Morgunblaðið - 24.12.1991, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 1991
Skerðing sj ómannaafsláttar
orðin að lögum á Alþingi
Stjórnir sjómannasamtaka hvetja til verkfallsboðunar
SKERÐNG sjómannaafsláttar var lögfest á Alþingi aðfararnótt
sunnudags þegar frumvarp um breytingar á tekju- og eignaskattslög-
um var samþykkt eftir að samkomulag náðist um breytingatillögur
og var enginn þingmaður stjórnarflokkanna á móti afgreiðslunni.
Þingmennirnir Guðjón A. Kristjánsson formaður Farmanna- og fiski-
mannasambandsins og Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómann-
afélags Reykjavíkur og varaformaður Sjómannasambandsins
greiddu atkvæði með frumvarpinu í endanlegri mynd. Stjórnir FFSÍ
og Sjómannasambandsins gagnrýndu þessa afgreiðslu harðlega á
fundum um helgina og hafa hvatt aðildarfélög sín að afla sér heim-
ildar til verkfallsboðunar.
líiðurstaðan á Alþingi fól í sér
þá breytingu, að í stað þess að
miða við daga á sjó er nú miðað
við þá daga sem skylt er að lögskrá
áhöfn á skip og stærri báta og að
sjómenn sem skráðir eru a.m.k. 245
daga á ári fái fullan sjómannaaf-
slátt en hlutfallslega séu lögskrán-
ingardagar færri. Að sögn Guð-
mundar Hallvarðssonar felst í þessu
að hver lögskráður dagur til sjós
er margfaldaður með 1,49 sem leið-
ir til þess að af hveijum 10 lög-
skráðum dögum sjómanns fær hann
15 daga metna til sjómannaafslátt-
ar. Auk þess haldi sjómenn afslætt-
inum í veikinda- og slysaforföllum.
Að mati ijármálaráðuneytisins
má ætla að skerðingin geti sparað
ríkissjóði 180-200 millj. kr. á næsta
ári eins og gert var ráð fyrir þegar
frumvarpið var lagt fram. Skv. upp-
lýsingum hjá Sjómannasambandinu
og FFSÍ er vandmetið og alls óvíst
hver hin aunverulega skerðing verð-
ur.
Guðmundur sagði að ýmsir aðilar
hefðu notið afsláttarins, sem ekki
hafi verið vilji löggjafans á sínum
tíma. „Við tókum þátt í þessu í
þeirri trú að ekki verði frekar geng-
ið á sjómannaafsláttinn," sagði
hann.
Sameiginlegur fundur stjórnar
FFSÍ og formanna aðildarfélaga á
sunnudag mótmælti þessari skerð-
ingu harðlega og skoraði á.aðildar-
félög sambandsins að afla sér heim-
ildar til verkfallsboðunar þegar í
stað. Framkvæmdastjórn Sjó-
mannasambandsins sendi frá sér
ályktun gegn skerðingunni á laug-
ardag með áskorun til aðildarfélag-
anna um að afla sér heimildar til
verkfallsboðunar. Þá samþykkti
fundur í Vélastjórafélagi Suður-
nesja harðorða ályktun á sunnudag,
og var stjórn og trúnaðarmannaráði
félagsins veitt heimild til verkfalls-
boðunar vegna kjarasamninganna.
Guðmundur sagði eðlilegt að sjó-
menn bregðist við kjaraskerðingu
með þessum hætti en sagðist vona
að fundir sem haldnir verða á milli
jóla og nýárs muni leiða í ljós að
sjómenn verði fyrir lítilli sem engri
skerðingu. „Þeir sem eru skemur
til sjós en hálft árið verða þó óneit-
anlega fyrir nokkurri skerðingu.
Hin eiginlega sjómannastétt getur
ekki staðið gegn því,“ sagði Guð-
mundur.
Þingstörfum lauk
á sunnudagsnótt
Aþingi gerði hlé á sínum störfum
og þingmenn komust loks í jóla-
leyfi að afloknum 59. fundi Al-
þingis aðfaranótt síðastliðins
sunnudags. þjóðþingið mun koma
saman á nýjan leik 6. janúar næst-
komandi.
Samkomulag um afgreiðslu þingmála fyrir jólaleyfi Alþingis:
*
Asættanleg fyrir alla aðra en
formann Alþýðubandalagsins
- segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
„RÍKISSTJÓRNINNI tókst að ná fram forgangsmálum sínum og
láta reyna á ágreining innan stjórnarandstöðunnar því það var
auðheyrt á samtölum í þinginu seinustu sólarhringana fyrir jóla-
leyfi að þingmenn Framsóknarflokks og Kvennalista voru tilbún-
ir til efnislegs samkomulags, sem og flestir forystumenn Alþýðu-
bandalags fyrir utan formanninn. Sú staðreynd að það náðist
samkomulag um þessa efnislegu niðurstöðu var því vel ásættan-
leg fyrir alla aðra en formann Alþýðubandalagsins og stjórnin
má því allvel við una,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið, er hann var inntur álits á
samkomulagi um afgreiðslu þingmála fyrir jólaleyfi alþingis-
manna, sem náðist á milli stjórnar og stjórnarandstöðu á laugar-
dagskvöld. Samið var um afgreiðslu fjárlaga fyrir jól gegn því
áð afgreiðslu lánsfjárlaga, og fleiri mála er tengjast fjárlögum
yrði frestað fram yfir áramót. Morgunblaðið innti forystumenn
stjórnmálaflokkanna álits á samkomulaginu.
Davíð Oddssonforsætisráðherra
segir það alls ekki vera áfall fyrir
ríkisstjórnina að þurfa að fresta
afgreiðslu lánsfjárlaga og aðgerð-
um um ráðstafanir í ríkisfjármál-
um fram yfír áramót. „Auðvitað
hefði verið best að afgreiða þessi
mikilvægu mál fyrir jól en aðal-
atriðið var að afgreiða ijárlaga-
frumvarpið og það tókst. Vegna
frestunar álversframkvæmda
tafðist fjárlagaumræðan í þinginu
og stjórnarandstaðan nýtti sér það
með þeim afleiðingum að lánsíjár-
lög, lög um hagræðingarsjóð og
aðgerðir í ríkisíjármálum verða að
bíða þar til þing kemur aftur sam-
an eftir áramót. Það má því búast
við að þessi mál verði komin í
gegnum þingið um miðjan jan-
úar,“ sagði forsætisráðhen'a.
Halldór Ásgrímsson varafor-
maður Framsóknarflokksins telur
að frumvörp ríkisstjómarinnar,
sem samþykkt voru rétt fyrir jóla-
leyfi alþingismanna, hafi almennt
verið illa undirbúin og sé ýmislegt
óljóst um forsendur þeirra. „Sem
dæmi er hægt að nefna lögin um
tekju- og eignarskatt sem kveður
á um að arður sé ekki lengur frá-
dráttarbær hjá fyrirtækjum heldui'
skattfijáls hjá móttakanda. Þetta
er algjörlega vanhugsað ákvæði
sem mun hafa truflandi áhrif á
hlutabréfamarkaðinn og ríkis-
stjórninni var það fullkomlega
ljóst. Svona málum er kastað fram
í miklum flýti í þinginu og þeim
breytt eftir hentugleika fram á
síðustu stund eins og gert var með
sjómannaafsláttinn. Eg á von á
því að þessi fjótræðisvinnubrögð
sem einkenndu störf ríkisstjórnar-
innar í desember eigi eftir að koma
betur í ljós í janúar þegar meiri
alvara kemst í viðræður á vinnu-
markaði. Fjárlagahallinn er alvai'-
legt vandamál og ég er hræddur
um að hann verði mun hærri en
fjórir milljarðai', jafnvel helmingi
hærri,“ sagði Halldór Ásgrimsson.
Olafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins segir
það vera áfall fyrir ríkisstjórnina
að hafa ekki náð fram í þinginu
þeim mikilvægu málurn sem að
var stefnt fyrir jól. „Það, að keyra
fjárlögin í gegn fyrír áramót en
fresta hins vegar mikilvægum
■ máium sem snerta aðgerðir í rík-
isfjármálum, Hagræðingarsjóð
sjávarútvegsins og lánsfjárlögum,
er að mínu mati undarlegt. Segja
má að allt kjöt sé af beinunum
þegar fjárlögin em samþykkt með
þessum hætti. Glíman um þessi
mikilvægu mál heldur svo áfram
eftir áramót og þá fyrst kemur í
ljós hvort ríkisstjórnin kemur þeim
í gegnum þingið.
Kristín Einarsdóttirþingmað-
ur Kvennalistans telur, að á síð-
ustu dögum þingsins fyrir jólaleyfi
hafi ríkisstjórnin séð að gagnrýni
stjórnarandstöðunnar á ýmis mik-
ilvæg stjórnarfrumvörp væri á
rökum reist og því hafi hún kosið
að fresta afgreiðslu þeirra fram
yfir áramót. „Þessi stjórnarfrum-
vörp voru kynnt allt of seint og
við kvennalistakonur lögðum
mikla áherslu á að þau yrðu ekki
afgreidd fyrr en að höfðu samráði
við sem flesta hagsmunaaðila. Ég
lít ekki á það sem áfall fyrir stjórn-
ina að ýmsum stórum málum verði
frestað fram yfir áramót. Miklu
fremui' verður það áfall fyrir þjóð-
ina ef aðgerðir stjórnarinnar, í rík-
isfjármálum til dæmis, ná fram
að ganga í janúar. Stefnan sem
kemur fram í nýsamþykktum fjár-
lögum ber vott um það að ráðast
eigi á þá sem síst skyldi. Tækni-
lega er einnig ýmislegt athugavert
við fjáiiögin. Margar forsendur
þeirra eru kolrangar og áformaður
niðurskurður að mörgu leyti
óraunhæfur. Ég tel að það séu
hreinir draumórar hjá stjórnarlið-
um að halda því fram að fjárlaga-
halli næsta árs verði innan
fjögurra milljarða króna,“ sagði
Kristin Einarsdóttir.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að ríkis-
stjórnin megi allvel una við sam-
komulagið. Með því hafi tekist að
ná helstu forgangsmálum hennar
fram en þau hafi ótvírætt verið
fjárlög og tekjustofnafrumvörp.
„Um lánsfjáiiög er það að segja
að frestun þeirra er afturhvarf. til
fyrri tíðar. Það á að afgreiðá lánsf-
járlög með fjárlögum en frestun
þeirra kemur ekki efnislega að
sök. Bandormurinn svonefndi er
fyrst og fremst staðfesting á
margvíslegum ákvörðunum ríkis-
stjórnarinnar í tengslum við fjár-
lög en ekkert þeirra atriða er tíma-
sett þannig að frestun fram í jan-
úar er vel ásættanleg. Frestun á
lögum um hagræðingarsjóð sjáv-
arútvegsins kemur heldur ekki á
sök ef tekst að afgreiða þau fyrir
miðjan janúar. Hitt er annað mál
að niðurstöður fjáiiagafrumvarps-
ins eru á tæpasta vaði og ég siæ
þvi föstu að í tengslum við kjara-
samninga sem verða vonandi gerð-
ir í byijun árs þurfi enn að herða
á ýmsum hnútum. Það er nauðsyn-
legt vegna þess að tilgangur
fjárlaganna við ríkjandi kringum-
stæður er fyrst og fremst að styðja
við stöðugleika í gengi og greiða
fyrir kjarasamningum með því að
draga stórlega úr lánsfjárþörf rík-
isins og stuðla þar með að lágri
verðbólgu og lækkun vaxta,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
MMM
Síðastliðið laugardagskvöld og
sunndagsnótt var samþykkt sem lög
frá Alþingi frumvarp til fjárlaga
árið 1992. Einnig var samþykkt
frumvarp um breytingar á lögum
um tekju- og eignaskatt. Það frum-
varp gerir m.a. ráð fyrir skerðingu
á barnabótum, einnig er þar kveðið
á um nokkra þrengingu á sjómanna-
afslætti en þó minni en upphaflega
hafði verið áformuð; nú er við það
miðað að sjómaður njóti sjómannaaf-
sláttar eftir fjölda lögskráningar-
daga, og séu þessir dagar 245 eða
fleiri allt árið skuli hann njóta fulls
afsláttar. Inni í því frumvarpi var
ákvæði um að arðgreiðslur megi
ekki draga frá skattskyldum tekjum
fyrirtækja en gildistaka þess ákvæð-
is er háð því að tekinn verði upp
skattur á fjármagnstekjur. Einnig
var samþykkt frumvarp um fram-
lengingu á jöfnunargjaldi.
Mikið ósamkomulag hefur verið
um afgreiðslu ýmissa þingmála, sér-
staklega þeirra sem tengjast Ijárlag-
afrumfrumvarpinu og ríkisljármál-
unum. Var um það rætt að þingið
yrði að koma saman milli jóla og
nýárs svo þessi mál yrðu afgreitt.
Að lokum tókst samkomulag milli
stuðingsmanna ríkisstjórnarinnar og
stjórnarandstöðunnar um að fresta
afgreiðslu nokkurra mála fram yfir
áramót, s.s. frumvarp til lánsfjárlaga
og frumvarp um sérstakar ráðstaf-
anir í ríkisíjármálum á næsta ári,
ennfremur frumvarp um Hagræð-
ingarsjóð Sjávarútvegsins.
Síðastliðinn laugardag voru einnig
samþykkt sem lög frá Alþingi nokk-
ur mál sem ekki var ágreiningur um
milli þingflokkanna: um Verðlagsráð
sjávarútvegsins, um almannatrygg-
ingar, um vatnsveitur sveitarfélaga,
um meðferð einkamála.
Jöfnunargjald fram-
lengt í níu mánuði
FRUMVARP um að fresta niðurfellingu jöfnunargjalds í níu mánuði
á næsta ári var samþykkt á Alþingi um helgina. Tveir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, Vilhjálmur Egilsson og Ingi Björn Albertsson, greiddu
einir þingmanna atkvæði á móti frumvarpinu en nokkrir þingmenn
stjórnarandstöðunnar gengu til liðs við ríkisstjórnina og samþykktu
frumvarpið eftir að sú breyting hafði verið gerð að gjaldið var fram-
lengt í níu mánuði í stað sex eins og ríkissljórnin hafði gert tillögu um.
í fjárlagafrumvarpinu var upphaf-
lega gert ráð fyrir að jöfnunargjald
á innfluttar iðnaðaivörur yrði fellt
niður um áramót. Sú bréyting var
svo gerð í meðferð Alþingis að fresta
niðurfellingunni um sex mánuði og
átti að afla með þvi 350 millj. kr.
með gjaldtökunni. Hin endanlega
afgreiðsla þýðir að áætlað er að inn-
heimtai' verði 180 millj. kr. til viðbót-
ar en jöfnunargjaldið verði svo fellt
niður í lok september.
Ingi Björn sagði að leggja hefði
átt jöfnunargjaldið niður þegar virð-
isaukaskattskerfinu var komið á. í
ársbytjun 1990. „Þessi skattur er
síðan framlengdur og er í mínum
huga orðinn einn af þessum föstu
framlengingarsköttum okkar, svipað
og skatturinn á skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði. Þessi skattur heldur
þar að auki uppi verðlaginu í Iand-
inu. Því var ég á móti honum,“ sagði
hann.
Meginrök Vilhjálms gegn jöfnun-
argjaldinu eru að það sé brot á frí-
verslunarsamningum. íslands við
EFTA og EB. Það hafi verið hugsað
til að vega upp á móti uppsöfnunar-
áhrifum söluskatts en þegar virðis-
aukaskattinum hafi verið komið á
hafi lagalegar forsendur fyrir gjald-
tökunni brostið. Vilhjálmur er fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs Islands
sem hefur boðað að verði gjaldið
framlengt muni verslunarráðið láta
reyna á fyrir dómstólum hvaða rétt-
arstöðu fríverslunarsamningarnir
veili.