Morgunblaðið - 29.02.1992, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
T3
Kammersveitin
________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Kammersveit Reykjavíkur stóð
fyrir skemmtilegum tónleikum á
Kjarvalsstöðum sl. fimmtudag. Á
efnisskránni voru verk eftir Boh-
uslav Martinu, Pál P. Pálsson og
Luciano Berio. Einsöngvari var
Rannveig Bragadóttir en stjórn-
endur Páll P. Pálsson og Bern-
hard Wilkinson.
Tónleikarnir hófust á nonett
fyrir blásarakvintett og fjóra
strengi eftir Martinu en þetta
skemmtilega verk var fyrst flutt
1959 og stendur að nokkru á
skjön við þá tilraunastarfsemi í
tónsmíði, sem þá stóð í miklum
blóma. Tónmál verksins er tónteg-
undabundið og það nýtískulegasta
við það er stöku samskipan sam-
settra hljóma. Það er mjög vel
ritað fyrir hjóðfærin, svo þau á
köflum blómstra, eins t.d. hornið,
sem glampaði fallega á hjá Ogni-
bene. Verkið var mjög vel Ieikið
en miðþátturinn, „Andante“, sem
er á köflum áhrifamikil tónsmíð,
var þó sérlega vel leikinn. Auk
menningarverðlaunahafanna í ár,
Blásarakvintetts ' Reykjavíkur,
léku á' strengi Rut Ingólfsdóttir,
Graham Tagg, Bryndís Halla
Gylfadóttir og Richard Korn.
Eftir Pál P. Pálsson var flutt
söngverkið Morgen, sem er samið
fyrir mezzosópran, strengjakvart-
ett, flautu, óbó, klarinett og píanó.
Flytjendur voru Bernhard Wilkin-
son, Kristján Þ. Stephensen, Einar
Jóhannesson, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir og Reykjavíkur-
kvartettinn, sem í eru Rut Ingólfs-
dóttir, Zbigniew Dubik, Guð-
mundur Kristmundsson og Inga
Rannveig Bragadóttir
Rós Ingólfsdóttir. Einsöngvari var
Rannveig Bragadóttir en höfund-
ur stjórnaði. Verkið er tíu ára
gamalt og í því má heyra bæði
nýtt og gamalt, vel gerðan
stengjaþátt og skemmtileg blæ-
brigði, en það er sérstaklega við
seinna erindi ljóðsins (eftir John
Henry Mackey), sem Páll nær að
túlka efni ljóðsins á mjög sann-
færandi máta. Rannveig söng
verkið fallega og var flutningur-
inn í heild góður.
Blásarakvintett Reykjavíkur,
en þar leika Bernhard Wilkinson,
Daði Kolbeinsson, Einar Jóhann-
esson, Joseph Ognibene og Haf-
steinn Guðmundsson, fluttu gam-
ansamt verk eftir Berio. Auk þess
að leika á hljóðfærin skiptust fé-
lagarnir á að lesa upp eins konar
fjarstæðu-barnakveðskap um ref
og hænu á hlöðuballi, hindarkálf
sem hugleiðir tilgangslaust stríðs-
brölt mannanna, gamla mús, sem
varar þær yngri við áramótagleð-
inni og kettina Bartolomeus og
Ómár, sem reyttir og rifnir eftir
slagsmál laumast heim til sín.
Þetta er eins konar grín upp á
alvöruna, sem einkennir flesta
tónleika og er ágætt skemmtiat-
riði, sérstaklega þegar um jafn
vandaðan flutning er að ræða og
hjá félögunum í Blásarakvintett
Reykjavíkur.
Lokaviðfangsefni tónleikanna
var verk eftir Berio, sem hann
kallar Folk songs, ritað fyrir
mezzosópran, flautu, klarinett,
slagverk, hörpu, víólu og selló.
Flytjendur auk Rannveigar
Bragadóttur og stjórnandans,
Bernhards Wilkinson, voru Mart-
ial Nardeau, Einar Jóhannesson,
Eggert Pálsson, Steef van Ooster-
hout, Elísabet Waage, Graham
Tagg og Bryndís Halla Gylfadótt-
ir. Um er að ræða dægur- og þjóð-
lög, sem Berio rammar inn í hljóð-
færabúning. Tvö lögin eru þó eft-
ir Berio, og eru það bestu þættir
verksins. Notkun hljóðfæranna er
að nokkru hugsuð sem blæundir-
strikun en minná gert af því sem
heitir að hljómsetja lögin, nema
þá helst í því síðasta, sem er sér-
lega skemmtilega útfært. Margt
er þarna fallega gert en mest
mæðir þó á söngvaranum og í
flutningi þessara sjarmerandi laga
náði Rannveig Bragadóttir oft að
túlka þau á einkar sannfærandi
máta.
Teikningin af Erik Sönderholm,
sem var stolið.
SýningTi
Braga As-
geirssonar
að ljúka
SÝNINGU Braga Ásgeirssonar í
FÍM-salnum á módelteikningum
og málverkum fer senn að ljúka.
Teikningarnar eru flestar frá
námsárum Braga í Ósló, Róm og
Miinchen á árunum 1953 til 1959.
Fæstar myndanna hafa áður verið
sýndar.
Seinasti sýningardagur er sunnu-
daginn 1. mars. Opið er frá kl. 14
til 18 alla daga.
Hér með þessari frétt birtist
mynd af Erik Sönderholm, fyrrver-
andi forstjóra Norræna hússins eft-
ir Braga Ásgeirssson. Hún er mun
nýlegri en þær myndir, sem eru á
sýningunni, en var í innrömmum
um leið og hinar teikningarnar. Því
lenti hún í samfloti í sýningarsal
FÍM og láðist Braga að taka mynd-
ina með heim, enda nóg að gera
við undirbúning sýningarinnar, er
hún opnaði. Um nóttina var brotist
inn og þremur myndum eftir Braga
stolið, m.a. þessari mynd af Erik
Sönderholm.
Myndina hafði Bragi gefið ekkju
Eriks á sínum tíma og hugðist fara
með hana innrammaða til Kaup-
mannahafnar fljótlega.
Bragi segir um þennan verknað:
„Það er von mín að þjófurinn eða
þjófarnir sjái að sér og skili mynd-
unum, því að listaverkaþjófnaður
er enn sem komið er lítið arðbær á
íslandi, og auk þess kemur tapið
sér mjög illa fyrir alla aðila er fyr-
ir því urðu, en fleiri myndir hurfu
um leið eftir aðra listamenn eða
sennilega 15 myndir alls.“
Erik Sönderholm og eiginkona
hans söfnuðu myndum eftir Braga
frá því að hann hélt sína fyrstu
sýningu árið 1955 og áttu stærsta
einkasafn mynd hans.
F J Ö L D I
MSD EFTIRfílRAMDI SÉRBÚRABI:
□ Stuðarar, vatnskassahlíf, hliðarlistar, hurðahandföng og útispeglar,
allt í sama lit og yfirbyggingin
□ Heilir hjólkoppar □ Rafstýrðir og rafhitaðir útispeglar □ Vindkljúfur á framstuðara
□ Sætaáklæði /gólfteppi - ný gerð □ Vindkljúfur að aftan (Lancer stallbakur og Colt)
□ Sportstýrishjól
MITSUBISHI LANCER stallbakur-EXE MITSUBISHI LANCER hlaðbakur-EXE
A
MITSUBISHI
MOTORS
A
MITSUBISHI
MOTORS
MITSUBISHI COLT-EXE
ALLIfí MED 12 VENTLA HREYFIL MEÐ FJÖLINNSPHAUTUN
ALLIfí MED AFLSTÝRI - ALLIfí MEÐ HVARFAKÚT
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGD
HVARFAKÚTUR
MINNI MENGUN
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI695500