Morgunblaðið - 25.02.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992
Barentshaf:
25
Kosið 17.
marsí
S-Afríku
F.W. de Klerk,
forseti Suður-
Afríku, hefur
ákveðið, að
þjóðarat-
kvæðagreiðs-
lan meðal
hvítra manna
um afstöðu
þeirra til um-
bótastefnu stjórnarinnar verði
17. mars. Þá verða þijár milljón-
ir hvítra kjósenda spurðir þess-
arar spurningar: „Styðurðu
áframhald þeirra umbóta, sem
forsetinn hófst handa við 2. fe-
brúar 1990, og hafa að
markmiði að ná samningum um
nýja stjórnarskrá?" De Klerk
ætlar að segja af sér bíði hann
ósigur í atkvæðagreiðslunni en
til hennar var boðað vegna ósig-
urs stjómarflokksins, Þjóðar-
flokksins, í aukakosningunum
nýlega. Missti hann þingsæti í
hendur íhaldsflokknum, sem
berst fyrir fullri aðskilnaðar-
stefnu.
Eistlendingar gagnrýndir
Vítalíj Tsjúrkín, talsmaður rúss-
neska utanríkisráðuneytisins,
gagnrýndi eistnesk stjórnvöld í
gær fyrir að gefa samverka-
mönnum nasista frá því í seinni
heimsstyijöldinni upp sakir. Vís-
aði Tsjúrkín til ákvörðunar eist-
neska þingsins um að náða þá
sem sakfelldir voru af sovéskum
dómstólum eftir stríð. Ekki hef-
ur fengist staðfest í Eistlandi
að slík ákvörðun hafi verið tekin.
Flóttafólkið
aftur heim
Hæstiréttur Bandaríkjanna hef-
ur úrskurðað, að stjórnvöld hafi
fulla heimild til að senda aftur
heim þúsundir Haitibúa, sem
leitað hafa til Bandaríkjanna að
undanförnu. Féllst rétturinn á
röksemdir stjórnarinnar, sem
sagði, að fólkið væri að flýja bág
kjör á Haiti en ekki pólitískar
ofsóknir. Var úrskurðurinn
kveðinn upp daginn eftir að her-
foringjastjómin á Haiti og
stjórnarandstaðan náðu sam-
komulagi um að koma aftur á
lýðræði og kalla heim Jean-
Bertrand Aristide forseta. Var
um það samið fyrir milligöngu,
Samtaka Ameríkuríkja.
Honecker á
sjúkrahús
Erich Honecker, fyrrum leiðtogi
austur-þýskra kommúnista, var
lagður inn á sjúkrahús í Moskvu
í gær en hann hefur haldið til
í chíleska sendiráðinu í borginni
í 11 mánuði. Helmut Kohl
Þýskalandskanslari sagði í gær,
að hann hefði ekkert á móti
því, að Honecker færi á rúss-
neskt sjúkrahús svo fremi hon-
um væri ekki leyft að fara til
Chíie. Þjóðveijar vilja, að Honec-
ker verði framseldur þeim.
Honecker, sem er 79 ára að
aldri, var lagður inn á Botkín-
stofnunina í Moskvu en hann
er með krabbamein. Er hann
mjög sjúkur og þýska dagblaðið
Kurier am Sonntag hefur það
eftir eiginkonu hans, Margot,
að hann sé þegar búinn að velja
tónlistina við útför sína.
Breytingar á
Alsírstjórn
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á ríkisstjóm Alsírs og er
það liður í tilraunum valdahaf-
anna til að taka á ástandinu í
landinu, fátækt og atvinnuleysi.
Stjórnarandstaða heittrúar-
manna hefur þó gagnrýnt þær
og segir augljóst, að allt muni
sitja við það sama.
Reuter
Lögreglumaður í átökum við stuðningsmenn kommúnista á MajaTtovskíj-torginu í Moskvu á sunnudag.
Harðlínukommar ruddust í gegnum lögreglugirðingar og héldu ólöglegan útifund í grennd við Kreml
til þess að minnast þess að 74 ár voru liðin frá því Sovéthernum fyrrverandi var komið á laggirnar.
Lögreglan berst við
kommúnista í Moskvu
Rússar játa
umframveiði
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fróUaritara
Morgunblaðsins.
RÚSSAR hafa í fyrsta skipti við-
urkennt að togarafloti þeirra
veiði umfram leyfilega kvóta í
Barentshafi. Norska fréttastofan
NTB hefur eftir Valerij Sjleinik,
aðstoðarforstjóra hafrannsókna-
stofnunarinnar í Murmansk, að
rússneskir togarar hafi veitt um-
fram kvóta í fyrra.
Samkvæmt opinberum tölum
lönduðu togarar frá Sovétríkjunum
fyrrverandi rúmlega 40.000 tonnum
af „rússaþorski" hjá norskum fisk-
vinnslufyrirtækjum í fyrra. Það sam-
svarar ríflega þriðjungi rússneska
þorskkvótans fyrir árið 1991. Þess
vegna hafa Norðmenn haft lúmskan
grun um að Rússar hafi veitt umtal-
svert fram yfir kvóta. Menn halda
að miklu meiri fiski hafi verið landað
í Noregi en fram kemur í opinberum
tölum. Á þann hátt hafa rússneskir
sjómenn fengið kærkomnar svartar
tekjur og fiskvinnslufyrirtækin mjög
ódýrt hráefni. Samkvæmt fréttum
NTB hafa rússnesku togararnir ver-
ið með meiri afla um borð en gefíð
var upp til útgerðanna heima á Kóla-
skaga. Það sem á milli bar var selt
í Noregi og áhöfnin skipti andvirðinu
Moskvu. The Daily Telegraph.
Öryggislögreglan í Moskvu
barðist við nokkur þúsund
harðlínukommúnista á götum
borgarinnar á sunnudag er
Rússar héldu upp á „Dag hers-
ins“. Þetta er í fyrsta sinn í að
minnsta kosti tvö ár sem lög-
reglan hefur þurft að beita
kylfum gegn mótmælendum í
borginni þrátt fyrir mikla ólgu
vegna versnandi lífskjara.
Mótmæléndurnir hrópuðu víg-
orð gegn fasisma og zíonisma að
lögreglunni, brutust framhjá röð
lögreglumanna á Tverskaja-götu
og reyndu að leggja blómsveiga
að leiði óþekkta hermannsins við
Kremlarmúra. Fólkið kastaði
gijóti og flöskum að lögreglunni
og reyndi að velta lögreglubifreið
sem varð á vegi þess. Fréttastofan
TASS sagði að um 10.000 manns
hefðu tekið þátt í mótmælunum
og virt þannig að vettugi bann
borgarstjórans við útifundum í
miðborg Moskvu.
Ennfremur kom til átaka við
vesturenda Kremlar. Viðbrögð
lögreglunnar þar voru fumkennd
og hún virtist ekki vita hvernig
hún ætti að taka á mótmælendun-
um. Nokkrir lögreglumenn urðu
viðskila við félaga sína og það eina
sem virtist bjarga þeim frá bar-
smíðum var hár aldur árásar-
/ICCORD
Verð frá: 1.548.000,-
Greiáslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00- 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
(0 1
mannanna. „Beijið þá, lúskrið á
þeim, hundunum,“ hrópaði gamall
maður sem hvatti fólkið til dáða.
Sjónvarpið í Moskvu sýndi myndir
af aldraðri konu sem reyndi árang-
urslaust að rífa spýtu úr girðingu
til að geta beitt henni sem barefli.
Á meðal þeirra sem ávörpuðu
mótmælendurna voru nokkrir her-
menn. Hvatt var til þess að Borís
Jeltsín yrði dreginn fyrir rétt og
mótmælendur púuðu í hvert sinn
sem minnst var á Jevgeníj Shapos-
hníkov, yfirmann herafla Sam-
veldis sjálfstæðra ríkja. Mótmæ-
lendurnir kröfðust þess að herinn
yrði ekki leystur upp. Margir héldu
á myndum af Jósef Stalín og átt-
menningunum sem reyndu að
ræna völdunum í ágúst. Aðrir fóru
ekki leynt með andúð sína á gyð-
ingum. „Á meðan einn gyðingur
er enn í Rússlandi öðlumst við
ekki frelsi," hrópaði einn mótmæ-
lendanna að lögreglumanni.
Hjólsagarblöð
þau endast!
ÁRVÍK
ARMÚU 1-HEYKJAVlK-SlMI 687222 -TELEFAX 687295
„Lengi lifi rússneska intifadan,1'
hrópaði annar í hátalara.
á milli sín. Sölurnar voru ekki til-
kynntar norsku fisksölusamlögun-
um.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
NAMSKEIÐ
FYRIR BÖRN
9 ÁRA OG ELDRI
Körfugerð 3. mars-7. apríl,
þriðjudaga kl. 10.00-12.00 f.h. - kr. 7.000,-
Myndvefnaður 7. mars-11. apríl,
laugardaga kl. 10.00-12.00 f.h. - kr. 7.000,-
Útskurður 4. mars-8. apríl,
miðvikudaga kl. 16.00-18.00 - kr. 7.000,-
Prjón 3. mars-7. apríl,
þriðjudaga kl. 16.00-18.00 - kr. 9.000,-
Leðursmíði 5. mars-9. apríl,
fimmtudaga kl. 16.00-18.00 - kr. 9.000,-
I
A
í
.1
A
I
'i
NAMSKEIÐ
FYRIR FULLORÐNA
Bútasaumur 3. mars-7. apríl,
þriðjudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Prjóntækni 12. mars-9. apríl,
fimmtudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Fatasaumur, sumarfatnaðurb. mars-30. apríl,
fimmtudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 10.000,-
Útskurður 12. mars-30. apríl,
fimmtudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Tóvinna 4. mars-8. apríl,
miðvikudaga kl. 19.30-22.30 - kr. 8.000,-
Litaðar körfur 16. mars-6. apríl,
mánudaga kl. 20.00-23.00 - kr. 5.000,-
Skrifstofa skólans er opin mánud.-fimmtud.
kl. 16.00-18.00 og föstudaga kl. 9.00-11.00.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans í
síma 17800.
i
V
>