Morgunblaðið - 24.12.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
UNIFEM - þróunarsjóð-
ur til styrktar konum
Kikuyu-kona
eftir ElluD.
Bjarnason
Hvaða manneskjur eru það sem
líða mestan skort í heiminum? Það
eru fátækar konur til sveita í þróun-
arlöndunum. Heilsufar þeirra er
lakara og ólæsi almennara en karia
á þessum svæðum og þær hafa
færri tækifæri tii að bæta lífskjör
sín. Vinnudagur þeirra er gífurlega
langur, og það eitt að sækja drykkj-
arvatn tekur margar klukkustundir
á dag. Daglega þurfa þær að sækja
eldivið, yrkja jörðina, þreskja og
mala korn, annast börn o.fl. Hvert
þessara starfa um sig tekur margar
klukkustundir og eru byrðar sem
þessar konur bera á bakinu ótrúlega
þungar. Aigengt er að kona sem
vegur 60 kg beri 40 kg byrði, en
til samanburðar er bakpoki ferða-
manns á íslandi sjaldan yfir 15-20
kg. Vegalengdin sem þær þurfa að
fara lengist sífellt vegna minnkandi
skóglendis og vegna þess að vatns-
ból þverra. Margar konur eyða
2.000 til 5.000 klst. á ári í það eitt
að sækja vatn, eldivið og flytja
matvöru til og frá markaði.
Á kvennaáratugnum frá 1976-
1985 var athygli manna beint að
kjörum kvenna og þá sérstaklega í
þróunarlöndunum. Hugmyndin um
sérstakan kvennasjóð kom strax
fram og var sjóðurinn stofnaður á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna árið 1976 og nefndist þá Sjóð-
ur kvennaáratugarins („Volunt-
ary Fund for the UN Decade for
Women“). Þegar kvennaáratugnum
lauk árið 1985 var ljóst að verkefn-
in voru óþijótandi og að ekki var
hægt að hætta við svo búið. Því var
ákveðið að halda áfram starfi sjóðs-
ins og 1985 breyttist nafn sjóðsins
í „UNIFEM, þróunarsjóður Samein-
uðu þjóðanna til styrktar konum"
(UN Development Fund for Wom-
en) yfirieitt stytt í UNIFEM. Nú
starfar UNIFEM sem sjálfstæð
stofnun innan þróunarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (United Nat-
ions Development Programme) og
er markmið sjóðsins tvíþætt: Ánn-
ars vegar að veita Ijárhagslega og
tæknilega aðstoð til samvinnuverk-
efna kvenna á sviði atvinnurekst-
urs, fæðuframleiðslu, við orku- og
drykkjarvatnsöflun ásamt heilsu-
gæslu og hins vegar til að tryggja
að jafnt tillit sé tekið til þarfa
kvenna og karla í hinum ýmsu þró-
unarverkefnum.
Sjóðurinn er fjármagnaður af
fijálsUm framlögum og kemur
stærsti hlutinn frá ríkisstjórnum
aðildarlanda Sameinuðu þjóðanna,
eða frá alls 103 löndum. Á sl. ári
voru Norðmenn og Finnar með
hæstu fjárframlög til UNIFEM, um
75 milljónir ísl. kr. frá hvoru landi.
Þess má geta að fjárframlag Is-
lenska ríkisins til UNIFEM á þessu
ári var 1,1 milljón króna og vonast
er til að það verði ekki minna á
næsta ári. Einnig hafa ýmis félög
og félagasamtök óháð stjórnmálum
Var einn
vitdngurinn
þeldökkur?
Svona er stundum spurt því sum-
ar myndir af vitringunum eru þann-
ig-
Þetta vitum við ekki, en annað
vitum við með vissu: Þeir sem koma
til Jesú þesa dagana, tilbiðja hann
og færa honum góðar' gjafír, eru
mjög mismunandi að hörundslit og
uppruna. Á annan jóladag eigum
við von & góðum gestum í heimsókn
á barnahátíðina í Dómkirkjunni hér
í Reykjavík. Þeir ætla að segja okk-
svo og styrktarfélög UNIFEM lagt
mikið fé af mörkum til sjóðsins,
t.d. lagði finnska styrktarfélagið
fram 14 milljónir kr. árið 1989.
Árið 1985 jókst starfssvið
UNIFEM er Allsheijarþing Samein-
uðu þjóðanna óskaði eftir að UNIF-
EM beindi kröftum sínum einnig
að þátttöku kvenna í þróunarverk-
efnum. Sífellt er verið að bæta við
verkefnum, t.d. er nú lögð áhersla
á umhverfisverkefni. Eitt þessara
verkefna nefnist „Konur, umhverfi
og þróun" (WED: Women, Environ-
ment and Development), en ljóst
er að lífsafkoma kvenna I þróunar-
löndum er mjög háð náttúrunni
hvað varðar útvegun vatns, eldiviðs
og ræktunar lanbúnaðarafurða.
Þær eru líka fómarlömb náttúru-
spjalla, svo sem gróðureyðingar,
vatnsmengunar, uppblásturs o.fl.
Hins vegar geta konur haft veruleg
áhrif á þessa þætti og hefur
UNIFEM ákveðið að helga áratug-
inn 1990-2000 umhverfísvernd og
þróun.
UNIFEM styrkir fátækar konur
í þróunarlöndum til sjálfshjálpar.
Hér er einkum átt við lönd Suður-
Ameríku, Afríku, Asíu og eyjar í
Karíba- og Kyrrahafínu. Aðstoðin
getur verið margs konar eftir að-
stæðum og þörfum hveiju sinni.
Rík áhersla hefur verið lögð á það
að konurnar átti sig í byijun á því
hver stærstu vandamálin em, og
komi síðan með tillögur um hvers
konar starfsemi henti best þeim og
því samfélagi sem þær búa í. Mikil-
vægt er að starfsemin samræmist
siðum þeirra og venjum. Síðan em
verkefnin skipulögð og þeim hrint
í framkvæmd með aðstoð hinna
ýmsu sérfræðinga og/eða lánum frá
UNIFEM. Lánafyrirgreiðsla er oft-
ast í formi víkjandi lána, en konur
í þróunarlöndum eiga sjaldnast
greiðan aðgang að bankakerfínu.
Lán til slíkra verkefna em oftast
þannig að ef verkefnið skilar hagn-
aði er lánið endurgreitt og pening-
arnir notaðir til að styrkja ný hlið-
stæð verkefni. Einnig er veitt
tæknileg aðstoð svo sem útvegun
tækja og kennsla á notkun og við-
haldi þeirra eins og t.d. kvörnum,
vatnsdælum, olíupressum o.m.fl.
Einnig er unnið að þjálfun kvenna
í ýmsum viðskiptum, svo sem
rekstri atvinnufyrirtæka, bókhaldi
o.fl. sem þarf til smáatvinnurekst-
urs. Einnig vinnur UNIFEM með
stjórnum hinna ýmsu landa og al-
þjóðahjálparstofnunum f' til að
tryggja að tekið sé tillit til þarfa
kvenna jafnt sem karla við skipu-
lagningu þróunarverkefna, en þar
til. fyrir nokkram ámm var lítill
gaumur gefinn að beinum áhrifum
þróunarverkefna á fjölskyldur í við-
komandi löndum.
Ellefu styrktarfélög
Sá árangur sem UNIFEM hefur
náð með starfsemi sinni vakti fljótt
athygli og varð til þess að stofnuð
hafa verið styrktarfélög í hinum
ur frá jólahaldi í heimalöndum sín-
um í Afríku og Asíu og kenna okk-
ur söngva þaðan.
Margt annað er á dagskránni,
m.a. flytja börn helgileik um jólaat-
burðina. Öll börn eru velkomin á
þessa jólahátíð og okkur langar
sérstaklega til að hafa börn af er-
lendum upprana, t.d. frá Afríku eða
Asíu, með okkur í Dómkirkjunni
annan jóladag kl. 14.
Barnastarf Dómkirkjunnar.
ýmsu löndum. í lok ársins 1990
voru styrktarfélögin orðin 11 og
þar af fímm á Norðurlöndum og
er hið finnska þeirra elst, en 10 ár
eru liðin frá stofnun þess. Félag
UNIFEM á íslandi var stofnað 18.
desember 1989, en þann dag vom
10 ár liðin frá því að Alþjóðasamn-
ingur Sameinuðu þjóðanna um af-
nám alls misréttis gegn konum var
„UNIFEM reynir að
beita kröftum sínum
beint að hinu fátæka
fólki, fremur en láta
framlög sín renna
gegnum greipar ríkis-
sljórna þessara landa.“
samþykktur. Tilgangur félagsins
er: 1) Að kynna og auka áhuga
almennings á starfsemi UNIFEM.
2) Að vera málsvari kvenna í þróun-
arlöndunum með það að leiðarljósi
að störf þeirra sé óijúfanlegur hluti
efnahags- og félagslegrar framþró-
unar. 3) Að afla ijárframlaga til
UNIFEM frá hinu opinbera og
einkaaðilum. Félagar í UNIFEM á
íslandi eru nú um 60 talsins og
geta bæði einstaklingar og félaga-
samtök gengið í félagið. Sum
UNIFEM-félögin á Norðurlöndum
eru mjög öflug og hafa tekið að sér
sjálfstæð styrktarverkefni. Til
dæmis má nefna aðstoð við konur
í Sahel-löndunum (í Vestur-Afríku)
við að þróa nýja gerð af orkuspar-
andi ofnum til eldunar. Konunum
þar var einnig kennt að framleiða
og not'a þessa ofna.
Þróunarverkefni UNIFEM hafa
yfírleitt verið ódýr og komið mörg-
um að beinu gagni. Kostnaður við
hvert verkefni hefur verið á bilinu
120 þúsund og upp í 24 milljónir
ísl. króna. Styrkt hafa verið meira
en 400 verkefni í 104 Iöndum síðan
sjóðurinn var stofnaður. Peningarn-
ir hafa þótt nýtast mjög vel í þess-
um verkefnum og em þau á grasrót-
argrunni, ef svo má segja. Það er
alkunna að hin miklu og stóm þró-
unarverkefni í hinum ýmsu löndum,
svo sem bygging raforkuvera og
ýmiss konar verksmiðja, lagning
hraðbrauta og bygging annarra
mannvirkja hafa ekki komið hinu
fátæka fólki að neinu gagni hvað
varðar bætt lífskjör, nema síður sé.
UNIFEM reynir að beita kröftum
sínum beint að hinu fátæka fólki,
fremur en láta framlög sín renna
gegnum greipar ríkisstjórna þess-
ara Ianda.
Olæsi er ein aðalhindrun fram-
þróuhar í þróunarlöndum. Árið
1985 voru tæplega 600 milljónir
kvenna taldar ólæsar og ólæsir
karlar um -350 milljónir. Hlutfall
af ólæsum konum er hæst í löndum
Suður- og Vestur-Asíu og löndum
Afríku sunnan Sahara, en þar em
70% kvenna yfír 25 ára aldri ólæs.
Fólksfjölgunin er svo mikil í mörg-
um þessara Ianda að menntakerfínu
tekst ekki að halda í við fíölgun
nemenda og fer því ólæsum ein-
staklingum fjölgandi þar. Það sem
kemur í veg fyrir skólagöngu
stúlkna er hinn mikilvægi þáttur
þeirra í matvælaframleiðslu heimil-
anna. Þær em oftar látnar hætta
námi fyrr en drengir, auk þess sem
meðganga og fæðing bindur oft
endi á skólagöngu stúlkna í þessum
löndum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sameinuðu þjóðunum deyja um
40.000_ böm á degi hveijum í heim-
inum. Í Tanzaníu einni deyja árlega
250.000 börn undir 5 ára aldri, en
þessi fjöldi er svipaður og öll ís-
lenska þjóðin. Stór hluti barnanna
deyr vegna þekkingarskorts mæðr-
anna, þ.e. á hreinlæti, næringu,
heilsuvernd o.fl. Mörgum þessara
barna væri hægt að bjarga með
einföldum aðgerðum, svo sem bólu-
setningu við algengustu barnasjúk-
dómum, eins og við eigum að venj-
ast og með því að útvega þeim
hreint drykkjarvatn. Fyrst og
fremst þarf því að fræða mæðurn-
ar, svo þær geti tryggt börnunum
sem eftir lifa einhveija framtíð.
Kornmyllurnar í Gambíu
Mörg dæmi má taka um það
hvernig styrkir frá UNIFEM hafa
breytt og bætt líf einstaklinga í
þróunarlöndunum og um leið haft
góð áhrif á samfélagið í heild. I
Gambíu gjörbreyttu kornmyllur t.d.
lífi kvenna og fjölskyldna þeirra,
en þar var skipulagt verkefni sem
var framkvæmt af UNIFEM og ít-
ölsku stjórninni. AÐ mylja korn í
mjöl er mjög tímafrek vinna ef
nútíma tækni er ekki fyrir hendi.
Eftir að kornið hefur verið skorið
tekur um 2 klst. að þreskja það,
síðan fer um 1 klst. í að hreinsa
hismið frá og um 4 klst. í að mylja
korn í dagskammt fjölskyldunnar.
Alls fara því 7 klst. daglega að
útbúa korn til brauð- og matargerð-
ar fyrir eina fjölskyldu. Auk þessa
þurfa konurnar að sækja vatn, ann-
ast börn og að öllu jöfnu er vinnu-
dagurinn 16-18 klst. allan ársins
hring. Hvorki meðganga né fæðing
veitir þeim frí frá þessum störfum.
UNIFEM útvegaði 15 þorpum í
Gambíu fé til að kaupa dísel-knúnar
kommyllur. í staðinn fýrir að mylja
komið sjálfar gátu konurnar nú
farið með það í mylluna og fengið
það malað og sparað sér 4 klst.
vinnu. Myllurnar reyndust það vel,
að konur í nálægum þorpum komu
til að fá kornið sitt malað. Gambíu-
konurnar segja þetta mestu gæfu
sem þær hafa orðið aðnjótandi, og
þeim finnst þær vera hraustari og
yngri en áður. Einnig hefur fylgi-
kvillum í kjölfar fæðinga fækkað
til muna. Nú geta konurnar eytt
meiri tíma í að sinna börnum sínum,
einnig hafa þær meiri tíma til rækt-
unar og geta því aukið fjölbreytni
í matvælaframleiðslunni auk þess
sem það hefur gert þeim kleift að
selja umframframleiðslu. Díselmyll-
urnar em reknar af konum og fengu
þær í byijun víkjandi lán frá
UNIFEM til verkefnisins, en eftir
því sem þær hafa endurgreitt lánin,
hefur peningunum verið varið til
að kaupa fleiri myllur. Myllurnar
hafa vakið mikla athygli í Gambíu
og að minnsta kosti 50 þorp til við-
bótar hafa keypt kornmyllur.
í framhaldi af þessum árangri
hafa kvennasamtök í Gambíu með
aðstoð UNIFEM skipulagt jarð-
ræktarverkefni og fengið til þess 7
milljónir dollara (420 milljónir
ísl.kr.) lán hjá Alþjóðabankanum,
og er þetta í fyrsta sinn sem bank-
inn veitir !án til kvennaverkefnis.
Þannig hefur lítið ■ verkefni sem
upphaflega kostaði 8 milljónir fsl.
kr. orðið grundvöllur að ennþá
stærra þróunarverkefni sem mun
koma jafnvel allri gambísku þjóð-
inni til góða.
Mörg önnur dæmi mætti taka
þar sem starfsemi UNIFEM hefur
haft áhrif ti! góðs í hinum fátækari
ríkjum heims. Til að halda starfsemi
sem þessari áfram þarf bæði íjár-
muni og dugmikið fólk til starfa.
UNIFEM á Islandi er ungt félag,
en félagar þess trúa því áð meðal
Islendinga hljóti að vera fjölmargir
sem vilja leggja konum í hinum
fátækari hlutum heims lið. í því
sambandi er vert að minnast þess
að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
Heimildir: Ársskýi'sla UNIFEM, United Nat-
ions Development Fund for Women, 1990.
The Worlds Women 1970-1990 Trends and
Statistics, United Nations, New York, 1991.
The Girl Child — An Investment in the Fut-
ure, UNICEF, New York, 1990.
Ýmsar skýrslur frá UNIFEM.
Höfundur er sjúkraþjnlfari og í
stjórn félags UNIFEMá íslnndi.