Morgunblaðið - 28.05.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 1991
19
Riðuniðurskurður, til-
fiiiiiing’ar eða skynsemi
eftir Sigurð
Aðalsteinsson
í fréttum á Stöð 2 laugardaginn
18. maí síðastliðinn var viðtal við
formann fjáreigendafélagsins á
Húsavík, þar sem hann bar sig mjög
illa vegna umræðu um niðurskurð
á öllu sauðfé í fjárborg Húsavíkur-
kaupstaðar.
Ég sem venjulegur bóndi átti
ekki orð til. Getur virkilega verið
að hægt sé að gera þvílíkt tilfinn-
ingamál úr niðurskurði á 130 rollum
hjá frístundabændum á Húsavík að
sá niðurskurður verði kannski ekki
framkvæmdur.
Niðurskurður á fjárstofnum er
alvörumál, vegna þess að skurður-
inn er framkvæmdur til að útrýma
riðuveiki á íslandi, bændum og neyt-
endum í þessu landi til hagsbóta.
Tökum eitt dæmi. Fyrir rúmlega
ári samþykktu bændur á Austur-
landi heildarniðurskurð alls sauðfjár
milli Jökulsár á Dal og Lagarfljóts
alls 13.000 fjár, segi ég og skrifa
þrettán þúsund! Er nokkur furða
þó að manni blöskri málflutningur
frístundabænda á Húsavík er nú
skirrast við að lóga 130 kindum,
vilja heldur móast við og viðhalda
riðuveiki í landinu, bændum og
neytendum til óþurftar.
Köfum dýpra í málin. í hitteð-
fyrra samþykktu Austfirðingar
heildarniðurskurð alls sauðfjár á
svæðinu frá Lagarfljóti austur um
í Reyðarfjarðarbotn, og svo var víð-
ar á iandinu. í Þingeyjarsýslum hef-
ur á undanförnum árum líka farið
fram stórfelldur niðurskurður vegna
riðuveiki.
Með hliðsjón af þessu, er virkilega
hægt að vola út af 130 kindum
þegar bændur vítt um land hafa
fært þær fórnir, er meðal annars
að framan getur?
Signrður Aðalsteinsson
„Niðurskurður á fjár-
stofnum er alvörumál,
vegna þess að skurður-
inn er framkvæmdur til
að útrýma riðuveiki á
Islandi, bændum og
neytendum í þessu
landi til hagsbóta.“
Við formann Fjáreigendafélags
Húsavíkur vil ég segja þetta að lok-
um: Kynntu þér það sem þegar hef-
ur verið reynt í sambandi við útrým-
ingu riðuveiki í landinu, því að þeim
hlutum skoðuðum held ég að þú
munir kannski standa í báða fætur
og.vita um hvað sauðfjárveikivamir
á íslandi snúast.
Höfundur er bóndi á Vaðbrekku
í Jökuldalshreppi.
HLUTABRÉFASJÓÐUR VÍB HF.
AÐALFUNDUR
Þriðjudaginn 28. maí 1991, kl. 17:30
Höfða, Hótel Loftleiðum
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins
2. Tillaga borin fram um breytingar á samþykktum félagsins,
sem kveður á um að reikningsár þess miðist við 30.
apríl ár hvert í stað áramóta.
3. Erindi
Þáttur hlutabréfa í fjármálum einstaklinga:
Bera hlutabréf áfram hæstu ávöxtun?
Sigurður B. Stefánsson, framkvœmdastjóri VIB
4. Onnur mál
Hluthafar eru hvattir til að mæta!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.
Meira en þú geturímyndaó þér!
FÍF
HYGGINN MAÐUR
SPARAR
- með Farkorti
FARKÐRTS
greiðslukort með fríðindum
FARKORT er alþjóðlegt greiðslukort, gefið út
af Félagi íslenskra ferðaskrifstofa og VISA
ÍSLAND.
FARKORTI fylgja sömu réttindi og venjulegum
VISA-kortum, en að auki margskonar fríðindi
heima og erlendis.
VEITINGAHÚS: Gullni haninn, Pizzahúsið,
Naust, Lækjarbrekka, Argentína, Sælkerinn og
Sjanghæ í Reykjavík, Bakki á Húsavík, Hótel
SKEMMTISTAÐIR: Hótel ísland, Hótel Borg
og Danshöllin, Reykjavík, Krúsin ísafirði, Hótel
Selfoss, Selfossi og Sjallinn, Akureyri.
HÓTEL: Hótel Esja, Hótel Loftleiðir og Hótel
Höfði, Reykjavík, Hótel Keflavík og Flughótel,
Keflavík, Hótel KEA, Akureyri,
Hótel Bláfell, Breiðdalsvík og Hótel
Selfoss, Seífossi.
BÍLALEIGUR: Bílaleiga ÁG, Bílaleiga
Flugleiða og Bílaleigan Geysir, Reykjavík,
Bílaleigan Höldur og Bíialeigan Örninn,
Akureyri.
ANNAÐ: Sinfóníuhljómsveit íslands og
FARVÍS - tímarit um ferðamál.
HYGGINN MAÐUR HEFUR FARKORT
ALLTAF VIÐ HÖNDINA.
Ferða/slysa- og farangurstryggingar og
helmings afsláttur af forfallatryggingu.
Afsláttur á fjölmörgum skemmtistöðum,
veitingahúsum, hótelum og bílaleigum
innanlands.
Ódýrar öræfaferðir.
Afsláttur á skoðanaferðum íslenskra
ferðaskrifstofa erlendis.
7-10% afsláttur af tilteknum ferðum til
helstu sumarleyfisstaða Evrópu. Þessar
ferðir eru auglýstar með góðum fyrirvara.
Á eftirtöldum stöðum innanlands njóta
Farkortshafar afsláttar:
©
©
Q
Q
©