Morgunblaðið - 19.01.1991, Qupperneq 34
34
MÖRGUNBÍÍWð' LAUGÁRDAGUR ÍM'VanÖAR-199Í
félk í
fréttum
VIÐURKENNING
ísafírði.
Helga Sigrirðardóttir
* A
Iþróttamaður Isafjarðar
Helga Sigurðardóttir sundkona
var kjörin íþróttamaður ársins
á ísfirði 1990 í hófí sem bæjarstjórn
efndi til fyrir áramótin. I hófinu var
öðrum afreksmönnum í íþróttum af-
hent heiðursskjöl fyrir unnin afrek.
Ólafur Helgi Kjartansson, forseti
bæjarstjórnar, lýsti kjöri íþrótta-
manns ársins og gat helstu afreka
Helgu á árinu. Hún varð þrefaldur
Islandsmeistari bæði á innan- og
utanhússmótum í sundi á árinu. Hún
var ein af fimm sem valin var í A-
landsliðið í sundi og jafnframt valin
til þátttöku í heimsmeistarakeppn-
inni. Þá var hún stigahæst í bikar-
keppni Sundsambands íslands í 1.
deild auk fjölda annarra afreka.
Gylfí Guðmundsson formaður
Iþróttabandalags ísafjarðar afhenti
öðrum afreksmönnum á sviði
íþrótta heiðursskjöl og Halla Sig-
urðardóttir formaður íþrótta- og
Ljósmynd/Björn, Helgason
Helga Sigurðardóttir, íþróttamaður Isafjarðar 1990, tekur við verð-
launum úr hendi Ólafs Helga Kjartanssonar forseta bæjarstjórnar.
æskulýðsnefndar flutti yfirlit um
aðstöðu til íþróttaiðkunar á ísafírði
og þær breytingar sem væntanlega
verða með tilkomu nýs íþróttahúss,
sem nú er í smíðum. Undirbúningur
hátíðarhaldanna var í höndum
Björns Helgasonar íþróttafulltrúa.
Úlfar
Þau hlutu viðurkenningu fyrir unnin afrek á íþróttasviðinu á síðasta ári.
PÓPP
Ætlar kannski
að öngla aftur
í karlinn
Popparinn Mick Fleetwood, sem
var einn stofnenda hljómsveit
arinnar frægu Fleetwood Mac, rit-
aði nýlega æviminningar sínar og
fýlgdi þar þeirri nýlegu stefnu að
rita æviminningarnar á meðan
menn muna eitthvað enn þá, seinna
meir sé engin trygging fyrir því.
Bók hans vakti nokkra athygli og
þykir veita innsýn inn í hráan heim
popptónlistarmannsins, slarkið og
sukkið sem þar er stundað og svo
framvegis. Hann ræðir einnig
kvennamál sín og skefur ekki utan
af hlutunum,-Hann útlistar meðal
annars í smáatriðum ástarsamband
sitt og söngkonunnar Stevie Nicks,
sem syngur enn með sveitinni þegar
hún kemur saman á annað borð.
Samband þetta var seint á áttunda
áratugnum. Búist var við því að
ungfrú Nicks yrði æf af reiði enda
er allt opinberað í lýsingum gamla
kærastans.
En það var öðru nær. Nicks seg-
ir að Fleetwood lýsi sambandinu
bara vel og svona hafí það verið.
Hún hafí elskað þijá menn í lífínu
Stevie Nicks
og Fleetwood sé einn þeirra. Árin
sem þau voru saman hafi verið
dásamleg og hún hugsi oft til þeirra,
lifi meira að segja stundum í minn-
ingunni um þau. Og hún elski hann
enn og muni alltaf elska hann.
Fleetwood hefur verið giftur fyrrum
fyrirsætu að nafni Sarah Recor í
tvö ár. Nicks telur þó ekki fráleitt
að hún eigi eftir að öngla í karlinn
aftur þrátt fyrir það. „Kannski ekki
strax, ef til vill er við eldumst að-
eins. Við elskum hvort annað enn
og það verður ekki af okkur tekið,“
segir Stevie Nicks og hefur litlar
áhyggjur af skoðunum Söru Recor.
COSPER
Tilboð á ýmsum lömpum, loftljósum og raftækjum
BóCsturvörur fif.
10-50% afsláttur af áklæðum af lager og hlaðrúmum