Morgunblaðið - 29.02.1992, Qupperneq 10
i t.
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992
Asta Olafsdóttir
________Myndlist____________
Eiríkur Þorláksson
í efri sölum Nýlistasafnsins við
Vatnsstíg hefur listakonan Ástríður
Ólafsdóttir komið fyrir tíu verkum,
þar sem birtan og ferskleikinn ræð-
ur ríkjum. Ásta nam við nýlista-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands, og síðan við Jan Van Eyck-
Akademíuna í Maastricht, Hollandi,
eins og fleiri yngri myndlistarmenn
landsins. Hún hefur tekið þátt í
sýningum bæði hér á landi og er-
lendis frá 1979. Jafnframt hefur
Ásta skrifað þijár bækur, og hin
seinasta þein-a, „Vatnsdropasafn-
ið“, liggur frammi á sjningunni.
Á síðasta ári dvaldi Ásta um fjög-
urra mánaða skeið í norrænni
gestavinnustofu í Sveaborg við
Helsinki í Finnlandi, og þar kvikn-
uðu hugmyndirnar að nokkrum
verkanna á sýningunni.
Listakonan kemur sér beint að
efninu í ávarpi til gesta í sýningar-
skrá: „Mig langaði til þess að búa
til einföld og tær verk. Til þess
nota ég fersk efni sem ég dulbý
ekki. Viðurinn er ómálaður, leirinn
er án glerungs, lopinn er óspunn-
inn. Um verkin leikur loft sem er
kjarni þeirra.
Eftir þessari ætlan gengur sýn-
ingin. í sal á miðhæð eru þrjú olíu-
málverk, þar sem getur að líta eins
konar grindur á hvítum grunni.
Aðrir litir læðast í gegnum grunn-
inn, og yfir línunum hvílir eins kon-
ar hula, sem gefur teikningunni
eilítið dulúðlegan blæ; þessar mynd-
ir verka í huga gestsins sem eins
konar aðdragandi að því sem síðan
getur að líta í salnum á hæðinni
fyrir ofan.
í efsta sal safnsins hefur verið
komið fyrir sjö verkum, þar sem
furan og leirinn eru mest áberandi
efnin. Flest byggjast verkin upp á
trégrindum, þar sem þægileg hlut-
föll ráða ríkjum. Upphengdur
pijónadregill gefur salnum ögn
heimilislegan blæ, og verk nr. 8,
þar sem heilu íbúðarhúsin rísa upp
úr súpudiskum, auka enn frekar á
þann skemmtilega svip.
Þessi verk eru öll opin og björt,
BSRB heldur upp
á 50 ára afmæli
UM ÞESSAR mundir eru liðin
fimmtíu ár frá stofnun BSRB -
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. Að stofnun bandalagsins
stóðu 14 félög með um 1.500 fé-
lagsmenn innan sinna vébanda.
í dag eru aðildarfélögin 38 og
fjöldi félagsmanna um 16.000.
í tilefni afmælisins efnir BSRB
til samkomu í Borgarleikhúsinu
laugardaginn 29. febrúar kl. 15.00
til 17.30. Að lokinni dagskrá verður
móttaka í anddyri leikhússins. Sér-
stök afmælisnefnd hefur haft veg
og vanda af undirbúningi samkom-
unnar og er það von hennar að
BSRB-félagar og aðrir velunnarar
samtakanna líti inn í tilefni þessara
tímamóta.
BSRB gegnir því hlutverki að
styðja og efla aðildarfélög sín í því
að skapa gagnkvæman skilning og
samstöðu þeirra í baráttunni fyrir
stéttarlegum, félagslegum og
menningarlegum hagsmunum;
styrkja réttarstöðu opinberra
starfsmanna og vera í forsvari fyrir
þeim í sameiginlegum hagsmuna-
málum. Hálfrar aldar saga BSRB
er vörðuð áföngum í baráttunni
fyrir nýjum og auknum réttindum
félagsmanna og má nefna samn-
ings- og verkfallsrétt, lífeyrisrétt
og greiðslur launa í veikinda- og
fæðingarorlofi.
BSRB hefur jafnan lagt áherslu
á að vinna að auknum skilningi á
þýðingu opinberrar þjónustu. Af
þessu leiðir að samtökin hafa lagt
áherslu á að láta til sín taka í þjóð-
málaumræðunni og hafa áhrif á
framvindu mála á hverjum tíma.
Mikilvægasta hlutverk BSRB er nú
sem áður að standa vörð um heild-
arhagsmuni félagsmanna og vinna
að stöðugleika og velferð í íslensku
þjóðfélagi.
(Fréttatilkynning)
01 Q7H LÁRUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJQRk ,
(m 1 I yW* I 0 / V KRISTINN SIGURJÓNSS0N, HRL. lóggiltjr fasteiGnasáu
Til sölu eru að koma m.a. eigna:
Glæsileg sérhæð við Stigahlíð
Neðri hæð 146,8 fm öll nýlega endurbyggð. 4 svefnherb. Góður bílsk.
28 fm. Eignaskipti möguleg.
Góð „stúdíó“-íbúð við Miklatún
3ja herb. endaíb. á 1. hæð 87,9 fm. Parket. Sólsvalir. Nýleg eldhús-
innr. Glæsil. trjágarður. Laus strax.
í lyftuhúsi - frábært útsýni
2ja herb. íbúð á 4. hæð við Arahóla. Svalir - sólstofa. Húsið nýklætt
utan. 40 ára húsnæðislán kr. 2,2 millj.
Góð íbúð á góðu verði
4ra herb. íbúð á j. hæð við Eskihlíð 103,3 fm nettó. Nýlegt gler. Gott
skáparými. Rúmgott geymslu- og föndurherb. í kj. Húsið nýsprungu-
þétt og málað utan.
Á góðu verði í lyftuhúsi
Glæsileg einstaklingsíb. 2ja herb. á 6. hæð, 54 fm við Asparfell.
Parket. Sólsvalir. Mikil og góð sameign. Laus strax.
Verð aðeins kr. 4,3-4,5 millj.
Skammt frá Háskólanum
2ja herb. sólrík kjallaraíb. í reisulegu steinhúsi við Ásvallagötu, ekki
stór, vel skipulögð. Sérhiti. Sanngjarnt verð.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
Sérstaklega óskast á skrá 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir miðsvæðis í borg-
inni. Ennfremur einbýli, ekki stór og sérhæðir í Vesturborginni og mið-
svæðis. Margskonar eignaskipti,
• • •
Opið í dag kl. 10-16.
Viðskiptum hjá okkur fylgir
ráðgjöf og traustar upplýsingar _____________________
Margskonar eignaskipti. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGHASALAH
Ragnheiður
Hrafnkelsdóttir
Ásta Ólafsdóttir.
og því leikur rýmið stórt hlutverk
í þeim, eins og fyrr getur. Fjórskipt-
ing verks nr. 5 þar sem vatns-
kanna, glös og eldspýtnahrúga ríkja
í hverjum hluta, er skemmtileg og
einföld samsetning þar sem frum-
efnin eru í lykilhlutverki. Orkan
gegnir síðan mikilvægu hlutverki,
auk frumefnanna, í verki nr. 10,
þar sem sífellt sterkari ljós eru
kjarni hinna fimm eininga verksins.
I verkunum á sýningunni tekst
listakonunni vel til við ætlun sína
um að skapa einföld og tær verk.
Slíkur tærleiki er mikilvægur þáttur
í myndsýn listamanna, og nýtur sín
ulOllvel í þessu umhverfí. Hlutföil
og formskyn er einnig gott í þessum
verkum, og sýningin í heild gengur
því ágætlega upp._
Sýningu Ástu Ólafsdóttur í Ný-
listasafninu lýkur sunnudaginn 1.
mars.
/ Myndlist________________
Eiríkur Þorláksson
í neðri sölum Nýlistasafnsins við
Vatnsstíg stendur nú yfir sýning sem
listakonan Ragnheiður Hrafnkels-
dóttir (Ránka) hefur unnið. Ragn-
heiður stundaði sitt iistnám við Sko-
len for brugskunst í Kaupmanna-
höfn, og síðan við Gerrit Rietfeld
Akademie í Amsterdam. Loks hélt
hún vestur um haf, þar sem hún
stundaði nám við Pratt Institute í
New York á árunum 1989-91.
Ragnheiður vinnur í þessari sýn-
ingu meira út frá huglægum tilvís-
unum en myndrænum þáttum. Því
kunna verkin að birtast gestum á
annan hátt en þeir eiga von á, enda
éru þau jafn ólík hvert öðru og þær
tilvísanir, sem vakna við skoðun
þeirra. Þannig er í fyrsta salnum
aðeins eitt verk, hvítur léreftstrangi
sem nær eftir langvegg salarins; á
þennan stranga endilangan er saum-
að með rauðum þræði: Hansaplast
og hydroplast og hansaplast og ....
Menn geta þá litið verkið í sam-
hengi orðanna, efnanna eða tilvísun-
ar í aðra hluti, sem þannig eru áletr-
aðir (borða, sjúkrahúslín, hótellín
o.s.frv.)
í neðsta salnum koma saman fleiri
verk, ólík að upplagi og því inntaki
sem má leggja í þau, allt frá óreglu-
legu hringferli, sem myndað er af
tannstönglum, til nokkurra hvítra
vasaklúta, sem hafa verið áletraðir
með orðinu DISPOSABLE, þrátt
fyrir að uppsetning þeirra sé gerð
eins varanleg og hægt er, og sé
þannig í raun andstæða áletrunar-
innar!
Þessi verk vekja væntanlega mis-
munandi hughrif hjá gestum. Ef til
er teiknisögunni um Bazooka Joe
ætlað að leiða skoðandann á rétta
braut: Menn sjá umhverfið í gegnum
þau gleraugu sem þeir setja upp -
ef þau eru brotin, verður myndin
brotakennd; ef yfir þeim er hula
fordóma, birtist umhverfið í því ljósi.
í sýningarskrá segir listakonan:
„Þegar ólíkum efnum og hlutum er
raðað saman myndast ákveðin sam-
setning af mismunandi vísunum.
Hversu mótsagnakennd sem sam-
setningin kann að virðast er hún
orðin sýnileg staðreynd sem
skoðandinn tekur afstöðu til. Þessi
orð eru alltaf jafn sönn, en í þeim
gleymist að því miður kjósa æði
margir að taka alls enga afstöðu,
að leiða staðreyndir umhverfisins
þannig einfaldlega hjá sér.
Sýning Ragnheiðar byggir á
smáum hlutum, sem ef til vill hefðu
notið sín betur í minna plássi. í þess-
um tveimur sölum verður tómleiki
rýmisins óþarflega stór þáttur í sjón-
reynslu gestsins, og dregur athyg-
lina um of frá þeim vísunum, sem
listakonan hefur sett upp. En sú
tómleikatilfinning er vissulega einn-
ig ríkur þáttur í lífi nútímannsins,
ekki satt?
Sýningu Ragnheiðar Hrafkels-
dóttur í Nýlistasafninu lýkur sunnu-
daginn 1. mars.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 630. þáttur
Fyrst kemur framhald bréfs
Hjalta Pálssonar á Sauðárkróki,
sjá síðasta þátt:
„Ég gat þess áðan, að fjöl-
miðlar hefðu mikil málfarsleg
áhrif. Þar ber ekki sízt að nefna
auglýsingar í sjónvarpi, sem
börn horfa mikið á og læra utan-
að. Yfirleitt eru þær í lagi, en
það er mér nokkurt umhugsun-
arefni að sumar auglýsingarnar
í sjónvarpi eru farnar að ganga
út á algjöran fíflagang, svo
maður verður gáttaður og hrein-
lega gremst.
Með tilkomu hinna „frjálsu"
útvarpsstöðva virðist málfars-
legt aðhald orðið næsta lítið í
sumum stöðum. Hver bullu-
stampurinn eftir annan veltur
þar um gáttir og missir allt úr
sér. Nú er hið „skynsamiega
vit“, sem einu sinni var rómað
í máli, orðið lítiis metið, heldur
vaðinn elgurinn. Nú er orðið
þýðingarmeira að „vera hress“
en kunna móðurmál sitt sæmi-
lega. Er ömurlegt að heyra tal-
anda einstakra þáttagerðar-
manna, þótt margir séu ágætir
sem betur fer.
Mig langar hér að endingu
að víkja nokkrum orðum að
málvillum, sem undanfarið hafa
vaðið uppi í máli fjölmiðla-
manna. Af mörgu er að taka,
en ég ætla að takmarka mig við
tvö atriði, sem tengjast ferða-
mennskunni. Hefur a.m.k. önnur
villan náð festu á tungu almenn-
ings. Heyrst hefur að ferðaskrif-
stofur eða flugfélög séu farnar
að fijúga farþegum út um heim.
Ég hefði litia löngun til að eiga
samskipti við slíka aðila, þykir
þetta minna ískyggilega á
nornagandreið fyrri tíðar. Ég vil
hinsvegar láta fljúga með mig í
þotu og þá vil ég láta flugmenn
fljúga véiinni. Þetta gæti orðið,
ef ég væri að fara til útlanda
eða að fara utan. Ótrúlega
margir eru farnir að fara erlend-
is. Erlendis er staðaratviksorð,
táknar dvöl á stað, en ekki hreyf-
ingu til staðar. Þetta er eins og
segja einhvern vera að fara
heima. Þegar menn hins vegar
hafa farið utan, þá eru þeir er-
lendis þangað tiþ aftur er haldið
heim eða út til íslands. Gaman
væri ef takast mætti að kveða
þennan máldraug niður.“
Umsjónarmaður þakkar
Hjalta efnismikið og skörulegt
bréf og tekur undir ályktunarorð
hans.
★
Unglingur utan kvað:
Hann var enginn útkjálkakjáni
hann Kristján sem nefndur var Stjáni,
frá æsku til elli
fékk hann allt sitt í hvelli
og borgaði lánin með láni.
★
Vilborg Dagbjartsdóttir í
Reykjavík skrifar mér vinsam-
legt bréf og segir meðal annars:
„Þakka þér fyrir þættina um
ísienskt mái í Mogga, þá les ég
alltaf.
í þætti nr. 624 nefnir þú áhald
sem margir eiga en kunna ekki
nafn á. Vinkona mín, Arnfríður
Jónatansdóttir skáld, gaf mér
slíkt tæki. Hún kallaði það ljósa-
bana, sbr. orð skáldsins: „Grasa-
bani, komdu á fætur!“
Þú ert með mjög fallegt orð
skarhjálmur, sem tengist fal-
lega orðum eins og skarbítur
og kertahjálmur. Aldrei hef ég
heyrt neitt nafn á þessu en hef
spurt gesti, sem koma á mitt
heimili, hvað þeir kalli þennan
hlut. Flestir hrista höfuðið og
kunna ekkert nafn, sumir segja
„kertakæfa“ eða slökkvari. Arn-
fríður bjó til orðið ljósabani.
Gaman væri að vita hvað þetta
er kallað í gömlum skjölum um
eignir kirkna, margar kirkjur
hljóta að hafa átt skarhjálm á
löngu skafti.
Loks langar mig til að þakka
þér fyrir limrurnar sem eru í Iok
hvers þáttar ...“
Umsjónarmaður þakkar Vil-
borgu bréfið. Honum þykir orðið
ljósabani gott, en veit ekki hvort
nafn þessa fyrirbæris hafi fund-
ist í gömlum skjölum. Umsjónar-
maður ber ábyrgð á leturbreyt-
ingum í prentun bréfs V.D.
★
Ég hélt að menn hefðu loksins
lært að beygja nafnið höldur
sem m.a. er heiti á alkunnu fyrir-
tæki á Akureyri. En það virðist
enn þörf á kennslu. í blaðmynd-
artexta á dögunum var orðið að
vísu ekki vitlaust beygt, það var
ekki borið við að beygja það,
bara sagt að maður væri sölu-
maður hjá „Höldur“, rétt eins
og ég segði að ég ynni hjá
*Morgunblaðið eða að Jón væri
giftur henni *Sigríður. íslenska
er dæmigert beygingamál og
furða ef nokkur maður er svo
málsljór, að vilja hafa öll nafn-
orð í nefnifalli eintölu, á hverju
sem gengur.
Um orðið höldur er það enn
að segja, að beyging þess er svo
algeng og einföld sem verða má,
nákvæmlega eins og orðin hest-
ur og hundur: höldur, um höld,
frá höldi til hölds; höldar, um
hölda, frá höldum, til hölda.
Ekki' ríðum við á *hestur eða
eigum *hundur.
P.s. Ég sá um daginn í mynd-
artexta í sjónvarpinu enn eina
tilraun með orð í staðinn fyrir
nostalgíu. Ég held þetta hafi
verið hjá Ýri Bertelsdóttur. Nýja
orðið var þáþrá. Er það ekki
nothæft? Við eigum í tiibreyting-
arskyni orðin þátíðarþrá, for-
tíðarþrá og heimsótt. Nost-
algía var nefnilega talin til sjúk-
dóma forðum.