Morgunblaðið - 24.12.1991, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
11
Flugbjörgunarsveitin
á Hellu er fjörutíu ára
FLU GB J ÖRGUN ARS VEITIN á
Hellu er 40 ára um þessar mund-
ir. Akveðið var að stofna sveitina
eftir að flugvélin Geysir fórst á
Bárðarbungu. Þá kom í Ijós þörf-
in á að ávallt væru til staðar
öflugar björgunarsveitir, sem
brugðist gætu við í erfiðum neyð-
artilfellum. Frá þessu er skýrt í
frétt frá sveitinni.
Sveitin hét fyrst Flugbjörgunar-
sveit Rangæinga, en síðar var nafn-
inu breytt. Fyrirmynd að stofnun
sveitarinnar var sótt til Reykjavík-
ur, en þar hafði þá nýlega verið
stofnuð flugbjörgunarsveit. Flug-
björgunarsveitirnar voru strax í
bytjun sérhæfðar í björgun fólks
úr flugslysum, en hafá ávallt unnið
jafnhliða að öðrum björgunarstörf-
um. Sveitin á Hellu leggur sérstaka
áherslu á þjálfun félaga í hálendis-
og öræfaferðum. enda sinnir hún
útköllum á hálendinum oft á ári
hveiju.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu er
með best búnu björgunarsveitum
landsins. Hún á öfluga snjóbifreið,
tvær björgunar- og sjúkrabifreiðar,
vörubifreið og fjóra vélsleða. Þá á
sveitin margs konar annan búnað,
m.a. ágætan fjarskiptabúnað. Tæp-
lega 100 félagar eru í sveitinni.
Nýlega var lokið byggingu 450 fer-
metra björgunarstöðvar að Dyn-
skógum 34, Hellu. Nýja björgunar-
stöðin, sem er í alla staði vel búin,
hýsir alla starfsemi sveitarinnar.
Sveitin hélt upp á afmælið m.a.
með því að bjóða öðrum björgunar-
sveitum á svæðinu til samæfíngar,
sem þótti takast ágætlega. Formað-
ur er Oskar Jónsson framkvæmda-
stjóri.
Egill fær gullplötu
Agli Ólafssyni var veitt gullplata fyrir plötuna Tifa Tifa sem selst
hefur í yfir 3.000 eintökum. Á myndinni hefur Halldór Bachmann
markaðsstjóri Skífunnar hf. afhent Agli gullplötuna á Rás 2.
Frá æfingu á Gígjökli.
Húsavík:
Heimagróið jóla-
tré prýðir bæinn
Húsavík.
HÚSAVÍKURBÆR hefur að
vanda látið reisa jólatré á flöt-
inni fyrir sunnan Samkomuhúsið.
Flest árin hefur verið fengið inn-
flutt tré þó hin síðari ár hafi þau
verið úr íslenskum skógum. En
nú prýðir bæinn húsvíkst tré.
Tréð er úr garði Hrafnhildar og
Ragnars Kjartanssonar að Garðars-
INNLENT
braut 35. Er þetta bæði stærsta og
fegursta jólatréð sem Húsvíkingar
hafa augum litið á þessum stað.
Ragnar segir að tréð hafi hann
gróðursett um það leyti sem hann
flutti í húsið, eða fyrir 35 árum,
þá ekki stórt og í töluverðri fjar-
lægð frá íbúðarhúsinu að honum
fannst. En nú hafi það verið orðið
um tíu metra hátt og „vaxið mér
yfir höfuð“, sagði Ragnar. Fyrir all
löngu varð hann að breyta inngangi
í húsið eða fella tréð og valdi hann
fyrri kostinn. En tréð óx og var nú
aftur farið að trufla innganginn og
greinarnar farnar að beija þakið
og raska ró íbúanna þegar þannig
viðraði. Ragnar sagaði að sér hafi
verið nauðugur einnn kostur að fella
tréð og þætti honum það gaman
að það að lokum fegarði bæinn með
ljósadýrð mikilli á jólaföstunni.
Fréttaritari
Óskum öllum
viðskiptavinum okkar
nœr og fjœr
gleðilegrajóla
Tyf] FASTEIGNA
rHIMARKAÐURINN
Óðinsgötu 4, símar 11540, 21700
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fast.- og skipasali,
Ólafur Stefánsson, viðskiptafr., lögg. fast.sali.
Morgunblaðið/Silli
Jólatréð úr garði Hrafnhildar og
Ragnars er nú ljósum prýdd við
Samkomuhúsið.
Fasteignasala'ssv
EIGNABÆR
Bæjarhrauni 8, sími 654222
Gleðileg jól!
Þökkum viðskiptin á
árinu sem er að líða.
Elías B. Guðmundsson,
viðskiptafr. - sölustjóri,
Hlöðver Kjartansson, hdl.
Guðmundur Kristjánsson, hdl.
S: 654222
Starfsfólk fasteigna-
sölunnar Gimli óskar
viðskiptavinum
sínum svo og lands-
mönnum öllum
gleðilegra jóla.
GIMLI,
fasteignasala.
Gleðileg jól
og farsælt
komandi ár!
Opnum aftur fimmtudaginn
2. janúarkl. 13.00.
28 /1A4 HÚSEIGNIR
™ ™ ™ VELTUSUNDI 1 O ^f||f 1|®
SIMI 28444 Ot Vlmla
Daníel Árnason, símí 35417, Jf B
Helgi Steingrímsson, sími 73015. II
Óskum
viðskiptavinum
okkar um land allt
gleðilegra jóla.
Starfsfólk Kjöreignar.
S: 685009-685988
ÁRMÚLA 21
|/^rci|piri I DAN V.S. WMUM, LÖGFRÆÐINGUR,
JVVl GIMI I I ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI,
- * DAVÍÐ SIGURÐSSON, SÖLUMAÐUR.
w
® 62 55 30
*
Oskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsœldar á nýju ári!
jSæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali.
EIGNAMIÐUMN
Sími 67-90-90 - Síðumúla 21
r
Oskum
viöskiptavinum
okkar
°g
landsmönnum
öllum
gleðilegra jóla!
—Ál>yrg |>jóimsta í áratugi.
SÍIVII 67-90-90 SÍÐUMÚLA 21
Svt'rrir kristinssoM. sölusljóri • Jiprloifur Giiðniuiulssoii. sölum.
IVirólfur llalldiirsson. löjrfr. ■ Liiðimiinlnr Sijnirjóiisson. löjd'r.