Morgunblaðið - 30.05.1991, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 30.05.1991, Blaðsíða 50
50 MORGUNBIAÐIÐ FIM^TUDAGUft 3q.,My\í 1^91, „ þessl stóru tru fyrir /5" cir. " Ást er . . . .. .það sem þú sérð íspegli. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ® 1991 Los Angeles Times Syndicate Hvort var það Afríku- eða Indlandsfíll...? Með morgunkaffinu Nú, þarna ertu. - Ég sá þig ekki... HOGNI HREKKVISI KV£ F<VIEEVIL INO." Hugleiðing um reykingabölið Hinn 31. maí nk. er reyklaus dagur. Þá er gott tækifæri til þess að stíga það gæfuspor að hætta að reykja. Krabbameinsfélag Reykja- víkur hefur gefið út bæklinga handa þeim sem vilja hætta. Þeir fást á heilsugæslustöðvum, í apótekum og hjá Krabbameinsfélaginu, Skóg- arhlíð 8, hér í borg. Öll skynsamleg rök hníga í þá átt að menn reyni að losna úr viðj- um tóbaksnautnarinnar. Vitað er, að reykingar eru stórhættulegar heilsu manna og reykingamenn verða gamlir langt fyrir aldur fram. Reykingar hafa og valdið hryllileg- um eldsvoðum með tilheyrandi tjóni á mönnum og eignum. Reykingarnar eru afar dýrar. Sígarettupakki og eldspýtur kosta nú um 220 kr. (en brátt mun verð- ið hækka). Sá sem reykir pakka á dag, verður að greiða fyrir það á ári hveiju rúmlega 80 þúsund krón- ur. Iljón, sem reykja hvort um sig einn pakka á dag, verða að greiða um eina milljón króna á rúmlega sex árum í þessa nautn, ef nautn skal kalla. Reykingar þeirra í 30 ár kosta tæpar fimm milljónir króna. Þetta er því afar dýrt. Það að hætta að reykja samsvarar því að fá miklar skattfijálsar aukatekj- ur — með lögmætum hætti. En þó er þessi mikli kostnaður ekki aðalat- riði málsins. Hitt er miklu mikil- vægara, að hér eru í húfi lífshags- munir manna — í bókstaflegum skilningi. Því er það afar mikil- Um dag og veg Ósköp er eymdarlegt að hlusta á þetta blessaða fólk sem flytur „Um daginn og veginn" í útvarp- inu þessa stundina. Jón Eyþórsson sem ku eiga að vera upphafsmað- ur þessa elsta þáttar í útvarpinu, mun ekki hafa órað fyrir því að þetta barn hans ætti eftir að taka þessa stefnu sem hann er í í dag. Ýmsir aðilar troða þarna upp, kennarar og fleiri stéttar menn og það er undantekning að þeir uppfylli þau skilyrði sem mig grunar að hafi átt að gilda í upp- hafi, það er að tala um dag og veg en ekki sérhæfð vandamál 2000 1985 vægt, bæði fyrir einstaklingana og samfélagið, ef hægt væri að auka mjög líkur á heilbrigðu og góðu lífi og draga um leið úr líkum á alvar- legum og ótímabærum áföllum, með því að menn hætti að reykja. Sá sem þetta ritar, reykti allmik- ið hér áður fyrr. Fyrir rúmum ára- tug hætti hann því með öllu. Veru- legar breytingar til hins betra urðu fljótlega. Erting í hálsi og höfuð- þyngsli hurfu. Þol styrktist mjög og ýmsar kvefpestir og kvillar, sem heijuðu á hann einu sinni eða tvisv- ar á ári, komu nú miklu sjaldnar og voru auðveldari viðfangs. Það að hætta var miklu auðveldara en hann hélt, þótt tóbaksdraugurinn reyndi um hríð að blekkja hann. Þetta var heilladijúg og góð ákvörð- un, og þetta hafa margir menn einnar stéttar sem mér finnst vera að færast í aukana. Hinir ýmsu fulltrúar stétta troða sér þarna fram og þylja raunir stéttar sinnar í fimmtán til tuttugu mínútur. Menn eins og Andrés Kristjánsson o.fl. kunnu listina að tala um dag og veg en í dag virðist þessi grein á undanhaldi, ein undantekning er þó til. í vetur talaði Guðmundur A. Thorsson á laugardögum eftir hádegi og nefndi þættina Rimms- íramms. Þarna var listilega tekið á þessu útvarpsformi og vonandi munu þeir aðilar sem sækjast eft- ir að flytja mál sitt í „Um daginn og veginn“, taka sér til fyrirmynd- ar í framtíðinni. Hlustandi gert. Markmið þessarar hugleiðing- ar er það að hvetja fólk tjl þess að rífa sig úr ijötrum tóbaksins. Auðvitað má segja sem svo, að hver verði að fá að veija sínu lífi eftir eigin vilja. Og þeir sem vilja reykja eigi að fá að vera í friði, svo framarlega sem þeir valda ekki öðrum tjóni með háttsemi sinni. En ég veit það frá eigin reykingatíð, að margir reykingamenn vilja losna, en það er eins og þá skorti kjark og þor til þess — eða jafnvel hvatn- ingu. Af þeim sökum er hér minnst á reyklausa daginn. Það að hætta að reykja stuðlar að betra og heilbrigðara lífi. Þrek og þol eykst svo og sjálfstraust og innri styrkur. Auk þess verða fjár- ráð miklu íýmri. Ekki myndi ýms- um af veita. Vilji menn hætta að reykja, er kjörið að gera það á reyk- lausa daginn, og það er ástæðu- laust með öllu að fresta því. Gangi ykkur vel, gott fólk. Fyrrv. reyk-víkingur Oviðeigandi hvalskurð- armyndir Það er fremur undarleg árátta að þegar minnst er á hvali og hval- veiðar í sjónvarpi, þá er í hvert ein- asta skipti sýndar myndir af hval- skurði í Hvalfirði. Eg hefi orðið þess var að fólk er afar ósátt við þessar sífelldu endurtekningar og er það engin furða. Nú stendur fyrir dyrum fundur alþjóða Hvalveiðiráðsins í Reykjavík. Líklegt er að í sambandi við þann fund, leggi hingað leið sína eitthvað af viðkvæmum sálum. Ef eitthvað af þeim skyldi nú horfa á sjónvarp hér, er óþarft að angra þær með slíkum myndasýningum. Ég legg til að sjónvarpsstöðvarnar geri hlé á þessum hvalskurðar- myndum á me'ðan fundurinn stend- ur. Það er líka sannfæring mín að vel yrði það þegið af þorra sjón- varpsáhorfenda að þær yrðu felldar niður með öllu. Skarph. Agnars Víkverji skrifar Yíkveiji þurfti fyrir skömmu að skreppa til útlanda. Ekki buð- ust aðrir ferðakostir en að fara með Flugleiðum hf. Flogið var til megin- landsins og skyldi fara heim aftur frá Lúxemborg. Víkveiji og félagar hans áttu pantað far með flugi númer 615 sem fara skyldi frá Lúxemborg klukkan 14.05. Þegar komið var í flugstöðina blasti við tilkynning um seinkun á einhveiju öðru flugi Flugleiða þennan dag og önduðu ferðafélagarnir léttara yfir að það var ekki þeirra flug. Sú sæla stóð ekki lengi. Þegar komið var að afgreiðslunni var þeim pent tilkynnt að þeir hefðu verið fluttir yfir í flug númer 617, brottför klukkan 17.30, þar sem þeir ætluðu ekki áfram yfir hafið til Ameríku. Ástæðan var sögð seinkun einnar flugvélar vegna bilunar. Þær geta víst bilað líka þessar nýju. Víkverji og félagar reyndu að malda í móinn, sýndu farmiðann þar sem skýrum stöfum stóð að þeir ættu að fara klukkan 14.05 með flugi 615. „Því miður,“ sagði kurteis og þolinmóð afgreiðslu- stúlka Luxair, „við höfum fyrir- mæli frá Flugleiðum að fara svona að,“ og við það sat. Víkveiji er sannfærður um, að svona hefði ekkert flugfélag leyft sér að koma fram við farþega sína, ef þeir sömu farþegai' ættu allajafn- an kost á að ferðast með fleiri flug- félögum. Þarna var einokunarað- staðan lifandi komin. Þeir sem fara alla leið til Ameríku geta valið um mörg flugfélög til að komast leiðar sinnar, en við ræflarnir sem erum bara íslendingar getum ekki valið um neitt, við skulum taka það sem að okkur er rétt og ekkert múður! xxx etta væri svosem í lagi, ef hægt væri að breyta fyrir- varalaust áætlunum á báða vegu, farþeginn gæti sagt við flugfélagið að hann vilji fremur fara með öðru flugi og flugfélagið yrði að sæta því. En, þessu er ekki aldeilis að heilsa. Þessir farmiðar, sem þarna um ræðir, eru algjörlega bundnir við að fara með þessu ákveðna flugi og ef farþeginn ekki stendur sig að mæta á réttum tíma verður hann að gjöra svo vel og kaupa nýjan farmiða. Flugfélagið hins vegar, sem býr við einokun á þessari flug- leið, leyfir sér að fleygja farþegun- um út úr fluginu sem þeir höfðu keypt, seinka þeim um hálfan fjórða klukkutíma, fyrirvaralaust, til þess að koma einhveijum forgangsfar- þegum til Ameríku á réttum tíma! Svo er þetta flugfélag að stæra sig af því opinberlega að vera eitthvert stundvísasta flugfélagið í Evrópu og talar um góða þjónustu! Víkveiji óskaði þess heitt og innilega þarna úti í Lúxemborg að einhver hefði tekið sig til og fyllt skarð Arnar- flugs sáluga. xxx Annað, varðandi þjónustu Flug- leiða hf., hefur oft vakið undr- un Víkveija og valdið honum og samferðamönnum hans leiðindum. Það er þessi níska eða nesja- mennska, að innheimta fáeinar krónur fyrir bjór og vín um borð í flugvélunum. Víkveiji hefur ferðast með allmörgum evrópskum flugfé- lögum og hvergi orðið var við ann- að, en að drykkir þessir séu bornir fram endurgjaldslaust. Ekki sér Víkverji eftir þeim fáu krónum sem í þetta fara, það er út af fyrir sig í lagi. Hitt er öllu verra, reyndar til háborinnai' skammar, að um- stangið við að taka við peningunum og gefa til baka, er svo tímafrekt, að blessaðar flugfreyjurnar hafa einfaldlega ekki tíma til að veita sómasamlega þjónustu um borð. Víkveiji skorar á Flugleiðamenn að hætta þessu bjástri við krónurnar og fara heldur að veita sómasam- lega þjónustu í flugvélunum, og mætti biðja um þá kurteisi, að fleygja farþegunum ekki út úr flugi sem þeir eiga að fara með?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.