Morgunblaðið - 19.01.1991, Side 44
Átökin við Persaflóa:
Farmgjöld
Jíiækka vegna
átakanna
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur
tilkynnt útflytjendum um 8 til 10%
hækkun flutningsgjalda til
Austur-Asíu. Hækkunin stafar af
því, að þau skipafélög, sem sigla
til Austurlanda fjær, hafa ákveðið
að innheimta sérstakt álag á
flutningsgjöld, til að mæta hærri
tryggingaiðgjöldum og frávikum
í siglingaáætlunum vegna átak-
anna við Persaflóa.
Höskuldur H. Ólafsson, forstöðu-
maður útflutningsdeildar Eimskips,
segir að þessi hækkun muni fyrst
óg fremst hafa áhrif á útflutning á
frystum sjávarafurðum til Asíu,
einkum til Japans. Hún geti einnig
haft óbein áhrif á verð vöru frá þess-
um löndum, sem flutt er hingað til
lands.
Höskuldur sagði að búast mætti
við frekari breytingum á flutnings-
gjöldunum, eftir framvindu styrjald-
arinnar við Persaflóa.
Dagvist barna:
Greiðslur til
foreldra hefj-
ast í haust
Tvær glæsilegustu ljósasýningar, sem getur að líta á íslandi, í sömu andrá: Grænn vafurlogi norðurljósanna keppir um athygli við bjarmann
af eldstrókum Heklu. „Þetta var stórkostleg sjón,“ sagði Hekla ívarsdóttir, sem sá í fyrsta sinn nöfnu sína gjósa, við Morgunblaðið. Mað-
ur hennar, Sigurður Stefnisson, tók myndina um klukkan 23 á fimmtudagskvöld.
GREIÐSLUR til foreldra, sem
kjósa að dvelja heima hjá börnum
sínum á forskólaaldri, munu hefj-
ast næsta haust. Þetta kom fram
í máli Davíðs Oddssonar, borgar-
stjóra, við fyrri umræðu um fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar á
fimmtudag.
- Sjálfstæðismenn gáfu þá yfirlýs-
ingu fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar í maí sl. að á kjörtímabilinu
yrðu hafnar greiðslur til foreldra,
sem gættu barna sinna á forskóla-
aldri sjálfir, í stað þess að nýta þjón-
ustu dagvistarstofnana.
Við fyrri umræðu um fjárhags-
áætlun Reykjavíkur lýsti borgar-
stjóri því yfir, að stefnt væri að því
að þessar greiðslur yrðu hafnar á
haustmánuðum og í íjárhagsáætl-
uninni væri gert ráð fyrir að til
þess yrði varið 50 milljónum króna.
I máli borgarstjóra kom fram,
að nánari útfærsla á þessu lægi
ekki fyrir, en hún yrði byggð á
mati á dvalartíma barna á dagvist-
,_grstofnunum borgarinnar og kostn-
aði samfara vistun þeirra þar, auk
þess sem tekið yrði tillit til gildandi
laga og reglugerða um útsvar og
tekjuskatt.
Heklugosið virðist heldur í rénun:
Líklegt að fjöldi smágosa hafi
aldrei komizt á blöð sögunnar
Jarðfræðingar með tilgátur um að Heklugosin séu mun fleiri en talið var
HEKLA virðist hafa gosið með nokkuð jöfnum krafti í allan gær-
dag, en nokkuð hafði dregið úr gosinu frá því á fyrstu klukkustund-
um þess. Gosið hafði rénað verulega í suðvesturhlíðunum að sögn
sjónarvotta, sem komust nærri fjallinu, en talið var að mikil virkni
væri enn austan í því, þar sem gosið hefur verið öflugast. Jarðfræð-
ingar geta sér þess nú til, að Heklugos hafi jafnvel verið talsvert
fleiri en sautján frá því að land var numið. Það, hversu stutt er á
milli þriggja síðustu gosa - 1970, 1980-81 og 1991 - þykir annað
hvort gefa til kynna að hegðun fjallsins hafi breytzt, eða þá að slík
minniháttar gos séu einfaldlega algengari en talið hafi verið.
Hingað til hefur verið talið að
Hekla gysi hér um bil einu sinni
eða tvisvar á öld, þá öflugu gosi
og gerði áratugálangt hlé á eftir.
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur
hjá Raunvísindastofnun, sagði í
samtali við Morgunblaðið að hléin
milli síðustu gosa væru þau stytztu,
sem um gæti í sögu Heklugosa.
Axel Björnsson, jarðeðlisfræð-
ingur hjá Vísindaráði, segist hafa
kastað fram þeirri tilgátu eftir
RÚV semur við SKY um fréttir
RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur gert samning við bresku sjónvarps-
stöðina Sky um útsendingar á fréttum stöðvarinnar hér á landi.
Landsmenn geta því fylgst með fréttum tveggja erlendra sjón-
varpsstöðva.
„Þetta er aðeins tímabundinn
samningur sem við gerum með
tilliti til ástandsins í heiminum,“
sagði Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri í gærkvöldi. Hann
sagði að Sjónvarpið greiddi sára-
lítið fyrir réttinn á að senda út
frá Sky, en vildi ekki segja hversu
mikið. Aðspurður hvort þetta
væri svar Ríkissjónvarpsins við
fréttum CNN á Stöð 2 sagði
Markús Örn að nýbúið væri að
breyta reglugerðinni og þá hefði
þessi möguleiki opnast. „Okkur
datt aldrei í hug að bijóta ákvæði
eldri reglugerðar og láta á þetta
reyna eins og hinir gerðu. Vegna
ástandsins í heiminum fannst okk-
ur ástæða til að leita leiða til að
styrkja fréttaþjónustuna," sagði
Markús Örn.
Bogi Ágústsson, fréttastjóri
Ríkissjónvarpsins, sagði að frétta-
maður RÚV kæmi reglulega inn
í útsendingu Sky og segði frá því
helsta sem væri að gerast.
„Meðan ástandið er jafn
spennuþrungið og nú er munum
við sýna fréttir frá Sky, en þetta
er ekki varanlegt ástand. Hlut-
verk fréttastofanna er, í mínum
huga, annað og meira en að vera
endurvarpsstöð fyrir erlendar
sjónvarpsstöðvar. Við sérstakar
kringumstæður, eins og nú eru,
finnst mér þetta þó eðlilegt og
verjandi," sagði Bogi.
Skjólkvíagosið svokallaða 1970,
sem var svipað núverandi gosi og
stóð í viku, að kannski væri gos-
mynstur Heklu allt öðru vísi en
menn hefðu'talið. „Ef það hefði
verið sunnanátt, éljagangur og
slydda 1981, þá hefði fyrir daga
jarðskjálftamæla og annarrar
tækni enginn orðið var við það
gos. Gosið 1980 stóð varla nema
rúman sólarhring, og líklega hefði
enginn orðið var við það heldur.
Ef við lítum á gosið í dag, þá hef-
ur nánast ekkert sézt í allan dag
af gosinu fyrir veðri. Það er því
vel hugsanlegt að fjöldi smágosa
hafi farið framhjá annálaritum og
ekki komizt í heimildir, af því að
þau drápu ekki búfénað eða höm-
luðu grassprettu."
Haukur Jóhannesson, jarðeðlis-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofn-
un, hefur stundað rannsóknir á
Heklusvæðinu, og segir að ýmsar
niðurstöður rannsókna sinna bendi
til þess að fyrrgreind tilgáta geti
verið rétt. „Við fundum öskulög á
Suðurlandi, sem eru greinilega úr
Heklu, en falla ekki inn í þetta
hefðbundna mynstur," sagði Hauk-
ur. Hann sagði að einnig hefðu
verið tekin hraunsýni, en rannsókn-
um á þeim hefði ekki verið lokið.
Hann sagðist telja vel líklegt að
gosin í Heklu væru fleiri en talið
hefur verið, og að smágos á borð
við það, sem nú.stendur, hafi verið
eins konar smáskvettur eftir stóru
gosin.
Sjá fréttir á bls. 2,4,16 og 17.
Samdráttur
í söiu áfeng-
is og tóbaks
SAMDRÁTTUR varð í sölu
Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins á síðasta ári miðað
við árið 1989. Samdráttur í
sölu á áfengi nam 5,31% í
lítrum en 4,13% í alkóhóllítr-
um.
Samdráttur varð í sölu á
vindlingum um 1,19% , 3,31%
samdráttur í vindlasölu og
rúmlega 1% í sölu á reyktó-
baki. Aftur á móti jókst sala
á munn- og neftóbaki lítillega,
eða um 0,80%-.
í lítrum talið nam áfengis-
salan 8.995.000 lítrum eða
1.001.816 alkóhóllítrum. Það
svarar til 3,93 alkóhóllítra á
hvert mannsbarn í landinu.
Ef litið er til aldurshópsins
15 ára og eldri, er salan sem
svarar til 5,24 alkóhóllítra á
mann.