Morgunblaðið - 24.12.1991, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
FASTÉIGNASALA
SÍÐUMÚLA 17
812744
Fax: 814419
ViÖ óskum öllum
viðskiptavinum okkar,
nær og fjær, gleðilegrar
jólahátíðar og farsæld-
ar á nýju ári.
Starfsfólk Laufáss.
INNANSTOKKS OG UTAN
JÓLAUÓSIV
ALLT ER stórt í Ameríku var
einu sinni viðkvæðið og enn gild-
ir þetta að nokkru leyti. Að
minnsta kosti komast fáir í hálf-
kvisti við Kana í því skreyta fyr-
ir jólin.
eftir Jóhönnu
Horðardóttur
Eg las í bandarísku blaði um
daginn að nú þætti þar enginn
maður með mönnum nema að hafa
að minnsta kosti þijú skreytl jóla-
tré heima hjá sér.- Eitt í stofunni,
annað í barnaher-
bergi eða setu-
stofu á annari hæð
og það þriðja í
garðinum. Þetta er
nú eflaust eitthvað
orðum aukið eins
og gjarnan vill
vera þegar menn
segja frá í þriðju
persónu, en þó fylgir öllu gamni
einhver alvara.
Við íslendingar viljum síst vera
eftirbátar annarra þjóða í einu eða
neinu og það sést meðal annars á
jólaljósunum á aðventunni. Og satt
best að segja veit ég ekki hveijir
eiga að gera sér glaðan dag með
ljósum ef ekki við sem búum við
skammdegið á þessum tíma.
Þegar ég var krakki voru eigin-
menn gjarna sendir út með stiga
til að setja upp jólaskreytinguna
meðan Þorláksmessuskatan sauð,
og oft hékk þessi skreyting uppi
fram á vor og í einu húsinu hékk
hún stundum milli jóla. Nú eru jóla-
ljósin sett upp strax í byijun des-
ember og hanga yfirleitt ekki nema
fram í miðjan janúar, eða þangað
til farið er að sjást að sól er að
hækka á lofti. Þetta hlýtur að telj-
ast mikil framför.
Jólagleðinni dreift
Jólahátíðin lífgar upp á skamm-
degið og birtan sem þeim fylgir er
einn veigamesti þátturinn í því.
Jólin hafa verið kölluð ljóssins hátíð
og þar er auðvitað átt við andlega
þáttinn, en því verður aldrei neitað
með rétti að sjálf jólaljósin færa
okkur líka gleði í hjarta.
Það er því svo sannarlega ástæða
til að koma upp jólaljósum utan-
húss, til að koma okkur sjálfum í
hátíðaskap og gleðja þá sem fram-
hjá fara.
Einstaka hús er alveg óskreytt
að utan um jólin og ekki sést á
neinu að verið sé að halda jól innan
dyra. Eigendum þeirra fínnst ef til
vill nóg um tilstandið hjá öðrum og
vilja ekki taka þátt í vitleysunni.
Svo eru aðrir sem eiga stór hús,
nóga peninga og barnslega sál og
festa perusamstæðu eftir endilöngu
þakskegginu þótt langt sé. Slík jóla-
skreyting er tilkomumikil, en því
miður er ekki endilega þar með
sagt að hún sé hátíðleg eða til þess
fallin að koma öðrum í jólaskap.
Hinn gullni meðalvegur er auð-
vitáð vandfundinn, en flestir reyna
þó að koma sér upp einhvers konar
jólalýsingu utanhúss. Þeir sem
minnst hafa fyrir því setja litaðar
perur í útidyrakúpulinn sinn, það
gefur innganginum hátíðlegan blæ
og gleður íbúana þegar þeir koma
heim í myrkrinu. Flestir ganga þó
FflSTFIf.N FR FRAMTÍFl iP SVERRIR KRISTJANSSON
FASTEIGN ER FRAMTIÐ ÍT LÖGGILLTUR FASTEIGNASALI
ödáeMt öfCóMi.
yfeóifey'ui jéCa, ay
fa'tá&CtCan á cujfjcc
á/ic med jíöáá, fan&t
ttideáifitiw á
Ciótuwt á/uan.
örlítið lengra og setja upp einhvers
konar jólaseríu úti.
Jólaserían í garðinum
Það sést þegar ekið er um þétt-
býlissvæði að jólaseríu má koma
fyrir á ýmsum stöðum. Oftast er
þeim komið fyrir í glugga þannig
að Ijósin sjáist bæði innanfrá og
utan. Þetta er auðvitað bráðsnjallt
þar sem því verður við komið.
Sumir nota þakskeggið eða
svalahandrið til að festa jólaseríuna
á og það er yfirleitt mjög traust
festing og heppileg fyrir voldugar
útiseríur með stórum perum.
Litlum seríum með mörgum
smáum perum er mun auðveldara
að koma fyrir og margir kaupa þær
til að festa á tré í görðum. Þessar
seríur eru mjög fallegar á grenitij-
ám og það er engin hætta á að þær
skemmi trén. Þeim má líka koma
fyrir í limgerði við innganginn eða
festa þær á girðingu eða skjólvegg.
Varúðarráðstafanir
En það þarf að hafa gát á þegar
rafmagnsljósum er komið yfir úti.
Það verður seint oft brýnt fyrir fólki
að nota aðeins seríur sem hafa ver-
ið samþykktar af rafmagnseftirlit-
inu og eru gerðar til að vera úti.
Það er líka sjálfsagt að hafa leka-
vara í íbúðinni og prófa hann nú
fyrir jólin, því það eru því miður
brögð að því að þeir bili.
Stórar seríur:”Útiljósaseríur með
220 volta straumi eru mun hættu-
iegri en lágspennuseríurnar með
litlu perunum þótt þær stóru líti
út fyrir að vera traustar. Þessar
stói-u þurfa að vera mjög vel festar
og þannig gengið frá þeim að perur
geti ekki slegist í og brotnað. Ef
pera brotnar standa vírarnir óvarðir
út í loftið og spennan á þeim er
lífshættuleg. Það er því mjög áríð-
andi að vel sé frá þeim gengið. Ef
serían er tengd við rafmagn hússins
er eins gott að hafa lekavara í lagi.
Litlar seríur: Lágspennuseríur
eru að verða mun vinsælli en hinar
og það er ef hinu góða þar sem þær
hafa minni hættu í för með sér.
Helsta öryggisatriðið við þær er að
hafa spenninn innanhúss því hann
getur orðið hættulegur í raka.
Þegar framlengja þarf rafmagns-
leiðslum úti verður svo auðvitað að
nota vatnsþéttar klær og tengla.
Það þarf líka að gæta að hvernig
er gengið frá leiðslum. Það hefur
komið fyrir að fólk hefur dottið illa
um leiðslur sem eru látnar liggja
lausar á jörðinni. Best er að leiða
þær inn í húsið í þeirri hæð að eng-
in hætta sé á að börn eða dýr kom-
ist í þær. Það er líka sjálfsagt að
festa þær niður með sterku
límbandi hvort sem þær liggja hátt
eða lágt svo þær þvælist ekki af
stað.
Ef seríur ’er settar í tré eða ann-
ars staðar þar sem þær geta slegist
til í vindi er vissara að þræða þær
inn milli greinanna frekar en að
láta þær liggja utaná trénu. Farið
samt varlega því greinarnar eru oft
stökkar á veturna.
Og svona rétt að lokum,- munið
að kaupa aukaperur áður en öllum
búðum er lokað á aðfangadag því
samkvæmt lögmáli Murphies
brotna perur í jólaseríum helst eftir
lokunartíma á jólum.
Óskum öllum
viðs kiptavinum
okkar og lands-
mönnum öllum,
nær og f)ær,
gleðilegra |óla og
gæfuríks
komandi árs.
Þökkum við-
skiptin á árinu
sem er að líða.
FÉLAG liFASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson, lögg. fasteignasali.
Magnus Axelsson fasteignasali
SKIPHOLTI 50B