Morgunblaðið - 21.11.1991, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
gatan er mér samt kærust í endur-
minningunni.
Þegar ég kom á Karlagötuna í
fyrsta sinn var það seinnipart sum-
ars. Ég var ellefu ára gömul og
hafði verið í sveit og fjölskyldan
flutt á nýja heimilið á þeim tíma.
Guðbjörg var ein heima þegar ég
kom og er mér minnisstætt hvern-
ig hún tók á móti mér stelpu-
krakkanum eins og ég væri meiri-
háttar merkilegur gestur. Hún
sýndi mér húsið hátt og lágt. Af
ráðdeild og aðgát í fjármálum
hafði þessum hjónum tekist að
koma upp þessu fallega og hlýlega
heimili og þannig tókst þeim öll
árin að „rækta garðinn sinn”.
Ég tel Guðbjörgu frekar hafa
líkst móðurfólki sínu í sjón, en
rösklegar og snöggar hreyfingar
hafði hún greinilega frá Erlendi
föður sínum. Guðbjörg gekk alltaf
hratt og stefndi greinilega alltaf
að vissu marki. Það var einfaldlega
ekkert út í bláinn gert. Eins var
þegar maður mætti þeim hjónum
á sunnudagsgöngu, það var ekki
rölt letilega um götur og gónt í
kringum sig, það var gengið rösk-
lega eins og alltaf væri stefnt að
ákveðnum stað. Þannig var lífinu
líka lifað af þessum heiðurshjón-
um, mótlæti tekið með æðruleysi
og hlýjan frá þeim báðum streymdi
til samferðafólksins.
Ekki veit ég hvort hitastigið
mældist hærra á heimili Guðbjarg-
ar og Magnúsar en á öðrum heim-
ilum í Reykjavík á þessum árum,
ekki tel ég svo vera, en þegar ég
hugsa aftur í tímann, þar sem ég
er stödd á Karlagötunni, eða öðr-
um heimilum þeirra, finn ég afar
sterkt fyrir þeirri hlýju og öryggis-
kennd sem umlykur mig.
Þó að Guðbjörg væri umvafin
allri þeirri umhyggjusemi sem
hægt var að veita henni frá henn-
ar ágætu dætrum og fjölskyldum
þeirra, kaus hún að halda sjálf-
stæði sínu meðan stætt var. Ann-
aðist hún lengi vel sjálf innkaup
fyrir heimiii sitt þó að öll aðstoð
stæði henni til boða. En samband
var stöðugt milli heimilanna og
dæturnar vissu alltaf hvað henni
leið.
Farsælu lífi er lokið.
Um leið og ég kveð þessa heið-
urskonu, votta ég Bíbí minni og
öllum öðrum aðstandendum samúð
mína.
„Að hverfa aftur til upphafsins
er friðurinn,
það er að hafa náð takmarki
tilveru sinnar.”
(Lao Tse: Bókin um veginn.)
Sigrún Þorsteinsdóttir
vogi. Þangað fluttist hún fyrir rúmu
ári frá Dvalarheimilinu Felli við
Skipholt í Reykjavík. Þar heimsótti
ég hana síðast. Hún var þar í rúm-
góðu herbergi með allar bækurnar
sínar í röð og reglu. Útvarpið var
henni kært, hlýddi hún á margvís-
legt efni þar, ekki síst á kvöldvök-
urnar. Henni þótti afar vænt um
það er gestir litu inn til hennar.
Hún fylgdist vel með landsmálum.
Mánudaginn 28-. október hætti
hjarta hinnar öldnu konu að slá, í
sjúkrahúsinu á Selfossi. Jarðsett
var hún í Gufunesi. í útfararkapell-
unni í Fossvogi mættu nokkrir nán-
ir vinir hennar og vandamenn. Þar
flutti sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son útfararræðuna og jarðsöng. Hin
látna hafði óskað þess að sá prestur
er hún mat mjög mikils ynni þetta
verk. Erfi var drukkið á heimili
fyrrum konu Magnúsar, sonar Ág-
ústínu, Gyðu Guðmundsdóttur, í
Sólheimum 25.
Kvödd er heiðurskona. Minning-
arnar um hana Ágústínu eru mér
mikils virði. Skáldið Fornólfur seg-
ir: Hið mikla geymir minningin, en
mylsna og smælkið fer.
Að lokum frá mér:
Haf þðkk af hjarta. Þetta ljóð
til þín í fjarlægð nær.
Nú-sé þér hvíldin sæt og góð
'' ög síðfeti blúnduf vabf.' " ",r ‘1 >'■'1
'^'•^‘Ad'ðunn Brági' 'SvdíhSsotlÚ
__________Brids______________
Umsjón: Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Selfoss og
nágrennis
Síðasta umferð og frestaðir leikir
verða spilaðir fimmtudaginn 21. nóv-
ember í hraðsveitakeppni félagsins.
Tíu sveitir taka þátt í mótinu. Staðan
fyrir lokaslaginn.
Sveit: Stig
Guðjóns Einarssonar 145 ’
Ríkharðs Sverrissonar 140
Sigfúsar Þórðarsonar 138
Sigurðar Hjaltasonar 132
Aðrar sveitir hafa færri stig.
Laugardaginn 16. nóvember sl. var
Suðurlandstvímenningurinn spilaður á
Hótel Selfossi. Sigurvegarar urðu
Magnús Sverrisson og Guðlaugur
Sveinsson, en þeir spiluðu sem gestir,
og Suðurlandsmeistarar í tvímenningi
er því par sem varð í öðru sæti, þeir
Ólafur Sigurgeirsson og Þorsteinn
Sverrisson. 31 par tók þátt í mótinu
og keppnisstjóri var kerfiskappinn
Ásgeir Ásbjörnsson. Röð efstu pára:
Magnús Sverriss. — Guðlaugur Sveinsson 161
Ólafur Sigurgeireson - Þorsteinn Svemss. 137
Ólafur Steinason - Guðjón Einarsson 105
Runólfur Jónsson - Þórður Sigurðsson 92
Helgi G. Helgason - Sveinbjörn Guðjónsson 83
Sigurður Hjaltason - Haraldur Gestsson 72
Á morgun föstudaginn 22. nóvem-
ber verður spilaður hinn árlegi lands-
tvímenningur (eins kvölds tölvugefinn
tvímenningur). Spilað verður í
Tryggvaskála. Spilamennska hefst kl.
19.30 og skráning fer ffam í mótsbyrj-
un og spilarar því beðnir að mæta
tímanlega.
Að lokum, næsta mót hjá félaginu
er fjögurra kvölda firmakeppni sem
hefst fimmtudaginn 28. nóvember nk.
Keppnisformið er tvímenningur og
spilarar eru beðnir að skrá sig tíman-
lega hjá stjórn félagsins.
Phllip Morris og
landstvímenningurinn nk.
föstudagskvöld
Næsta fösturdagskvöld, 22. nóv-
ember, verður spilað um alla Evrópu
á sörnu spilin. Bridssamband íslands
hefur undirbúið þetta þannig hér að
hægt er að spila á 20 stöðum á ís-
landi þetta kvöld, og þátttakan hér
hefur nú þegar vakið mikla athygli í
Evrópu. Vonandi mæta allir sem
mögulega geta til að spila þetta kvöld
svo að við setjum örgglega Evrópumet
miðað við höfðatölu. Á Reykjavíkur-
svæðinu verður spilað í Sigtúni 9 og
í Þinghóli í Kópavogi og er hægt að
láta skrá sig á skrifstofu Bridssam-
bands íslands í síma 689360.
Bridsfélag kvenna
Nú er Butlernum lokið með sigi'i
Þorgerðar og Steinunnar, annars varð
röð efstu para þannig:
39
Þorgerður Þórarmsd.- Steinunn Snorradóttir 129
Kristín ísfeld - Hrafnhildur Skúladóttir 117
Inga L. Guðmundsdóttir - Unnur Sveinsdóttir 116
H allaiergþórsdóttir - Soffía Theodórsdóttir 116
Halla Ólafsdóttir - Sæbjörg Jónasdóttir 115
Véný Viðaredóttir - Dúa Ólafsdóttir 115
Arngunnur Jónsdóttir - Guðný Guðjónsdóttir 113
Júlíana ísebarn - Margrét Margeirsdóttir 112
Ólína Kjartansdóttir - Elín Jónsdóttir 111
Signin Pétursdóttir - Guðrún Jörgenseii 111
Nk. mánudag koma Hafnfirðingar
í heimsókn og etja kappi við okkur í
árlegri keppni. 2. desember hefst síðan
Aðalsveitakeppni félagsins og geta
sveitir skráð sig í síma 32968 (Olína).
Bridsdeild Rangæinga
Hafin er hraðsveitakeppni félagsins.
Staða efstu sveita eftir fyrsta kvöld:
Sv. Ásmundar Guðmundssonar 581
Sv. Jóhönnu Smith 566
Sv. Eiríks Helgasonar 561
BRÁÐUM KOMA*.
Nú þorfa þeir að fara að ókveða sig sem ætla að lagfæra
íbúðina fyrir jól.
VIÐ VEITUM
10-50%
AFSLÁTT AF INNI- OG
ÚTIMÁLNINGU FRÁ
HÖRPU OG SADOLIN.
Vi2> bjóðum einnig úrvais
gólfefni ó mjög hagstæðu
veröi.
Áfram ó gamla veröinu.
BYGGINGARVELTA - Við lánum í allt að þrju ár.
Nýsending.
Fallegir litir og munstur.
Serlega gott verö.
MALNING - PARKET - TEPPI - FLISAR - GOLFDUKAR
Mikiö úrval
í öllum veröflokkum.
Filtteppi á kr. 389 m2
Villeroy & Boch-
viöurkennd aæöavara
á mjög góou veröi.
%
májnlngarPL
Pjdnostan hf
akranesi
Knrma
HAFNARFIRÐI
METRO
í MJÓDD
G.Á. Böðvarsson hf.
SELFOSSI
Grensósvegi 11 • Reykjavik • Simi 63500
co
>
m
Z
>
o
>
cn
>