Morgunblaðið - 23.07.1991, Blaðsíða 45
icn irji .íííi u jDAauuicM aiaAJa/.noflOU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1991
M -
45
Þesslr hringdu ..
Borgin sýni gott fordæmi
E.Ó. hringdi:
Hér á Laugarásveginum eru
allir garðar fínir og snyrtilegir og
borgin hefur líka yerið að snyrta
gangstéttir og þvíumlíkt. Hins
vegar er húsið við Laugarásveg
24 þar undantekning á. Það er í
eigu borgarinnar en allur frá-
gangur til skammar. Til að mynda
standa þar fyrir utan þrjú númers-
laus bílhræ sem eiga hvergi ann-
ars staðar heima en í bflakirkju-
garði. Það er skammarlegt að
borgin skuli ekki sýna betri for-
dæmi en þetta.
Einnig langar mig til að skila
þakklæti til Jónínu Michaelsdóttur
fyrir góða grein í Lesbók Morgun-
blaðsins laugardaginn 13. júlí.
Hana ættu allir að lesa.
Kettlingar fást gefins
Tveir gullfallegir kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í síma
28192.
Gleraugu týndust
Gleraugu í rauðu hulstri töpuð-
ust s.l. miðvikudag í strætisvagni
nr. 113 á leið frá Frostafold 20
að næstu stoppustöð vagnsins.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band í síma 812308.
Köttur í óskilum
Hálfstálpuð svarthvít læða er
búin að vera í óskilum á Lindar-
götu síðan s.l. föstudag. Uppiýs-
ingar í síma 20375.
Notið rétt orð
Hlustandi hringdi:
Ég var að hlusta á Ríkisútvarp-
ið þar sem sagt var frá jarð-
skjálfta í Júgóslavíu. Þar notaði
fréttamaðurinn orðið „mannfall“
sem á alls ekki við þegar menn
látast í jarðskjálfta heldur bendir
til stríðs eða átaka af því tagi.
Einnig er oft talað um að menn
„særist“ í náttúruhamförum sem
auðvitað gengur heldur ekki. Mér
virðist þetta vera áhrif úr erlend-
um málum. íslenskan er hins veg-
ar ekki svo fátæk að ekki sé
hægt að nota rétt orð þegar við á.
Orðsending til Helgu
Helga sú sem fann veski við
Alfaskeið í Hafnaffirði á 17. júní
er beðin um að hringja í s. 813145.
Furðuleg skrif
íbúi á dvalarheimili aldraða við
Hjallasel, Seljalilíð, hringdi:
Ég vil biðja Velvakanda fyrir
nokkur orð vegna greinar Ragn-
heiðar Davíðsdóttur í Morgun-
blaðið s.l. fimmtudag. Hún vekur
undrun okkar sem búum á heimil-
inu. Við viljum ekki missa strætis-
vagninn Leið 11 af Hjallaseli.
Hann stansar rétt við heimilið og
margir eru þannig staddir að þeir
geta ekki farið langa leið í strætis-
vagn til að komast í bæinn.
Um leið og við sendum þessa
ósk viljum við þakka fyrir hvað
búið er að gera svæðið við tjörn-
ina í nágrenninu yncfislegt og
einnig fyrir blómakerin við göt-
una. Við ættum að reyna að véra
jákvæð og þakklát. Þá liði okkur
sennilega betur.
Hvað viðvíkur börnunum eru
hér auð svæði allt í kring, bama-
heimili og margt sem börnin geta
unað við.
3 farþegar í strætó
M.S. hringdi:
18. júlí s.l. tók ég strætisvagn
frá Lækjartorgi að Grímsbæ kl.
11,30. Það var leið sjö. Á þessari
leið voru aldrei fleiri en þrír í
vagninum. Þessir þrír höfðu hins
vegar 40 sæti að sitja í.
Það er talað um stórfellt tap á
SVR og það kemur mér ekki á
óvart. Má ekki láta minni vagna
keyra á sumum leiðum þar sem
vitað er að það er mismunandi
álag á leiðum? Einnig er álag
mismunandi eftir tímum. En mér
finnst óþarfi að eyða 40 sæta
vagni á þijár manneskjur.
Færum Astu
Ég vil benda Ástu Ólafsdóttur að
flytja strax lang í burtu, sbr. ef fjall-
ið kemur ekki til Múhameðs, þá fer
Múhameð til Ijallsins. En án gríns
bý ég sjálfur alveg við Reykjavíkur-
flugvöll og viljum við, ég og nágrann-
ar mínir alls enga breytingu á stað-
setningu hans.
Ef borgaryfirvöld færu út í þá vit-
leysu myndi það kosta og kóróna
allar aðrar vitleysur sem gerðar hafa
verið í þessu 250 þúsund manna
samfélagi. í Los Angeles voru kartö-
flugarðar sunnan við borgina teknir
undir nýjan flugvöll fyrir ekki mörg-
um árum en fljótlega varð þar þétt-
asta byggð borgarinnar í kringum
þennan flugvöll, Los Angeles Intern-
ational Airport, og svo er um flesta
flugvelli margra borga nær okkur.
Ráðið er: Þolir þú ekki flugvöllinn,
þá er að flytja.
Ö.H
1.087.190
94.422
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.722.226 kr.
upplýsing*R:SImsvari91 -681511 lukkulIna991002
Kaupmannahöfn
19.7501
Fast verð án flugvallarskatts og forfallatryggingar.
Til samanburðar: Ódýrasta superpex til
Kaupmannahafnar á 33.750 kr. Þú sparar 14.000 kr.
Flogið alla miðvikudaga og föstudaga.
Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir.
FLUGFEROIR
SULRRFLUC
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331_
Vínlistiiin
í Viðey
Fyrir nokkru brugðu nokkrar vin-
konur sér út í Viðey til að borða
saman kvöldverð. Eiginmönnunum
var boðið með og þetta var indælt
kvöld. Maturinn var mjög góður og
þjónustan staðnum til sóma.
Þegar kom að vínlistanum vakti
það hinsvegar furðu að ekki skyldi
kynntur á listanum óáfengur drykk-
ur. Ekkert óáfengt borðvín var boð-
ið upp á með matnum og hvergi
sá undirrituð boðið upp á nokkuð
sem hét óáfengir drykkir. Þetta
kom ekki að mikilli sök þar sem
bindindi er ekki feimnismál hjá
þeirri sem þetta bréf ritar.
Hinsvegar datt mér í hug að
þetta kynni að valda óþægindum
fyrir ýmsa sem til að mynda eru
óvirkir alkahólistar . Það getur ver-
ið erfítt að vekja sérstaka athygli
á sér og þurfa að biðja þjóninn
þannig um óáfengan drykk með
málsverðinum.
Bara lítil ábending til veitinga-
húseigenda að þeir bæti á listana
• sína óáfengum drykkjum. Það ætti
ekki að vera mikið mál.
Guðbjörg
Stœrðir: 13 x 18 cm.
18x24cm.
24 x 30 cm.
Myndir sem birtast í Morgunblaðinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEiLD
„SALA MYNDA"
Aöalstrœti 6, sími 691150
101 Reykjavík
1
Meira en þú geturímyndað þér!
HORTISOFI SEM QEFUR
KEPPiriAUTUM OKKAR
•t
HOFUÐVERK
L 252. B 205
139.640,00
Tegund: Lundby 6 sæta leðurhomsófínn slær allt út í
verði og þægindum.
Úrvals leður á slitflötum og
10 LEÐURLITIR
EKKI MISSAAFÞESSU
QÓÐ GREIÐSLUKJÖR
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199 FAX 91-673511