Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992
Systir okkar, + ÁSDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vatnsstíg 11,
lést á gjörgæsludeild Landakotsspítaia þann 20. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 26. febrúar
kl. 15.00. Júlíus Bjarni Guðmundsson, Jón Guðmundur Guðmundsson, Jens Guðmundsson,
Birgir Guðmundsson, Örn Guðmundsson.
I
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON
sjómaður,
áðurtil heimilis
íVesturbergi 142, Reykjavik,
lést á Hrafnistu 17. febrúar, verður
jarðsunginn í Bústaðakirkju í dag,
þriðjudaginn 25. febrúar, kl. 15.00.
Guðfrfður Guðmundsdóttir,
Elín V. Guðmundsdóttir,
Bjarni Guðmundsson,
Ragnar Guðmundsson,
Kristinn Guðmundsson,
Jörgen Berndsen,
Sigríður Guðmundsdóttir,
Björn Möller,
Sigurgeir V. Sigurgeirsson,
Sigriður Brynjólfsdóttir,
Geira Kristjánsdóttir,
Erna Ágústsdóttir,
Bill Presker.
Móðir okkar,
HALLDÓRA MAGNÚSDÓTTIR,
andaðist að kvöldi 23. febrúar.
Magnús, Ragnheiður og Guðrún Þórðarbörn.
+
Elskuleg móðir mín,
HELGA RUNÓLFSDÓTTIR,
Vesturási31,
lést í Landspítalanum 22. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Hrönn Ásgeirsdóttir.
+
Faðir okkar og afi,
HLÖÐVER JÓNSSON,
bakarameistari á Eskifirði,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu, Neskaupstað, sunnudaginn
23. febrúar.
Jökull Hlöðversson,
Snorri Hlöðversson,
Ragnheiður Hlöðversdóttir,
Grfmhildur Hlöðversdóttir,
Kolbeinn Hlöðversson,
Arnljótur Hlöðversson,
Hrafnkell Hlööversson,
Logi Hlöðversson
og barnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA MARÍA BJARNADÓTTIR,
Dalatanga 25,
Mosfellsbæ,
lést á Vífilsstaðaspítala 22. febrúar sl.
Steindór Marteinsson,
Guðríður Steindórsdóttir, Gunnar Þorvaldsson,
Herdfs Steindórsdóttir, Snæbjörn Ingvarsson,
Þorgeir Lawrence
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA A. EYJÓLFSDÓTTIR,
Njálsgötu 65,
lést aðfaranótt 22. þ.m.
Ragnheiður Ágústsdóttir,
Kristín Þ. Ágústsdóttir, Sigurður Örn Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Guðmundur Eyjólfs-
son, sjómaður
Tengdafaðir minn Guðmundur
Eyjólfsson andaðist þann 17. febrú-
ar á Hrafnistu í Reykjavík, mig
langar að minnast hans með nokkr-
um orðum. Guðmundur fæddist á
Grund í Reyðarfirði 6. ágúst 1914.
Foreldrar hans voru Elín Kráksdótt-
ir frá Fáskrúðsfirði og Oddur Guð-
mundsson frá Reyðarfírði. Börn
Elínar og Odds voru fjögur, Bjarni,
sem er látinn fyrir mánuði, María,
sem er látin og fjórða bamið dó í
æsku.
Guðmundur fluttist til Reykjavík-
ur tólf ára gamall. Þar fór hann í
fóstur til móðurbróður síns Eyjólfs
og konu hans Jóhönnu, sem síðar
ættleiddu hann. Guðmundur fór
ungur til sjós, aðeins fjórtán ára
gamall og var síðan alla tíð á sjó
eða í 45 ár fyrst á togurum en síð-
ar á strandferðaskipum Skipaút-
gerðar ríkisins og var þar uns hann
fór á eftirlaun. Guðmundur giftist
Matthildi Björgu Matthíasdóttur á
annan í jólum 1942. Áttu þau sam-
an fjögur börn, Guðfríði, Elínu,
Bjama og Ragnar. Guðmundur átti
þijú böm áður, Sigríði, Kristin og
Jörgen.
Eg kynntist Guðmundi fyrir 30
ámm er ég giftist dóttur hans Guð-
fríði. Fyrstu árin vann hann mikið
að heiman vegna vem sinar á togur-
um en eftir að hann fór að vinna
hjá Ríkisskip hafði hann meiri tíma
með fjölskyldunni, þá kynntumst
við nánar. Eigum við margar góðar
minningar frá Hæðargarði og Vest-
urbergi 142. Börnunum okkarþótti
alltaf gaman að koma til afa og
ömmu og vildu helst vera þar öllum
stundum. Ogleymanlegar voru ferð-
irnar sem drengimir mínir fengu
að fara með afa sínum á ms. Heklu,
tala þeir enn um þær ferðir. Guð-
mundur hafði gaman af útiveru og
veiðiferðum í ám og vötnum og
fórum við saman í margar slíkar
ferðir.
Guðmundur missti heilsuna fyrir
nokkmm árum. Fór hann þá á
Hrafnistu í Reykjavík þar sem hann
var til dauðadags. Vil ég votta börn-
um hans og fjölskyldum þeirra sam-
úð mína, einnig vil ég þakka starfs-
fólki á Hrafnistu, deild 3B, fyrir
frábæra umönnun og hlýlegt við-
mót.
Drottinn, þinnar ástar óður
endurhljómi’ um jörð og höf.
Breiddu þína blessun yfir
blóma lífs og þögla gröf
Vígi og skjöldur vertu þeim,
sem vinda upp hin hvítu tröf.
Drottinn, þinnar ástar óður
endurhljómi’ um jörð og höf.
(J.Magnússon)
Björn Möller.
Eg beini sál minni að helsins hafi,
sem handan við sól drekkur lífs míns straum.
Ég sé minn himin með sólbjarmatrafi
við sjóndeild blandast skugganna kafi
og sekk mér í hugar míns dýpsta draum.
(E.Ben)
Á dvalarheimili aldraða sjó-
manna í Reykjavík lést tengdafaðir
minn Guðmundur Eyjólfsson þann
17. febrúar, eftir erfíða sjúkdóms-
legu. Þar dvaldist hann, síðastliðin
6 ár, ásamt eiginkonu sinni Matt-
hildi Matthíasdóttur, en hún lést
árið 1987. Guðmundur Eyjólfsson
fæddist á Grund í Reyðarfirði þann
6. ágúst 1914. Foreldrar hans voru
Oddur Guðmundsson og Elín Val-
gerður Kráksdóttir, systkini hans
voru Bjarni sem lést 13. janúar síð-
astliðinn og María sem er látin fyr-
ir nokkrum árum. Einnig átti hann
systur sem lést á barnsaldri.
Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur
1926. Þar fór Guðmundur fljótlega
í fóstur til ættingja sem síðar ætt-
leiddu hann. Þau voru Eyjólfur
Kráksson og Kristrún Jónsdóttir.
Það stóð til að Guðmundur færi til
náms, en örlögin urðu þau, að vegna
veikinda þeirra varð ekkert úr því.
Hann fór því ungur að árum að
vinna og voru það ýmis störf sem
hann stundaði. Sjórinn var samt
alltaf ofarlega í huga hans, enda
hafði hann stundað sjómennsku á
opnum bát með föður sínum. Guð-
mundur starfaði sem sjómaður í
hartnær 50 ár. Fyrstu árin var
hann aðallega á togurum. Guð-
mundur var orðlagt hraustmenni
og hamhleypa til vinnu. Var hann
því eftirsóttur sjómaður. Guðmund-
ur var í skipsrúmi með mörgum
þekktum aflaklóm. Meðal annars á
Marsinum með Markúsi, sem hann
mat mikils.
Margar eru raunir sjómannsins.
Eitt sinn slasaðist Guðmundur illa
um borð í togaranum Jóni forseta
er hann festist í spilinu og brotnaði
illa. Mesta raunin var líklegast 1959
þegar hann lenti í ofsaveðri á Ný-
fundnalandsmiðum á togaranum
Bjama riddara. Var óttast um af-
drif þeirra um tíma, en í því veðri
fórst togarinn Júlí með allri áhöfn.
Til Skipaútgerðar ríkisins réðst
Guðmundur 1960 og var hafln fyrst
á ms. Heijólfi og síðar á ms. Heklu,
ýmist sem bátsmaður eða háseti. Á
stríðsárunum fékkst Guðmundur
við bifreiðastjórastörf og ók bæði
fólks- og vörubílum.
Guðmundur kvæntist Matthildi
Matthíasdóttur, mikilli sómakonu,
árið 1943, sem var hans mesta
gæfuspor. Guðmundur reyndist
henni hin mesta stoð og stytta í
hennar veikindum, sem hún átti við
að stríða í fjöldamörg ár. Umburð-
arlyndi hans var einstakt. Guð-
mundur og Matthildur áttu saman
fjögur börn. Þeirra elst er Guðfríð-
ur, gift Bimi Möller sölumanni og
eiga þau fjögur böm og tvö barna-
börn. Elín Valgerður, gift Sigur-
geiri Sigurgeirssyni vinnuvélaeig-
anda og eiga þau tvær dætur.
Bjami múrari og á hann eina dótt-
ur, Ragnar múrarameistari, kvænt-
ur Sigríði Brynjólfsdóttur og eiga
þau þtjú börn og eitt bamabarn.
Guðmundur átti áður þijú börn með
Jóhönnu J. Guðjónsdóttur: Sigríði
Presker sem gift er Bill Presker og
býr í Bandaríkjunum, eiga þau þrjú
börn, Kristin, kvæntur Geiru Kristj-
ánsdóttur og eiga þau fjögur börn
og Jörgen Berndsen, kvæntur Emu
Ágústsdóttur og eiga þau þijú böm.
Er ég kynntist eiginkonu minni
bjó fjölskyldan í Hæðargarði 18 og
var mér tekið með opnum örmum.
Heimili þeirra bar vott um þá sem
þar bjuggu því þar var snyrtimenn-
skan í fyrirrúmi. Ég átti þar marg-
ar ánægjustundir.
Guðmundi gafst ekki mikill tími
til að stunda sín áhugamál þegar
hann var á sjónum, sem var stang-
veiði, en það breyttist þegar hann
kom í land. Þær vom ófáar stund-
irnar sem hann átti við vötn og ár,
með góðum vinum. Af öðmm ólöst-
uðum vom þær stundir honum
kærastar, þegar þeir bræðurnir fóm
saman í veiði. Guðmundur og Bjarni
vom mjög samrýmdir enda var
Bjami tíður gestur á heimili þeirra
hjóna. Hann átti hug og hjörtu
barna Guðmundar og Matthildar
og skírðu þau eitt barna sinna í
höfuð hans.
Það var oft glatt á hjalla þegar
þeir bræður tóku lagið, enda voru
þeir söngelskir og var til þess tekið
hvað þeir sungu vel. Ég vil þakka
Guðmundi fyrir samfylgdina, þau
góðu kynni og það vinaþel, sem ég
varð aðnjótandi, sérstaklega þá
umhyggju sem hann sýndi mínum
dætmm.
Guð blessi hann.
Sigurgeir Vilhelm
Sigurgeirsson.
Það er erfitt að setjast svona
niður til að skrifa kveðjuorð um
afa, Guðmund Eyjólfsson, hann
hefur skilið svo mikið eftir sig því
hann var yndisleg persóna og ég
mun ætíð sakna hans. Hann gaf
mér mjög mikið og öllum í kringum
sig. Ég minnist sérstaklega góðu
stundanna þegar ég kom í heimsókn
til afa og ömmu upp í Vesturberg.
Afí sá til þess að mér væri aldrei
kalt, amma um að ég væri aldrei
svöng og þau bæði um að mér leidd-
ist alls ekki. Með þessum orðum
vil ég þakka elsku afa mínum fyrir
allar okkar yndislegu stundir. Afí
og amma voru mjög samrýnd þó
að afi hafi eytt miklum tíma á sjó.
Hann var mikill sjómaður og hetja
í mínum augum því ég hræddist
sjóinn. Afí er búinn að sigla í burtu
núna yfir móðuna miklu og það á
lygnum sjó, svo ég hræðist hvergi.
Soffía S. Sigurgeirsdóttir.
+
ÞÓRUNN BJARNADÓTTIR
frá Keflavík
Systkinabörnin.
+
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
FANNEYJAR MAGNÚSDÓTTUR,
fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 13.30.
Steinunn Ósk Magnúsdóttir, Björn Ásgeirsson,
GuSbjörg Jóna Magnúsdóttir, Gunnar Asbjörnsson,
Þórunn Magnúsdóttir, Guðmundur Guðbjarnason
og barnabörn.