Morgunblaðið - 29.02.1992, Síða 22
saai 5Ia'7m:í'‘! .es íiUDAmiADUAjMm.imoDmM
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 1992
Af bandormi og öðrum ormum
eftir Helga Seljan
Margt og mikið hefur að undan-
förnu verið um þann makalausa
orm, bandorminn, skrifað og skraf-
að. Ekki ætla ég að fara út í al-
menna umræðu um orm þennan,
en aðeins tæpa á einum lið sem
varðar tekjutengingu lífeyris.
Á valdatíma fyrri ríkisstjómar
átti ég sæti í nefnd sem vann að
heildarendurskoðun tryggingalaga.
Þáverandi tryggingaráðherra, Guð-
mundur Bjamason, setti nefndinni
þann ramma í vinnu sinni að endur-
skoðun þessari, að þegar upp væri
staðið yrðu heildarútgjöld til mála-
flokksins áþekk, þannig að um jöfn-
unaraðgerðir yrði að ræða innan
kerfisins.
Þeim sem hér heldur á penna og
hlaut að eiga það hlutverk helzt að
reyna að þoka fram réttarbótum
og nýmælum var auðvitað ljóst, að
svigrúm yrði til þess takmarkað,
svo og að einhveijir yrðu í ein-
hverju að gjalda, ef þeim lakast
settu yrði fengin réttarbót. Aðstað-
an var því allörðug. Eitt af því sem
inn í umræðuna kom var aðskilnað-
ur ellilífeyris og örorkulífeyris
þannig að örorkulífeyrir hefði
nokkra sérstöðu af þeirri einföldu
ástæðu, að blessunarlega er eldra
fólk, sem hefur verið við þokkalega
starfsheilsu á ævigöngunni, ærið
betur sett — einkum eignalega —
en sá sem hefur fatlast innan við
ævigöngu miðja, að ekki sé nú talað
um fötlun frá fæðingu.
Þetta sjónarmið fékk fylgi og
bótatölur þess fmmvarps, sem full-
búið var, endurspegla þennan vilja
nefndarmanna, þó ekki væri í þeim
mæli er ég hefði viljað sjá. Það var
hugað að ýmsum verulegum réttar-
bótum og m.a. var mjög rætt um
umönnunarbætur til þerira sem
sinntu fullorðnum fötluðum og öldr-
uðum og með frumvarpinu var stig-
ið stórt skref í þá átt. Hér er um
margþætt mál að ræða, þar sem
hagsmunir og heill einstaklinga
fara ágætlega saman við samfé-
lagslega hagsmuni, og raunar er
trúa mín sú að til lengri tíma litið
sé hér um einkar athyglisverða
spamaðartiliögur að ræða í okkar
annars dýra heilbrigðis- og trygg-
ingakerfi, þar sem allt er betra en
innlögn á sjúkra- eða hjúkrunar-
stofnun, bæði hvað varðar kostnað
og velferð einstaklingsins.
Ég ætla ekki að tíunda hin mörgu
mikilvægu nýmæli og réttarbætur
frumvarps þessa, en minni rétt á
öryrkjavinnuna, sem örvuð var sem
allra mest öllum til hagsbóta í stað
þess vafasama kerfis, sem nú er í
gildi. Það eitt var ljóst, og vonandi
ekki umdeilt, að í ijölmörgum grein-
um var gengið fram á veg. En ein-
hvers staðar varð að fá féð til um-
bótanna, fyrst ekki mátti auka
heildarútgjöldin. Og þá var að tekj-
utengingunni komið. Nú leyni ég
því ekki að ég gerði fyrirvara í
nefndaráliti um upphæðir þær sem
miða átti við, þ.e. þar sem skerðing
skyldi byija.
Þegar verið er að taka á slíku
umdeildu grundvallaratriði þá þarf
að gæta þess að aðgerðin hafi ekki
í för með sér raunverulega afkomu-
skerðingu hjá fólki. Þess vegna
skiptir svo miklu að tekjumörk séu
allrúm, þegar skerðing hefst. Það
var ekki nægilega hugað að því í
frumvarpinu í fyrra og alveg hið
sama var uppi á teningnum nú.
Bæði þá og nú var á því klifað að
ef hærra yrði farið í tekjumörkum
„Hins vegar lýsti Ör-
yrkjabandalagið sig
reiðubúið til umræðu
um jöfnunaraðgerðir
innan tryggingakerfis-
ins, þ.m.t. tekjuteng-
ingu grunnlífeyris, ef
tilteknum skilyrðum
yrði fullnægt, svo sem
réttlátari skattlagningu
í samfélaginu og nýjum
sem og auknum réttar-
bótum í tryggingalög-
gjöfinni.“
næðist svo lítið inn — það tæki því
varla að vera að krukka í þetta
með þeim hætti, það skilaði svo litlu.
Út af fyrir sig er það rétt, en það
sem rétt er í þeim efnum þarf ekki
að vera réttlátt.
Það var svo eftir öðru nú að í
sama mund og bandormur skerð-
inganna skreið í gegnum þingið,
skreið annar ormur og ófrýnilegri
upp á yfirborðið og gaf bandorms-
Helgi Seljan
feðrum langt ormsnef og allri þjóð-
inni um leið. Ljósari sönnun um
alvarlegar veilur skattkerfís okkar
var ekki unnt að fá, því allt var
löglega blúndulagt í bak og fyrir.
Og enn var það eftir öðru að upp-
hæðimar voru ískyggilega ámóta
sem ormunum fylgdu og var þó
eðli þeirra gizka ólíkt, þar sem ann-
arri fylgdu vemleg vandamál og
þrengingar, en hinni aukin auðsæld
ein.
r ■ ■
Aðdáendur ESCORT og ORION geta verðið stoltir
af 1992 línunni frá Ford.
Ný og glæsileg hönnun, stærri hurðir, gott
útsýni,sportlegt útlit, meira innra rými og frábær
aðstaða ökumanns og farþega.
ESCORT og ORION eru verðugir fulltrúar þýskrar
gæðaframleiðslu.
Verðið er ótrúlegt: Frá kr. 871,000,-
* Verð miðað víð gengi í febrúar og án skráningar og ryðvamar.
Hefur þú ekið Ford - nýlega
FRUMSYNINC
Laugardag frá kl: 10-17, sunnudagfrá kl: 13-17
ESCORT
5 dyra, hlaðbakur.
M)l$Acl