Morgunblaðið - 19.01.1991, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991
33
aitMtOJÓi.
«!K«X
: Éttitkr l.tu
fíX.VW.II'..
Baro.poí*íssjdöJ•
’boNatís&nrtjbgsre
iól Isicnd 1950
JÖLAKVEOJA
• 1990
■Jóí1930
ístand
Jóla- og líknarmerki 1990
_______Frímerki____________
Jón Aðalsteinn Jónsson
Rétt er að halda þeim sið, sem
tíðkazt hefur um allmörg ár, að
greina hér örlítið frá þeim jóla-
eða líknarmerkjum, sem ýmis
líknarfélög gefa út fyrir hver jól
til styrktar mörgum góðum og
þörfum málefnum. Margir
frímerkjasafnarar safna líka einn-
ig þessum merkjum, þótt þau falli
ekki beinlinis undir það, sem menn
nefna fflatelíu eða frímerkjasöfn-
un. Jólamerki eru þó hugsuð til
álímingar á jólapóstinn samhliða
frímerkjum, sem eru auðvitað
greiðsla fyrir burðargjaldið. Eins
og venjulega er það Bolli Davíðs-
son í Frímerkjahúsinu, sem sendir
þættinum þessi merki til birting-
ar. Ber enn að þakka honum þessa
hugulsemi við þáttinn og jóla-
merkjasafnara.
Ekki hef ég séð nokkrar tölur
um það, hversu vel gengur að
selja jóla- og líknarmerki. Aftur
á móti er sú skoðun mín óbreytt
frá fyrri árum, að útgáfa sérs-
takra jólafrímerkja Póst- og síma-
málastofnunarinnar hafi til muna
dregið úr sölu jóla- og líknar-
merkja. Um það ber órækt vitni,
hversu sjaldgæf þau virðast vera
á jólapósti. Ekki hef ég gert sér-
staka athugun á þessu, eins og
ég gerði í fyrra, en ég hygg, að
þetta hafi ekkert breytzt síðan.
Segja má og, að alveg sé nægjan-
legt fyrir þann, sem sendir jóla-
bréf til vina sinna, að nota jólafr-
ímerki á sendinguna. Sú er líka
stefna póststjómarinnar, að jól-
afrímerki séu sem mest notuð á
þennan póst og helzt svo, að þau
seljist upp, enda ekki búizt við,
að almenningur sækist eftir að
nota þau að bak jólum.
I fyrra var minnzt á það, að
pósthús landsins, a.m.k. hér í
Reykjavík, seldu einungis jóla-
merki Thorvaldsensfélagsins,
enda þau langelzt þessara merkja
og löngu komin hefð á þessa sölu.
Nú varð ég þess hins vegar var,
að líknarmerki Lionsfélaga voru
einnig til sölu á pósthúsum. í
sjálfu sér er ekkert athugavert
við það, en af því hlýtur að leiða,
að önnur líknarfélög ættu einnig
að eiga aðgang að pósthúsum með
merki sín, ef þau óska þess. Póst-
notendur eiga að geta valið um
þessi merki, ef þeir á annað borð
vilja styrkja starfsemi einhvers
líknarfélags.
Fyrir síðustu jól komu út átta
jóla- og líknarmerki frá jafnmörg-
um félögum. Hins vegar bættist
svo heldur betur við í söfn jóla-
merkjasafnara, því að Lionshreyf-
ingin á íslandi gaf út örk með
25 mismunandi merkjum. Má því
segja, að hér hafi 33 merkj alls
komið út að þessu sinni. Það var
einmitt þessi örk, sem var til sölu
í pósthúsum. Sjálf er örkin hin
skrautlegasta, og sýnir hvert
merki ákveðinn þátt úr sögu ís-
lands, ekki sízt atvinnusögu þess.
Jóla- og líknarmerki 1990.
Á hveiju merki stendur: Gleðileg
jól — Merry Christmas. Þykir mér
því iíklegt, að Ljónsmenn hafi
ekki síður hugsað sér, að merkin
væru notuð á jólapóst til erlendra
Ljónsmanna, og þá um leið sem
landkynning. Ef örkin prentast
vel með þessum þætti, geta menn
gert sér nokkra hugmynd um
hana og sögulegt efni hennar. —
Eitt félag hefur helzt úr lestinni
frá í fyrra, Ungmenna- og íþrótta-
samband Austurlands.
Önnur þau líknarfélög, sem
gáfu út merki fyrir þessi jól, eru
flest löngu kunn meðal safnara. •
Eins og venjulega er þau nefnd
hér eftir útgáfualdri. Þá verður
Thorvaldsensfélagið fyrst í röð-
inni. Síðan kemur Kvenfélagið
Framtíðin á Akureyri. Lionsklúb-
bur Siglufjarðar á þriðja merkið.
Rotaryklúbbur Hafnarfjarðar
sendir enn merki á þennan mark-
að. Líknarsjóður Tjaldanesheimil-
isins kemur þessu næst með merki
sitt. Er þar sama teikning og áð-
ur, en aðeins breytt um lit og svo
ártal. Ungmennafélag Dala-
manna og Norður-Breiðfirðinga
sendir frá sér fjórða líknarmerki
sitt og að þessu sinni með mynd
af Snóksdalskirkju. Ungmenna-
samband Borgarfjarðar gefur
einnig út fjórða merki sitt með
kirkjubyggingu, og hefur Akra-
kirkja á Mýrum orðið fyrir valinu.
Lionskiúbbur Njarðvíkur gefur út
merki í annað sinn og fer nú eins
og nokkur önnur félög inn á svið
kirkjubygginga. Enda þótt þess
sé ekki getið á merkinu, þykist
ég sjá, að hér birtist mynd af
Hvalsneskirkju á Miðnesi. Sú
kirkja er ekki sízt merk fyrir það,
að hún var reist árið 1887 úr
höggnu grjóti. Sjáifsagt hefði ver-
ið að geta nafns kirkjunnar á
sjálfu merkinu, ekki sízt ef þeir
Ljónsmenn í Njarðvíkum ætla að
halda áfram með kirkjur í Gull-
bringusýslu. Þetta hafa þeir aðrir
séð, sem gefið hafa út merki með
kirkjubyggingum. Loks gaf söfn-
uðurinn f Stykkishólmi út merki
með mynd af nýrri kirkju Stykkis-
hólmsbúa til að minnast vígslu
hennar 6. maí 1990. Að því er
ég bezt veit, hafa þéir Hólmarar
áður gefið út líknarmerki 1978
og 1979.
Jólamerkjaörk Lionsmanna 1990.
Merrild setur brag
á sérhvern dag
Merrild kaffið er afar vinsælt og
það á sér góðar og gildar ásæöur:
Hin frábæra fylling og inýkt í
bragðinu helst lengur í munni en þú
átt að venjast. Kaffið er drjúgt og
milt en aldrei rammt eða súrt. Það
leynir sér ekki að það er blandað og
brennt úr heimsins bragðbestu
kaffitegundum frá Kólombíu, Brasilíu
og Mið-Ameríku.
Góð kaffiráð
Gott hráefni er aðalsmerki Merrild
kaffisins og mjúki pokinn tryggir að
gæðin haldist svo að þú færð alltaf
sama ilmandi kaffið og frábæra
kaffibragöiö.
Tæmdu aldrei pokann í dós. Settu
kaffipokann ofan í Merrild kaffi-
dósina. Þannig kemst hvorki
súrefni né birta að
kaffinu og
ilmurinn,
bragðið og
ferskleikinn
haldast til síðasta
dropa. 1
t/
H
I
H
// //
"//
// «
JUtoM
Langar þig í
fallega kaffídós ?
Klipptu strikamerkið af rauða
Merrild pakkanum og fáðu
kaffi-dós eins og þá sem þú
sérð hér til hliðar.
Allt sem þarf að gera er að
geyma strikamerkin af 6
pökkum af rauðum Merrild 500
gr. og senda til okkar. Þá
sendum við þér Merrild kaffidós
þér að kostnaðarlausu. Einnig
getur þú skipt strikamerkjunum
í peninga ef þú vilt ekki
kaffidósina.
2 strikamerki = 40 kr.
4 strikaincrki = 80 kr.
6 strikamerki = 120 kr.
Já, takk.
I I (krossiö við) ég vil gjarnan fá eina Merrild kaffi-
dós og sendi hér með 6 strikamerki af rauðum Merrild
500 gr.
I I (krossiö við) ég vil gjarnan fá greitt fyrir meðfylgjandi
________________stk. strikamerki samtals________________kr.
Hámark 1 umslag og 6 strikamerki á hcimili.
Nafn _______
Heimilisfang
Póstnr./bær _
Umslagið sendist til Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124 Reykjavík.
Síðasti innsendingar
dagur er 28. febrúar
1991.
Svona lítur strikamerkið
út. Þú finnur það aftaná
rauðum Merrild pakka.
Merrild Kaffe A/S, Pósthólf 4372, 124 Reykjavík.