Morgunblaðið - 30.05.1991, Blaðsíða 56
Áburðarflugið hafið
Morgunblaðið/KGA
Áburðarflug Landgræðslunnar er hafið. Landgræðsluvélin Páll Sveins-
son dreifði fyrst um 30 tonnum af áburði og fræi yfir Reykjanesskag-
ann og er það um helmingur þess sem dreift verður þar í ár. Áburður-
inn var settur í vélina á Reykjavíkurflugvelli. Að þessu verkefni loknu
fer vélin í Gunnarsholt og byijað verður að dreifa áburði og fræi á
landgræðslusvæði á Suðurlandi. Útlit er fyrir að heldur meira verði
dreift af áburði og fræi með landgræðsluflugvélunum í sumar en
síðastliðið sumar en þá var um 1.500 tonnum sleppt úr vélunum, að
sögn Stefáns H. Sigfússonar, fulltrúa landgræðslustjóra. Aukningin
sem nú verður er vegna aukinnar áburðarnotkunar Landsvirkjunar
vegna samnings þeirra við bændur vegna Blönduvirkjunar. Útlit er
fyrir að Landsvirkjun láti dreifa um 450 tonnum í stað 300 tonna í fyrra.
Davíð Oddsson forsætisráðherra:
Framkvæmdasjóður lagður
niður að hluta eða öllu leyti
Sendiráðs-
maður send-
ur úr landi
SOVÉSKUR sendiráðsmaður,
sem réðst að lækni og slasaði
lögreglumann aðfaranótt mánu-
dagsins í síðustu viku eftir að
hann hafði verið staðinn að því
að aka ölvaður, er farinn úr landi
og hefur skilríkjum hans verið
skilað til utanríkisráðuneytisins.
Að sögn Harðar Bjarnasonar hjá
utanríkisráðuneytinu kallaði ráðu-
neytið staðgengil sendiherrans á
sinn fund þegar skjöl um málið
höfðu borist því, en slíkt er venja
þegar mál af þessu tagi koma upp,
og greindi hann þá frá því að mað-
urinn hefði verið sendur úr landi.
Sovétmenn gerðu engar athuga-
semdir við það hvernig staðið hefði
verið að málinu af hálfu lögreglunn-
ar.
„Það var fullt samkomulag um
að þetta hefði ekki verið æskileg
framkoma og sovéska sendiráðið
hafði fullan skilning á hversu alvar-
legt þetta mál var,“ sagði Hörður
Bjarnason. Hann sagði að utanríkis-
ráðuneytinu væri ekki kunnugt um
hvort manninum yrði refsað í sínu
heimalandi.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra hefur ritað stjórn Fram-
kvæmdasjóðs bréf og greint frá
því að hann hyggi á breytingar
á sjóðnum sem geti leitt til þess
að hann verði lagður niður. For-
sætisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann teldi að
sjóðurinn hefði lokið hlutverki
sínu, auk þess sem margt benti
til þess að hann væri gjaldþrota.
„Og því tel ég að rétt sé að gera
hann upp, og leggja hann niður
að því búnu,“ sagði Davíð.
„Ég skrifaði stjórn Fram-
kvæmdasjóðs bréf, sem efnislega
var á þá leið, að ég hefði í huga
að gera breytingar á þessum sjóði,
sem jafnvel gætu leitt til þess að
hann yrði lagður niður,“ sagði for-
sætisráðherra, „og ég bað stjórn
sjóðsins að taka tillit til þessa við
sínar ákvarðanir á næstunni. Þar á
ég náttúrlega við það að sjóðurinn
eigi ekki að vera að binda sér bagga
á meðan undirbúningur að þessari
breytingu á sér stað.“
Forsætisráðherra var spurður
hvers vegna hann hefði tekið þessa
ákvörðun: „Ég tel að hlutverki
þessa sjóðs eigi að vera lokið. Þetta
er sjóður sem stjórnvöld hafa notað
í ýmsum tilgangi og stundum alls
ekki í samræmi við lög um Fram-
kvæmdasjóð. Þar að auki tel ég
margt benda til þess að sjóðurinn
sé „fallítt" og því sé rétt að gera
hann upp, og leggja hann niður að
því búnu.“
Davíð sagði að væntanlega yrði
ábyrgðum Framkvæmdasjóðs kom-
ið annað, því ríkið væri ábyrgt fyr-
ir þeim lánum sem Framkvæmda-
sjóður hefði haft milligöngu um.
„Það verður kannað nú eins hratt
og unnt er hvort hægt sé að leggja
sjóðinn niður að öllu leyti eða ein-
ungis að hluta, og mun ég væntan-
lega hefjast handa um það strax í
næsta mánuði," sagði Davíð.
„Ég skal ekki segja hversu mikla
fjármuni má spara ríkinu með
þessu, en ég held að þessi ákvörðun
sé til þess fallin að gera stjórnsýsl-
una skilvirkari í framtíðinni, auk
þess sem stjórnmálamenn, og þar
með talinn ég náttúrlega, munu
hafa minna svigrúm til þess að
nota sjóði af þessu tagi með öðrum
hætti en á að gera,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra.
Sjávarútvegsráðfaerra:
/ • i • *
Nýjar stjórnunarreglur uti-
loka nánast allar hvalveiðar
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði í gærkveldi, að
verði nýjar stjórnunarreglur samþykktar á fundi Alþjóðahvalveiði-
ráðsins í dag, útiloki þær nánast allar hvalveiðar. „Það lýsir einfald-
lega því ástandi sem þarna er í Alþjóðahvalveiðiráðinu. Meirihlutinn
virðist líta á ráðið sem vettvang til þess að hindra hvalvciðar, en
ekki að stjórna skynsamlegum veiðum, eins og stofnsáttmálinn
mælir skýrt fyrir um,“ sagði Þorsteinn.
„Það fer ekkert á milli mála að ing Aiþjóðahvalveiöiráðsins," sagði
þær þjóðir sem eiga mestra hags-
muna að gæta í þessu efni hljóta
að fara að huga með nýjum hætti
að stöðu sinni,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að úrsögn íslands
úr Alþjóðahvalveiðiráðinu væri
ekki útilokuð, en engin ákvörðun í
þá veru yrði tekin á meðan fundur
ráðsins stendur hér í Reykjavík.
Honum lýkur á morgun. „Verði
þessar nýju stjómunarreglur sam-
þykktar, þá liggur enn skýrar fyrir
að meirihlutinn fæst ekki til þess
að starfa í samræmi við stofnsamn-
Þorsteinn Pálsson.
Friðunarsinnar komu í gær fram
með tillögur til breytinga á aðferð-
um til veiðistjórnunar, breytingar,
sem talið er að ómögulegt verði
að byija að vinna eftir á næsta
ári, eins og til stóð. Jafnvel verði
þær til þess að aldrei verði leyft
að hefja veiðar að nýju. Óformlegur
fundur var um þetta mál í gær-
kvöldi, en hann leystist upp án
nokkurrar niðurstöðu. Þá er þess
senn að vænta að gefnir verði út
veiðikvótar fyrir Grænlendinga og
aðra þá, sem leyfi hafa til nýtingar
hvala, meðal annars Bandaríkja-
menn. Vænta má sterkra viðbragða
sendinefnda Islands, Noregs og
Japans auk fleiri þjóða, samþykki
ráðið aðrar veiðistjórnunaraðferðir
en vísindanefndin lagði til.
Guðmundur Eiríksson, fomiaður
íslenzku sendinefndarinnar, segir
þessi mál ganga þunglega. Það sé
ljóst að friðunarsinnar ætli sér ein-
faldlega að koma í veg fyrir veiðar
og því væri jiað hreinlegra að koma
beint fram í því máli í stað þess
að vera með útúrsnúninga og tafir
á kostnaðarsamri vinnu. „Það er
ákveðinn minnihluti hér, sem er
staðráðinn í að spilla fyrir skyn-
samlegi-i niðurstöðu og furðustór
hluti styður þetta fólk, hvernig sem
á því stendur," segir Guðmundur.
Samtök, sem kalla sig Environ-
mental Investigation Agency telja
sig hafa flett ofan af ólöglegum
útflutningi Hvals hf. á hvalkjöti til
Japans á síðustu misserum. Sam-
tökin hafa vegna þessa krafið for-
sætisráðherra, Davíð Oddsson, um
opinbera rannsókn á málinu. ís-
lenzk stjórnvöld bera þessar full-
yrðingar til baka.
EIA-samtökin segja að verðmæti
útflutnings okkar til Japans frá því
hvalveiðar voru bannaðar sé að
minnsta kosti 19 milljónir dollara,
1,1 milljarður króna. Útflutningur
á hvalkjöti á þessu tímabili sé að
minnsta kosti 58%, jafnvel allt að
77% af því kjöti, sem fengizt hafi
með veiðunum, en aðeins var leyfi-
legt að flytja allt að 49% þess utan.
FIMMTUDAGUR 30. MAI 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Fundað um
myndun
meirihluta
VIÐRÆÐUR stóðu yfir í gær-
kvöldi milli fulltrúa Alþýðu-
flokksins, Alþýðubandalags,
sjálfstæðismanna af I-lista og
sjálfstæðismanna af D-lista um
myndun meirihluta í bæjarstjórn
Isafjarðar eftir að slitnaði upp
úr samstarfi D-lista og I-lista.
Haldnir voru tveir fundir. Þann
fyrri sátu fulltrúar Alþýðuflokks,
Álþýðubandalags og af I-lista sjálf-
stæðismanna. Þann síðari sátu full-
trúar Alþýðuflokks og af D-lista
sjálfstæðismanna.
Isafjörður: