Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
©1968 UnlverMl Press Syndicate
„þakJctx. ybkarfyrir gnd/s/egt
kt/éem/ c gser £/g i/e/t <xé Qc/örri<jnc/ur
ðhem/nt/- sér v&L."
... að hugsa til hans á kvöld-
in.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
® 1991 Los AngelesTimes Syndicate
Og þú sem kannt ekki að búa
til mat!
Með
morgimkafiinu
Það stendur: Arnljótur er
ekki nógu góður í lestri.
HÖGNI HREKKVÍSI
,..ÖG GAKXTU Svo V£u
" FKÁ BA£>INU."
—
Þessir hringdu . .
Frábærar greinar
Hugsandi manneskja vildi koma
á framfæri þakklæti til Jónínu
Michaelsdóttur fyrir grein hennar
„Þjóðarsálin” í Lesbókinni sl.
laugardag. Hún sagði greinina
'rábæra og helst ætti að
sndurprenta hana. Sömuleiðis var
lún ánægð með greinina „Fólkið í
andinu” sem birtist í Velvakanda
fyrir skömmu. Þessi sama
manneskja ■ vildi hins vegar lýsa
megnri óánægju með orðskrípið
„hausateikningar” sem notað var
í texta þar sem fólk var spurt hvort
það þekkti persónurnar á ákveðinni
mynd. Sagði hún þetta orð vera
niðrandi þar sem talað væri um
hausa á dýrum en ekki mönnum.
Kvenmannsgleraugu
Kvenmannsgleraugu í svörtu
hulstri töpuðust föstudaginn 15.
nóv. Annaðhvort einhvers staðar í
Breiðholti eða fyrir utan
Verslunarskólann. Gleraugun eru í
gylltri umgjörð. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 73575.
Upplýsingar um kvæði
Unnur hringdi og vill vita hvort
einhver kannist við kvæði sem hún
lærði fyrir löngu en man nú einung-
is brot úr. Hún vill einnig fá að
vita hver höfundur kvæðisins er.
Hendingarnar sem Unnur man eru
á þessa leið:
Mig vantar arineld
og yl í mína sál.
Æ komdu nú í kveld
og kynntu hjá mér bál.
Ég glópsku minnar geld
því gatan er svo hál.
Æ komdu nú í kveld
og kynntu hjá mér bál.
Þeir sem hafa upplýsingar um
kvæðið vinsamlegast hafi samband
við Unni í síma 689953.
Ökufól
íslendingar kunna alls ekki að
fara eftir akstursmerkjum að sögn
ökumanns sem hringdi. Hann sagði
það t.d. vera áberandi á bílastæðum
þar sem málaðar væru örvar til
leiðbeiningar að íslendingar virtust
ekki átta sig á þeim. Að mati
ökumanns myndi þetta ekki eiga
sér stað erlendis.
Tannlækningaferðir
til Englands
Ásgeir er að reyna að hafa upp
á Kristínu sem skrifaði eitt sinn í
Velvakanda og lýsti ferð sinni til
Englands til tannlækninga. Hann
biður hana að hafa samband við
sig í síma 96-41094.
Seðlaveski
Ljósbrúnt seðlaveski tapaðist 13.
nóv. fyrir utan verslunina Völustein
í Faxafeni milli klukkan 17-18. í
veskinu voru meðal annars
ökuskírteini, ávísunarhefti og
samkort. Finnandi vinsamlegast
hafi samband við Lilju í síma
652062.
Kvenfrakki tekinn í
misgripum
Þann 26. okt. var kvenfrakki
tekinn í misgripum fyrir annan
sams konar frakka í
veitingasalnum Skrúði á Hótel
Sögu. Þetta er dökkblár særiskur
ullarfrakki, vörumerki JUNESCO.
í vösunum á frakkanum sem tekinn
var voru hanskar og skilkislæða
og sá frakki var beltislaus, frakkinn
sem skilinn var eftir er hins vegar
með belti og númeri minni. Er
stærri frakkans sárt saknað af
eiganda sínum. Ef viðkomandi
kona ber þetta augum er hún
vinsamlega beðin um að hafa
samband við gestamóttöku Hótels
Sögu.
FRAMHALDSTILVERA
Fyrir nokkrum árum birtist í
Kirkjuritinu grein eftir Heimi Steins-
son þar sem hann segir þetta líf
„tilveru til dauða”, að dauðinn sé
endir allrar tilveru, og að framhalds-
líf sé ímyndun ein og nú í Morgun-
blaðinu 8. nóvember er grein eftir
séra Steinþór Þórðarson þar sem
hann boðar langan svefn eftir dauð-
ann, síðan lúðraþyt og þá munu all-
ir þeir sem í gröfunum eru ganga
fram og þeir sem hið góða hafa gjört
munu rísa upp til lífsins, en þeir sem
drýgt hafa hið illa munu rísa upp
til dóms. Þarna er gjört ráð fyrir
að einstaklingurinn axli ábyrgð á
misgjörðum sínum og að fyrirgefn-
ingir, sé ekki án skilyrða. En er það
annars ekki sorglegt að í íslenskri
kirkju sé enn boðaður svefn og jafn-
vel endir allrar tilveru eftir dauðann
á þessum síðustu tímum upplýsinga,
sálarrannsókna og þekkingarleitar.
Kirkjuþing segir að kenningin um
möguleikann á endurholdgun sam-
Víkveiji
Jólaundirbúningurinn er alltaf að
færast fram. Á árum áður var
í desember byrjað að telja niður
dagana til jóla. Götur voru skreytt-
ar hálfum mánuði fyrir jól. Núna
eru komnar skreytingar á götur um
miðjan nóvember. Og væntanlega
byrja jólalögin að glymja í ljósvak-
anum fljótlega. Er þetta ekki of
snemmt?
XXX
Heimsókn forráðamanna banda-
rísku fyrirtækjanna Amax og
Alumax hingað til lands í vikunni
var mjög ánægjuleg. Þeir sögðu
fulluin fetum, að álverið myndi rísa.
Það væri aðeins spurning um tíma.
Fyrirtækin hafa veðjað á Island sem
starfsvettvang vegna þess að hér
er næg orka, landið er vel staðsett
í miðju Atlantshafi, stöðugleiki er
í stjórnmálum, dómskerfið traust
og ekki sízt vegna þess að þjóðin
er dugleg og vel menntuð. Fyrir
þetta eru fyrirtækin tilbúin að
borga hátt verð.
Heimsókn álforstjóranna var góð
tilbreyting frá svartsýnistalinu sem
hefur verið ráðandi á Islandi und-
anfarnar vikur. Einnig tekur hún
rýmist ekki boðskap kristinnar
kirkju. Getur verið að íslensk kirkja
hafi gleymt kjarnanum í boðoskap
Jesú Krists? Það eru mörg orð í Bibl-
íunni en kjarni kristninnar er þessi:
„Elska skaltu náungann sem sjálfan
þig.” Sé þetta boðorð ekki haft i
heiðri mætti líta svo á að kristnitaka
á íslandi hafi í raun enn ekki farið
fram.
Að þessari jarðvist lokinni er sagt
að öllum sé leyft að stíga inn í ljó-
mann, en allir vilja það ekki vegna
þess að þeir finna vanmátt sinn af
því að þeir hafa ekki verið hlýðin
börn föðurins meðan þeir stigu niður
til jarðarinnar og voru þar lítinn
tíma. Þeir hafa farið svo margir í
felur af því þeir halda að augu Guðs
sjái þá ekki. En sá sem veit að augu
Guðs hvíla á sér, hann vandar allt
sitt verk, allt sitt tal, allar sínar
gjörðir. Hann veit að hann muni
verða kallaður heim á hinar grænu
lendur lífsspekinnar og hann þráir
skrifar
af öll tvímæli um að árásir stjórnar-
andstöðunnar á Jón Sigurðsson iðn-
arráðherra á Alþingi á dögunum
voru tilhæfulausar.
XXX
Landsliðinu í handknattleik gékk
illa á nýafstöðnu móti í Ung-
veijalandi. Það kemur ekki á óvart
þegar haft er í huga að nokkra af
beztu leikmönnum okkar vantaði í
liðið, undirbúningurinn gekk brösu-
lega af ýmsum ástæðum og óvissa
var fram á síðustu stundu hvort
ferðin yrði yfirleitt farin vegna pen-
ingaskorts.
Víkveija sýnist að starfsaðstaða
Þorbergs Aðalsteinssonar landsliðs-
þjálfara sé óviðunandi vegna fjárs-
korts HSÍ. Ef ekki rætist úr fljót-
lega á ísland sáralitla möguleika í
B-heimsmeistarakeppninni í Aust-
urríki í vetur.
XXX
*
Iþróttafréttamönnum sjónvarps
hefur tekist illa upp við val á
leikjum, sem sýndir hafa verið beint
frá ensku knattspyrnunni í vetur.
Það er hending ef skemmtilegur
það af öllu hjarta að hafa hreinar
hendur, hreinan vilja og hreina hug-
sjón og umfram allt hreinan kær-
leika.
Guð er kærleikur og boðskapur
Krists er kærleikur. Þess vegna eru
margir í ríki himnanna sem vilja
fóma sér niður í dal vanþroskans
(jarðarinnar) til að lýsa, leiða, hugga
og fræða börn jarðar því þar er neyð
og þar er mæða.
Himnarnir munu halda áfram að
senda fórnandi sálir til jarðarinnar
hvað sem kirkjuþing ályktar um
möguleikann á endurholgun. Kirkjan
er íhaldssöm stofnun sem leitar til
fortíðar eftir uppörvun, en nútíðin
leitar sannleikans og Guðs síns hvar
sem hann er að finna, gerir hreint
innanhúss og utan og opnar allar
hurðir og glugga fyrir innstreymi
kærleika og ljóss.
Pétur Magnússon
leikur kemur á skjáinn. Enda varla
furða, því Arsenal virðist vera í
sérstöku uppáhaldi þar á bæ. í fyrra
léku Liverpool og Leeds skemmti-
legasta leik keppnistímabilsins en
þessi tvö afbragðs lið hljóta ekki
náð fyrir augum íþróttadeildarinnar
að þessu sinni.
xxx
Aíþróttasíðum Morgunblaðsins í
gær mátti sjá tvær fréttir sem
voru mjög athyglisverðar, ef þær
eru lesnar í samhengi. Annars veg-
ar var það frétt þess efnis að Ás-
geir Elíasson Iandsliðseinvaldur
hefði valið landslið íslands gegn
Frakklandi og hins vegar frétt um
að tveir efnilegustu menn Stjörn-
unnar hefðu áhuga á því að ganga
í Fram.
Þegar fréttin um landslið Ásgeirs
er lesin hlýtur sú spurning að vakna
hjá lesendum hvort áhugi ungu leik-
mannanna á því að ganga í Fram
sé m.a. sprottinn af því að landslið-
seinvaldurinn velur nær eingöngu
menn úr því félagi í landsliðið. Þetta
er spurning sem forystumenn
knattspyrnunnar ættu að velta fyr-
ir sér.