Morgunblaðið - 19.01.1991, Page 36
36
MORGUNBHAÐIÐ' LiAUG'ARD'ASUR 19. JANÚAR 1991
Söngleikur MH-nema í Iðnó
LEIKFÉLAG Menntaskól-
ans við Hamrahlíð frum-
sýnir söngleikinn „ Rocky
Horror Show“ eftir Ric-
hard O’Brian, sunnudag-
inn 20. janúar í Iðnó kl.
20.30.
í sýningunni taka þátt 84
menntaskólanemar auk
þeirra sem lagt hafa hönd á
plóginn við hönnun og út-
færslu leikmyndar. Söngleik-
inn þýddi Veturliði Guðna-
son, leikstjóri er Kolbrún
Halldórsdóttir, tónlistarstjóri
Jón Ólafsson, leikmyndin er
unnin af nemendum undir
leiðsögn Guðrúnar Sigríðar
Haraldsdóttur, Ástrós Gunn-
arsdóttir er dansahöfundur
og Egill Ingibergsson hannar
lýsingu. Sigurður Bjóla
Garðarsson annast hljóð-
stjórn sýningarinnar. Aðal-
hlutverk leika Páll Óskar
Hjálmtýsson, Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Guðjón Berg-
mann, Steinunn Þórhalls-
dóttir, Katrín Kristjánsdótt-
ir, Jón Atli Jónasson, Bergur
Már Bernburg, Dofri Jóns-
son, Guðlaugur Ingi Harð-
Þrír af aðalleikurum í söngleik Leikfélags Menntaskól-
ans í Hamrahlíð.
arsson og Gestur Svavars- Karlsson og aðstoðarleik-
son. Sýningarstjóri er Breki stjóri Ásdís Sigmundsdóttir.
Forval Alþýðubandalagsins í Reykjavík;
Kosið í dag frá klukkan 10 til 20
FORVAL Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík vegna
alþingiskosninganna í vor
fer fram í dag og verður
kjörstaður opinn frá því kl.
10 fyrir hádegi til klukkan
20 í kvöld. Fjórtán fram-
4 bjóðendur hafa gefið kost á
sér í og samkvæmt upplýs-
ingum frá skrifstofu Al-
þýðubandalagsins ber þátt-
takendum í forvalinu að
merkja við fimm frambjó-
endur og tölusetja þá, 1-5.
Kosið verður að Laugavegi
3 fjórðu hæð. Þeir sem at-
kvæðisrétt hafa í forvalinu
hafa félagsmenn £ Aiþýðu-
bandalaginu í Reykjavík og
aðrir. félagar í Alþýðubanda-
laginu sem lögheimili eiga í
Reykjavík og voru á félags-
skrá í Alþýðubandalaginu 9.
janúar síðastliðinn. Reiknað
með a’ talið verði strax að
loknu forvalinu, en sam-
kvæmt upplýsingum skrif-
stofunnar eru niðurstöðumar
ekki bindandi fyrir kjömefnd.
Kjörnefnd heldur áfram störf-
um að loknu forvali, við að
raða á framboðslistann og
leggur síðan niðurstöður sínar
fyrir fund alþýðubandalags-
manna í Reykjavík, þegar hún
hefur lokið störfum.
Þeir sem hafa gefið kost á
sér eru: Arnór Þórir Sigfús-
son.Árni Þór Sigurðsson,
Auður Sveinsdóttir, Birna
Þórðardóttir, Guðmundur Þ.
Jónsson, Guðrún Helgadóttir,
Haraldur Jóhannsson, Margr-
ét Ríkharðsdóttir, Matthías
Matthíasson, Már Guðmunds-
son, Sigurrós M. Siguijóns-
dóttir, Steinar Harðarson,
Svavar Gestsson og Þorvaldur
Þorvaldsson.
■ KRISTÍN Aðalsteins-
dóttir umsjónarmaður sér-
kennslunáms heldur erindi
þriðjudaginn 22. janúar um
lestur og lestrarkennslu í
stofu B-201 í Kennarahá-
skóla Islands við
Stakkahlíð. Kristín fjallar um
skilning bama á lestri og til-
gangi með lestri. Hún byggir
þar á athugun sem hún gerði
fyrir skömmu og ræðir m.a.
hvort niðurstöður hennar gefí
vísbendingar um heppilegar
aðferðir við lestrarkennslu.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
og em foreldrar, kennarar og
aðrir áhugamenn um lestur
og lestrarkennslu sérstaklega
velkomnir.
Brids__________
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild
Rangæingafélagsins
Staðan eftir fjórar umferðir
í sveitakeppninni:
Daníel Halldórsson 84
Eiríkur Helgason 79
Ingólfur Jónsson 76
Frændasveitin 75
Reynir Hólm 73
Tólf sveitir taka þátt í mót-
inu.
Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni
Nú er aðeins þremur umerð-
um ólokið í undankeppni
Reykjavíkur- og íslandsmóts.
Sveit Samvinnuferða/Landsýn
hefir svo gott sem, tryggt sér
sæti í úrslitum Reykjavíkur-
mótsins en keppnin um fjögur
efstu sætin er annars mjög
tvísýn.
Stapan er nú þessi:
Samvinnuferðir 318
V.Í.B. 306
Landsbréf 301
Tryggingamiðstöðin hf. 297
S.Ármann Magnússon 288
ValurSigurðsson 280
ÓmarJónsson 258
Mótinu lýkur á laugardaginn
oghefst spilamennskan kl. 13.
Frá Skagfirðingum
Spilað var í einum riðli hjá
Skagfirðingum sl. þriðjudag, í
eins kvölds tvímenningskeppni.
Úrslit urðu (efstu pör):
Hannes R. Jónsson —
... JónlngLBjömssQn. .260
Hildur Helgadóttir —
Karólína Sveinsdóttir 237
Geirlaug Magnúsdóttir —
Torfí Axelsson 235
Aðalbjörn Benediktss. —
Jón Viðar Jónmundss. 232
Guðiaugur Sveinsson —
Lárus Hermannsson 231
Kjartan Jóhannsson —
Þórður Sigfússon 228
Næsta þriðjudag verður á
ný eins kvölds tvímennings-
keppni. Stefnt er að því að
aðalsveitakeppni deildarinnar
heíjist í byijun febrúar. Gamlir
félagar eru hvattir til að vera
með.
Spilað er í Drangey
v/Síðumúla 35 og hefst spila-
mennska ki. 19.30. Allt spilaá-
hugafólk velkomið.
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag hófst aðal-
sveitakeppni félagsins. Tólf
sveitir taka þátt í keppninni.
Spilaðir eru 16 spila leikir, tveir
á kvöldi og eru spilin forgefin.
Staðan eftir tvær umferðir:
Sv. Hertu Þorsteinsdóttur 50
Sv. Magnúsar Torfasonar 43
Sv. Guðrúnar Hinriksdóttur 39
Sv. Valdimars Sveinssonar 36
Bridsfélag Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður
eins kvölds tvímenningur. Úr-
slit urðu þessi.
A-riðill 10 para:
Ingi Agnarsson —
Haraldur Þ. Gunnlaugsson
147
Ásthiidur Sigurgísladóttir —
Lárus Arnórsson 130
Gunnar B. Kjartansson —
. Valdimar Sveínsson 118
Guðmundur Baldursson —
Guðbjöm Þórðarson 111
B-riðiIl 8 para
Baldur Bjartmarsson —
Rúnar Hauksson 98
María Ásmundsdóttir —
Steindór Ingimundarson 97
Guðmundur Skúlason —
EinarHafsteinsson 97
Næsta þriðjudag, 22. jan.,
hefst aðalsveitakeppni félags-
ins. Skráning þátttöku hjá
Hermanni í síma 41507 og
Baldri í síma 75580, eða á
keppnisstað. Stökum pörum
hjálpað að mynda sveitir. Spil-
að er í Gerðubergi kl. 19.30
stundvíslega.
Bridsfélag kvenna
SI. mánudag hófst sveita-
keppni hjá félaginu, 14.
sveitir mættu til leiks og eru
spilaðir tveir 16 spila leikir
á kvöldi, eftir tvær umf. er
staða efstu sveita þannig:
Sv. Lovísu Eyþórsdóttur 50
Sv. Ólínu Kjartansdóttur 43
Sv. Hönnu Friðriksdóttur 42
Sv. Önnu Lúðvíksdóttur 41
Sv. Ólafíu Þórðardóttur 40
Hreyfill — Bæjarleiðir
Lokið er sjö umferðum í
aðalsveitakeppninni og er
staða efstu sveita nú þessi:
Cyrus Hj artarson 142
Ólafur Jakobsson 131
BernhardLinn 120
Tómas Sigurðsson 117
Birgir Sigurðsson 112
Áttunda umferð verður spil-
uð nk. mánudagskvöld kl.
19.30 í Hreyfilshúsinu.
Eldhúsið opið alla daga
frá kl. 18.00-22.30
Hressustu bar-snúðarnir
sjá um tónlistina og
drykkina
Opið til kl. 03.00
Enginn aðgangseyrir
Spariklæðnaður
Hátt aldurstakmark
Laugavegi 45 • Sími 626120
uppi
VITASTÍG 3 »,D,
SÍMI623137 UoL
Laugard. 19. januar
Opidkl. 20-03
IKVÖLD
LANGI SELI&
SKUGGARHIR
FRÍTT INN TIL KL. 22
Aögangur kr. 500
ÞETTA VERÐUR SKUGGA-
LEGA ZESANDI
LAUGARDAGSKVÖLU!
Sunnud. 20. jan.
KÁNTRÝKVÖLD
Hljómsveitin
FLÆKINGARNIR &
söngkonan
ANNA VILHJÁLMS
Gestur kvöldsins
söngvarinn góðkunni
ARIJÓNSSON
Þetta er kvöld sem kántrý-
unnendur missa ekki af!
MUNIÐ!
Mánud. og þriðjud. opið kl. 20-01
LJÚFLINGARNIR
FRÍTTINN!
PÚLSINN
tðnlistarmiðstöð
FJÖKÐURINN
STONESKVÖLD
SVEITIN MILU SANDA
með Stones-lögin á hreinu.
Snyrtilegur klæðnaður.
INILLABAK
Hilmar Sverris
heldui uppi stuði.
Opið kl. 18.00-03.00.
Snyrtilegur staður með góðri þjónustu
og veislumat á góðu verði!!!
Laugavegi 45
S. 626120
11220
CERDU ÞER DAGAMUN