Morgunblaðið - 30.05.1991, Qupperneq 53
MORi
,gu miÆ íÞRörm
'X MAÍ 1991
IÞROTTIR UNGLINGA / UNGLINGAMOTI SUNDI
Ægir náði
bikamum í
þriðju tilraun
Morgunblaðið/Frosti
Garðar Örn Þorvarðarson ÍA.
Garðar hlaut
fjögur gull
SUNDFÉLAGIÐ Ægir úr
Reykjavík varð hlutskarpast í
stigakeppni félaga á Unglinga-
móti ÍA og ESSO í sundi sem
fram fór í Jaðarsbakkalaug á
Akranesi um síðustu helgi.
Þetta er þriðja árið sem mót
þetta er haldjð og í fyrstu tvö
skiptið vann ÍA sigur. Heima-
mönnum tókst ekki að verja
bikarinn að þessu sinni en þeir
höfnuðu í 2. sæti á eftir Ægi
sem hefur verið f mikilli sókn
í vetur.
Um 370 keppendur tóku þátt í
mótinu frá sautján félögum
og er það um helmingi fleiri þáttak-
endur en í fyn-a. Um 300 keppend-
ur gistu í grunnskó-
lanum og það var
mikið að gera hjá
50-60 sjálfboðalið-
um úr foreldrafélagi
IA við að fæða keppendur og sjá
um framkvæmd mótsins gengi
snuðrulaust fyrir sig.
Mótið er að nokkru leyti hugsað
sem undirbúningsmót fyrir AMI-
mótið, það er Aldursflokkameist-
aramótið sem fram fer í Hafnar-
firði fyrstu helgina í júlí. Fjölmarg-
ir keppendur tryggðu sér þáttöku
á AMI með því að synda undir lág-
mörkum á þessu móti.
Lára Bjargardóttir, Ægi varð
sigursælasti keppandi mótsins. Hún
sigraði í öllum fjórum einstaklings-
Frosti
Eiðsson
skrifar
greinunum í hnátuflokki. Fjórir
keppendur sigruðu í þremur ein-
staklingsgreinum og voru það Örn
Amarson SH í hnokkaflokki, Viðar
Öm Sævarsson HSÞ í drengja-
flokki, Ingibjörg Isaksen Ægi í
telpnaflokki og Garðar Örn Þor-
varðarswi ÍA í piltaflokki.
Eitt íslandsmet féll á mótinu er
telpnasveit SFS bætti eigið met í 4
x 50 metra fjórsundi.
Morgunblaðið/Frosti
Jana Sturlaugsdóttir, fyrirliði Ægis hreiðrar um sig í heita pottinum ásamt öðrum liðsmönnum Ægis eftir sigur
félagsins í stigakeppni Unglingamótsins í sundi.
Lokastig
1. Ægir.....740
2. ÍA.......538
3. SFS......361
4. KR.......168
5. UMSB.....156
6. SH.......147
7. Armann...l36
8. ÍBV......105
9. HSÞ...... 99
10. HSK... 84
11. Stjarnan 60
12. Óðinn. 47
13. UBK... 33
14. USVH 18
15. Þór... 14
16. UMSS.. 7
17. UBH... 5
fcí" i/i’
íslandsmethafarnir í 4 x 50 metra
og Anna Steinunn Jónasdóttir en þær
Morgu n blaðið/Frosti
fjórsundi telpna, Berglind Daðadóttir, Eygló A. Tómasdóttir, Eydís Konráðsdóttir
syntu fyrir SFS.
Bættu eigið met
Við vomm ákveðnar í að setja
nýtt met á þessu móti og við
emm ákveðnar í að gera enn betur
á aldursflokkamótinu," sögðu þær
Hrafnhildur, Eydís, Eygló og Anna
Steinunn sem gerðu sér lítið fyrir
og settu íslandsmet í 4x50 metra
fjórsundi telpna á laugardeginum.
Þær stöllur sem að syntu fyrir
Sundfélagið Suðurnes, syntu á
2.17,13 og bættu sitt eigið met um
eina sekúndu. Þær sögðu að þær
hefðu lengi æft saman að Önnu
undanskilinni en hún kom seinna
inn í sveitina. Stúlkumar kepptu
flestar í þremur greinum auk boð-
sundsins.
Foreldrar á Suðumesjum studdu
vel við keppendur á mótinu. Um
tuttugu þeirra fóm með liðinu til
Akraness og hvöttu í sundkeppn-
inni.
Atti
n
ekki von
w m m
a sign
EG átti ekki von á sigri, Jói hef-
ur verið með betri tíma en ég
að undanförnu en ég æfði stíft fyr-
ir mótið og það skilaði árangri,"
sagði Viðar Sævarsson HSÞ sem
kom í mark hálfri sekúndu á undan
Jóhannesi Ægissyni úr Ægi í 100
metra skriðsundi drengja.
Þeir Viðar og Ægir börðust um
sigurinn í öllum greinunum í dren-
gjaflokki og hafði Viðar betur í
þremur greinum af fjórum.
Viðar er úr Mývatnssveit en fé-
lagar hans þurftu að leggja á sig
langt ferðalag í langferðabíl til að
taka þátt í mótinu. Viðar hefur hins
vegar búið í Reykjavík í síðustu
viku og ferðin var því miklu styttri
fyrir hann. „Eg hef æft með Ægi
að undanfömu og geri það meðan
ég er í bænum. Ég kann vel við
mig á æfingunum hjá þeim. Við
emm mjög fá sem æfum í Mývatns-
sveitinni og ég er orðinn hálfþreytt-
ur á að æfa einn.“
■
■
MorgunblaÖið/Frosti
Viðar Sævarsson HSÞ á mikiili siglingu í flugsundinu.
Ungmennafélag Keflavíkur
AÐALFUNDUR
verður haldinn í kvöld fimmtud. 30. maí
kl. 20.30 í Félagsheimilinu, Skólavegi 32.
Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar fjölmennið.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Garðar Örn Þorvarðarson ÍA var
sigursæll á mótinu. Garðar
vann fjögur gullverðlaun í pilta-
flokki þar af þrjú einstaklingsverð-
laun, í flugsundi, skriðsundi, bak-
sundi auk þess sem að hann var í
sigursveit IA í 4 x 50 metra fjór-
sundi.
Við emm ekki með jafn mikla
breidd af góðu sundfólki eins og
Ægir og það var því ekki raunhæft
fyrir okkur að veija bikarinn,“ Ég
er ánægður með minn árangur en
ég hef þó oft bætt mig meira en í
vetur,“ sagði Garðar.
„Aðstaðan batnaði mikið þegar
laugin var tekin í notkun en það
vill oft verða kalt á veturna. Draum-
urinn er að fá stóra innilaug," sagði
Garðar.------------------------------
Morgunblaðið/Frosti
Lára varð sigurvegari
í fjórum greinum
Lára Bjargardóttir Ægi, í miðið, synti fyrir Ægi og gerði sér lítið fyrir og
vann gullverðlaun í öllum Qórum einstakiingsgreinunum í hnátuflokki sem er
flokkur tíu ára og yngri. Vinstra megin á myndinni er Guðlaug Finnsdót.tir ÍA
sem hafnaði í 2. sæti í 50 metra baksundi og hægra megin er Sunna Dís Ingi-
- bjargardóttir-SFS sem-hlaut þriðja sætið. —