Morgunblaðið - 19.01.1991, Síða 41
]{>(>r 51AUKAI .Gi aUOAClflAOU/Ll flfldAJaHUDflOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÓAR T991
Hátíðarskap o g hugarórar
Hvenær Dannar Al-
ringi vínsamkvæmi?1
eftirdr. Gunnlaug
[ Þórdarson
Þann .4. desembcr sl. birtist hér
í blaði gagnmerk grein eftir Inir-
stein A. Jónsson, ðeildarstjóra í
dómsmálaráðuneytinu. Greinin bar
yfirskriftina: »Re/sjg/edi“ og talaði
fyrirsögnin sínu ináli. ÍHírsteinn A.
Jónsson annaðist um langt skeið
allt fram á stðustu tvö ár afplánun
refsinga hérlendis og hefur l>ótt
fastur fyrir I þvf að sakfelldir af-
pláni tildæmdar refsingar og að
k jafnt gangi yfir alla. Er greinin því
I athyglisverðari en ella og ekki sist
Ivegna þeirrar reynslu og Jækking-
|ir, sem hann hefur á máli því, sem
•einin fjallar uin. Greinin er skrif-
|ið til þess að andinæla frumvarpi.
æin nýlega hefur verið lagt fram á
Klþingi um að lögleyft áfengismagn
I blóði undir stýri verði fært niöur
þeim. sein eru fyrir ofan þau mörk
og teljast óhæfir til að aka. Fyrir
vikið er nánast öll greinargen^in
marklaus. Frumvarpið er einungis
stutt þessum hæpnu og misnotuðu
rökum: „Kkki þarf að fara mðrgum
orðum um nauðsvn þessarar breyt-
ingar.“
lljá okkur eru engar tölur til um
hve mikinn þátt jieir sem nuvlast
með áfengi í blóðinu á bilinu
0,5%<.-l,25%o eiga í uinferðaróhöpji-
um. í greinargerðinni er reynt að
gera hlut ölvunaraksturs sem mest-
an í uiuferðarslysum. l*á er reynt
á vafasaman hátt að gera meim
úr hafltu þeirri sem stafar af akstri
manna, sem neytt hafa áfengis en
efni standa til. Þorsteinn A. Jónsson
bendir aftur á móli á að hér á landi
hafi ölvaðir ökumenn aðeins átt
hlut að 10%o umferðarslysa, hins
vegar liggi ekki fyrir að hvaða leyti
•u orsakavaldar. Samkvæmt
lögix'glmini er veitt ineð fyrirhug-
aðri brevlingu. Að ininu áliti geta
lögn'glumenn ekki tekið mann •
fastan við akstur og farið tneð i
áfengisprufu Ixitalaust, ef hinn . '
liandtekni n'ynist vera með undir
0.50%» í bltfði. þvi að faL
niörkin niður minnkar allt að1 (
gagnvart lögn'glu i jK'ssu eír
það væri itijög alvarlegt. Sani
ing min er sú að enginn alva1
hugsandi lögn'glumaður sé lih
ur þeirri tm'ytingu. sein stefi
að.
Yrði [H'tta fnunvarp að lögu.
miin nánast allur niannfagnaðu ]
með vini leggjasl niður og það *
illt. Vín er og ven'ur mannasa'ttij
og einhveijar ömurlegustu gleði-1
samkomur. M'iii ég veit um eru þa il
þar sem víii er ekki liafl um liöntW
Varla »*r hægt að huga sér dapur 1
legra brúðkaup en þar sem engul
vinglasi er lyft. Þjóðskáldið, Jónasi
"»t|«e' | ‘tpfe
Til Velvakanda.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson birtir
grein eftir sig í Morgunblaðinu 11.
janúar þ.m. Greinin er skrifuð til
að mæla gegn því að mörk áfengis
í blóði ökumanna verði færð niður
í 0,125% úr 0,5% Þar eru m.a. þessi
orð:
„Yrði þetta frumvarp að lögum
mun nánast allur mannfagnaður
með víni leggjast niður og það er
illt. Vín er og verður mannasættir
og einhvejar ömurlegustu gleðisam-
komur sem ég veit um eru þær þar
sem vín er ekki haft um hönd.
Varla er hægt að hugsa sér dapur-
legra brúðkaup en þar sem engu
vínglasi er lyft. Þjóðskáldið Jónas
Hallgrímsson orðaði þetta viturlega
og fagurlega er hann sagði:„Látum
því vínið andann hressa.“ Það er
ljóst að minni brögð eru að því að
menn drekki óhóflega í hvers konar
gleðisamkomum þar sem vín er
haft um hönd nú en áður var. Mun
einmitt það atriði ráða að margir
þeirra sem lyfta glasi eru á bíl og
vita að fara ber með gát svo öku-
leyfið sé ekki í hættu, enda eru þau
réttindi nánast hluti af mannrétt-
indum nútímans. Hitt er jafnvíst
að þeir duldu töfrar fylgja víni, að
flestir þurfa ekki annað en að lyfta
glasi til þess að komast í hátíða-
skap.“
1. Væri þetta frumvarp þess
umkomið að allur mannfagnaður
með víni legðist niður væri sérstök
ástæða til að fagna því. Svo mikils
og góðs vænti ég ekki af því.
2. í Orðabók Menningarsjóðs
stendur. „Saupsáttur, missáttur,
ásáttiy. Þeir urðu saupsáttir."
Þannig geymir tungan reynslu
þjóðarinnar af því hver mannasætt-
ir áfengið er. Þjóðarreynslan sannar
að það er öfugmæli að vín sé mann-
asættir.
Köttur í óskilum
Þessi köttur hefur verið í óskil-
um síðan föstudaginn 4. janúar.
Hann býr á Seltjamarnesi og er
ekki með ól. Eru íbúar í grennd-
inni beðnir að athuga í bílskúra
og kjallara, hvort kötturinn hafi
lokast þar irini. Vinsamlegast
hringið í síma 614740 ef hann
hefur einhvers staðar komið fram.
3. Doktorinn er fijáls að sínum
smekk og verður ekki deilt um hvað
honum fínnist ömurlegt og dapur-
legt. En tilfinningar einstakra
manna eru engin rök í heilbrigis-
málum eða siðferði.
4. Gunnlaugur vitnar rét.t í Jonas
Hallgrímsson. En það ágæta skáld
orti líka:
„heijum flöskumar á
og þar fari sem má
og þeir falli sem ná ei að veijast."
Óhætt mun segja að áfengið'
hafi ekki eingöngu haft hressandi
áhrif þá fremur en nú.
5. Trúlega hafa margir vit á að
drekka lítið þegar þeir ætla sér að
aka bíl. Samt vitum við að mikið
brestur á að allir kunni fótum sínum
forráð í þeim efnum. í tugatali verð-
ur lögreglan að hindra slíka óhappa-
menn um hveija helgi.
6. Menn komast í hátíðaskap af
að lyfta glasi og vínið hressir and-
ann áður en þess er neytt. Stundum
er það svo. Það stafar af því sem
menn ímynda sér. Við getum kallað
þessa ímyndun sefjun. Menn trúa
því fyrirfram að vínið hressi skapið.
Það hefur verið margsannað að
menn komast í þetta hátíðaskap ef
þeir halda sig vera með áfengi þó
að svo sé ekki. Áhrifin verða eftir
því sem menn trúa. Slíkur er töfra-
drykkurinn.
Sem betur fer njóta margir sín
vel í skírnarveislum og fermingar-
veislum án áfengis að ekki sé nú
talað um brúðkaupin. Svo hafa
meiln möguleika til að lyfta glasi
þó að ekkert sé áfengið. Öðrum er
það engin nauðsyn til að komast í
hátíðaskap.
H. Kr.
Þingmenn of margir
Til Velvakanda.
Margt hefur breyst, sumt til góðs
en sumt ekki. Ég fór á vertíð hing-
að til Reykjavíkur árið 1927. Þá
leit ég oft inn á þingpallana á með-
an ég var að bíða eftir atvinnu. Þá
sátu þingmenn allir á sínum stólum
á meðan á fundartíma stóð og tóku
margir oft til máls. Það var gaman
að hlusta á þá. Þeir voru margir
fljótir að segja sína meiningu.
En nú hefur þetta breyst. Ég hef
stundað þingpallana mikið eftir að
ég hætti vinnu. Það er eins og þess-
ir menn sem setið hafa á þinginu
undanfarin ár hafi annað að gera
en að sitja í sínum stólum, því það
má gott heita ef að sjást fimm til
tíu í stólum sínum þegar á fundum
stendur. Þetta finnst mér slæm
breyting.
Ég hef skrifað um það áður og
ætla að endurtaka það, að það á
að breyta stjómarskránni og gera
landið að einu kjördæmi óg
þinghúsið að einni málstofu og
fækka þingmönnum eins mikið og
tök em á því þeir eru alltof marg-
ir. Því það er alltof lítið hugsað um
að spara hjá þessum ráðamönnum
okkar. Alltaf er bætt á jötuna án
þess að það sé þörf fyrir það. Gætið
að þessu, þið sem eigið að stjórna,
að hugsa um velferð þjóðarinnar.
Það er gott að augu ráðamanna
eru farin að opnast fyrir þessu, því
fyrir nokkru sá ég í Morgunþlaðinu
að Þorsteinn Pálsson skrifaði um
það, að gera þyrfti breytingar og
fækka þingmönnum. Betra er
seinnt en aldrei.
Að lokum langar mig til að minn-
ast á áramótaskaupið. Það var lítill
fróðleikur í því og ef það er satt
að það hafi kostað 10 milljónir, þá
er það voðalegt að fara svona með
almannafé.
Ingimundur Sæmundsson
Vidtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik '%
BorgarfulltrúarSjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum íveturfrá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 19. janúar verða til viðtals Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar, í borgar-
ráði, formaður stjórnar Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, og Jóna Gróa Sigurðardóttir, formað-
ur atvinnumálanefndar, í stjórn heilsugæslu miðbæjarumdæmis, menningarmálanefnd og bygging-
arnefnd aldraðra.
{ Y Y y Y Y Y Y Y-Y Y Y Y
W'1
Bestu þakkir fœri ég ölliun þeim, sem glöddu
mig með skeytum, gjöfum og heimsóknum á
80 ára afmceli minu 19. desember sl.
Guð blessi ykkur öll.
Áslaug Bachmann,
Borgarnesi.
ÚTSALA
Karlmannaföt verð 4.000 - 6.800,-
Stakir jakkar verð frá kr. 3.500,-
Stakar buxur verð frá kr. 500-1.900,-
Skyrtur verð frá kr. 1.000-2.000,-
Peysur verð frá kr. 1.300-1.600,-
Hattar verð frá kr. 600-1.600,- o.fl.
Andrés, Skólavörðustíg 22
simi 18250
<
Ahugamenn um andleg
mál ogheimspeki athugið!
Námskeid samhlida leshring verða haldin vikulega á
vegum áhugamanna um heimspeki.
Viðfangsefnid erpróunarheimspeki ogsálarheimspeki.
Þátttökugjald er kr. 1.500,- á mánuði.
Upplýsingar í síma 91-79763.
Samtök áhugamanna um heimspeki.
GEGNT UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI SIMI: 91-19800
frá 12.500,- kr.
Skíði, ALPINA skór, bindingar og stafir.
FULLORÐINSSKÍÐAPAKKI frá 19.950,- kr
Skíði 160-195 sm, ALPINA,
skór, bindingar og stafir.
GÖNGUSKÍÐAPAKKI
13.950,- kr.
ELAN skíði, ALPINA skór,
bindingar og stafir.
• K2 skíði og skíðagallar
• ELAN skíði
• ALPINA skíöaskór
• LOWA skíöaskór
SKÍÐAVERSLUN - SKÍÐALEIGA - SKÍÐAVIÐGERDIR
i
i
vis anova uán