Morgunblaðið - 27.03.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.03.1991, Blaðsíða 4
ieer skam ts auQAfínxiyQiM aiaAjavfUQaoM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27 MARZ 1991 Landsbankími lánar Rússum 620 milljónir vegna ullarvörukaupa SKRIFAÐ verður undir samning á næstu dögum um að Landsbank- inn láni nýstofnuðum banka rúss- neska lýðveldisins, Vneshtorg- bank, 17,5 milljónir þýskra marka, Gengi doll- ars nálg- ast 60 kr. GENGI Bandaríkjadollars hefur ferið stöðugt hækkandi frá lokum Persafólóastríðsins og í gærmorgun var kaup- gengi dollars skráð á 59,77 kr. og sölugengi á 59,93 hjá Seðlabankanum. Hefur sölu- gengið ekki verið svo hátt frá 26. júní á síðasta ári. Lægst seig dollarinn 12. fe- brúar þegar kaupgengi hans hér á landi var skráð á 53.49 krónur. eða um 620 milljónir króna, vegna kaupa Rosvneshtorg, fyrirtækis rússneska lýðveldisins, á ullarvör- um af Álafossi hf. í ár og á næsta ári. Ríkisábyrgð rússneska lýð- veldisins verður á láninu en lög- fræðingar Vneshtorgbank hafa verið að skoða tæknileg atriði samningsdraganna undanfarna daga. „Það markar ákveðin tímamót, þegar skrifað verður undir þennan samning og hann er mjög stórt skref fyrir íslenskt atvinnulíf, þar sem við erum þarna að komast framhjá hefð- bundnum leiðum, sem við höfum verið að selja í gegnum,“ segir Jón . Sigurðsson fjármálastjóri Álafoss hf. Samkvæmt samningnum kaupir Rosvneshtorg um það bil helming af ullarvörunum á þessu ári en hinn helminginn á næsta ári. Um er að ræða sams konar vörur og Álafoss hf. selur til Vesturlanda. Þetta eru því dýrari og vandaðri vörur en fyrir- tækið hefur seit Sovéska samvinnu- sambandinu, Sojuzkoopvneshtorg, og Innkaupasambandi Sovétríkj- anna, Raznoexport, að sögn Jóns Sigurðssonar. Jón segir að Álafoss hf. eigi vörur, sem fyrirtækið geti afhent Rosvneshtorg um leið og búið er að undirrita samninginn. Sovéska samvinnusambandið og Innkaugasamband Sovétríkjanna skulda Álafossi hf. rúmar 4,4 milljón- ir Bandaríkjadala, eða um 265 millj- ónir króna, ■ vegna ullarvara, sem þessi fyrirtæki keyptu héðan í fyrra. „Það er jákvæð hreyfing komin á þessi skuldamál," segir Jón Sigurðs- son. Hann segir að viðræður við so- véska samvinnusambandið um kaup á ullarvörum af Álafossi hf. í ár hafi dregist Hins vegar haldi samn- ingamenn Álafoss hf. þessum við- ræðum áfram af fullum krafti í Moskvu á næstu dögum. Sovéska samvínnusambandið hef- ur keypt ullarvörur af Álafossi hf. fyrir jafnvirði 16 þúsund lesta af gasolíu á ári, eða tæplega 200 millj- óna króna á núvirði, en viðskipti so- véska samvinnusambandsins hafa byggst á vöruskiptum, að sögn Jóns Sigurðssonar. VEÐUR 1/EÐURHORFUR I DAG, 27. MARZ YFIRLIT í GÆR: 350 km vestsuðvestur af Snæfelisnesi er 990 mb lægð á hreyfingu norðaustur. 1.035 mb hæð er yfir sunnan- verðri Skandiriavíu, og önnur 1.027 mb hæð um 1.400 km suðsuð- vestur í hafi þokast norður. SPÁ: Suðvestanátt, stinningskaldi með allhvössum éljum vestan- lands frapn eftir kvöldi en heldur hægari á morgun. Á Norðaustur- og Austuriandi verður suðvestankaldi eða stinningskaldi, þurrt og víða bjart veður. Sums staðar verður vægt fro9t í nótt en 1-3 stiga hiti á morgun. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA; HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestanátt, strekkingur í fyrstu en hægarí er fíðurá daginn. Skúrír eða slydduél um sunnan- og vestan- vert landiö en bjart veður norðaustanlands. Hiti 0-5 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Fremur hæg vestan- og norðvestanátt. Dálítil él við norðausturströndina en þurrt og víða bjart veður í öðrum landshlutum. Vægt frost víða um land. TAKN: s, Norðan, 4 vindstig: *' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma ■JQ Hitastig: 10 gráður á Celsius V Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —J. Skafrenningur Þrumuveður — VEÐUR VIÐA kl. 12.00 í gær hití 5 1 UM HEIM að ísl. tíma Akureyri Reykjav/k veður skúr snjóél Bergen Helsinki 6 Kaupmannahötn tl Narssarssuaq +8 Nuuk r10 Ósló 8 Stokkhólmur 8 Þórshöfn 1Ó léttskýjaS léttskýjað léttskýjað skýjað skýjað skýjað skýjað léttskýjað Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chlcago Feneyjar Frankfurt Hamborg Las Paimas London LosAngeles Lúxemborg Madríd Malaga Mallorca Montreal NevnYork Orlando Parls Róm Vfn Washlngton Winnipeg 16 skýjað 7 skýjað 12 rigning 7 léttskýjað 11 rigning skýjað 7 rigning vantar 9 skýjað vantar 7 aiskýjað 8 rlgning 7 skýjað 10 alskýjað 17 skýjáð 16 urkoma 1 þokumóða vantar 14 þokumóða 11 skýjað 17 skýjað 0 þokumóða vantar +8 léttskýjað , íslendingar hafa gert það að skil- yrði fyrir undirritun rammasamnings við Sovétmenn fyrir árin 1991 og 1992 að þeir greiði okkur 16 milljón- ir Bandaríkjadala, eða um 960 millj- ónir króna, vegna samnings um kaup á saltsíld, ullarvörum, lagmeti og frystum fiski héðan á síðasta ári, þar af 5 milljónir dala, eða um 300 millj- ónir króna vegna saltsíldarkaupa. „Ég býst ekki við að það hái okkur í viðræðum við sovéska samvinnu- sambandið að nýr rammasamningur hefur ekki verið undirritaður,“ 'segir Jón Sigurðsson. Kaupmenn vilja fá að selja bjórinn MATVÖRUKAUPMENN vilja fá að selja bjór í verslunum sínum. Þeir segja að þeim sé ekki síður treystandi en afgreiðslumönnum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til að krefja kaupendur um skilríki. Forstjóri ÁTVR segir að innan Efnahagsbandalagsins sé andstaða við einkaleyfi á sölu áfengis og því verði þetta mál trúlega rætt ef af einhverskonar aðild Islands að EB verður. Félag matvörukaupmanna í vegna kaupmenn eigi ekki að selja Reykjavík og nágrenni áréttaði á borðvín eða sterk vín eins og gert aðalfundi félagsins þá skoðun að matvöruverslanir ættu að fá leyfi til að selja bjór eins og aðrar neyslu- vörur. Þeir segjast fullfærir um að sinna þörfum markaðarins enda hafi þeir yfír að ráða þjálfuðu starfsfólki og góðu húsnæði. „Starfsmönnum almennra verslana er ekkert síður treystandi en af- greiðlsumönnum hjá Á.T.V.R. til þess að krefjast skilríkja um aldur viðkomandi kaupanda, ef vafi léki þar á um,“ segir í ályktuninni. „Það er fyrst og fremst ákvörðun stjórnmálamanna hvort bjór verður seldur í almennum verslunum. Það má reyndar alveg eins spyija hvers er í mörgum örðum löndum," segir Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR. Hann segir svipað fyrirkomulag vera á Norðurlöndunum nema hvað í Danmörku sé hægt að fá bjór í matvöruverslunum. „Svíar hafa sveiflast fram og aftur í þessu máli. Bjór var seldur í verslunum þar um tíma en nú er aðeins hægt að fá hann í vínbúðum. Innan Efna- hagsbandalagsins eru sterkar radd- ir sem mæla gegn einkasölu og ég geri ráð fyrir að umræða um þetta mái komi upp þegar og ef við tengj- umst því með einhveijum hætti,“ segir Höskuldur. Undirbúin heimsókn forseta Italíu HAFINN er undirbúningur að opinberri heimsókn Francesco Cossiga forseta Ítalíu hingað til lands. Er miðað við að hann verði hér dagana 4. og 5. maí næstkomandi. Kornelíus Sigmundsson forseta- ritari sagði í gær að þetta hefði komið til tals, en eftir væri að fast- setja hvenær af heimsókninni gæti orðið, dagskrá og fylgdarlið forset- ans. Sagði hann að sendinefnd ítalska forsetans kæmi hingað í næstu viku til að undirbúa heim- sóknina og yrði endanleg ákvörðun væntanlega tekin í lok þeirrar viku. Opinberir starfsmenn: Kaupmátt- ur óbreyttur KAUPMÁTTUR opinberra starfsmanna og Reykjavíkur- borgar hélst svo til óbreyttur á síðasta ári. Þetta kemur fram í fréttariti frá Kjararannsóknar- nefnd opinberra starfsmanna. í fréttaritinu er kaupmátturinn reiknaður út frá öllum launum frá launaskrfistofu og yfirvinna er meðtalin. Laun allra hópa ríkis- starfsmanna og starfsmanna Reykjavíkurborgar eru tíunduð og kaupmátturinn athugaður allt frá árinu 1987. Þegar á heildina er litið hélst kaupmáttur flestra svipaður allt síðasta ár. Ef kaupmátturinn á fyrsta ársfjórðungi ársins 1987 er sagður 100 þá er algengt að kaup- mátturinn í desember í fyrra sé rúmlega 90. Tölurnar fara frá rúm- lega 80 og allt upp í 135 hjá félagi íslenskra flugumferðarstjóra. Þilplötuverksmiðja í Þoriákshöfn; Forsætisráð- herra býður 135 millj.til haiiiaryeröar Á RÍKIS ST J ÓRN ARFUNDI í gær lagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, fram bókun um að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir útvegun fjármagns til nauðsynlegra hafnarframkvæmda ef ákveðið verður að ráðast I byggingu þil- plötuverksmiðju í Þorlákshöfn. Hafnarmálastofnun áætlar að hafnarframkvæmdirnar muni kosta um 135 milljónir króna á núvirði. Engar athugasemndir voru gerð- ar við bókun forsætisráðherra um fjármögnun hafnarframkvæmd- anna á ríkisstjórnarfundinum. Fundu hass við húsleit FÍKNIEFNALÖGREGLAN lagði hald á 40 grömm af hassi við le^, í húsi í Austurbænum í fyrra- kvöld. Fernt var handtekið á staðnum. Sama kvöld var gerð leit í tveim- ur húsum í Breiðholti en þar fund- ust eingöngu tól fíkniefnaneytenda en engin efni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.