Morgunblaðið - 21.11.1991, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991
Árshátíðir
°g
mannfagnaðir
HðTEi. mm
S. 11440
'?■■= o=c =£-.::.tg='c=jo=o=
Hugleiðingar að lokn-
um Degi frímerkisins
Husqvarna
SAUMAVÉLAR
• 7 GERÐIR •
• ALLIR NYTJASAUMAR •
• MYNSTURSAUMAR •
• STERKUR MÓTOR •
• SÆNSK GÆÐI •
• FRÁBÆRT VERÐ •
• NÁMSKEIÐ •
» VIÐGERÐARÞJÓNUSTA -
• SÝNIKENNSLA •
• ALLT Á SAMA STAÐ •
VÖLUSTEINNhf
Faxafen 14, Simi 679505
________Frímerki______________
Jón Aðalsteinn Jónsson
Á Degi frímerkisins 9. okt. sl.
gaf íslenzka póststjórnin út fimm
ný frímerki í tilefni dagsins - eða
svo skyldu menn halda. Ekki verður
samt séð af tilkynningu hennar, að
svo hafi verið - og þó, eins og brátt
verður vikið að.
Enginn getur neitað því, að skip-
amerki þau, sem út komu þennan
dag, eru hin fegurstu. Þau verða
líka áreiðanlega mikið notuð á bréf
næstu mánuði, enda rétt burðar-
gjald undir almenn bréf innan lands
og til Norðurlanda. Þyrfti því engan
að undra, þótt þau seljist fljótlega
upp á pósthúsum landsins. Auk
þess verða þau eftirsótt af öllum
þeim íjölmörgu frímerkjasöfnurum
um víða veröldu, sem hafa skips-
mótíf sem sérsöfnun.
Póststjórnin hefur svo látið útbúa
sérstaka gjafamöppu, sem hún kall-
ar svo, með einni áttblokk af merkj-
unum. Er einkar smekkleg, en lát-
laus kápa utan um, svo sem sjá má
á meðfylgjandi mynd. Á fremri
kápu að innanverðu og svo á aftari
kápu er í stuttu máli rakin saga
póstskipaferða til og frá íslandi.
Er talið, að þær hefjist 1778 eða
tveimur árum síðar en reglugerð
Danakonungs um póstferðir á ís-
landi var gefin út. Á fremri kápu
segir, að póststjórnin sé með þess-
ari útgáfu að minnast Dags frí-
merkisins 1991. Þá eru í þessari
möppu stækkaðar myndir af þeim
Aquamaster
HAGSTÆTT VERÐ!
Takmarkað upplag
Fjórir ógnvaldar ryksins.
Turbomaster
Uppistandandi
ryksuga með
innbyggðum
teppabankara.
Vatnssuga
Teppaþvottur
þrjáríeinni!
krj*^40.- kr. 19.990,-
Compact Electronic
kr.'H<^6.- kr 19.990,-
Dubl-Duty Deluxe
Létt,
hljóðlát
og nett
kr.j^20- kr. 11.990,-
Handryksuga (hleðsluvél) fyrir
þu'iiogblauir. ki4 895.
HEIMILISKAUP H F
• HEIMILISTÆKJADEILD FÍLKAKS •
Suðurlandsbraut 8 - Sími 814670
fjjóstskip
• Frimcrki gefitt út
9. oitóbcr 1991
' Póu- timmjUaofiwiti
fjórum póstskipum, sem hér koma
við sögu, og rakinn ferill þeirra.
Allur texti er að sjálfsögðu á ís-
lenzku. Hins vegar hefði að ósekju
mátt þýða hann á ensku og jafnvei
þýzku, þar sem öruggt má telja,
að erlendir safnarar, ekki sízt mótíf-
safnarar, vilji eignast þessa möppu.
Enda þótt póststjórnin ætlist til, að
þetta sé gjafamappa, hefur þess
þegar orðið vart, að menn líta á
hana sem frímerkjahefti, enda ekki
óeðlilegt. Prentsmiðjan Oddi hefur
hannað og prentað möppuna af al-
þekktri smekkvísi.
Trúlega hefur póststjórnin, eins
og því miður oft áður, verið hér
heldur svifasein, því að mappan
kom ekki fram fyrr en um eða eft-
ir hádegi sjálfan útgáfudaginn. Og
hvergi mun hennar hafa verið getið
fyrir þann dag. Heldur var þetta
klaufalegt, enda fór svo, að flestir
þeir, sem láta stimpla frímerki á
útgáfudegi, misstu af slíkri stimpl-
un á möppunum. Jafnvel var það
svo, að póstmenn sjálfir vissu ekki
um þessa möppu. Ég hitti sjálfur
útibússtjóra hér í Rvík morguninn
eftir. Varð ég fyrstur til að segja
honum fréttir af þessari gjafa-
möppu! Hver mappa er seld á 350
kr., þ.e. með 110 kr. „yfirverði, ef
ég má orða það svo. Þá hef ég frétt,
að upplagið sé ekki nema 5 þús.
eintök. Er því ljóst, að hér verður
fljótlega um eftirsóttan hlut að
ræða, nema póststjórnin bæti síðar
við upplagið.
Eitt er svo enn, sem ég verð að
minnast stuttlega á í samb. við
skipafrímerkin. Komið hefur i ljós,
að vinnubrögð ensku prentsmiðj-
unnar eru mjög slæm. Verulegur
litarmunur við prentun hefur komið
fram í einhvetjum hluta upplags.
Hef ég sjálfur séð dæmi þessa. Slíkt
er vitaskuld óafsakanlegt, enda
hlýtur póststjórnin að kvarta undan
þessu, og þá ekki síður fyrir það,
að sama prentsmiðja prentaði einn-
ig fyrr á árinu tvö frímerki í flokki
Merkra íslendinga, og þeirri prent-
un mun einnig hafa verið eitthvað'
áfátt að þessu leyti. yel má vera,
að prentunarkostnaður sé eitthvað
minni hjá Englendingum en annars
staðar, en ófært er, að hann komi
niður á gæðum frímerkjanna, jafn-
vel þótt einhveijir safnarar fái hér
tækifæri til að leita að afbrigðum!!
„Sjómannaskólafrímerkið, sem
einnig kom út 9. okt. sl., gagnrýndi
ég nokkuð, enda hefði ég sjálfur
helzt kosið að sjá gamla Stýrimann-
askólann á frímerki, að ég tali ekki
um frímerki með mynd Markúsar
F. Bjarnasonar. Þegar ég ritaði
þessi gagnrýnisorð, hafði ég að
sjálfsögðu ekki hugmynd um, að
póststjórninni hafði borizt að láni
frá gömlum skipherra Landhelg-
isgæzlunnar litmynd af Sjómanna-
skólanum í Rauðarárholti. Mér,
sjálfum landkrabbanum, var vita-
skuld einnig ókunnugt um, hvað
það er, sem einkennir sérstaklega
sjómannaskóla frá öðrum skólum.
TOSHIBA
Ný kynslóð örbylgjuofna
...”.~..
Toshiba kynnir nýja kynslóð örbylgjuofna búna fjölda
tækninýjunga, sem gera matreiðsluna enn auðveld-
ari. Komdu og kynntu þér þessa vinsælu ofna.
Verð frá kr. 22.705, - stgr.
íslenskar leiðbeiningar fylgja, ásamt fjölbreyttu kvöld-
námskeiði án endurgjalds hjá Dröfn H. Farestveit
hússtjórnarkennara, sérmenntaðri í matreiðslu í ör-
bylgjuofnum.
Toshiba örbylgjuofninn er mest seldi ör-
bylgjuofninn á Islandi.
Hagstæð kjör.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar (91)622901 - 622900. (Næg bílastæði).
Nú veit ég það eftir útskýringu
þessa skipherra og gamla nemanda
Stýrimannaskólans. Það er einmitt
sú mikla fánastöng, sem stendur
fyrir utan skólann. Hún er notuð
til þess að kenna nemendum skól-
ans að nota það merkjamál með
flöggum, sem sæfarendur hafa „tal-
að sín á milli um aldir, þegar skip
þeirra mætast á höfum úti. Þessi
stöng kemur því miður ekki fram
á afmælismerki Sjómannaskólans,
hvað svo sem hefur valdið því.
Heyrt og séð
I blaði Landssambands finnskra
frímerkjasafnara Filatelisti, eru
fróðlegar greinar um áhugaefni frí-
merkjasafnara. Ritið er að vonum
mest á finnsku. Á einum stað er
stuttur þáttur á sænsku, sem nefn-
ist Samlarspalten, og er þá einkum
ætlaður þeim, sem skilja ekki eða
illa finnsku. Þar ræð ég nokkuð við
og les því þennan lesendadálk og
oft bæði til gagns og skemmtunar.
í þessum dálki mátti nýlega lesa
um gamalt lím á frímerkjum. Þar
er einmitt vikið að vandamáli, sem
safnarar þekkja vel til og upp kem-
ur þegar ónotuð frímerki eru orðin
gömul. Dálkahöfundur bytjar hug-
leiðingar' sínar á þessa leið: „Lím
eða ekki lím, það er spurningin.
Hann bendir á, að margs konar
breyting verði á líminu með aldrin-
um. Límið tekur að springa og frí-
merkin að vindast upp og pappírinn
verður stökkur. „Alkunna er,” segir
hann, „að bæði í dýra- og sterkju-
lími geta verið sýruleifar, sem eyði-
leggja pappírinn og lita upp frí-
merkið. Límskemmdir hetja bæði á
laus frímerki og eins á póstsending-
um. Enginn getur varið frímerki á
sendingum fyrir límskemmdum.
Síðan heldur höfundur áfram og
stingur upp á ráði, sem ekki er víst,
að allir safnarar vilji fara eftir,
enda þótt það stöðvi einmitt lím-
skemmdirnar. Hann segir svo að
lokum: „Aftur á móti væri ástæða
til að þvo límið af gömlu ónotuðu
frímerkjunum. Einungis á þann
hátt geta óstimpluð frímerki varð-
veitzt komandi kynslóðum. Því mið-
ur er núverandi verðlagning sálræn
hindrun fyrir slíkum hugsunar-
hætti. Þvegin, óstimpluð merki ættu
að vera skráð á hærra verði í listum
en merki, sem eru með lími. Ef
póstminjasöfn gengju í fararbroddi
fyrir þessari framkvæmd, ættu
safnarar fljótlega að fylgja á eftir.”
Hér lýkur orðum finnska safnarans,
en hvað segja íslenzkir safnarar um
þessa uppástungu?
Blöndunartækin frá damixa
tryggja rétt vatnsmagn og
hitastig með einu handtaki.
Veljið aðeins það besta
- veljið damixa blöndunartæki
fyrir eldhúsið og baðherbergið.
damixa
m
Fæstihelstu
byggingarvöruverslunum
umlandallt.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgremum!