Morgunblaðið - 29.02.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.02.1992, Blaðsíða 47
 fUM- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992 47 félk f fréttum Barbra Streisand og Nick Nolte leika saman i nýju kvik- myndinni The Prince of Tides sem Barbra leik- stýrðijafn- framt. AFMÆLI Þau eiga afmæli fjórða hvert ár Fólkið á myndunum er allt úr Ólafsvík og eiga auk þess sameiginlegan afmælisdag sem er í dag, 29. febrúar. Þessi dagur er að sjálfsögðu sérstakur þar sem hann ber aðeins upp fjórða hvert ár og því þykir það nokkuð sér- stakt að fimm manns á svo litlum stað eigi þennan sama afmælis- dag. Á myndinni eru, efst frá vinstri: Sumarliði Örn Rúnarsson og Sigurdís Benónýsdóttir og í neðri röðinni eru Þorsteinn Gunnar Gunnarsson og Hákon Þorri Her- mannsson. Á innfelldu myndinni er Sigríður Sigurðardóttir. Það sem einnig er mjög sérstakt er að Sigurdís, Sumarliði og Sigríður halda öll upp á tvítugsafmæli sitt í dag og Þorsteinn og Hákon eru báðir tólf ára. Þess má einnig geta að Hákon og Sumarliði eru systkinabörn. Þessi dagur er því sérstakur fyrir þau og við óskum þeim öllum innilega til hamingju með daginn. HÆFILEIKAR Barbra Streisand leikstýrir og leikur í nýrri kvikmynd Morgunblaðið/Alfons Barbra Streisand hefur nú lokið við gerð kvikmyndarinnar The Prince of Tides, en hún bæði leik- stýrir og leikur eitt aðalhlutverkið í myndinni ásamt leikaranum Nick Nolte og hefur kvikmyndin fengið góða dóma vestanhafs. Barbra hef- ur greinilega ýmsa hæfileika en auk þess að vinna við kvikmyndir hefur hún sungið sig inn í hjörtu fólks um allan heim með söng sínum. Þegar hún var aðeins 27 ára gömul var hún eina manneskjan sem hafði unnið Tony-verðlaunin, Grammy- Morgunblaðið/Sig. Jóns. Skátar í Hveragerði ganga fylktu Iiði um götur Hveragerðis. HVERAGERÐI Skátar í hressilegu afmælisskapi Skátar í Hveragerði héldu upp á 80 ára afmæli skátahreyf- ingarinnar síðastliðinn laugar- dag eins og fjölmargir aðrir skát- ar í landinu. Skátarnir gengu fylktu liði undir íslenska fánanum frá fé- lagsheimili sínu, um götur Hveragerðisbæjar og að Ölfus- borgum þar sem fram fór sam- koma með veitingum, söng og annarri skemmtan. Þar mættu fjölmargir foreldrar og mikið var sungið. Þarna fengu nokkrir nýl- iðar afhentan gula klútinn sem viðurkenningarvott á góðu starfi. í lok samkomunnar skutu fé- lagar í Hjálparsveit skáta í Hveragerði 80 flugeldum. Sig. Jóns. Húsfyllir var í ölfusborgum á afmælissamkomunni. OLAFSVIK Þijú hundruð manns blót- uðu þorra Mikið og veglegt þorrablót var haldið í félagsheimili Ólafs- víkur fyrir skömmu. Hin ýmsu fé- lagasamtök á Ólafsvík stóðu að þorrablótinu og að sjálfsögðu var borinn fram hinn hefðbundni ís- lenski þorramatur sem verslunin Hvammur sá um. Einnig var mikið um heimatilbúin skemmtiatriði. Alls blótuðu um þrjú hundruð manns þorra þetta kvöld en hápunktur þess var karlakórinn Rjúkandi sem kom fram og söng við miklar og góðar undirtektir gesta og voru þeir félagar margsinnis klappaðir upp. í karlakórnum eru 19 manns en stjórnandi hans er Helgi E. Kristjánsson, skólastjóri Tónlistar- skólans. Lokapunktur kvöldsins var dansleikur með hljómsveitinni 7und frá Reykjavík og stóð hann langt fram undir morgun. - Alfons COSPER /V.b..& .. ^ .. . ^ -—. i ; Cosper „N"* , V, <C) PIB - Hvað við fengum boltann? - Forstjóri Glerverk- smiðjunnar gaf okkur hann. verðlaunin, Emmy-verðlaunin, Ósk- arsverðlaunin og Golden Globe- verðlaunin. Sjálf segir Barbra að röddin hennar sé gjöf frá Guði en hún hefur aldrei lagt stund á söng- nám. Hún segir að allt sitt líf hafi fólk sagt henni að hún myndi aldrei ná langt þar sem hún hefði stórt nef og væri ekki nógu falleg. Hún seg- ist hins vegar hafa sannað hið gagn- stæða í gegnum tíðina. Barbra segist trúa því að ekkert í lífinu sé tilviljun. Hún segir t.d. að hún hafi ákveðið að taka að sér leikstjórn nýju myndarinnar eftir að ljósin í herberginu kviknuðu sjálfu sér tvisvar sinnum eina nótt- ina og daginn eftir tilkynnti hún að hún ætlaði að taka að sér verk- efnið. Hún segir að þrátt fyrir að hún eigi marga góða vini hafi hún fund- ið fyrir einmanakennd þar sem frægð og frami hennar hafi gert fólk tortryggið gagnvart sér. Bílamarkadurinn Morgunblaðið/Alfons Einn kórfélaganna, Erlingur Helgason skipstjóri, tekur hér létta sveiflu á lítinn saxafón. Smiðjuvegi 46E v/ReykjanesbrauU Kopavogi, sími 671800 Willys '64, 8 cyl 350ci Allur endurnýjaður, V. 580 þús., sk. á ód. Honda Accord EXI 2,2 ’91,150 hö., sjálfsk., m/öllu, ABS, ek. 29 þ. V. 2,2 millj. Honda Clvlc GTI ’88, topplúga sumar/vetrardekk. Fallegur bíll. V. 980 þ., skipti. Peugout 205 Junior '91, hvítur, beinsk., ek. 11 þ. V. 590 þús. Honda Prelude EX 2,0 ’88, ek. 28 þ. Ýmsir aukahl. V. 1280 þús. Daihatsu Charade CS ’88, 5 dyra, ek. 45 þ. V. 530 þús., sk. á ód. Daihatsu Charade Sedan ’90, sjálfsk., ek. 18 þ. v. 820 þús., sk. á ód. Daihatsu Rocky 4x4 ’85, 2000, vökvast. ek. 86 þ. Gott eintak. V. 780 þús. Honda Civic GLi Sedan ’91, 5 g., ek. 11 þ, V. 1050 þús., sk. á ód. MMC Colt GLX '85, 5g., ek. 50 þ. V. 780 þús. MMC L-300 8 manna ’88, úrvalsbíll. V. 1280 þús., sk. á ód. Toyota Corolla 4x4 Touring XL '90, ek, 30 þ. V. 1260 þús. Mazda 323 1.8 Sedan 4x-4 ’91, ek. 16 þ V. 1180 þús. Dodge Aries LE ’88, 4 dyra, sjálfsk., ek. 52 þ. V. 820 þús. Ford Bronco II XL ’88, 5 g., ek. 37 þ. V. 1590 þús., sk. á ód. MMC Pajero Turbo diesel ’ 88, ek. 82 þ, Jeppi í sérfl. V. 1450 þús., sk. á ód. Ath. 15-30% staðgreifisluafsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.