Morgunblaðið - 29.02.1992, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.02.1992, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992 Kristín Siguijónsdótt- ir, Tindum — Minning Fædd 22. apríl 1915 Dáin 19. febrúar 1992 Hún elsku amma okkar er dáin og ætluðum við systkinin varla að trúa þessari sorgarfrétt, þegar hringt var til okkar snemma morg- uns 19. febrúar. Síðast höfðum við verið öll saman á aðfangadagskvöld eins og vant var og engum datt í hug að það væri í síðasta sinn. Hún amma var svo sérstök, alltaf hress og kát og við gátum alltaf leitað til hennar með alla hluti og trúað henni fyrir öllu. Henni var umhugað um menntun okkar, svo okkur gæti farnast sem best í lífinu og studdi hún okkur eins og hún gat í þeim efnum. Við vonuðum alltaf að hún fengi að lifa það að fá að sjá árangur af skólavist okkar en æðri máttarvöld tóku þar-í taum- ana. Við eigum henni ömmu okkar svo margt að þakka og engin kemur í hennar stað. Guð geymi elsku ömmu. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást, að hugir í gegnum dauðann sjást. Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur - síðar. (Jóhannes úr Kötlum.) Barnabörn. í dag kveðjum við í hinsta sinn Kristínu Sigurjónsdóttur, húsfreyju á Tindum, eða Stínu á Tindum eins og við í ættinni ætíð kölluðum hana. Hún lést á Héraðshælinu á Blöndu- ósi eftir stutta legu. Kristín fæddist 22. apríl 1915 á Tindum í Svínavatnshreppi. For- eldrar hennar voru Guðrún Erlends- dóttir og Siguijón Þorláksson, bændur á Tindum. Guðrún var ætt- uð frá Beinakeldu í Þingi, og Sigur- jón úr Skagafirði. Börn Guðrúnar og Sigurjóns voru sjö, Kristín er það fjórða af þeim sem kveður þennan heim. Kristín gekk í hús- mæðraskólann á Blönduósi á sínum ungdómsárum auk þess sem hún var við nám í vefnaði. Ennfremur fékk hún tilsögn í hljóðfæraleik. Kristín giftist 18. febrúar 1937 Lárusi Sigurðssyni bónda, f. 21. apríl 1906, d. 14. október 1983, þau eignuðust 3 böm. Sigurjón, bónda á Tindum, f. 7. september 1937; Gunnar, f. 1. janúar 1942, d. 19. mars 1948; Gunnhildi, f. 22. janúar 1951, húsfreyja á Blönduósi. Henn- ar maður er Sigurður Ingþórsson frá Uppsölum í Þingi, þeirra börn eru Lárus, Sigurjón og Kristín. Lárus á Tindum hafði mikla per- sónu til að bera sem gaman var að heimsækja og vera í samvistum við. Hann var flugmælskur og góður ræðumaður, sannur bændahöfðingi. Eftir giftingu hófu þau hjón bú- skap á Hamri á Ásum og bjuggu þar til ársins 1944 að þau tóku við fannst mjög gott að vera í návist afa og gott að vita af honum. Mig langar að enda þetta með fyrsta og síðasta erindinu úr Fákum eftir Einar Ben. Það var síðasta ljóðið sem afi bað mig að lesa fyrir sig á Landakotsspítalanum nokkrum dögum áður en hann dó. I morgunljómann er lagt af stað. Állt logar af dýrð, svo vítt sem er séð. Sléttan, hún opnast sem óskrifað blað, Þar akur ei blettar, þar skyggir ei tréð. - Menn og hestar á hásumardegi í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi með nesti við bogann og bikar með. Betra á duðlegi heimurinn eigi. Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest og hleyptu á burt undir loftsins þök. Hýstu aldrei þinn harm. Það er bezt. Að heiman, út, ef þú berst í vök. Það finnst ekki mein, sem ei breytist og bætist, ei böl, sem ei þaggast, ei lund, sem ei kætist við fjörgammsins stoltu og sterku tök. Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist. Maddý. Tindajörðinni eftir fráfall Siguijóns föður Kristínar. Þau tóku við jörð- inni í því ástandi sem jarðir voru í á þeim tíma, húsa- og ræktunarlitl- ar, en jarðnæði allgott til ræktun- ar. Hófu þau hjónin uppbyggingar- starf á jörðinni sem leiddi til þess að þegar þau hættu búskap var jörðin ein sú besta þar um slóðir. Eftir að Kristín hætti búskap sjálf gerðist hún ráðskona hjá Sig- uijóni syni sínum og gegndi því þar til nú eftir áramót að hún varð að fara á sjúkrahús. Það má því segja að hún hafi allt sitt líf verið á sama staðnum, það er á Tindum. Ekki fór hún mikil ferðalög um dagana frekar en aðrar alþýðukonur þess tíma, samt sem áður var alveg ótrú- leg þekking hennar á staðháttum víðs vegar um landið. Þessarar þekkingar aflaði hún sér með m.a. með lestri og því að hafa afburða- minni alveg fram á síðasta dag. Það eru margir unglingarnir sem hafa verið í dvöl á Tindum um dag- ana, bæði skyldir og óskyldir. Allir bera hlýhug til þessarar dvalar og margir hafa bundist Tindaheimilinu viðvarandi vinarböndum eftir dvöl- ina. Sérstök voru þau tengsl sem alla tíð voru milli þeirra systkina Krist- ínar við Tindaheimilið. Einkanlega voru tengsl foreldra minna við Tindaheimilið mikil. Síðustu árin dvöldu þau oft langtímum saman á Tindum. Kristín var ekki mikið fyrir að troða sér fram meðal almennings, en þegar hún gerði það var það með skörungsskap og festu, hún kom skoðunum sínum þannig fram að enginn var í vafa um þær. Mjög voru Kristínu ræktunarmál hugleikin og hafði hún yndi af að sýsla við garðrækt. Á Tindum voru til hljóðfæri frá gamalli tíð, m.a. orgel og síðan for- láta píanó, á þessi hljóðfæri lék Kristín oft, þó aðallega fyrir sjálfa sig eins og hún sagði oft. Veit ég til þess að hún samdi bæði lög og texta ef svo bar undir, án þess þó að mér sé kunnugt um að þeir hafi verið varðveittir. Hún var organisti í Svínavatnskirkju árum saman. Okkur frænd- og vinafólkinu hér fyrir sunnan er söknuður í huga þegar við sendum henni bestu kveðjur með þakklæti fyrir góða viðkynningu. Um leið og við vottum börnum hennar, tengdasyni og barnabörnum, okkar innilegustu samúð biðjum við Guð að fylgja henni á leið til ljóssins. Blessuð sé minning hennar. Gisli Erlendsson, Jónína Hjartardóttir og fjölskylda. Ekkert fær stöðvað framvindu tímans og enginn fær varist kalli hans. Nú er hún Kristín á Tindum ekki lengur meðal okkar og hefur skilið eftir sig tómarúm í lífi okkar sem eftir stöndum sem aldrei verð- ur fyllt á þann hátt sem henni var einni lagið. ; Ég sem hef álist upp og búið sem nágranni hennar og hennar fjöl- skyldu allt mitt líf og notið þeirrar miklu vináttu og hlýju sem alltaf hefur, ríkt milli heimila okkar, og aldrei hefur borið skugga á get ekki látið hjá líða að minnast henn- ar í örfáum orðum nú að leiðarlok- um. Kristín fæddist 22. apríl 1915. Dóttir hjónanna Siguijóns Þorláks- sonar sem var skagfirskrar ættar og Guðrúnar Erlendsdóttur frá Beinakeldu í Torfulækjarhreppi. Hófu þau búskap á Tindum í Svína- vatnshreppi 1909 og bjuggu þar meðan bæði lifðu. Siguijón var hinn mestu hagleikssmiður jafnvígur á tré og járn sem var ómetanlegur styrkur bónda á þeim tíma þegar bændur þurftu að vera sjálfum sér nægir um alla hluti. Kristín er því alin upp á Tindum í hópi sjö systkina en eru nú fjögur þeirra á látin, eftir lifa þau Ásta, Guðrún og Þorlákur. Kristín stundaði nám við Kvenna- skólann á Blönduósi á árunum 1933-1935, undir handleiðslu frú Huldu Stefánsdóttur, en hjá henni lærði hún meðal annars að spila á hljóðfæri, en Kristín var ákaflega músíkölsk og þrátt fyrir tiltölulega lítið tónlistarnám var hún fær að spila á píanó og orgel, og hef ég það fyrir satt að ekki hafi verið til það merki í tónfræði sem hún kunni ekki góð skil á. Hún var organisti í Svínavatnskirkju um nokkurra ára skeið. Um það leyti sem Kristín var á Kvennaskólanum var hún sumar- langt á Þingeyrum. Þann 5. febrúar 1937 giftist Kristín Lárusi Sigurðarsyni sem þá hafði hafið búskap á Hamri í Svína- vatnshreppi. Bjuggu þau þar mynd- arbúi í fimm ár og ræktuðu mikið og byggðu meðal annars steinsteypt íbúðarhús. Árið 1944 kaupa þau Tinda föð- urleifð Kristínar en Siguijón faðir hennar hafði dáið árið áður. Þau Kristín og Lárus eignuðust þijú börn. Þau eru: Siguijón, fæddur 6. september 1937, bóndi á Tindum og oddviti Svínavatnshrepps; Gunn- ar, fæddur 1. janúar 1942, dáinn 10. mars 1948; og Gunnhildur, fædd 22. janúar 1951, búsett á Blönduósi, gift Sigurði Ingþórssyni og eiga þau þijú börn, Lárus, Sigur- jón og Kristínu, sem öll nutu mikill- ar umhyggju og kærleiks ömmu sinnar á Tindum. Kristín og Lárus bjuggu miklu myndarbúi á Tindum. Byggðu al- gerlega upp öll hús af miklum myndarskap og ræktuðu stórt tún. Þau hófu mjólkurframleiðslu strax og farið var að taka á móti mjólk á Blönduósi, sem þau gerðu síðan samhliða stóru sauðfjárbúi og hrossabúskap. Siguijón sonur þeirra hefur búskap með foreldrum sínum strax og unglingsárunum sleppir og hefur búið með móður sinni á Tindum síðan Lárus féll frá árið 1984. Kristín á Tindum var ákaflega sjálfstæð persóna, hafði ákaflega fastmótaðar skoðanir um menn og málefni og lét hvergi sitt eftir liggja þar sem hún kom nærri, hún fylgd- ist alltaf mjög vel með öllu sem fram fór heima og heiman og var mjög fróð og vel heima um marga hluti. Mikil og falslaus vinátta var á milli heimila foreldra minna og Tindahjónanna sem hefur viðhaldist óbreytt við þau kynslóðaskipti sem orðið hafa og vil ég sérstaklega þakka Kristínu fyrir þá hlýju og tryggð sem hún hefur ætíð sýnt mér og minni fjölskyldu. Kristín ræktaði sinn garð af mik- illi trúmennsku bæði í yfirfærðri merkingu og orðsins fyllstu merk- ingu. Hún lagði ætíð metnað sinn í það að Tindaheimilið og allt þess- umhverfi væri sem snyrtilegast og var það hennar verk öðrum fremur hversu alltaf var snyrtilegt og vel til haft heim að líta á Tindum. Myndarlegur tijágarður sunnan- og austan við húsið ber þess glöggt vitni. Hennar síðasta verk í garðin- um var að fá garðinn stækkaðan út yfir þann blett sem gamli bærinn á Tindum stóð og rifinn var fyrir stuttu og plantaði þar tijám. Við það verk var hún síðastliðið sumar er ég kom að Tindum og dáðist ég að þeim mikla krafti sem ennþá bjó í henni þrátt fyrir aldur og var mér hugsað til þess að mér fyndist hún ekkert hafa elst síðan ég man hana fyrst. En tíminn lætur ekki að sér hæða og er ég kom að Tindum nú í byijun þorra frétti ég að hún væri komin á spítala og ekki yrði aftur snúið. Mér var þá litið á stóru þingvíðistrén sunnan við húsið sem hún átti svo sannarlega hveija grein í og sé að þau eru að bytja að laufg- ast. En svo kom frost og brumið kól og allt í einu var allt búið. Krist- ín var horfin frá okkur. Þá fannst mér eins og trén hefðu verið að kveðja fóstru sína með sínum hætti þrátt fyrir árstíma. Kristín verður til grafar borin við hlið Lárusar á Blönduósi í dag, laug- ardaginn 29. febrúar. Að lokum vil ég votta öllum ætt- ingjum og aðstandendum Kristínar samúð mína og segja að allar mínar minningar um hana eru góðar. Þær mun ég geyma en ekki gleyma. Jón Gíslason, Stóra-Búrfelli. í dag, laugardaginn 29. febrúar, er kvödd frá Blönduóskirkju Kristín Siguijónsdóttir húsfreyja á Tindum í Svínavatnshreppi. Hún lést á Hér- aðshælinu á Blönduósi þann 19. febrúar sl. en þar hafði hún dvalið frá því snemma í janúar, heltekin af þeim illræmda sjúkdómi sem svo marga Islendinga leggur að velli. Ekki datt mér í hug, þegar ég hitti hana síðast, glaða og hressa heima á Stóra-Búrfelli um páskana á sl. ári, að við myndum ekki sjást fram- ar, en svona er lífið. Stína, en það var hún alltaf kölluð heima í sveit- inni okkar, var fædd að Tindum 22. apríl 1915 og ólst þar upp með foreldrum sínum, Guðrúnu Erlends- dóttur og Siguijóni Þorlákssyni í hópi 7 systkina, en nú eru aðeins 3 þeirra eftir á lífi. Hún gekk ung í Kvennaskólann á Blönduósi eins og svo margar aðrar húnvetnskar stúlkur bæði fyrr og síðar og fékk þar gott veganesti fyrir lífsstarfið. Þann 5. febrúar 1936 giftist hún Lárusi Sigurðssyni og hófu þau búskap á Hamri í Svínavatnshreppi og bjuggu þar til ársins 1944. Þá fluttu þau að Tindum og tóku við búi af foreldrum Stínu, og bjuggu þar æ síðan, með miklum myndar- brag, enda voru þau hjónin mjög samhent og dugleg. Þau hjónin eignuðust 3 börn, Siguijón bónda á Tindum, en hann er ókvæntur, Gunnar sem lést 6 ára að aldri og Gunnhildi húsfreyju á Blönduósi, en hún er gift Sigurði Ingþórssyni og eiga þau 3 börn. Stína var heimakær kona, hennar staður var fyrst og fremst á heimil- inu þar sem hún vann af miklum dugnaði að velferð þess, bæði utan húss og innan. Hún kom upp falleg- um garði í kringum húsið, sem hún hafði mikla ánægju af og sýndi mér oft þegar ég kom í heimsókn. Mér er Ijúft að minnast hvað alla tíð var góð vinátta milli foreldra minna, Ingibjargar og Gísla á Búrfelli, og þeirra Tindahjóna. Ein af mínum bestu bernskuminningum var þegar mamma fór gangandi með okkur systurnar í heimsókn út að Tindum og var það oftast að vetrarlagi þeg- ar minna var að gera á bæjunum. Frá þessum ferðum man ég helst eftir hvað vel var tekið á móti okk- ur og hvað þær nágrannakonurnar þurftu mikið að tala saman, svo fannst mér alltaf svo fínt í stofunni hjá henni Stínu. Þar var svo mikið af púðum og myndum sem hún hafði sjálf saumað enda mikil hann- yrðakona, þótt varla hafi nú oft gefist mikill tími til slíks á anna- sömu sveitaheimili. Stína var einnig mjög músíkölsk og spilaði á orgel, bæði sér til ánægju og eins þegar mannfagnaðir voru í sveitinni og oregl var á staðnum. Einnig lék hún undir við messusöng í Svínavatns- kirkju um árabil. Ég ætla ekki að rekja æviferil Stínu frekar, það eru aðrir færari um að gera. Heldur aðeins með þessum fátæklegu orð- um að þakka hennar fjölskyldu alla þá tryggð og vináttu sem þau ávallt auðsýndu foreldrum mínum og okk- ur systkinum. 43 Lárus mann sinn missti Stína 14. október 1983 og var það henni að vonum mikið áfall, en ótrauð hélt hún áfram búskapnum með Sigur- jóni syni sínum allt til síðustun ára- móta er hún kenndi síns bana- meins. Að síðustu vil ég votta Sigur jóni, Gunnhildi, Sigurði, barnabörn- um hennar, systkinum og öðrurr vandamönnum mína dýpstu samúc og bið guð að blessa þau. Blessut sé minning Stínu á Tindum og megi hún hvíla í friði. Ásgerður Gísladóttir fr; Stóra-Búrfelli. I dag verður jarðsungin frá Blönduóskirkju föðursystir mín Kristín Siguijónsdóttir frá Tindum í Svínavatnshreppi. Kristín vai fædd 22. apríl árið 1915 en sá dag- ur bar þá upp á sumardaginn fyrsta. Hún hélt æ síðan upp afmælið sitt á sumardaginn fyrsta þó svo að sá dagur bæri víst sjaldnast upp á hinn raunverulega afmælisdag. Þetta var táknrænt fyrir Kristínu þar sem hún beið komu vorsins þegar sól hækkar á lofti og gróðurinn fer að taka við sér. Kristín var þriðja barn af sjö börnum hjónanna frá Tindum, þeirra Guðrúnar Erlendsdóttur og Siguijóns Þorlákssonar, en systkini Kristínar voru Ástríður, sem býr á Selfossi, Erlendur, sem einnig bjó á Selfossi en er nú látinn, Þorlákur faðir minn, sem býr í Reykjavík, Sigrún, sem féll frá aðeins 18 ára gömul, Ingibjörg, sem nú er látin, en hún bjó á Drangsnesi, og yngst er Guðrún, sem býr í Reykjavík. Skólaganga Kristínar var ekki löng, ekki frekar en annarra barna á þeim tíma, sem hún ólst upp á. Auk venjulegrar barnafræðslu í formi farkennslu stundaði hún nám í kvennaskólanum á Blönduósi í bók- legum og verklegum fræðum. Um fermingaraldurinn hóf hún nám í orgelleik. Kristín var um nokkur árabil organisti við Svína- vatnskirkju og fórst henni það vel úr hendi eins og hennar var von og vísa enda var hún músíkölsk. Kristín hafði þá náðargáfu til að bera að geta samið lög og texta og voru lögin hennar oft sungin þegar systkinin frá Tindum komu saman á góðum stundum. Kristín giftist 5. febrúar 1937 Lárusi Sigurðssyni frá Vöglum í Vatnsdal. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau að Hamri í Svínavatns- hreppi en árið 1944 þegar Sigurjón faðir Kristínar fellur frá flytja þau á æskuheimili Kristínar að Tindum og búa þar allan sinn búskap. Lárus fellur frá 14. október 1983 en hann var fæddur 21. apríl 1906. Þeim varð þriggja barna auðið. Elstur er Siguijón, fæddur 1937, en hann býr nú að Tindum og er oddviti sinnar sveitar. Annar í röðinni var Gunn- ar, fæddur 1942, en han lést aðeins 6 ára gamall og var hann þeim hjón- um svo og öllum ættingjum mikill harmdauði. Yngst er Gunnhildur, fædd 1951, og er hún gift Sigurði Ingþórssyni og búa þau á Blöndu- ósi og eiga þau 3 börn, Lárus, Sig- uijón og Kristínu Rós. Barnabörnin voru þeim hjónum Kristínu og Lár- usi einkar kær og voru börnin hjá þeim öllum stundum, enda er stutt og greiðfær leið frá Blönduósi að Tindum. Það var gaman að koma heim að Tindum, enda tóku Kristín og Lárus vel á móti öllum gestum og gangandi. Bar Kristín jafnan mikla umhyggju fyrir systkinum sínum og afkomendum þeirra. Þau er nú orðin mörg börnin, sem voru sumar- langt hjá þeim hjónum Kristínu og Lárusi og víst er að í dag hvarflar hugur þeirra heim að Tindum á útfarardagi Stínu, eins og hún var ávallt kölluð. Ég, foreldrar mínir og systkini kveðjum Kristínu Sigur- jónsdóttur frá Tindum með virðingu og þökk. Ég sendi Siguijóni og Gunnhildi mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fýlgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Sigrún Þorláksdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.