Morgunblaðið - 28.05.1991, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ ÍHl
Handjám-
aði mann í
sundlaug
UNGUR lögreglumaður stökk í
einkennisbúningi sinum ofan í
sundlaugina í Laugardal í fyrri-
nótt til að handtaka mann sem
neitaði að koma uppúr. Lögregl-
an var kölluð á staðinn vegna
tveggja manna sem þangað
höfðu komið til sundiðkana um
miðja nótt og létu ganga á milli
sín brennivínsflösku ofan í laug-
inni.
Samningatilraunir voru reyndar
til hins ítrasta en að sögn lögreglu
strönduðu þær á fúkyrðaflaumi
sundmannanna. Loks leiddist ung-
um lögreglumanni þófið, stökk ofan
í laugina í einkennisbúningi sínum
og færði annan mannanna, sem
sýndi heiftarlegan mótþróa, í hand-
járn og síðan á þurrt með aðstoð
félaga sinna. Við svo búið lét hinn
sundmaðurinn undan og kom upp-
úr. Báðir mennimir voru látnir
þoma innan og utan í fangageymsl-
um lögreglunnar.
VEÐUR
Jass við útitaflið
Jasshátíðin Rúrek var sett sl. sunnudag og verða hátt í 50 tónleikar
haldnir í höfuðborginni fram til sunnudagsins 2. júní. Fimmtán norr-
ænir jassleikarar taka þátt í hátíðinni auk fjölmargra íslenskra jass-
sveita. í gær lék Kvartett Bjöms Thoroddsen við útitaflið í Lækjar-
götu og lögðu margir krók á leið sína til að hlýða á jassinn.
VEÐURHORFUR I DAG, 28. MAI
YFIRLIT: Skammt norðvestur af írlandi er 1036 mb hæð sem þok-
ast heldur norövestur en 996 mb lægð skammt suður af Hvarfi
þokast norðnorðvestur. Frá henni liggur lægðardrag norðausturum
Grænlandssund.
SPÁ: Suðvestlæg átt, víðast gola eða kaldi en stinníngskaldi ástöku
stað norövestantil á landinu. Lítils háttar rigning eða súld öðru
hverju um landið vestanvert en þornar heldur er líður á daginn,
þokuloft við suðurvesturströndina. Þurrt og sums staðar nokkuð
bjart veður um austanvert landið. Hlýtt verður áfram.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðlæg eða suðvestlæg átt og hlýtt,
einkum á Norður- og Austurlandi. Skýjað við suður- og vestur-
ströndina, smáskúrir norðanlands en bjart veður á Austurlandi.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg suðlæg átt og hlýtt
áfram.Skýjað á Suður- og Vesturlandi en bjart veður norðanlands
og austan.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
N: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig:
0 gráður á Celsíus
stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. y Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/</ / Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 5 5 Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * -i* Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K_ Þrumuveður
Söngvaseiður
slær aðsóknarmet
Gert ráð fyrir 6 milljón króna nettóhagnaði
AÐSÓKN á Söngvaseið í Þjóðleikhúsinu hefur verið gífurlega góð.
Voru sýndar níu sýningar í síðustu viku sem er nýtt aðsóknarmet.
Að sögn Gísla Alfreðssonar þjóðleikhússtjóra skilar sýningin veruleg-
um hagnaði og er gert ráð fyrir að hann nemi um 6 milljónum króna
þegar sýningum lýkur í endaðan júní.
„Söngvaseiður sló aðsóknarmet
sem sett var á söngieikinn Oliver
Hann var settur upp haustið 1989
af sama fólki og stendur að sýning-
unni nú; Benedikt Árnasyni og
Agnesi Löve og náði átta sýningum
á viku,“ sagði Gísli Alfreðsson.
Sýningar verða út júní og hafa
þegar verið seldir miðar á 57 þeirra.
Mögulega verður 3-4 sýningum
bætt við. Ekki verða teknar upp
sýningar á Söngvaseið í haust. Þjóð-
leikhúsið er með sýningartjöldin á
leigu og mun ekki óska eftir því
að leigan verði framlengd. „Það
hefur einfaldlega ekki komið til
tals að hefja sýningar í haust,“
sagði Gísli.
Uppfærslan skilar verulegum
hagnaði; 8-900.000 kr. koma inn í
aðgangseyri á kvöldi en kostnaður
við hverja sýningu er um 300.000
kr. Að sögn Gísla verður stofn-
kostnaður bráðlega uppgreiddur og
gert ráð fyrir að nettóhagnaður
nemi um 6 milljónum króna.
Maí á Suðvesturhorninu:
Vætu- og* sólarleys-
ismetið að falla
HEITASTI dagur það sem af er maímánuði var á Iaugardag er hiti
komst upp í 15,5 gráður í Reykjavík. Á Egilsstöðum fór hitinn upp í
21 stig en var 22 stig fyrir rúmri viku. Maí hefur verið óvenju vætu-
samur og sólarlítill á höfuðborgarsvæðinu það sem af er og er spáð
áframhaidandi suðvestlægri átt og úrkomu annað slagið.
Á laugardag spáði Veðurstofan
þokusúld en vindur snerist eilítið
og birti til. Þrátt fyrir að spáð sé
svipuðu veðri út vikuna, er ekki
loku fyrir það skotið að það létti til
á afmörkuðu svæði. Á Norður- og
Austurlandi verður hlýtt og bjart
með köflum.
Maímánuður hefur verið óvenju
vætusamur það sem af er. Meðalúr-
koma í maí 1961-1990 eru 44 mm
en er þegar komin upp í 117 mm.
Metúrkoma var í maí 1989, 126
mm. Mikið rigndi í Reykjavík í gær
og er því metið í verulegri hættu.
Meðalfjöldi sólarstunda í maí er
192 stundir en það sem af er þess-
um maímánuði aðeins 93 stundir.
Metið í sólarleysi í maí var árið
1951 þegar sólarstundir voru 102.
Háskólafyrirlestur um
ömefnarannsóknir
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 15 alskýjað Reykjavík 9 þokumóða
Bergen 10 skýjað
Helsinki 14 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 alskýjað
Narssarssuaq 9 rigning á síð.klst.
Nuuk 0 skýjað
Osló 18 skýjað
Stokkhólmur 11 skýjað
Þörshöfn 10 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Amsterdam 10 rigningog súld
öarcelona 21 heiðskírt
Beriin 13 skýjað
Chicago 28 þokumóða
Feneyjar 18 skýjað
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 18 skýjað
Hamborg 11 súld á síð.kist.
London 20 hálfskýjað
LosAngeles 18 skýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Madríd 25 heiðsklrt
Malaga 23 skýjað
Mallorca 20 helöskfrt
Montreal 20 sdld
NewYork vantar
Orlando vantar
Parfs 17 skýjað
Madeira 18 rykmlstur
Róm 19 hálfskýjað
Vín 14 skýjað
Washington 27 skýjað
Winnipeg vantar
í TILEFNI af 80 ára afmæli
Háskóla íslands flytur Þórhallur
Vilmundarson prófessor, for-
stöðumaður Ornefnastofnunar
Þjóðminjasafnsins, fyrirlestur í
Haskólabíói, sal 4,í dag, þriðju-
dag, kl. 17.15. Sýndar verða á
breiðtjaldi myndir og uppdrættir
til skýringar. Ollum er heimill
aðgangur að fyrirlestrinum.
í frétt frá Háskóla íslands segir
að Þórhallur hafi um margra ára
skeið lagt stund á örnefnarannsókn-
ir og muni í fyrirlestrinum greina
frá nýjum niðurstöðum rannsókna
sinna, jafnframt því sem hann muni
lýsa aðferðum þeim, sem hann beit-
ir. Sérstaklega verður fjallað um
sum þeirra örnefna, sem talin hafa
verið af goðfræðilegum toga. Fyrir-
lesturinn nefnist Njörður í Njarð-
vík.
Þórhallur Vilmundarson
Lögreglan hefur lagt
hald á 10 kg af hassi
Fíkniefnadeild lögreglunnar
hefur lagt hald á tiu kíló af hassi
í tengslum við rannsókn máls,
sem er eitt hið umfangsmesta
sem komið hefur upp hérlendis
og snýst um innflutning á meira
magni á efninu aftur til ársins
1989. Tveir menn á fimmtugs-
aldri eru í gæsluvarðhaldi vegna
málsins en lögreglan vill ekki
upplýsa hve mikið efni þeir eru
taldir hafa flutt inn til landsins
á þessum tima.
Efnið sem lagt var hald á kom
til-landsins 1 vörusendingu með skipi
frá Rotterdam fyrr í mánuðinum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er líklegt að innkaups-
verð 10 kílóa af hassi í Hollandi sé
á bilinu 1-2 milljónir króna en hér
á landi er algengt verð á grammi
til neytenda 1.500 krónur, þannig
að miðað við það er markaðsverð
10 kílóa af hassi um 15 milljónir
króna á götunum hér. Lögreglan
vildi ekki upplýsa hvernig staðið
hefði verið að dreifingu efnisins hér
eða hvort mennirnir báðir hefðu
staðið saman að öllum innflutningn-
-ums-------------------------------J