Morgunblaðið - 29.02.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRUAR 1992
11
DRAUMURINN,
FRUMSKÓGUR-
INN OG DÝRIN
_________Leiklist___________
Súsanna Svavarsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur — Borg-
arleikhús. Þrúgur reiðinnar.
Höfundur: John Steinbeck. Leik-
gerð: Frank Galat. Leikstjórn:
Kjartan Ragnarsson. Leikmynd:
Oskar Jónasson. Búningar: Stef-
anía Adolfsdóttir. Tónlist: KK.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Leikurinn hefst þar sem Joad-
fjölskyldan situr nánast ferðbúin á
býli sínu í Oklahoma, búin að tapa
öllu sínu til bankans eins og velflest-
ar búandfjölskyldur í fylkinu. En
eins og títt er með þá sem hafa
verið rúnir eignum og ærum og
skilja ekki hvernig það vildi til, sitja
þau bara og reyna að láta eins og
hlutirnir séu ekki að gerast. Þau
eiga erfitt að með að hysja sér af
stað — til Kaliforníu — drauma-
landsins.
Það er ekki fyrr en sonur þeirra,
Tommi, kemur úr fjögurra ára
fangelsisvist, ásamt Jim Casy, fyrr-
verandi presti að, fjölskyldan tínir
saman sínar fátæklegu eigur og
heldur í vestur: Þrettán manns á
einum skijóði, Jim og Tommi, pabbi
Joad, mamma Joad, amma Joad,
afi Joad, Nonni frændi, Rósin af
Saron, Konni Rivers, Alli Joad, Nói
Joad, Rut Joad og Vinfeld Joad.
Þótt ferðalagið spanni 2.000 míl-
ur yfir fjöll og firnindi, eyðimerkur
og skóga, er fjölskyldán bjartsýn.
Fyrirheitna landið bíður, með smjör
drjúpandi af hveiju strái, endalausa
vinnu og peninga. Þau ætla að vera
dugleg að vinna, kaupa sér land;
byija upp á nýtt.
Einstaklingarnir innan fjölskyld-
unnar eru missterkir og á leiðinni
byijar hún að grisjast. A vegi henn-
ar verða flakkarar sem reyna að
vekja fjölskylduna upp af draumin-
um um betra líf. Það er ekkert betra
líf, eiginlega eru skilaboðin þau að
lengi geti vont versnað. En til einsk-
is. Draumarnir eru öllum veruleika
yfirsterkari og fjölskyldan stendur
saman um varðveislu þeirra.
Víst drýpur smjör af hveiju strái
í Kaliforníu, en það er bara í einka-
eign og víst er næg vinna, en það
eru bara tífalt of margir um hana.
í Kaliforníu verður þetta ærurúna
fólk að flækingum. Þeir þvælast
um í tugþúsundum eins og engi-
sprettufaraldur, festa niður tjöld sín
á hveijum þeim bletti sem þeir halda
að feli í sér von.
Það er sagt að maðurinn sæki
sjálfsvirðingu í vinnu, en í verki
Reykjavík-
urhátíð í
Kolaportinu
REYKJAVíKURBORG stendur
fyrir margvíslegum hátiðarhöld-
um í miðbænum, í dag, laugar-
daginn 29. febrúar og Kolaportið
mun taka virkan þátt í þessum
hátíðarhöldum í tilefni af eitt
hundrað þúsundasta Reykvík-
ingnum.
í Kolaportinu verða yfir eitt
hundrað söluaðilar með ýmsar upp-
ákomur og sértilboð í tilefni dags-
ins. Von er á mörgum góðum gest-
um og Kolaportið mun skarta sínu
fegursta.
Ef veður leyfir munu allt að
1.000 helíum blöðrur blakta yfir
Kolaportinu og verða þær gefnar
hátíðargestum í lok dagsins.
Kolaportið er opið á laugardögum
kl. 10-16 og nú einnig á sunnudög-
um kl. 11-17.
Steinbecks er það ekki spurning um
vinnu, heldur mat. Sá sem ekki fær
að borða, er til í að skríða fyrir
hunda og manna fótum í von um
matarbita, mennskan verður einskis
virði og í samfélagi þar sem tugir
þúsunda berjast um vinnuna til að
fá matarbita, er engin samkennd
eða samstaða, dýrseðlið verður öllu
öðru yfirsterkara — en samt er
reynt að halda í lífíð.
Það er Tommi sem er hreyfiafi
sögunnar. Hann ýtir fjölskyldunni
áfram, hefur trú á hnefaréttinum
þrátt fyrir slæma reynslu og sú trú
kemur honum í koll. Með hlutverk
Tomma fer Þröstur Leó Gunnarsson
leikur þennan baráttumann sein
ætlar að komast af hvað sem taut-
ar, er á skilorði og má ekki fara
út fyrir Oklahoma, en gerir það
samt. Um leið og hann kemur til
Kaliforníu er hann lagður á flótta
og miðað við aðstæður er það óskilj-
anlegt. í fangelsinu hafði hann mat
og tóbak — í Kaliforníu ekkert.
Þröstur leikur þennan kvika, unga
mann frábærlega. Óróleikinn og
spennan eru í hveijum drætti, hverri
hreyfingu. Tommi hugsar ekki,
heldur bregst við aðstæðum og
framkvæmir. En það er einmitt
vegna þess eiginleika sem maður
er þess fullviss að hann kemst af
í frumskógi Kaliforníu. Mér finnst
vera langt síðan Þröstur Leó hefur
verið í bitastæðu hlutverki, sem er
óskiljanlegt og það er vonandi að
við leikhúsgestir fáum tækifæri til
að sjá hann fylgja frammistöðu
sinni í hlutverki Tomma eftir.
Pétur Einarsson leikur pabba
Joad, föðurinn sem þarf að horfast
í augu við fjölskyldu sína eftir að
hafa tapað grundvelli hennar, af-
komu og öryggi. Allt þar til fjöl-
skyldan yfirgefur býlið, nær hann
þó að þykjast vera höfuð fjölskyld-
unnar. Strax utan girðingar hefur
hann tapað fótfestunni og einblínir
á drauminn til að geta endurheimt
sjálfsvirðingu sína. Ég man ekki
eftir að hafa séð Pétur í svo drama-
tísku hlutverki frá því hann kom
aftur á sviðið, eftir að hafa verið
'skólastjóri Leiklistarskólans — en
það er alveg augljóst að einmitt í
þessari dramatík njóta hæfileikar
hans sín til hins ýlrasta; allt frá
því að vera leikandi léttur þegar
Tommi kemur heim, til þess að
vera hrakinn og hijáður við þrösk-
uld sinnuleysisins, þegar fjölskyld-
an hefur tvístrast og restin — börn
og örþreytt eldra fólkið — er skrið-
ið inn í hlöðu til að láta fyrirberast
í eina nótt.
Verð frá: 969.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 — 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
E) í
Mamma Joad er í höndum Hönnu
Maríu Karlsdóttur. Mamma trúir
því að allt gangi vel, aðeins ef fjöl-
skyldan heldur saman; í upphafi sex
hraustir karlmenn til að vinna fyrir
henni, og í þá trú rígheldur hún
sama á hvetju gengur; jafnvel þótt
enga vinnu sé að fá og málið snú-
ist um sex fullorðna karlmenn til
að fæða. En synirnir og tengdason-
urinn smáreytast utan af ijölskyld-
unni og þeir tveir sem eftir eru,
pabbi Joad og Nonni bróðir hans,
hafa misst lífsviljann. Hún verður
því smám saman höfuð fjölskyld-
unnar, rekin áfram af voninni um
að sjá synina aftur. Hún ætlar að
komast af, en til hvers? Það er
óskiljanlegt. Hanna María leikur
þessa veikbyggðu, viljasterku konu
mjög vel, bugaða en of stolta til
að brotna og svo mennska að þrátt
fyrir algerra örbirgð er hún aldrei
of fátæk til að bjarga mannslífi og
gefa seinasta mjólkurdropa fjöl-
skyldunnar.
Sigríður Hagalín og Steindór
Hjörleifsson leika ömmu og afa
Joad, óaðfinnanlega; ótrúlega ólík
hjón. Hann, gamli graðnaglinn, og
hún jesúsar sig stöðugt. Þau hafa
svo greinilega ekki lifað niðurlæg-
inguna sem fjölskyldan er komin í
og eiga því til að bregða á leik.
En þau geta aðeins lifað af í sínu
verndaða umhverfi — utan þess
fjarar líf þeirra út og þar með lífs-
neisti fjölskyldunnar.
Rósin af Saron, systir Joad
bræðranna, er í höndum Þóreyjar
Sigþórsdóttur. Þórey virtist frémur
óörugg í hlutverkinu; flutti það
fremur en lék • það. Hreyfingar
hennar voru of heftar og raddbeit-
ing einhæf. Þótt í textanum komi
fram að hún sé hálfgerð dekurrófa
og nafnið bendi til þess að hún
skipi sérstakan sess í fjölskyldunni,
fylgdi Þórey þessu ekki eftir í leikn-
um. Hana skorti öryggi þess sem
veit að hún nýtur aðdáunar vegna
útlits og þótta þess sem reynir allt-
af að koma sér hjá öllum verkum.
. Sigurður Karlsson fer með hlut-
verk Nonna frænda. Aumingja
Nonna, sem finnst hann hafa drep-
ið konu sína og er vanhæfur til að
komast af, af sjálfsdáðum, vegna
rótgróins samviskubits yfir því að
vera til. Sigurður vann hlutverkið
vel; maðurinn sem hefur verið bar-
inn niður eins og rakki og er orðinn
ófær um að bera ábyrgð á sjálfum
sér, svipbrigðalaus og hræddur við
að sjást og heyrast.
Bræðurna Alla og Nóa léku þeir
Stefán Jónsson og Ólafur Guð-
mundsson og skiluðu sínu ágæt-
lega. Það sama má segja um Magn-
ús Jónsson, sem lék Konna, eigin-
mann Rósarinnar. Og þá voru börn-
in í sýningunni, Jóna Þorsteinsdótt-
ir og Elís Pétursson ekki til að
skemma fyrir; einlæg og hispurs-
laus.
Valdimar Örn Flygenring lék
uppgjafarprestinn Jim Casy. Jim
er maðurinn sem hugsar og hugsar
en er lítill framkvæmdamaður, þar
til hann er neyddur til að standa
fyrir átökum. Valdimar virtist dálít-
ið hikandi í fyrri hlutanum, enda
hlutverkið dálítið óljóst þar sem
Jim, hugsuðurinn og mælskumað-
urinn, með lítinn texta og litla
hreyfingu, en í seinni hlutanum
náði Valdimar sér á strik og sam-
leikur hans og Þrastar Leó var með
ágætum.
í ýmsum hlutverkum voru Theód-
ór Júlíusson, Jón Hjartarson, Jón
Júlíussón, Karl Guðmundsson, Jak-
ob Þór Einarsson, Ari Matthíasson,
Valgerður Dan, Ragnheiður
Tryggvadóttir, Soffía Jakobsdóttir,
Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Orri
Ágústsson, Björn Gunnlaugsson,
Hafsteinn Halidórsson, Ivar Þór-
hallsson, Karl Kristjánsson og Þor-
leifur Guðjónsson. Öll voru þessi
hlutverk vel unnin, en þó er ástæða
til að hrósa þeim Ara, Karli, Ragn-
heiði, Valgerði og Soffíu fyrir sér-
lega vel unnin smáhlutverk.
Punkturinn yfir i-ið í sýningunni
er tónlistin. Hún er frábær! Hún
fellur fullkomlega að verkinu og er
einstaklega vel flutt af Kristjáni
Kristjánssyni. Hlutur hans er mjög
vel ofinn inn í sýninguna og það
er langt frá því að vera truflandi
að hafa hann á sviðinu. Bæði leik-
mynd og búningar falla einstaklega
vel að verkinu; það er allt litlaust
og brotið og undirstrikar vonlausa
tilveru.
Leikstjórnin er nokkuð markviss
og þétt. Á stöku stað er sýningin
dálítið hæg, sérstaklega í fyrri hlut-
anum, þannig að ferðalag fjölskyld-
unnar sem er í rauninni tragískt,
jaðraði við að vera fyndið. Maður
var því í einhverja stund að ná sam-
bandi við þann harm sem var að
gerast. í heildina er þetta þó mjög
góð sýning og virkileg lyftistöng
fyrir leikárið hjá Leikfélagi Reykja-
víkur.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
VETRARTILBOÐ Á KULDASKÓM
Vérð Jkr. 3.995,-
Litur. Brúnn
Stærðir: 41 -46
Sóli: Grófur og stamur
Litur: Brúnn
Stærðir: 40-46
Sóli: Grófur og stamur
Ath.: Einnig mikið úrval afýmsum gerðum af kuldaskóm
frá CAMEL, SALAMANDER o.fl.
Póstsendum samdægurs -5% stabgreibsluafslóttur.
Kringlunni 8-12, simi 689212.