Morgunblaðið - 30.05.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.05.1991, Blaðsíða 24
MoáöílIvrBLAÐÍÐ WÍlkffltöttödMy.'lMAí' ið'éi Íi Borgarkringlan opnuð á laugardag: Starfsfólk á námskeið í hlýlegri framkomu RÚMLEGA 40 verslanir og þjón- ustufyrirtæki hefja starfsemi næstkomandi laugardag í nýrri verslunarmiðstöð í Borgar- kringlunni, Kringlunni 4-6. Mikill og margs konar undirbún- ingur á sér stað fyrir opnunina, og meðal annars sótti starfsfólk Borg- arkringlunnar námskeið í betri þjónustu og hlýlegri framkomu við væntanlega viðskiptavini. Leiðbein- andi á námskeiðunum var Gunn- bjöm Þór Ingvarsson viðskipta- fræðingur, og á myndinni sést hann ásamt þátttakendum á einu námskeiðanna. Blönduvirkjun: Júgóslövunmn þrem- ur veitt atvinnuleyfí Málm- og skipasmiðasambandið óskar eftir fundi með stjórnvöldum VINNUMÁLASKRIFSTOFA félagsmálaráðuneytisins veitti á mánu- dag júgóslavneska fyrirtækinu Metalna atvinnuleyfi fyrir þrjá starfs- menn sína við Blönduvirkjun. Júgóslavarnir hófu störf fyrr í mánuð- inum án þess að hafa gild atvinnuleyfi og var vinna þeirra stöðvuð í síðustu viku að kröfu Málm- og skipasmiðasambands Islands og Rafiðnaðarsambands Islands. Þessi sambönd veittu jákvæða umsögn um útgáfu atvinnuleyfis en Málm- og skipasmiðasambandið óskaði eftir fundi með fulltrúum sljórnvalda til að ræða framkvæmd laga um atvinnuréttindi erlendra manna hér á landi. Örn Friðriksson, formaður Málm- og skipasmiðasambandsins (MSÍ), sagði í samtali við Morgunblaðið að athugun fulltrúa sambandanna tveggja á vinnu Júgóslavanna á virkjunarsvæðinu fyrir helgi hefði leitt í ljós að þeir hefðu tilskilin réttindi í sínu heimalandi og að launakjör þeirra væru ekki lægri en samningar hér segðu til um. Sagði Örn að það væri mat fuiltrúa MSÍ að við umrætt verk þyrfti ekki sérfræðinga og gætu íslenskir iðn- aðarmenn með góðu móti leyst það af hendi. Verkið felst að megin- hluta í tengingum og lokafrágangi á verkum sem þegar hafa verið unnin að stærstum hluta ásamt úttekt á virkni búnaðar og sagði Örn að MSÍ gerði ekki athugasemd- ir við það þó mennirnir fengju at- vinnuleyfi til að ljúka þessu verki. Umsögn Rafiðnaðarsambandsins var einnig jákvæð og veitti vinnu- málaskrifstofa félagsmálaráðu- neytisins atvinnuleyfið síðdegis á mánudag. í greinargerð MSÍ til félagsmála- ráðuneytisins óskar sambandið eftir að ráðuneytið beiti sér fyrir sameig- inlegum fundi með fulltrúum ráðu- neytisins, útlendingaeftirlits, MSI og ef til vill fleiri aðila til að fara yfír þessi mál almennt. „Allur gang- ur þessa máls er með þeim hætti að nauðsynlegt er að þeir aðilar sem hlut eiga að máli varðandi atvinnu- rétt útlendinga fari sameiginlega yfir framkvæmd á lögum um at- vinnuréttindi erlendra manna og finni leiðir til að fyrirbyggja að framvegis komi upp sú staða að hér séu erlendir menn í störfum án atvinnuleyfa og að verkalýðsfélög- um berist tímanlega allar nauðsyn- legar upplýsingar til þess að veita umsagnir,“ segir í greinargerð sam- bandsins. Póstur og sími aðili að In- marsat-fjarskiptakerfinu PÓSTUR og sími hefur gerst aðili að Inmarsat, stofnun sem upphaf- lega var sett á laggirnar til að annast fjarskipti við skip um gervi- tungl en annast nú einnig fjarskipti við flugvélar og farartæki á landi. Flest millilandaskip íslensku skipafélaganna og skip Landhelg- isgæslunnar eru komin með tæki til að nota þjónustu Inmarsat, bæði talviðskipti og telexviðskipti. Að sögn Gústafs Arnar, yfii-verk- fræðings Pósts og síma, eru nú um 60 þjóðir aðilar að Inmarsat. Aðild Pósts og síma að fyrirtækinu hefur verið alllengi í undirbúningi og hef- ur Póstur og sími annast milligöngu fyrir þá aðila sem hafa keypt sér tæki sem ná til Inmarsat en nú hefur verið gengið frá formlegri aðild Pósts og síma. Hlutur hans er 0,05% og stofngjaldið innan við tíu miiljónir kr...............- ■ - - Inmarsat á tvö gervitungl og leigir auk þess aðstöðu í gervihnött- um sem aðrir eiga. Þó Inmarsat hafi upphaflega verið stofnað til að annast fjarskipti skipa er farið að veita flugvélum og farartækjum á landi þjónustu. Flugmennirnir geta notað þessi tæki til að vera í talsam- bandi við flugumsjónarmenn. Þá stendur flugfélögunum til boða að veita farþegum símaþjónustu með aðstoð Inmarsat. Teiur Gústaf Ai*n- ar að það muni aukast á næstu áram. Nýlega er farið að veita far- artækjum á landi þjónustu, aðallega vöru- og fólksflutningabílum í lang- ferðum um Evrópu. Gústaf Arnar bjóst við að nokkur aukning yrði á notkun Inmarsat hér á landi á næstu árum. Taldi hann ekki ólíklegt að fiskiskip færu að nota sér þessa þjónustu, einkum þau sem sæktu á fjarlæg mið, þar sem hefðbundið fjarskiptasamband væri ótryggt. Inmarsat-búnaður er ekki í nýju þotunum sem Fiugleiðir hafa tekið í notkun. Þá taldi Gústaf að þessi fjarskiptatækni gæti verið gagnleg fyrir þá sem ferðast inn á ■ miðháiendið; ------ Flugfax vill afgreiða eigið frakt flug á Keflavíkurflugvelli V ör uflutningaflugfélagið Flugfax hf. hefur sótt um Ieyfi til afgreiðslu á fraktflugi á Keflavíkurflugvelli. í bréfi til utanríkisráðuneytisins segir að hagkvæmara sé fyrir félagið að kaupa tækjabúnað og fastráða fólk til að afgreiða sjálft tvö vikuleg vöruflug félagsins, en að kaupa þjónustuna af Flug- leiðum sem hafa nú þegar allan búnað og starfsfólk á staðnum. Þröstur Ólafsson, aðstoðarmað- ur utanríkisráðherra, vildi á þriðjudag ekkert annað segja um afgreiðslu umsóknarinnar en að verið væri að athuga málið í framhaldi af skýrslu sem unnin var um þessi mál fyrir forsætisráðherra síðustu ríkis- stjórnar. Að óbreyttu mun Flugfax greiða rúmlega 20 milljónir kr. til Flugleiða í ár vegna vöruafgreiðsl- unnar og segir í fréttatilkynningu félagsins að þetta séu mun hærri gjöld en félögum er gert að greiða fyrir afgreiðslu á öðrum flugvöll- um í Atlandshafsflugi. Mestur sé munurinn í samanburði við jaðar- flugvelli en gjaldtakan hér sé þó meira en tvöfalt hærri en á Kenne- dyflugvelli í Bandaríkjunum. „Til þess að gera Keflavíkur- flugvöll að miðstöð póstflugs milli Evrópu og Asíu þarf viðskipta- frelsi á flugvellinum. Því fleiri fé- lög sem telja sér hagkvæmt að lenda á Keflavíkurflugvelli, því hraðari mun þróun í rétta átt verða. Nú fljúga um íslenska flug- stjórnarsvæðið fjöldi flugvéla sem unnt væri að fá til lendingar ef þjónusta og þjónustugjöld á vellin- um væri meira aðlaðandi. Aukin tíðni vörufluga um völlin er grund- vallarforsenda þess að þar geri orðið umskipunarhöfn og fríversl- unarsvæði í framtíðinni, og jafn- framt tryggir það inn- og útflytj- endum örugga og hagkvæma flutninga,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá Flugfaxi. Unnur Sólrún Bragadóttir Ljóðabók eftir Unni Sólrúnu Bragadóttur FYRIR UTAN gluggann heitir nýútkomin ljóðabók eftir Unni Sólrúnu Bragadóttur. Bókin er önnur bók höfundar, sú fyrri kom út 1972 hjá Helgafelli og heitir Er á þetta lítandi. Félagsútgáfan Hringskuggar sá um útgáfu bókarinnar en á þeirra vegum hafa einnig komið út ljóða- bók Baldurs Óskarssonar, Gljáin og ljóðaþýðingar Pjeturs Hafsteins Lárussonar á ljóðum Gunnars Eke- iöfs, Því nóttin kemur. Bók Unnar Sólrúnar hefur að geyma 33 ljóð og forsíðu prýðir mynd eftir Ingiberg Magnússon. Gutenberg sá um prentun. Nýstúdentar útskrif- aðir úr Armúlaskóla NÝSTÚDENTAR voru útskrifaðir úr Fjölbrautaskólanum við Árm- úla laugardaginn 25. maí og fór athöfnin fram í Langholtskirkju. Dúx skólans var Gunnlaugur A. Ragnarsson. Nýstúdentar voru 61 að tölu. Flestir brautskráðust af hagfræðibraut, 23 talsins, 15 luku prófum á félagsfræðibraut, 8 af náttúrufræðibaut, 7 af nýmála- braut, 4 af bókhaldsbraut og jafn margri af íþróttabraut. Hafsteinn Þ. Stefánsson, skóla- meistari afhenti verðlaun fyrir góð- an námsárangur í ýmsum greinum. Auður Birgisdóttir, einn nemenda skólans, lék einleik á þverflautu og kór skólans söng nokkur lög. Full- trúar 5 og 10 ára stúdenta fluttu ávarp og einnig Ása Hauksdóttir sem var fulltrúi nýstúdenta. Nemendur við Fjölbrautaskólann við Ármúla á vorönn voru 750 en nokkuð þröngt er orðið um nemend- ur og starfsfólk skólans því hann var upphaflega byggður fyrir um 500 nemendur og er varla full- byggður enn. Skólanefnd hefur knúið á um viðbótarbyggingu fyrir skólann en ekki haft erindi sem erfiði. Skólastarf var með hefð- bundnum hætti á síðasta vetri, en á hausti komanda á skólinn 10 ára afmæli sem fjölbrautaskóli. Morgunblaðið/Bjarni Nýstúdent tekur við prófskírteini sínu við hátíðlega athöfn í Lang- holtskirkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.