Morgunblaðið - 19.01.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19.,JANÚAR 199,1
35
IÞROTTIR
A
Ulfar kjörinn íþróttamaður Hafnarfjarðar
Kylfíngurinn Úlfar Jónsson úr
Golfklúbbnum Keili var fyrir
skömmu kjörinn íþróttamaður ársins
1990 í Hafnarfirði. Alls voru 12
íþrottamenn heiðraðir á samkundu
sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar
gekkst fyrir, en íþróttaráð Hafnar-
fjarðar valdi afreksfólk úr hinum
ýmsu greinum.
Auk Ulfars hlutu eftirtaldir íþrótta-
menn viðurkenningu, Arnþór Ragn-
arsson SF fyrir sund, Linda Steinunn
Pétursdóttir Björk, fyrir fímleika,
Hörður Magnússon FH fyrir knatt-
spyrnu, Héðinn Gilsson FH fyrir
handknattleik, Jón Arnar Ingvarsson
Haukum fyrir körfuknattleik, Guð-
mundur Karlsson FH fyrir fijálsar
íþrottir, Karl Viggó Vigfússon Hauk-
um fyrir karate, Gunnar Kjartansson
Skotfélagi Hafnarfjarðar fyrir skot-
fimi, Ólafur Guðmundsson SH fyrir
störf að íþróttamálum, Lilja María
Snorradóttir SH fyrir íþróttir fatl-
aðra og Snorri Karlsson SH fyrir
íþróttir fatlaðra.
Úlfar er mikill afreksmaður í golfi.
Hann er margfaldur íslandsmeistari
í greininni og landsliðsmaður. Hann
varð annar á síðasta Norðurlanda-
móti og á Evrópumeistaramótinu
stóð hann sig svo vel að hann var
kjörinn í Evrópuúrval karla sem
keppti við Stóra Bretland. Úlfar er
með þá lægstu forgjöf sem íslending-
ur hefur náð, +3 og jafnast það á
við árangur atvinnumanna í golfi.
KVIKMYNDIR
Nancy treyst-
ir ekki
karlmönnum
Ein efnilegasta og að margra
dómi fallegasta leikkonan í
Hollywood er Nancy Travis sem
síðast sást í kvikmyndinni um karl-
ana þijá og litlu dömuna. Lék Trav-
is þar móður litlu stúlkunnar. Það
hefur vakið athygli þeirra sem
grannt fylgjast með einkalífi kvik-
myndafólksins, að Travis er hvorki
gift né trúlofuð og hefur raunar
ekki verið alvarlega við karlmann
kennd árum saman. Og það ekki
vegna þess að hún sé samkyn-
hneigð.
Ungfrúin var spurð hveiju þetta
sætti í litlu viðtali í bandarísku
tímariti fyrir nokkru. Spyrillinn ri§-
aði upp að hún hefði leikið á móti
mörgum af helstu hjartaknúsurum
Hollywood, Steve Guttenberg, Ted
Danson, Tom Selleck, Richard Gere,
Mel Gibson og Alec Baldwin svo
einhveijir séu nefndir og að hún
hafi einhvern tímann viðurkennt í
viðtali að hún byndist mótleikurum
sínum yfirleitt sterkum böndum.
Nancy Travis svaraði þessu til að
hin sterku bönd næðu aldrei út fyr-
ir gerð kvikmyndanna. Hún hefði
oft fengið sterka svörun frá mót-
leikurum, en reynslán sýndi að þeir
opnuðu sig fyrir heill kvikmyndar-
innar. Margsýnt væri að fólk fyndi
vart lífsföyunaut með því að leika
saman í kvikmynd. Hún treysti því
ekki tilfinningum sínum lengur, þær
Nancy Travis
vöruðu hana sífellt við þegar úr
kvikmyndaverinu væri komið. Því
væri hún einhleyp enn, 28 ára göm-
ul. Um leið og menn segðu við hana,
„treystu mér!“ þá smeygði hún sér
inn í varnarskel.
TBLBOÐSDAGAR í SKEIFUNNI 8
19. -26. janúar
10-50% afsláttur
Verslunin
VINNAN
15-50% afsláttur af ýmsum varningi
20-25% afsláttur af svefnsófum,
svefnstólum og svamprúmum