi
í eðlilegt horf í næstu viku
- segir Magnús Þorsteinsson framkvæmdasljóri
Knattspyrnuráð Akureyrar:
Ahyggjur vegna aðstöðu-
leysis knattspyrnumanna
AÐALFUNDUR Knattspyrnuráðs Akureyrar sem haldinn var nýlega
lýsir yfir áhyggjum sínum vegna aðstöðuleysis knattspyrnumanna á
Ákureyri.
I ályktun frá Knattspyrnuráði
Akureyrar segir að ráðið lýsi yfir
áhyggjum sínum vegna aðstöðu-
leysis knattspyrnumanna á Akur-
eyri, sem varla geti undirbúið sig
fyrir keppni sumarsins í sínum
heimabæ svo vel sé og er til efs
að jafn illa sé búið að nokkurri
íþrótt sem keppt er í á Akureyri.
„Því fagnar KRA fram komnum
hugmyndum um að gera sem fyrst
lítinn æfingavöll lagðan gervigrasi,
neðan aðalvallar bæjarins en minnir
um leið á að framtíðin hlýtur að
liggja í gervigrasvelli af löglegri
stærð. Aðalfundur KRA skorar á
ráðamenn Akureyrarbæjar að láta
verkin tala svo knattspyrnumenn
okkar búi við sambærilega aðstöðu
og þeir sem helst er keppt við,“
segir í ályktuninni.
Grenivíkurvegrir:
20 milljóna kr. inmnir á
hæsta og lægsta tilboði
OPNUÐ hafa verið tilboð í lagningu Grenivíkurvegar, frá Gljúfurá
að Grenivík. Vegagerðin bauð verkið nýlega út. Lægsta tilboð átti
Marín hf., tæpar 13 milljónir kr. og er það 5,5 milljónum kr. undir
kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Hæsta tilboðið var 33 milljónir
kr., eða yfir 20 milljónum kr. hærra en lægsta tilboð.
INNSIGLI fógeta á húsakynnum
bjórverksmiðjunnar Viking
Brugg við Norðurgötu 57 var
rofið skömmu fyrir hádegi á
fimmtudag, en þá um morguninn
gengu forráðamenn verksmiðj-
unnar frá vanskilaskuld sinni við
embætti bæjarfógeta. Vinnslunni
verður haldið áfram þar sem frá
var horfið fyrir rúmri viku og
er vonast til þess að framleiðslan
verði komin í eðlilegt horf í
næstu viku, þannig að nægur
bjór frá verksmiðjunni verði til
í öllum útsölum ÁTVR.
Magnús Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Viking Brugg sagði
að starfsfólkið hefði verið ánægt
þegar verksmiðjan var opnuð á ný
á fimmtudagsmorguninn og það gat
hafið vinnu. Engin vinnsla hafði
verið í verksmiðjunni í rúma viku,
eða frá 8. janúar að hún var innsig-
luð. Farið hefur verið inn í verk-
smiðjuna til að hal'da vinnslu bjórs-
ins í horfinu, en annað ekki að-
hafst. Magnús sagði að nú yrði
haldið áfram þar sem frá var horf-
ið af fullum krafti og kvaðst hann
vonast til að í næstu viku yrði til
nægur bjór frá verksmiðjunni í öll-
um áfengisútsölum landsins. „Við
vonum og munum stefna að því að
koma þessum málum í eðlilegt horf
í næstu viku,“ sagði hann.
Magnús vildi ekki tjá sig nánar
um á hvern hátt fyrirtækið hefði
útvegað fé til að greiða skuld sína
við fógeta. „Við höfum verið að
vinna í þessu máli og það hefur nú
verið leyst með því að við borguðum
skuld okkar við fógetann," sagði'
Magnús.
Hann sagði of snemmt að segja
fyrir um hver áhrif lokun verksmiðj-
unnar hefði á markaðsstöðu fyrir-
tækisins, „en það er alveg ljóst að
hún hefur ekki hjálpað okkur. Við
vonum að fólk taki framleiðslu okk-
ar jafn vel og verið hefur því við
erum að framleiða gæðavöru sem
ekki gefur hinum erlendu tegundum
neitt eftir, nema síður sé,“ sagði
Magnús.
Lengd vegarkaflans er 2,8 km
og á verktaki að skila verkinu af
sér fyrir 1. október næstkomaridi.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
var 18,4 milljónir kr. Átta verktak-
ar buðu í verkið. Tvö tilboð voru
lægst. Marín hf. býðst til að vinna
það fyrir 12.964 þúsund kr., sem
er 70,4% af kostnaðaráætlun og
Arnarfell hf. vill taka 13.507 þús-
und fyrir það (73,3%). Þijú önnur
tilboð voru undir kostnaðaráætlun.
Þijú tilboð voru yfir kostnaðará-
ætlun, það hæsta var frá Norður-
verki hf., 33,2 milljónir kr. Það til-
boð er tæplega 15 milljónum kr.
yfir kostnaðaráætlun og yfir 20
milljónum kr. hærra en lægsta til-
boðið.
Tónlistarskólinn:
Tvennir tónleikar
styrktarsj óðsins
TVENNIR tónleikar fyrir styrktarsjóð Þorgerðar Eiríksdóttur verða
haldnir um helgina, á laugardag og sunnudag.
Fyrri tónleikarnir verða haldnir
kl. 17 í dag, laugardag í Akureyrar-
kirkju, en hinir síðari verða í safnað-
arsal Akureyrarkirkju einnig kl. 17
á morgun.
Á tónleikunum koma fram nem-
endur og kennarar Tónlistarskóla
Akureyrar og verður flutt fjölbreytt
efnisskrá. Á laugardag verða m.a.
flutt verk fyrir orgel, einsöng og
fiðlu eftir J.S. Bach, N. Bruhns og
M. Dupré, en á tónleikunum á
sunnudaginn verða eingöngu flutt
verk eftir W.A. Mozart, en það er
gert í tilefni af Mozartári sem nú
stendur yfir.
Tekið er á móti fijálsum framlög-
um við innganginn til ijáröflunar
fyrir sjóðinn, en tilgangur hans er
að styrkja efnilega nemendur við
Tónlistarskólann á Akureyri til
framhaldsnáms.
HASKOUHNIAKUREYRI
Lausar eru til umsóknar stöður fulltrúa á skrif-
stofum deilda Háskólans á Akureyri.
Um er að ræða 50% stöðu við hverja deild fyrir
sig, þ.e. heilbrigðis-, rekstrar- og sjávarútvegs-
deild. Til greina kemur að ráða í 100% starf og
er þá viðkomandi fulltrúi tveggja deilda.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum BSRB.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk. og skal
umsóknum skilað á skrifstofu skólans á þar til
gerðum eyðublöðum, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf.
Upplýsingar um starfið gefur skrifstofustjóri í
síma 96-27855 eða á skrifstofu skólans á virkum
dögum milli kl. 13 og 15.
Háskólinn á Akureyri.
Aska úr Heklugosinu
dreifðist yfir Norðurland
„HÉR voru allar fannir gráar,“ sagði Kristján Þórhallsson,
fréttaritari í Mývatnssveit, en víða um Norðurland varð ösku-
falls úr Heklugosinu vart og í fyrrakvöld fundu menn fyrir
sviða í augum er þeir voru uti
Ásgeir Stefánsson hjá Lauga-
fiski i Reykjadal sagði að býsna
drjúgt hefði fallið af ösku á
svæðinu, einkum á tímabilinu frá
kl. 10 í gærmorgun og fram til
hádegis. „Það voru allir skaflar
gráleitir og það virtist vera svo
um allan dalinn. Hér var sunnan-
átt í fyrstu í gærmorgun, en
snerist síðan til austurs og tók
að snjóa og þá urðum við ekki
við.
vör við neina ösku,“ sagði Ás-
geir. Starfsmenn Laugafisks
voru við þvott á fiskikörum úti
við í gærmorgun og sáu greini-
lega er á þau féll askan.
Öskufallsins varð einnig vart.
í Mývatnssveit og sagði Kristján
Þórhallsson að menn hefðu
kvartað undan sviða í augum,
sérstaklega í fyrrakvöld og einn-
ig í gærmorgun. Snjór er yfir
öllu í sveitinni og var hann dökk-
grár vegna öskufallsins. Sömu
sögu er að segja úr Bárðardal
og sagði húsfreyjan á Bólstað
að menn hefðu fundið eimyiju-
lykt í lofti í fyrrakvöld og menn
frá Mýri og Bólstað sem fóru til
aðstoðar tveimur Mývetningum
inn á Sprengisand komu rauð-
eygðir til baka, að sögn hús-
freyju.
A Akureyri tóku menn eftir
ösku á bílum sínum er þeir skófu
snjó af rúðum þeirra.